Fréttablaðið - 22.08.2003, Qupperneq 33
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík,Ýs. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ TÓNLIST
12.00 Salonhljómsveitin L’amour
fou leikur skemmtitónlist í anda 3. og 4.
áratugar síðustu aldar, argentíska tangóa
og kvikmyndatónlist, ásamt vel þekktum
íslenskum dægurlögum á tangóhádegi í
Ketilhúsinu á Akureyri. Hljómsveitina
skipa Hrafnhildur Atladóttir, fiðla, Guð-
rún Hrund Harðardóttir, víóla, Hrafnkell
Orri Egilsson, selló, Gunnlaugur T. Stef-
ánsson, kontrabassi og Tinna Þorsteins-
dóttir, píanó.
20.00 Sumaróperan sýnir Krýn-
ingu Poppeu á nýja sviði Borgarleik-
hússins. Í aðalhlutverkum eru Valgerð-
ur Guðnadóttir og Hrólfur Sæmunds-
son, Nanna Hovmand frá Danmörku
og breski kontratenórinn Owen Wil-
letts.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Sýningin Light Nights er flutt
í Iðnó á ensku.
Vegna fjölda áskoranna er aukasýn-
ing í Iðnó á verki hins Lifandi leikhúss,
PENTAGON. Verkið samanstendur af
fimm einþáttungum eftir fimm ung
skáld, fjögur íslensk og eitt ástralskt.
■ ■ SKEMMTANIR
20.30 Unglingaball í íþrótta-
húsinu í Hveragerði með tveimur
hljómsveitum, Á móti sól og Búdrýg-
indi.
22.00 Árni Scheving og hljómsveit
djassa í Listaskálanum í Hveragerði
ásamt Ragnheiði Gröndal söngkonu.
23.00 Hljómsveitin Worm is Green
spilar á Grand Rokk.
Stuðmenn skemmta á Players í
Kópavogi.
Bobby K. á Laugavegi 22.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir
á Ara í Ögri.
Hermann Ingi jr. skemmtir gestum á
Búálfinum í Hólagarði.
Rokkararnir í Kung fú sjá um að
halda uppi stuðinu á Gauknum.
34 22. ágúst 2003 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
ÁGÚST
Sunnudagur E
inungis fjórar sýningar eru
eftir á Light Nights sýningun-
um í Iðnó, sem leiknar eru á ensku
og einkum ætlaðar ferðamönnum.
„Þetta er 33ja sumarið sem ég
set upp Light Nights í Reykjavík,“
segir Kristín G. Magnús, leikkona
og leikstjóri. Hún tekur samt
fram að á hverju sumri sé ný sýn-
ing sett upp, og jafnan miklu
breytt frá árinu áður.
„Við höldum því sem vel gefst
og komum alltaf með eitthvað
nýtt.“
Sýningin í ár er að stórum
hluta byggð á íslenskum þjóðsög-
um fyrir hlé, en eftir hlé er fjallað
um víkingatímann.
Fimm leikarar og dansarar
taka þátt í sýningunni. Margir
hafa lagt hönd á plóginn við að
semja efni og þýða. Tónlist er
meðal annars eftir Hilmar Örn
Hilmarsson og Atla Heimi Sveins-
son.
„Fyrstu árin byggðust sýning-
arnar einkum á því að við Ævar
Kvaran lásum og lásum, en núna
hef ég verið að setja þetta upp á
leikrænni hátt og lagt mikið í
hverja uppfærslu.“ ■
■ LEIKLIST
■ MYNDLIST
Björtum nóttum fækkar
Hinn eini sanni Rúnar Júlíusson
ásamt hljómsveit skemmtir gestum
Kringlukráarinnar.
Hljómsveitin Í svörtum fötum spilar
á Sjallanum á Akureyri.
Dansveitin SÍN leikur á Gunnukaffi
á Hvammstanga.
Syngjandi disco 80’s dansgleði með
Johnny dee í Leikhúskjallaranum.
Gunnar Óla og Einar Ágúst úr
Skítamóral trúbadúrast á HM Kaffi á
Selfossi.
DJ Mative heldur uppi partístemn-
ingu á Vídalín.
Ice-Rave rokkar á Laugavegi 11.
■ ■ SÝNINGARLOK
Sýningu Víðis I. Þrastarsonar á Kaffi
Solon lýkur í dag. Verkin eru í draum-
kenndum stemningarstíl, og er yfirskrift
sýningarinnar „Minning“.
■ ■ SÝNINGAR
Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir málverk
og skúlptúra í Japis á Laugaveginum.
Sýningin ber heitið Litli prinsinn og er
hún saga um stóra karlmanninn í litla
ríkinu. Honum finnst gott að hvíla sig en
dreymir um að dansa um bæinn. Sýn-
ingin stendur til 16. september.
Danski myndlistarmaðurinn Claus
Hugo Nielsen sýnir verk sín í Gallerí
Dvergi við Grundarstíg 21, 101 Reykja-
vík. Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 17-19 til 31. ágúst.
