Tíminn - 18.08.1971, Qupperneq 14

Tíminn - 18.08.1971, Qupperneq 14
14 mzmm Landskeppni Dana og íslendinga í sundi: TÍMINN Danir leiöa 62-58 eftir fyrri dag keppninnar ET-Reykjavík. Landskeppni fslendinga og Dana í sundi hófst í Laugardals- lauginni í gærkvöldi. Keppt var í 10 greinum. íslenzka sundfólkið stóð sig mjög vel í keppninni og sigraði í 6 sundgreinum samtals. Sér- staklega stóðu ísl. stúlkurnar sig mun betur en búizt var við fyrir- fram. Guðjón Guðmundsson sigraði óvænt í 200 m. bringusundi, en Leiknir Jónsson varð þriðji. — Þá sigraði Guðmunda Guðmunds- dóltir í 200 m. flugsundi á glæsi- legu fslandsmeti. Helga Gunnars dóttir vann 200 m. bringusund og Salóme Þórisd. 200 m. bak- sund. Guðmundur Gíslason varð yfirburðasigurvegari í 200 m flug- sundi. Loks vann íslenzka sveitin óvæntan sigur yfir þeirri dönsku í 4x100 m fjórs. kvenna. Hins veg- ar unnu Danir 4x100 m. skriðs. karla með nokkrum yfirburðum. Danir leiða keppnina með 62 stigum gegn 58. Landskeppninni verður haldið áfram í dag kl. 11, og verður þá keppt í tveimur greinum. Loka- keppnin hefst svo kl. 20,00 í kvöld. Nánar um keppnina í blaðinu á morgun. Framhald af bls. 12 vogsbúum. í fyrra skiptið bjarg- aði Bjarni Bjarnason á línu eftir skot frá Atla Héðinssyni. Og í síðara skiptið átti Ellert Schram fast lágskot að marki, flestum sýndist boltinn „liggja inni“, en á undraverðan hátt tókst Breiða- bliksmönnum að bjarga á mark- línu. — Enn sóttu KR-ingar að Breiðabliksmarkinu og oft mun- aði mjóu. Eitt bezta marktæki- færi þeirra í hálfleiknum var, er Ellert skallaði boltann mjög laglega fyrir fætur Atla, sem var of seinn á sér að skjóta. Skot hans kom í Ólaf markvörð, er henti sér laglega í átt til bolt- ans. Segja má, að Ólafur hafi í þessum leik bjargað liði sínu frá tapi og líklega einnig frá Eigínkona mín, móSir okkar, tengdamóðir og amma Sigríður Jóhannsdóttir, Barmahlíð 55, er lézt 11. ágúst verður [arðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13,30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er vinsam- lega bent á líknarstofnanir. Guðmundur Jóhannesson Jóhann Guðmundsson, Rebekka Kristjánsdóttir Kristín Guðmundsdóttir, Rafn Júlíusson María V. Guðmundsdóttir, Viðar Guðjónsson og barnabörn, Tm'-T',rriiiiiiiiiy —niniiiiiiiinifiiHhjiiiiift—'iíi»'i ir Útför móður okkar og tengdamóður Hrefnu Ól^fsdóttur, Eyvindarstöðum, fer fram frá Bessasfaðakirkju, föstudaginn, 20. ágúst, kl. 14. Börn og tengdabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu GuSnýjar Einarsdóttur, Gljúfri, Ölfusi. Börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum hjartanlega öllum þelm, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför Björns Ingvars Jósefssonar frá Hrappsstöðum. Sigríður Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnaböm, og barnabarnabörn. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför ÞuríSar Jakobsdóttur. F.h. vandamanna Zophonías Pálsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vlð andlát og jarðarför Kristjáns Helgasonar frá Dunkárbakka. Sérstakar þakkir færum við öllum þelm á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund, sem önnuðust hann I veikindum hans. Börn, tengdabörn og barnabörn. wm falli niður í 2. deild. — í hálf- leiknum átti Breiðablik fá mark- tækifæri. Það bezta líklega á 9. mín., er Þór Hreiðarsson komst einn inn fyrir, en Magnús Guð- mundsson