Fréttablaðið - 22.08.2003, Blaðsíða 22
23FÖSTUDAGUR 22. ágúst 2003
■ Tilkynningar
Ári eftir að Alþjóðaráð Rauðakrossins var stofnað í Genf
komu saman stjórarerindrekar
frá helstu ríkjum heimsins og
sömdu fyrsta Genfarsamning-
inn,“ segir Þórir Guðmundsson,
upplýsingafulltrúi Rauða kross-
ins. „Við erum með ýmsa hluti í
gangi á Íslandi hvað varðar Gen-
farsamningana. Meðal annars er
Rauði krossinn og utanríkisráðu-
neytið að þýða Genfarsamning-
ana á íslensku. Við gerum fast-
lega ráð fyrir að þeir geti komið
út á afmælisári Rauða krossins
en í ár eru 140 ár frá stofnun
samtakanna.“
Að sögn Þóris hefur mikið
verið talað um Genfarsamning-
ana undanfarið og hefur mikil-
vægi þeirra verið dregið í efa.
Hann er ósammála gagnrýninni
og segir samningana skipta
miklu máli. Meðal annars hafi
þúsundir manna verið sendar af
Rauða krossinum til að heim-
sækja stríðsfanga víðsvegar um
heim fyrir tilstuðlan Genfar-
samninganna. Fjölmargir hafa
t.a.m. verið sendir til að heim-
sækja grunaða hryðjuverka-
menn í fangelsið í Guantanamo
Bay á Kúbu.
Þórir segir að mikil starfsemi
sé í gangi hérna heima hjá
Rauða krossinum og einnig sé
talsvert af sendifulltrúm erlend-
is við hjálparstörf. „Ástandið í
Írak er mjög skuggalegt. Það er
víða orðið mun hættulegra en
áður fyrir hjálparstarfsmenn að
sinna sínu starfi og þegar hafa
tveir menn frá Rauða krossinum
fallið í Írak. Annars er okkar
mesta áhersla á alþjóðlega vísu á
sunnanverða Afríku og alnæmis-
vandamálið þar.“ ■
RÚMENÍA GLEYPT
Árið 1944 braut sovéski herinn undir sig
Rúmeníu, þar sem fasistastjórn hafði verið
við lýði í fjögur ár. Réttborinn konungur
Rúmeníu, Mikael, féllst á að afhenda Sov-
étríkjunum yfirstjórn landsins.
Fréttablaðið býður lesendum að senda
inn tilkynningar um dánarfregnir, jarða-
rfarir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tek-
ið er á móti tilkynningum á tölvupóst-
fangið: tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að vera
ítarlegar og helst tæmandi.
??? Hver?
„Ég er ævintýramaður.“
??? Hvar?
„Ég er staddur á Reykjavíkurhöfn.“
??? Hvaðan?
„Frá Ísafirði.“
??? Hvað?
„Ég er að fara í Sjálfsbjörg og ná í kortin
sem ég hef með mér í túrinn.“
??? Hvernig?
„Ég ræ þangað til ég get ekki meira og
sofna ef ég get.“
??? Hvers vegna?
„Ég er að reyna sjálfan mig og láta gott
af mér leiða í leiðinni.“
??? Hvenær?
„Ég fer af stað klukkan þrjú. Ég veit ekki
hvenær ég kem aftur.“
KJARTAN JAKOB HAUKSSON
Hóf í gær ferð sína á árabáti umhverfis
landið. Ferðin er tileinkuð hreyfihömluðum
og ferðalögum þeirra.
■ Persónan
1770 Kapteinn James Cook nemur land
í Ástralíu og eignar sér landið fyrir
hönd bresku krúnunnar.
1865 William Sheppard frá New York
fær einkaleyfi fyrir fljótandi sápu.
1932 Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur
sjónvarpsútsendingar í tilrauna-
skyni á Englandi.
1951 Mesti áhorfendafjöldi til þessa til
að horfa á körfuboltaleik. 75.000
manns fylgist með leik Harlem
Globetrotters á Ólympíuleikvang-
inum í Berlín.
1987 Lagið Who’s
that Girl með
Madonnu
kemst á topp
bandaríska
smáskífulist-
ans.
■ 22. ágúst
ÞÓRIR GUÐMUNDSSON
Segir að það sé hættulegra en áður fyrir
hjálparstarfsmenn að sinna starfi sínu.
22. ágúst 1864
GENFARSAMNINGARNIR
■ voru undirritaðir á þessum degi fyrir
139 árum. Samningarnir, sem eru alþjóð-
legir mannréttindasáttmálar, eru ná-
tengdir sögu Rauða krossins.
Genfarsamningarnir þýddir á íslensku