Tíminn - 18.08.1971, Blaðsíða 2
I
Helgi á HrafnkelsstöSum um tíðarfarið:
„ÉG SPÁI SNJÚ,
MÝSNAR OG FÍFAN
IGÞ—Reykjavík, þri'ffjudaB.
Helgii Haraldsson á Hrafnkels-
stöðum leit inn til Tímans í dag
og talaði við okkur um veðrið í
ár. Gísli Sigurðsson, ritstjóri Les-
bókar Morgunblaðsins hafði haft
eftir honum spádóm um veður-
farið. Og þegar við sögðum eitt-
hvað á þá leið við Ilelga, að þeir
hjá Morgunblaðinu væru að vitna
i hann svaraði hann: — Guð láti
gott á vita.
Auk þess bætti hann við:
Ég sagði nú ekki meira en að
þetta yrði mjög gott ár. Enn þá
stenzt það. Ég þori að fullyrða,
að á þessaii öld hefur aldrei kom
ið önnur eins veðurblíða frá ný-
ári til þessa dags hér á Suður-
landi. Það hefur ekki einu sinni
hvesst. Og grasið er meira en ég
hef séð dæmi til áður. Nýtingin
hefur verið með afbrigðum góð.
Allar hlöður verða fullar, og
menn farnir að bjóða heyin helm
ingi ódýrari en í fyrra, en eng-
inn vill kaupa.
En ég sagði líka að ég óttað-
ist harðan vetur. Nú er hafis á
Húnaflóa, og þá er alltaf þurrkur
á Suðurlandi. Og ég hélt að þurrk
urinn minn héldist til höfuðdags.
Þá var vant að ísinn færi í höfuð-
dagsstrauminn. Ef hann fer ekki
þá, þá situr hann í allan vetur.
Þetta sögðu nú þeir gömlu karl-
ar. En ef ísinn fer núna þá er
hætt við að komi úrkomutíð eftir
höfuðdaginn.
Og nú er ég ekki orðinn einn
um að spá snjóvetri. Allar mýs
á Suðurlandi gera það líka. En
enginn veðufræðingur enn. Ég
hitti gamlan bónda í Flóanum,
þegar ég kom suður, og hann sagð
ist alltaf spá vetrunum eftir fíf-
unni. Mikil fífa veit á snjóavetur,
og hann sagðist aldrei hafa séð
önnur eins ókjör af fífu eins og
nú væri í Flóanum. Látum þetta
þrennt duga. Ég spái snjó, og
mýsnar og fífan.
Er botnlanginn
enn í Nixon?
Komið er á daginn að ekiki er
með öllu hættulaust að ferðast til
Kina, einkum ef svo vill til að menn
fái botnlangakast og þurfi að leggjast
undir uppskurð. Nýlega var kunnur
bandarís:kur blaðamaður á ferð í
Peking, James Reston, sem skrifar
fasta þætti í hundrað þúsund dag-
blöð eða svo, m.a. í Timann. Hann
talaði við þann svarta senuþjóf, Sjú-
en-læ, forsætisráðherra, en varð auk
þess fyrir þvi að fá vont botnlanga-
kast. Kasti þessu lauk með uppskurði,
botnlanginn var numinn burt, og
varð eftir í Kina, en grunur leikur
á því að í staðinn fyrir botnlangann
hafi Kinverjar sett örsmátt hlustun-
artæki i maga Restons, og verður
varla nær komizt kjarna mála í
Bandarlkjunum en það, þar sem
maðurinn fjallar um marga leynda
hluti í starfi sínu.
Sá sem kom af stað grunsemdum
um, að James Reston væri hlustaður,
er annar ekki ófrægari dálkahöfund-
ur bandarískur, Art Buchwald að
nafni. Hann hefur það sér til ágætis
helzt, að segja sem fæst í alvöru, og
auðvitað varð uppskurður Restons
inni í miðju fjandmannalandinu næg
ástæða til að leysa hugmyndaflugið
úr læðingi. Stundum fellur gaman-
seml af þessu tagi um sjálfa sig um
leið og hana ber fyrir augu, en önn-
ur á sér dýpri rætur. Svo er um
uppdiktað hlustunartæki í maga
James Reston. Það er staðreynd, að
einkum Bandarikjamenn og Rússar
hafa náð sérstaklega iangt í þessari
greln njósna og neðanjarðarstarf-
semi. Bandarikjamenn hafa nýverið
staðið í viðkvæmum deilum út af
símahlustumum alríkislögreglunnar,
sem yfirmaður heWnar, Eldar J.
