Tíminn - 18.07.1971, Side 12

Tíminn - 18.07.1971, Side 12
Sunnudagur 18. júlí 1971. Skaftár- hlaupið fjarar út KJ—Reykjavík, laugardag. Tíminn hafði í morgun síma samband við Skaftárdal í Skaft ártungu, og spurðist fyrir um hlaupið í Skaftá. Húsmóðirin á bænum sagði að hlaupið væri að fjara út, en það hefði náð hámarki í fyrradag. — Áin er nú samt alveg eins og dökk grá, og frá henni kem- ur sama vonda lyktin sagði húsmóðirin. í fjöruborðinu við ána, þar sem hún er farin að sjatna er gljái af jökul- leðju, en vatnið er mikið far- ið að minnka. í Skaftárhlaupum fer Skaftá venjulega yfir veginn heim að Skaftárdal, skammt vestan við brýr, sem þar eru. Svo var einnig að þessu sinni, og varð ófært heima að Skaftár- dal, en búizt var við því í morgun, að vegurinn væri orð inn fær aftur, þótt ekki væri farið að fara hann enn. Þetta Skaftárhlaup hefur ver ið mjög lítið miðað við hlaup á undanförnum árum, sagði húsmóðirin ,o^ engar teljandi skemmdir hafa komið fram vegna hlaupsins. Byrjað að olíumalar- bera Suð- urlandsveg KJ—Reykjavík, laugardag. Bjrjað er nú að olíumalar- bera Suðurlandsveg frá Sand- skeiði og í áttina til Reykja- vikur, þar sem frá var horfið í fyrra. Búið er að undirbyggja veginn niður fyrir Lækjar- botna, og verður sá kafli olíu- malarborinn núna. Er meira að segja farið að aka hinn nýolíumalarboma spotta, en á nýrri olíumöl, eru ökumenn beðnir að aka ekki hraðar en á 45 km, hraða, þar sem olíumölin getur spænzt upp að öðrum kosti. Það er fyrirtækið Olíumöl hf. sem annast lagningu malarinnar nú eins og áður. Ef veðrið verð- ur gott má búast við að þess- ari útlagningu á olíumöl verði lokið eftir nokkra daga, og verður þá ekið á olíumöl frá Lækjarbotnum og upp undir Hveradalabrekku. Rannsóknarstöðin Katla opnuð Næstkomandi sunnudag, 18. júlí, verður Rannsóknastöðin Katla á Víkurbakka á Árskógs strönd í Eyjafirði, opnuð og formlega tekin í notkun. Til- gangur stöðvarinnar er að vinna að almennúm náttúru- rannsóknum (frumrannsóknum) Framhald á bls. 22 Unnið við gerð Vesturlandsvegar. (Tímamynd Gunnar) Vel gengur með Vest- urlandsveg óOÓ—Reykjavík, laugardag. Framkvæmdirnar við gerð hrað brautarinnar upp í Kollafjörð gengur eftir áætlun. Verður veg- urinn upp að Korpu tilbúinn í haust og er nú unnið að smiði brúar yfir ána. Verður sá hluti vegarins steyptur. Þá hefur lagning vegarins frá Korpu upp í Kollafjörð gengið ágætlega, en sá hluti á að verða fullgerður haustið 1972. Áætlað er að sá partur Vesturlandsvegar verði malbikaður. Verið er að bygg.ja nýja brú yfir Leirvogsá, og er hún allmiklu neðar en mi- verandi brú er. Enda á vegurinn á þeim kafla að liggja vestar og nær sjó, en þar sem vegurinn er nú. Vi|5 botn Kollafjarðar eru mikl ar framkvæmdir. Þar verður vega- stæðið rétt við sjávarmál, eða neðan við tjarnir laxelchsstöðvar- innar, en liggur nú ofan við þær. Þar er verið að ryðja upp mikl- Framhald á bls. 22 Mjög góSar heimtur í Lárósi: Kynþroska lax sem aldrei hefur gengið til siávar OÓ—Reykjavík, föstudag. f morgún voru gengnir 1085 laxar í fiskcldisstöðina í Lárósi á Snæ- fellsnesi, en laxagengdin þar byrjaði í síðus+u viku og var mjög góð fyrstu dagana, en nokkuð hefur drcgið úr henni mcð minnkandi straumi, en reikna má með að laxinn haldi áfram að ganga fram á haust.'Þessi lax er snemmgenginn og í fyrra fór fiskur ekki að ganga upp í vatnið fyrr en í ágústmánuði, en þá komu allt sumarið 622 laxar upp í vatn- ið. Það er mjög athyglisvert við fiskiræktina í Lárósi, að þar hefur fiskur náð að vcrða kynþroska, án þess að hafa nokkru sinni gengið til sjávar. hefur verið lögð áherzla á að rækta snemmgenginn fisk. Ekki væri síð ur athyglisvert, að hægt er að rækta kynþroska lax í Lárósnum án þess að hann gangi nokkru sinni í sjó. Byggist þetta á þeim aðstæðum í vatninu, að þar streym ir sjór inn á flóði og út aftur um fjöru, en sjórinn nær ekki að blandast vatninu nema við flóðgarð inn og í nágrenni flóðgáttarinnar