Tíminn - 05.09.1971, Blaðsíða 10

Tíminn - 05.09.1971, Blaðsíða 10
22 TÍMINN SUNNUDADGUR 5. september 1971 ferðaskrif stofa bankastræti 7 símar 16400 12070 Nokkrar stööur eru lausar nú þegar, bæSi fyrir bókara og gjald- kera> Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til starfsmannastjóra fyrir 10. þ.m. Búnaðarbanki íslands. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu okkur með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á áttræð- isafmælum okkar í sumar. Guð blessi ykkur. V. Ingibjörg Filippusdóttir, Magnús Jónsson, Hellum, Landssveit. Kristín S. Þorleifsdóttir, Bergstaðastræti 46, andaðist 2. sept. á Elli- og h júkrunarheimilinu Grund. Jarðarförln fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. sept., kl. 10,30. Aðstandendur þökkum hjartanlega auðsýnda samóð við andlát og jarðarför Þorvaldar Böðvarssonar, Þóroddsstöðum, Hrútafirði. Gróa K. Oddsdóttir og fjölskvM’ ' VERÐ FRÁ KR. 9.950.- Beint þotuflug — 8 dagar, gisting og 2 máltiðir á dag, Brottfara rdagar: 8. SEPT. — UPPSELT 15. SEPT. — 8 sæti laus Frá Lindargötuskóla Þeir, sem sótt hafa um skólavist í 5. bekk Lind- argötuskóla og fengið jákvætt svar, þurfa að stað- festa umsóknir sínar persónulega eða í síma (10400 eða 18368) eða með símskeyti dagana 6. og 7. september n.k., kl. 15.00—18.30. Væntanlegir nemendur í 6. bekk þurfa einnig að staðfesta umsóknir sínar á sama tíma. Fræðslustjórinn í Reykjavík. MYNDMÆLINGAMAÐUR - TÆKNITEIKNARI Verkfræðistofan FORVERK H.F. óskar að ráða myndmælingamann til myndmælinga korta eftir loftmynum í stereoscopiskum tækjum og annarra verka í kortagerð og útreikningum. Stúdentspróf stærðfræðideildar eða önnur hliðstæð menntun æskileg. Starfsþjálfun fer fram á vegum fyrir- tækisins. Einnig óskar verkfræðistofan FORVERK H.F. að ráða tækniteiknara til hreinteikninga og frágangs myndmældra korta og verkfræðilegra teikninga. VERKFRÆÐISTOFAN FORVERK HF. Freyjugötu 35. — Sími 26255. Solsjenitsyn og bók- menntaverðlaunin: — vegna afstöðu sænsku stjórnarinnar NTB—Stokkhólmi, laugardag. Sovézka nóbelskáldið Alex- ander Solsjenitsyn athugaði í nóvember í fyrra, möguleikana á því að hann gæti tekið við Nóbelsverðlaununum í sænska sendiráðinu í Moskvu, en var neitað um það. Þetta kemur m. a. fram í nýútkominni bók eftir norska blaðamanninn Per Egil Hegge, en hann var fréttaritari þriggja Norður- landablaða i Moskvu og var síð an vísað úr landi. f gærkvöldi var viðtal við Hegge í sænska sjónvarpinu og sagði hann þar m.a. að sænska stjórnin hefði ekki get að fallizt á, að verðlaúnin væru afhent I sænska sendiráðinu í Moskvu, vegna hættu á að sam band ríkjanna versnaði. Hegge var á sínum tíma milligöngu- maður milli Solsjenitsyn og sendiráðsins og það var sænsk ur sendiráðsstarfsmaður, sem tilkvnnti honum. að skáldið gæti ekki fengið verðlaunin afhent í Moskvu. Sendiráðs- starfsmaðurinn fullyrti, að þetta væri ákvörðun sænsku stjórnarinnar. Eins og kunn- ugt er, vildi Solsjenitsyn ekki fara til Stokkhólms tíl að veita verðlaununum viðtöku, þar sem hann óttaði. -, að sér yrði b: :nað að snúa heim aftur. Flokkur Framhald af bls. 17 ing verkamannabústaða hefði skaðleg áhrif á „framtak ein- staklingsins“ eins óg lesa má á síðum þess 5. maí 1929: „Ef miðað er við byggingar síðastu ára, er gagnsemi slíkr- ar löggjafar að engu orðin, ef framtak einstaklingsins minnk ar um einn hundraðasta hluta. Það er að minnsta kosti lík- legt, að óhætt sé að fullyrða, yrða, að afleiðingarnar af frumvarpi Héðins Valdimarssonar séu þær, að nokkrir einstaklingar, þó ekki þeir fátækustu, fái gef ins einn þriðja af byggingar- kostnaði húsanna, en aðrir bæjarbúar gjalda þessa með því að greiða hærri húsaleigu. Frumvarpskríli Héðins er því ekki aðeins gagnslaust, heldur