markvörður bjargaði snilldarlega. í síðari hálfleik, sem var illa leikinn af báðum aðilum, var lít- ið um tækifæri og ekkert þeirra sérstaklega hættulegt. Um liðin er fátt að segja. KR virðist mjög spennt vegna þeirr- ar fallhættu, sem liðið er óneit- anlega í um þessar mundir. Ell- ert hefur þó styrkjandi áhrif á liðið, en hann er nokkuð farinn að þyngjast á velli. — Breiða- blik var í heild með afbrigðum lélegt. Aðeins tveir leikmenn vöktu athygli mína, Ólafur mark- vörður og Hinrik Þórhallsson, ungur og mjög skemmtilega leik- andi leikmaður. * Ráðstafanir Framhald af bls. 1 bandalagslöndin mundu miða við markið. Þá sagði ráðherrann að niðurstaðan af þeim ákvörðunum sem Bandaríkjamenn hafa nú tek- ið, gæti og leitt til þess, að kerfis- breyting yrði í sambandi við geng- isskráningu, þannig að eitthvert gengi yrði að vissu marki kallað fljótandi gengi. Mætti búast við að þetta gæti komið til ákvörðunar í sambandi við fund Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, sem verður í haust. Um það hvort aukinn tollur verð ur settur á ísl. fiskinn, sagði ráð- herra að það væri enn ekki ljóst, en ef svo yrði að fiskurinn yrði tollað- ur, þá mundi það skapa vandkvæði LEIÐRÉTTING Guðmundur Arason, fréttaritari Tímans á Breiðdalsvík, hefur beð- ið blaðið um leiðréttingu vegna missagna í frétt blaðsins um heim sókn íslenzku forsetahjónanna til Breiðdalsvíkur fyrr í þessum mán- uði. f fyrsta lagi var það Guðjón Sveinsson er flutti ræðu til for- sctahjónanna í tilefni heimsóknar þeirra, en ekki Guðjón Jónsson, eins og missagðist í fréttinni. f öðru iagi gaf Breiðdalshrepp- ur forsetahjónunum mynd af blómi, sem klÍDpt er úr hvhum pappír og límt á svartan grunn, en í fréttinni var sr missögn að myndin átti samkvæmt henni að vera málverk er ættingjar forset ans í Breiðdalshreppi áttu að hafa fært forsetahjónunum að gjöf. Biður blaðið hlutaðeigandi og lcsendur sína velvirðingar á mis- tökum þessum . MIÐVIKUDAGUR 18. ágúst 197) Tónabíó Simi 31182. — fslenzkur texti — MAZURKI Á RÚMSTOKKNUM (Mazurka pá sengekanten) Bráðfjörug og djörf ný dönsk gamanmynd. GerS eftir sögunni „Mazurka" eftir rithöfundinn Soya. Leikendur: OLE SÖLTOFT AXEL STRÖBYE BIRTHE TOVE Myndin hefur verið sýnd undanfarið í Noregi og Svíþjóð við metaðsókn. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. hér á landi. Einnig gæti það tíma- bil, áður en ákvarðanir eru teknar, skapað okkur vandkvæði, því að við yrðum að ákveða okkur gagn- vart þeim viðskiptaháttum, sem þá ríktu. í þriðja lagi gæti svo orð- ið erfitt fyrir íslendinga að taka ákvarðanir, þegar búið væri að taka ákvarðanir úti í hinum stóra heimi í sambandi við þessi miklu átök í efnahagsmálum. Halldór E. Sigurðsson fjármála- ráðherra sagði að sænski fjármála- ráðherrann hefði boðað til fundar með fjármálaráðherrum Norður- landa, og Seðlabankastjórum land- anna. Hefst fundurinn klukkan hálf fjögur, og mun Jóhannes Nordal seðiabankastjóri mæta á þeim fundi fyrir Islands hönd. Aðspurður um ákvarðanir ís- lenzku ríkisstjórnarinnar vegna efnahagsráðstafana Nixons, sagði Halldór E. Sigurðsson, að engar ákvarðanir hefðu enn verið teknar í þessu sambandi, og yrði beðið með allar aðgerðir þangað til málin færu að skýrast, og farið yrði að skrá gengi á ný. Þá sagði fjármálaráðherra, að á Stokkhólmsfundinum yrðu eng- ar ákvarðanir teknar, heldur myndu fulltrúar Norðurlanda að- eins ræða um