Hoover, hefur talið alveg bráðnauð-
aynlegar, einkum til að hindra starf-
semi undirróðursmanna og fjand-
manna ríkisins, Sagt er að Rússar
þrælhleri allar orðræður í banda-
ríska sendiráðinu í Moskvu, og komi
upp nýjum hlerunartækjum jafnóð-
um og upp kemst um önnur, undir
allskonar yfirskini þjónustu og við-
gerða. Og yfirleitt virðist hvaðeina
hlerað þar sem upplýslnga er von,
og virðast ótrúlegustu staðir valdir
undir hlustunartækin. Hingað til
hefur þó engum nema Buchwald
dottið í hug að hægt væri að setja
hlustunartækl í maga manns við upp-
skurð, En sú kenning hefur fyrir
löngu verið sett fram, að það sem
þú hugsar, það er framkvæmanlegt.
Nú stendur fyrir dyrum að Nixon,
Bandaríkjaforseti heimsæki Kína.
Vonandi er búið að taka úr honum
botnlangann, svo ekki komi til þess
að opna þurfi hann í Peking, eins og
James Reston. Þvi þótt Art Buchwald
ljúgi öllu sem hann segir, væri ó-
hugnanlegt fyrir ýmsa aðila að þurfa
að lifa við minnstu grunsemd um að
sjálfur Bandarikjaforseti værl snú-
inn heim með kínverskt hlustunar-
tæki i maganum, Hvemig halda
menn að sjálfum hlustunarmeistar-
anum, Edgar J. Hoover liði næst
þegar hann fengi einkaáheyrn hjá
Nixon eftir Pekingförina. Og hvað
um Rússana, sem sjaldan virðast
hugmyndarikir, en þvi ötulari við
að notfæra sér hugmyndir annarra.
Næst þegar bandaríski sendiherrann
í Moskvu þarf að láta athuga í sér
tennurnar kemur hann eflaust heim
með fyllingu, sem er ekki annað en
hlustunartæki frá KGB. Þannig hef-
ur Art Buchwald orðið óviljandi til
þess að færa kaida stríðið á nýtt
stig, því að þótt læknum beri að halda
sinn Hippokratesar-eið, stendur
hvergi að þeir megi ekki koma sjúk-
lingum sínum í fjarskiptasamband
við andsnúnar þjóðir.
Svarthöfðl.
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 18. ágöst
NORRÆNIR SAFNAMENN ÞINGA
OG SKOÐA LANDIÐ UM LEIÐ
ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Um þessar mundir stendur yfir
í Reykjavík ráðstefna Sambands
norrænna safnamanna. Um 150
manns sækja ráðstefnuna, sem
hófst í Norræna húsinu í gær.
f viðtali við blaðið í dag, sagði
Þór Magnússon þjóðminjavörður,
að ráðstefnan gengi vel fyrir sig,
allavega væri enginn „skandali“,
eins og fyrir kom á annarri nor-
rænni ráðstefnu fyrir stuttu.
Ráðstefnan byrjaði í gær með
umræðufundum, en í morgun
voru umræður um söfn og rann-
sóknir. Eftir hádegi í dag fóru.
ráðstefnugestir í skoðunarferð
um borgina, og í þeirri ferða
NTB—Höfðaborg, þriðjudag.
Adrian Herbert, maðurinn sem
skipt var um hjarta og lungu í
fyrir 23 dögum, lézt í morgun.
Hann hafffi Hfað lengur cn nokk
ur annar, sem sams konar aðgerð
hefur verið gerð á
Ekk er vitað, hvað var bana-
mein Herberts en prófessor Bam-
ard, sem gerði aðgerðina, kveðst
ætla að skrifa um þetta tilfelli í
læknatímarit síðar.
verða skoðuð söfn og aðrar slik-
ar stofnanir innan borgarmark-
anna. Á morgun, miðvikudag, fara
ráðstefnugestir austur í Þjórsár-
dal og skoða bæinn að Stöng, í
þeirri ferð verður einnig komið
við að Gullfossi og Geysi. Fimmtu
deginum verður svo varið til um-
ræðufunda, og þá verður rætt um
aðalsöfn og byggðasöfn, einnig
verður rætt um söfn og umhverf-
isvernd. Á föstudag verður byrj-
að á því að fara með ráðstefnu-
fólkið í ferð austur í Krísuvík,
öi líkur ráðstefnunni þá um kvöld
ið.