beint skaðlegt". Á fjárlögum 1928 var bygg „Ómengaður sósíalismi" ingarvinnufélagi veittur smá- vægilegur styrkur til þess að festa sig í sessi, sex þúsund og fimm hundruð krónur. Það gaf Morgunblaðinu tilefni til þess- ara orð'' 12. apríl: „Eitt X því, sem stjórnarlið- ið í efri deild þvingaði í gegn var 6500 króna styrkur Arekstur, - einn slasast ÞÓ—Reykjavík, laugardag. Rétt fyrir kl. 12 í dag varð all- harður árekstur á Miklubraut gegnt Lídó. Rákust þar á tveir fólksbílar, anrfar úr Reykjavik, en hinn úr Kópavogi. Farþegi, sem var í Kópavogsbílnum, 19 ára stúlka, meiddist við áreksturinn og var hún flutt á Slysavarnarstofuna. “n ekki voru meiðsli hennar tal- in alvarleg. til Byggingarsamvinnufélags Reykjavíkur — félags, sem bæj arstjórn Reykjavíkur hefur neitað að styrkja. Þessi styrk- ur er vitaskuld bezta ráðið til þess að draga fólkið úr sveit- um landsins. „Bænda“-flokk urinn gefur stórfé til bygging ar í kaupstöðum. . . . Er þetta ekki ómengaður sósíalismi? Fyrst er að flæma fólkið úr sveitinni með því að gera því ómögulcgt að bjarga sér þar. Ef það vill flytja til Reykja- víkur og gerast meðlimir í byggingarfélagi, er sósíalistar stjórna, fær það fjárstyrk úr ríkissjóði. Hafi það enga at- vinnu, hleypur ríkissjóður und ir baggann og veitir því at- vinnuleysisstyrk." ★ Þannig þaut í tálknunum á þeirri tíð. Allt var óalandi og óferjandi: Að reisa síldariðn- aðinn úr rústum, stuðla að þvi að fólk kæmi sér upp viðun- andi húsnæði, glæða atvinnu- líf í kaupstöðum, sem stóðu höllum fæti, friða Þingvelli, hætta að loka fanga iðju- lausa inni í hegningarhúsinu í Reykjavík árum saman, veita sveitlægu fólki og fólki í sveit- arskuld kosningarétt, tryggja togaraháseta átta stunda hvíld á sólarhring, draga úr atvinnu- leysi, styrkja verkalýðsfélög in í sessi, gera Akureyrarskól- ann að menntaskóla. En þetta er aðeins fátt eitt af því er gert var, og lang- oftast brást íhaldsflokkurinn við á svipaðan hátt. Hér hef- ur til dæmis aðeins lauslega verið minnzt á Laugarvatns- skólann, eitt hið mesta eitur I beinum Morgunblaðsins, og ekki einu orði vikið að öllum þeim gauragangi, er stofnað var til út af Reykholtsskóla og Menntaskólanum í Reykjavík. Og ótal mörg mál önnur liggja hér í þagnargildi. Þetta átti sem sé aldrei að vera annað en lítið sýnishom þess, hvar sú fylking, sem nú kallast Sjálf- stæðisflokkur, stóð á þroska- brautinni fyriý fjömtíu áram, og hvemig hún hagaði baráttu sinni í stjórnarandstöðu þá. Tryggvi Þórhallsson sagði, að sagan endurtæki sig. Hann gat fært að því mörg dæmi, enda manna sögufróðastur. En auðvitað er engin regla án und antekninga. Og í stjórnarand stöðu á árunum fyrir 1960 urðu þau tíðindi, að Morgun- blaðið og Sjálfstæðisflokk- urinn gerðust prýðilega hlið- holl verkföllum. Að síðustu má svo geta, að einn af blaðamönnum íhalds flokksins flutti sérstakt erindi í kvikmyndahúsi í Reykjavík veturinn 1928 um „strákskap- inn á alþingi", og Morgunblað- ið setti þinginu 1928 þessa grafskrift: „Landsmenn þurfa nokkum tíma til þess að átta sig fylli lega á því, hve virðing þings- ins hefur sokkið djúpt að þessu sinni. Þegar almeimingi er orðin sú hönmung fyllilega Ijós, eru allar líkur til, að hin nýafstaðna þings verði marg- oft minnzt — og þá helzt sem þingsins auma“. Víst skýrist margt, þegar frá líður. En ótvírætt er, að ekki hefur tíminn íagzt á sveif með þeim, er svo töluðu á vordög- um 1928. Vafalaust hefur ríkis- stjórn Tryggva Þórhallssonar gert skyssur. En hún varð samt ein mesta framfarastjóm í sögu landsins. Þess vegna lýs ir það því, að miklar vonir eru bundnar við ríkisstjórn þá, sem nú er komin til valda, er myndun hennar er jafnað við stjórnarmyndunina 1927. — Hrappflr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.