ástandið. Ekki væri heldur víst að öll Norðurlöndin ættu samleið varðandi aðgerðir. Að lokum sagði fjármálaráð- herra að fjármálaráðuneytið hefði ákveðið 15% álagið við tollaf- greiðslu til að tryggja að ríkið verði ekki fyrir skakkaföllum í sambandi við það ástand sem nú ríkir ,en þetta gjald hefði stund- um áður farið upp í allt að 25%, undir svipuðum kringumstæðum. Ráðherrann sagði að fjármálaráðu neytið gæti ákveðið gengi undir slíkum kringumstæðum, en það væri þá endanlegt, og sú leið hefði ekki verið farin. Afmæli Framhald af bls. 16 Samkvæmt tillögum fjögurra félaga úr Arkitektafélagi ís- lands og nefndar á vegum Fegrunamefndar, er í áttu sæti fulltrúar frá samtökum verzl- unar og iðnaðar, var ákveðið að eftirtaldir aðilar hlytu við- urkenningu fyrir tillag til fegr- unar borgarinnar, svo og ætlað öðrum aðilum til hvatningar: Fellsmúli 17—19, Háaleitis braut 109—111, Háaleitisbraut 77, Brekkugerði 19, Norræna Húsið, Höfði, Álftamýri 29—41, Dagheimilið við Sólheima, Upp töku- og vistheimilið við Dal- braut, Einimelur 10, Osta- og smjörsalan v/Snorrabraut, Hita veitugeymar á öskjuhlíð, Haga- skóli, Ncsvegur 11, Kvisthagi 7, Olíufélagið h.f. við Stóra- gerði, Búnaðarbanki við Hlemm torg, Slökkvistöðin, Öskjuhlíð, Dvalarheimili aldraðra sjó- manna. Fegrunarnefnd Reykjavíkur er skipuð sjö mönnum, tveimur tilnefndum af borgarráði, auk garðyrkjustjóra, sem er jafn- framt framkvæmdastjóri nefnd- arinnar, en auk þess tilnefna Garðyrkjufélag íslands, Hús- mæðrafélag Reykjavíkur, Hús- eigendafélag Reykjavikur og Arkitektafélag íslands mann i nefndina. Nefndin er nú skip- uð eftirtöldum mönnum: Gunnar Helgason, form., Gest ur Ólafsson, Gísli B. Björnsson, Hafliði Jónsson, Ingimundui Sigfússon, Jóhína Guðmunds- dóttir, Ragnhildur Kr. Björns- son. í viðtali er Tíminn átti i dag við Pál Líndal, borgarlög- mann kom fram, að 185 ára afmælisins verður ekki minnzt á annan hátt, nema þá að flagg að verður víða um borgina. Mótmæla Framhald af bls. 16. för með sér áfall fyrir þær fisk veiðihafnir í Bretlandi, sem ættu tilveru sína undir úthafs- veiðum togaranna. — Hvernig í ósköpunum er hægt að réttlæta slíkar kröfur. án þess að taka tillit til alþjóða laga, sem verið hafa í gildi meiri hluta aldarinnar? spurðj fulltrúinn. Hann bætti við, að Bretland væri reiðubúið tii samningaviðræðna, í því skyni að koma í veg fyrir rányrkju fiskimiða. Laxness Framhald af bls. 16. eftir Sölku Völku. Sögunni hefði verið breytt og útkoman hefði orðið sú, að honum hefði verið nákvæmlega sama, hann hefði eins getaS verið að selja Frökk- tim saltfisk eins og sýningarrétt á skáldsögunni í sjónvarpi. Lax- ness gaf samþykki sitt til að þessi mynd yrði sýnd tvívegis í franska sjónvarpinu. an. Það skal tekið fram að síð- ustu, að Rolf Hadrich mun semja kvnkmyndahandrit eftir Brekku- kvikmyndahandrit eftir Brekku undinn sjálfan. Á víðavangi Framhald af bls. 3. um, er það, að hann hefur að eigin sögn hafið hagfræðinám að nýju, og er tekinn til við að glugga í nútíma hagfræðirit, sem eru skrifuð af mömium, sem höfðu svipuð sjónarmið og þeir, sem börðust gegn cfnahagsstefnu ^ „viðreisnar- stjórnarinnar“ á íslandi. Batn- andi manni að bezt að lifa, en hins vegar er vafasamt, að Gylfi þurfi nokkuð að fara til frís uppihalds í Kaupmanna- höfn til nð losn betri hagfræði en haun hefur fylgt. — TK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.