Tíminn - 24.09.1971, Side 8
Föstudagur 24. september 1971
Gestur Ólafsson
Gestur Ólafs-
son látinn
Gestur Ólafsson, forstöðumað-
ur Bifreiðaeftirlits ríkisins lézt
sl. nótt. Var Gestur á ferðalagi
í Danmörku, er liann veiktist
skyndilega og lézt hann á sjúkra
húsi í Kaupmannahöfn. Gestur
varð 65 ára að aldri.
Gestur Ólafsson stundaði ýms
störf á sjó og landi þar til hann
gerðist bifreiðastjóri í Reykja-
vík 1925. 1941 var hann skipað-
ur bifreiðaeftirlitsmaður í Rvík
og Suðurlandsumdæmi og 1956
varð hann fulltrúi við bifreiða-
eftirlitið í Reykjavík. 1962 var
hann skipaður yfireftirlitsmað-
ur Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Betri upp- ■
skera en ■
var í fyrra ■
SB—Reykjavík, fimmtudag. ■
Kartöflubændur á Svalbarðs- a
strönd og í nágrenni Grenivíkur
eru þessa dagana að hamast við
að taka upp. Nokkuð eru menn 3
misjafnlega á leið komnir, sum- a
ir eru hálfnaðir en aðrir að
byrja. Uppskeran er yfirleitt
góð og meira undir grösunum en ■
var í fyrra, en þá var sprettan ■
slæm. ■
Bókhald 20
kaupfélaga
fært í tölvu
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Notkun skýrsluvéla við bókhald
fyrirtækja færist stöðugt í vöxt,
enda kostir slíkra vinnubragða ótal
margir. Þannig er nú bókhald 20
kaupfélaga fært í tölvu og tækjum
skýrsluvéladeildar SÍS, að því er
Gunnlaugur Björnsson forstöðumað
ur deildarinnar skýrir frá í Sam-
bandsfréttum.
Félög þessi eru víða um landið,
en skilyrði þess, að hægt sé að
færa bókhaldið í tölvunni er, að
viðkomandi staður sé í greiðum
samgöngum við Reykjavík. í flest-
um tilvikum eru íylgiskjöl merkt
heima í viðkomandi félagi og síð-
Framhald á bls. 18.
Kostar 122 þús.
að eiga bíl
KJ—Rey.kjavík, fimmtudag.
Félag ísl. bifreiðacigenda hefur
látið gcra áætlun um árlegan rekstr
arkostnað Volkswagen 1300, árg.
1971, miðað við 1. ágúst sl. Er hér
um að ræða mcðalkostnað á sjö
árum, miðað við núverandi verð-
lag. Reyndist meðalkostnaðurinn
vera tæplega 122 þúsund krónur,
eða rúmlega 10 þúsund krónur á
mánuði’.
Stærsti liðurinn eru afskriftir,
eða 32 þúsund. Þá bensín 28 þús.,
smurning, hjólbarðar og varahlut-
ir reiknast til að vera rúmlega 21
þús. Viðgerðir 14 þúsund. Ábyrgð-
artrygging 5.800 og húftrygging
5.500. Bifreiðaskattur og afnota-
gjald af útvarpi tæplega 2.500 og
ýmislegt annað eins. Vextir eru
reiknaðir 9.700 og allt samtals 122
þúsund. Reiknað er með 16 þús.
km. akstri. Tryggingaiðgjald er
miðað við 40% afslátt og húftrygg-
ing miðuð við 3 þús. kr. sjálfs-
ábyrgð.
n n
Bændur í Ingólfsfirði:
Farnir að slátra
öllum búfénaii
OÓ—Reykjavík, fimmtudag.
Allt útlit er fyrir að sömu örlög
bíði nú Árneslirepps og Iforn-
stranda og Flateyjar á Skjálf-
anda. Brottflutningur fólks það
an er nú að verða svo gífurleg
ur að heilar sveitir eru að
leggjast í eyði. f liaust munu
t. d. allir íbúar í Ingólfsfirði
flytja þaðan. í dag hófst þar
slátrun og munu allir ábúend
ur jarða þar farga öllu búfé
sínu og flytja á brott. Þá munu
að minnsta kosti tvær fjölskyld
ur úr Trékyllisvík hætta bú-
skap og flylja á brott í haust.
Blaðinu hel'ur ekki tekizt að
fá nákvæmar tölur um live
margir flytja úr þessum byggð
arlögum, en 'láta mun nærri að
það séu um 80 manns, en á
íbúaskrn Árneshrepps eru
rúmlega 200 manns.