Guðrún Benónýsdóttir sýnir ljós-
mynd og skúlptúra í Gallerí Hlemmi.
Sýningin stendur til 31. ágúst.
Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir eru með myndlistarsýningu í
Bögglageymslunni, Listagilinu á Akur-
eyri. Opið virka daga 17-22 og um helg-
ar 14-18. Sýningin stendur til 1. septem-
ber.
Kristján Guðmundsson er með sýn-
ingu í Kompunni, Kaupvangsstræti 23.
Akureyri. Á sýningunni er eitt verk gert
úr plasti og gulli. Einnig verður til sýnis
og sölu bókverkið (DOKTORSRITGERÐ)
eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og Kristján,
sem kom út fyrr á þessu ári. Sýning
Kristjáns er opin daglega 14-17 til 4.
september.
Cesco Soggiu og Karl Kristján
Davíðsson sýna í Galleríi Sævars Karls
í Bankastræti. Sýningin stendur til 28.
ágúst.
Sýning á verkum Ragnars Kjartans-
sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.
Myndlistarmaðurinn Sólveig Alda
Halldórsdóttir sýnir verk sitt Upp-skurð-
ur á Vesturveggnum í Skaftfelli Bistro á
Seyðisfirði. Verk Sólveigar samanstendur
af texta sem unnin er upp úr dagbókar-
færslum William Burroughs og hennar
eigin. Sýningin stendur til 5. september
og er opin alla daga frá kl. 11 til 24.
Danski ljósmyndarinn Peter Funch
er með sýninguna „Las Vegas - Made by
man“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi
23.
Guðbjörg Lind hefur opnað mál-
verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar
hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst
fossum og síðar óræðum og ímynduð-
um eyjum á haffleti.
Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn-
inguna Flökt í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar.
Á Café Milanó stendur nú yfir sýn-
ing á málverkum Péturs Péturssonar.
Sýningunni lýkur 7. september.“
Samsýning 20 akureyrskra lista-
manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri.
Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir
í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er
samsýning þrettán norðlenskra lista-
kvenna og þriggja frá Færeyjum.
Sýningar Gjörningaklúbbsins,
Heimis Björgúlfssonar og Péturs Arnar
Friðrikssonar standa yfir í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbburinn
opnar á 2. hæð safnsins sýninguna Á
bak við augun. Í norðursal 3ju hæðar-
innar er sýning Heimis Björgúlfssonar
Gott er allt sem vel endar (Sheep in
disguise) og í suðursalnum sýning Pét-
urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð.
Sýningarnar standa til 7. september.
Edwin Kaaber sýnir olíu- og akrýl-
myndir í Þrastarlundi. Sýningin er opin
fram í september.
Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig-
rúnardóttur stendur yfir í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif-
andi hluta og spurningin hvort hræðslan
við að eldast sé það sem takmarkar feg-
urðarmat okkar. Þetta er 13. einkasýning
Rögnu hér á landi.
Íslensk og alþjóðleg samtímalistaverk
eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Þrjár sýningar eru í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þetta eru
sýningarnar Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð-
lega samtímalist á Íslandi og Erró
Stríð.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir
sýning á málverkum Jóhannesar Kjar-
vals úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Ég er tæpir tveir metrar en loft-hæðin hérna er ekki nema 170
sentímetrar,“ segir Daninn og
myndlistarmaðurinn Claus Niel-
sen, sem staddur er hér á landi til
að halda sýningu á teikningum
sínum í Gallerí Dvergi.
Claus hefur dvalið hér á landi í
nokkra daga við að hengja upp
teikningarnar og er að sögn mjög
illt í bakinu eftir að húka ofan í
kjallaranum, boginn í baki. Hann
býr annars í Kaupmannahöfn, út á
Vesterbro, og langar til að sjá eitt-
hvað af landinu en hefur hrein-
lega ekki haft tíma til þess. Claus
er ómenntaður alþýðulistamaður
fyrir utan dvöl sína sem gesta-
nemandi í Póllandi.
„Síðan hef ég verið að sýna
víðs vegar um Evrópu og hitti að-
standendur Gallerí Dvergs í
Hollandi. Þau sáu sýningu á verk-
um mínum og buðu mér að koma
hingað,“ segir Claus, sem býst við
því að sitja í stól þegar hann tekur
á móti sýningargestum.
Búið er að opna sýningu Claus
Nielsen, en hún stendur fram til
loka mánaðarins. Gallerí Dvergur
er til húsa að Grundarstíg 21, í
porti við hlið leikskólans. ■
ÚR SÝNINGUNNI LIGHT NIGHTS
Í Iðnó fá útlendingar fjölbreyttar upplýsing-
ar um land og þjóð á silfurfati.
2 metra Dani í
Gallerí Dvergi
CLAUS NIELSEN
Hann er 2 metrar, teiknar og teiknar, og
sýnir í sal með 170 sentímetra lofthæð.