i i«Að ráðstefnunni;; l*kinni fara
sumir þátttakendur heim á ný, en
flestir munu þó fara í ferðalög
Herbert, sem fékk hjartað og
lungun úr 28 ára gömlum negra,
sem lézt af úr höfuðhöggi, var deyj
andi, þegar hann var la^ður inn
á Groote-Schuur-sjúkrahúsið í
Höfðaborg. Hann þjáðist af lungna
sjúkdómi, sem hafði lamað hjart
að einnig. Hann varð fyrsti mað-
urinn í Höfðaborg og sá fjórði í
heiminum, sem þessi aðgerð hef-
ur verið gerð á. Hinir sjúkling-
amir þrir voru allir í Banda-
ríkjunum og létust allir innan
viku frá aðgerðinni.
I um landið, norður að Mývatni eða
I þá um Suðurland.
FLYTUR ÚR
LANDIVEGNA
BANNS VIÐ
HUNDAHALDI
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Timinn hefur frétt á skot-
spónum, en ekki getað fengið
það staðfest, að kona ein í Vest
urbænum, vel kunnur borgari,
hafi nýlega flutt alfarin til
Danmerkur, vegna þess að ekki
má halda hund í Reykjavík.
Þeir, sem fylgzt hafa með
hundamálinu, vita, að hundum
í Reykjavík hefur verið hótað
öllu illu og lengi var búizt við
miklu hundablóðbaði í haust.
Eftir því sem næstum áreið-
anlegar heimildir segja, verður ,
ekkert úr stórslátrun, en hund-
ar mega ekki sjást. Sé það satt,
að hundaeigendur séu famir
að flýja land, má segja, að
það séu nokkuð slæm tíðindi.
■---j
Lungna- og hjartaþeginn
látinn eftir 23 daga
Langá á Mýrum er nú me8
hæstu laxveiðiánum
Langá á Mýrum er nú komin
í fremstu röð laxveiðiáa landsins.
í gær fengum við þær upplýs-
ingar, að 650 laxar hafi veiðzt
á öðru veiðisvæði árinnar, en eins
og við sögðum frá í gær er búið
að veiða 750 laxa á neðsta veiði-
svæðinu.
Á þessu öðru v Iðisvæði er ein-
ungis veitt moð tveimur stöng-
um. Veiðisvæðið var opnað 15.
iúní svo að veiðzt hafa rúmir 10
laxar að meðaltali á dag, eða
5 laxar á hvora stöng, sem að
sjnlfsögðu verður að teljast frá-
bær veiði, enda mun Langá vera
eina laxveiðiá landsins þar sem
sú takmörkun er sett, að ekki
megi veiða meira en 20 laxa á
stöng hvern veiðidag.
Heldur lakari veiði í Veiði-
vötnum en í fyrra
Veiðitímanum í Veiðivötnum
lauk 15. ágúst. í viðtali er við
áttum í dag við Guðna Kristinsson
á Skarði, kom fram, að veiðin
í umar er heldur lakari en hún
var í f.vrrasumar, enda var veiðin
þá með allra bezta móti.
Fyrri hluta veiðitímans var
mjög óhagstætt vcður við vötnin.
kalt var og silungurinn því treg-
ur. Seinni hluta veiðitímans skipti
yfir til hins betra hvað veðurfar
snerti og þess vegna varð veiðin
mun betri, og síðustu vikuna jókst
veiðin mikið, enda var þá líka
leyft að veiða í Litla-Skálavatni,
sem áður hafði verið lokað. Var
veiðin í því vatni mjög góð, að
sögn Guðna.
Urriði var eingöngu veiddur í
Veiðivötnum og þyngd hans
komst allt upp í 10 pund. Algeng
asta þyngdin var 3,4 og 5 pund.
Að lokum sagði Guðni okkur, að
eftirspurn eftir veiðileyfum í
vötnin hefði verið mikil. Að meðal
tali hefði í sumar verið veitt þar
með 18 stöngum, en alls eru 20
stangir leyfðar. — EB