Fyrir nokkrum árum var
nyrzta byggð á Ströndum í
Ófeigsfirði, en lagðist í eyði.
Til þessa hefur nyrzta byggð
in verið í Ingólfsfirði, sem nú
er að leggjast í auðn. Þar fyr
ir sunnan er Trékyllisvík og er
þar einnig los á fólki. Margir
þeir sem nú yfirgefa jarðir sín
ar og hætta búskap munu koma
þangað aftur að vori til að
nytja hlunnindi, en um eigin
lega búsetu vcrður ekki að
ræða.
Nyrzti bær á Ströndum, sem
nú er búið á, er Seljanes f
Ingólfsfirði. Bóndinn þar, Krist
inn Jónsson, er einn þeirra,
sem hóf að farga öllu búfé sínu
í dag, og mun flytjast á brott.
Hann sagði Tímanum í dag, að
Kristinn Jónsson
það væru fjölskyldurnar frá
Seljanesi í Ingólfsfirði og
þrjár fjölskyldur frá Eyri, sem
nú flyttust á brott, auk þeirra,
sem fai’a frá Melum og Stóru-
Vík í Trékyllisvik. Kvaðst
Kristinn búast við að eitthvað
af þessu fólki kæmi aftur í vor
til að nytja hlunnindi næsta
sumar. Flestar þessara fjöl-
skyldna fara til Reykjavíkur,
■en að minnsta kosti ein mun
flytja til Bolungavíkur. a
Unga fólkið sem stundar _
nám er þegar farið, en hitt
mun tínast á brott þegar búið *
er að slátra og dytta að fyrir ■
veturinn, þvf margir ætla að ■
snúa aftur í vor til að nytja _
hlunnindi, selveiðar og reka-
við.
— Hver er ástæðan til að þið ■
eruð að yfirgefa þetta byggðar ■
lag? _ a
— Ástæðurnar eru að sjálf-
sögðu margar, en ætli það sé 1
ekki þyngst á metunum, að ■
börnin verða að stunda skóla ■
nám. Þá eru gömlu hjónin eftir ■
og er það heldur einmanalegt ■
þegar langt er á milli bæja. ■
Það kann að verða leiðigjarnt a
til lengdar fyrir öldruð .
.hjón að vera ein allan vetur-
inn. Þegar maður fer að verða "
heilsuveill er þetta ekki hægt ■
lengur. ■
— Læknir er ekki nær en á _
Hólmavík og þangað er erfið
og torsótt leið á vetrum. Prest '
lausir höfum við verið árum *
saman. Barnakennsla er á Finn ■
bogastöðum, en þegar henni a
lýkur hafa allir orðið að senda _
börn sín í önnur héruð til
áframhaldandi náms, eftir því *
hvar hægt er að koma þeim ■
fyrir. a
Nær allt það fólk, sem nú _
er að yfirgefa þessa norðlægu
byggð, hefur alið þar allan sinn “
aldur. Sagði Kristinn að sér ■
fyndist það ekki til neins fagn ■
aðar að flytja á brott, en það a
er ekki hægt annað og það verð _
ur að taka þessu.
II
Var FlB-þingið á Akur-
eyri um helgina ólögEegt?
KJ—Reykjavík, fímmtudag.
Landsþing Félags fsl. bifreiðaeigenda var haldið á Akureyri um síð-
ustu helgi og mun mikill hluti þingtímans hafa farið í karp um kjör á
þingið, og fór svo, að menn, sem ekki liöfðu verið kjörnir á þingið,
komn því til leiðar, að 10 Reykvíkingar, sem kjörnir höfðu vcrið, voru
úrskurðaðir ógildir af þingfulltrúum, en þessir tíu Reykjavíkurfulltrú-
ar mótmæltu harðlega og töldu þingið ólöglegt.
Sr. Bolli Gústafsson í Laufási,
sem er einn af stærstu kartöflu-
bændum í nágrenni Grenivíkur,
sagði Tímanum í dag, að kart-
ofluræktin væri orðin aðallega
á því svæði. Innar á Ströndinni
hefði kartöflurækt dregizt mjög
saman seinni árin.
— Við erum hér í miðjum
kliðum, sagði sr. Bolli. — Veðr-
ið ér ágætt til að taka upp, en
það var frost í nótt og þá féllu
grösin, sem fram til þess höfðu
staðið. Áður voru grös fallin á
flatlendi, en nú féllu Þau í
brekkunum.
Miklu meira var sett niður af
kartöflum í Laufási en í fyrra,
þar sem meira landi var úthlut-
að í vor undir kartöflugarða.