en óblandað vatn er ávallt innar Jón Sveinsson, sem er aðal- hvatamaður að stofnun fiskeldis- stöðvarinnar ásamt Ingólfi Bjarna- syni, er nú fyrir vestan að taka á móti fiskinum. Hann sagði í við- tali við Tímann í dag, að nú væru björtustu vonir þeirra Ingólfs að rætast. Sagði Jón, að auk mikill- ar fiskigegndar þessa síðustu daga væri að koma í Ijós góður árang- ur af klakinu, þar sem aðallega í vatninu. Getur því laxinn ráðið sjálfur hvenser hann er í sjó og hvenær fersku vatni. Þessi kyn- þroska lax, sem aldrei hefur úr Lárósi farið er af öllum stærðum, en nær því að verða allt að 74 sm. iangur. Er þetta mjög fallegur fiskur að sögn Jóns. Þótt laxagengdin sé ekki alveg eins mikil og þegar hún var mest um daginn er fiskurinn alltaf að síga upp og alltaf sést talsvert af laxi utan við flóðgáttimar. Það er ekki síður gleðilej sagði Jón Sveinsson, að það er nú áberandi mikið af seiðum af öll- um stærðum í vatninu. f fyrra settum við talsvert af kviðpokaseið um í vatnið, sem klakið var út hér. Koma þessi seiði vel undan vetrinum. Til þess bendir sú mikla mergð sem nú er af seiðum í vatninu, sem líklega ganga nið- ur næsta sumar. Munum við nú leggja mikla áhcrzlu á eigið klak og vonumst til að enn betri ár- angur eigi eftir að náðst, enda benda endurheimtumar til, að klakið hér gefist sérstaklega vel, Stærstu laxamir sem konrið hafa upp í sumar eru allt að 17 pond að þyngd. Flestum hængunum, sem ganga í Lárós er slátrað, en í klakið þarf ekki nema ehm hæng á móti fimm hrygnum. Sá fiskur sem heppilegastur er talinn til und- aneldis er valinn úr og em nú um 500 laxara í klabgeymsluúni, sem er orðin allt of lítil og er nú unnið að því að setja þak á nýtt klakhús. Era klabgeymslum- ar orðnar svo fullar af físki að varla er hægt að koma niður háfi til að ná í dauða laxa. Stefnt Framhald á bls. 22 Erfitt að mynda stór- fjölskyldu í borginni EB—Reykjavík, föstudag. Stórfjölskyldur — líklega þekktari undir nafninu „kommúnur“ — cr fyrirbæri, sem mjög oft ber á góma í umræðum um sambýlishætti fólks. Einkum hefur ungt fólk sýnt mikinn áhuga á því, að vera þátt- takendur í slíkum fjöldskyldum og telur þær geta leyst ýmis mannleg vandamál, cinkum félagsslcg, í allsnægtarþjóðfélögunum hér á Vest- urlöudum. Fyrir ári auglýstu reykvízk hjón á fertugsaldri eftir þátttakendum í stofnun stórfjölskyldu hér í borg- inni, og frá þeim tíma hafa hjónin reynt að gera þessa hugmynd sína að veruleika. Miðaldra fólk og eldra gaf sig fram, er, ekkert ungt fólk. Ýmissa orsaka vegna hefur hjónunum ekki tekizt að koma fjöldskyldunni á fót, en hafa þó ekki gefizt upp enn við að reyna það. Blaðamaður Tímans ræddi smá- vegis í dag við eiginmanninn, Björn Stefánsson, um þessa til- raun þeirra hjóna. — Björn sagði, að hugmyndin þeirra væri sú, að fjölskyldumeðlimirnir yrðu 15— 20 talsins og byggi í c.a. 400 fer- metra húsnæði. Björn lagði mikla áherzlu á, að í fjölskyldunni þyi’ti að vera fólk á öllum aldri. Allmargt fólk sýndi auglýsingu þeirra hjóna áhuga og sendi um- sókn. Skömmu síðar var boðaður fundur með fólkinu, en á hann komu ekki nema fráskilin karlmað- ur og kona, bæði á fertugsaldri svo og þrír karlmenn á sextugsaldri. Konan á nokkur böm og hefur giftzt þrisvar. Umræðuefnið var sameiginlegt hcimilishald. Á fund- inu kom fram, að karlmaðurinn á fcrtugsaldri og konan höfðu gjör- ólík viðhorf til sambýlishátta. Konan: hugsjón. Karlmaðurinn: mat. Björn Stefánsson sagði, að hug- sjón karlmannsins hefði verið sú, að fá mat framleiddan sér til handa á auðveldan hátt, og hann hefði viljað hafa stjórnanda fjöl- skyldunnar og stungið upp á Birni í því sambandi. Konan hefði hins vegar virtzt róttæk og vildi taka þátt í fjölskyldunni af hugsjón. Niðurstaðan hafi verið sú, að þess- ir tveir einstaklingar hefðu aldrei getað búið saman. Stendur fremur á karlmönnum. Björn skýrði frá því, að á því Framhald á bls. 22.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.