— Þurrkarnir framan af
drógu nokkuð úr sprettu, sagði
sr. Bolli, — en um mína sprettu
er það að segja, að hún er mjög
jöfn. Að minnsta kosti sex teg-
undir af kartöflum eru ræktað-
ar þarna í görðunum, en mest
mun vera af gullauga.
Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur
sent frá sér fréttatilkynningu um
þingið, sem stóð á laugardag og
sunnudag, og fer hér á eftir hluti
fréttatiÍKynningarinnar:
„Óvenjulegt mál reyndist hita-
mál á þingi FÍB, einkum fyrri
daginn. Tíu fulltrúanna frá
Reykjavíkursvæðinu voru úrskurð
aðir ógildir af þingfulltrúum,
enda þótt þeir tækju áfram þátt
í ýmsum störfum þingsins, og í
ýmsum nefndum þess.
Þannig er mál með vexti, að
þegar framboðsfrestur til fulltrúa
þings FÍB rann út. hafði aðeins
einn listi með nöínum jafn
margra fulltrúa og kjósa átti bor-
izt. Er það í fyrsta skipt.i síðan
gildandi lög voru samþykkt, að
slíkur listi er lagður fram. Áður
höfðu fyrrverandi fulltrúar ætíð
verið sjálfkjörnir til endurkjörs,
þar sem engin framboð höfðu bor
izt.
Urðu nú miklar umræður um
það, hvort listi þessi væri sjálíkjör
inn, eða hvort fyrrverandi fulltrú-
ar bæru að skoðast í kjöri. Laga-
ákvæði um þetta efni voru ekki
til, a.m.k. ekki ótvíræð og sneri
stjórnin sér þá til þriggja lögfræð
inga, sem eiga sæti, eða hafa átt
í kjörstjórnum.
Að fengnu áliti þcssara manna
ákvað stjórnin að taka listann gild
an til kjörs fulltrúa fyrir Reykja-
vík, — en aðstandendum listans
var gefinn kostur á að lagfæra
formgalla, sem á listanum var.
Var sá hluti listans, sem gerði til-
lögur um fujltrúa utan Reykjavík-
Ur því strikaður út, enda talinn
ólögmætur. Fyrrverandi fulltrúar
utan Reykjavíkur, voru því taldir
sjálfkjörnir að nýju, þar eð ann-
ar listi þar hafði ckki verið lagð-
ur fram.
Á 5. Landsþinginu á Akureyri
hnekkti þingheimur þessari niður-
stöðu stjórnarinnar eins og fyrr
greinir. Var þessu mótmælt af hin
um nýkjörnu fulltrúum Reykja-
víkursvæðisins, sem töldu þing-
haldið vera ólögmætt, þar eð þeir
hefðu komið inn á þingið cftir
eðlilegum leiðum. Reykjavíkurfull
trúarnir voru 20 af 42 fulltrúum
þingsins, tíu þeirra fengu ekki að
taka þátt í atkvæðagrciðslum
þingsins."
Til skýringar skal þess gctiö,
að þrír af gömlu fulltrúunum
mættu á þinginu, án þess að vera
til þess kjörnir, og hélt einn þess
ara fulltrúa uppi miklu málþófi
gegn nýju funtrúunum, með
framangreindum afleiðingum.
Virðist eftir því, hver sem er
geta komið á FÍB þing og haldið
þar uppi málþófi og kqmið meiri-
hluta þingsheims á sitt band með
einhverjum hætti.
Þá segir ennfremur í fréttatil-
kynningunni:
„Þrátt fyrir þessi óvenjulegu
„átök“ á fundinum var greinilegt
að mikill sóknarhugur er í félags-
mönnum FÍB, enda stór verkefni
framundan, þar sem eru vegamál-
in í landinu, sem FÍB hefur ævin
lega barizt fyrir, tryggingarmál,
slysavarnir og raunar margt fleira.
Voru fjölmargar ályktanir gerð-
ar á þinginu.
í stjórn Félags ísl. bifreiða-
eigenda voru kjörnir til næstu 2
ára þcir Guðmar Magnússon og.
Guðmundur Jóhannsson. Fyrir
eru í stjórninni: Séra Jónas Gísla-
son, Ragnar Júlíusson, skólastjóri,
og Konráð Adolphsson, fram-
fvæmdastjóri, sem er formaður
félagsins.
Félagið rekur skrifstofu að Ár-
múla 27. Framkvæmdastjóri er
Guðlaugur Björgvinsson."