Tíminn - 01.10.1971, Blaðsíða 2
• . » » r t • •• i »• t • • j- • i | | , f f i
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 1. október 1971
Fulltrúafundur Sam-
vinnu hjúkrunar-
kvenna á Norður-
löndum
Samvinna hjúkrunarkvenna á
Norðurlöndum (SSN) hélt árleg-
an fulltrúafund sinn í Os við Berg
en dagana 7.—10. sept. 1970.
Þáttakendur voru alls um 80.
Af íslands hálfu sátu fundinn,
•uk formanns Hjúkrunarfélags ís-
lands, 8 aðilar, 4 fulltrúar frá hin
um ýmsu sviðum heilsugæzlu og
hjúkrunar, fulltrúi frá Heilbrigð-
is- og tryggingaimálaráðuneytinu,
2 hjúkrunarnemar og ritstjóri
Tímarits HFf.
Formaður SSN Gerd Zetter-
ström Lagervall stjórnaði fund-
inum. Rætt var m.a. um samvinnu
hjúkrunarnemafélaganna og SSN.
Samþykktar voru svohljóðandi til-
lögur um starfreglur fyrir SSN.
1. Byggja upp sterk og dugmik-
il samtök hinna 5 hjúkrunarfélaga
á Norðurlöndum.
2. Vinna að því að aðeins lög-
gildar hjúkrunarkonur séu í hjúkr
unarkvennastöðum.
3. Vinna að bættri menntun
hjúkrunarkvenna á öllum sviðum.
4. Að stuöla að auknum rann-
sóknum og framförum á hjúkrun-
arstörfum og starfssviði hjúkrun-
arkvenna.
5. Fylgjast með því, að réttindi
og laun samsvari námi og ábyrgð.
6. Að vinna að betri starfsskil-
yrðum, þar sem starfslið og sjúkl-
ingar hafi meiri áhrif.
7. Vinna að bættum aðbúnaði
starfsliðs varðandi heilsugæzlu, og
vörn gegn slysum og atvinnusjúk-
dómum.
8. Efla gott samstarf hjúkrun-
arnemafélags og hjúkrunarfélags
viðkomandi lands. „
9. Vinna að góðu samstarfi hinna
ýmsu starfshópa innan heilbrigðis-
þjónustu og félagsmála.
10. Hvetja hjúkrunarkonur til
meiri þátttöku í öllu er varðar
heilsu vernd og sjúkra- og félags-
hjálp.
11. Hvetja til aukinnar sam-
vinnu innan Alþjóðasambands
hjúkrunarkvenna (I.C.N.) og ann-
ara alþjóðasamtaka.
12. Kynna störf SSN á þjóðleg-
um, samnorrænum og alþjóðleg-
um grundvelli og veita blöðum
og öðrum fjölmiðlum upplýsingar.
Síðan fóru fram umræður, við-
fangsefni hópanna voru:
A. Samstarf í heilsuvernd og
hjúkrun.
B. Nám hjúkrunarkvenna, grunn
nám og framhaldsnám.
C. Hlutverk hjúkrunarkonunn-
ar.
D. Evrópuhjúkrunarkonan.
E. Samningsréttur hjúkrunarfé-
laga. ,
Hver hópur skilaði síðan áliti
aftfti úr voru unnar sameiginleg-
ai ^tirfarandi niðurstöður:
Við framkvæmd heilsugæzlu,
hjúirunar og félagslegrar umönn-
Un*. á Norðurlöndum þarf fUikin
teagsl milli hinna mismnnandi
starfsgreina, svo að jafnan onegi
gæta þarfa sjúklingsins eða skjól-
stæðingsins. Til að svo megi vera
þarf að gera samfellda heilsu-
gæzluáætlun.
Fulltrúafundurinn gerir kröfur
til þess, að meginstefnan við hag
ræðingu og mótun þessarar heilsu
gæzluáætlunar verði ákveðin með
samráði hlutaðeigandi stjórnvalda
og stéttarsamtaka.
Endurskipun heislugæzlu, hjúkr
unar og félagslegrar umönnunar
fer fram á öllum Norðurlöndum.
Hjúkrunarkonur starfa og bera
ábyrgð á sérstöku sviði. Skiptir
því miklu máli, að þær eigi full-
trúa við framkvæmd þessarar end-
urskipunar og geti haft þar áhrif
Framhald á bls. 10.
FGBBinnKB QO
ISTUTTUMáU O®
Seyðisfjörður:
Lítið um
byggingar
ÞÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Hörður Hjartarson á Seyðis-
firði sagði, að þar vantaði fólk
í bæði frystihúsin, enda bærist
stöðugt mikill afli að landi. í
gær landaði Brettingur 50 tonn
um á Seyðisfirði og í dag land-
aði Margrét 45 lestum. Að auki
eru tveir aðrir trollbátar, sem
landa hér, en það cru Ólafur
Magnússon og Hannes Haf-
stein. Einn Seyðisfjarðarbát-
anna Gullver fór til veiða í
Norðursjó í morgun og verður
þar fram eftir hausti.
Lítið er um byggingar hér
á staðnum, einu opinberu fram
kvæmdirnar eru, að verið er
að grafa fyrir barnaheimili og
bygging símstöðvarhúss stend-
ur yfir.
Varðberg:
Ráðstefna og
hádegisfundur
KJ—Re.vkjavík, fimmtudag.
Annað kvöld, föstudagskvöld,
hefst í Tjarnarbúð í Rcykjavík
ráðstefna Varðbergs um varnar-
málin og Atlantshafsbandalagið.
Formaður félagsins Jón E.
Ragnarsson sétur ráðstefnuna,
en síðan flytja ræður þeir Jó-
hann Hafstein alþingismaður,
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og Þórarinn Þór-
arinsson, alþingismaður.
Á laugardaginn efna svo fé-
lögin Samtök um vestræna sam-
vinnu, og Varðberg, til hádegis-
fundar í Tjarnarbúð, og verður
John K. Beling aðmíráll á
Keflavíkurflugvelli ræðumaður
á fundinum. Erindi hans nefnist
„An Evolution of Military
Power“. Að erindinu loknu mun
aðmírállinn svara spurningum
fundarmanna.
Síðan verður ráðstefnunni
haldið áfram á laugardag og
sunnudag og verða Þá fluttar
stutt erindi um varnarmálin og
Atlantshafsbandalagið.
Fagurhólsmýri:
Flugvél
sækir slátur
tvisvar á dag
EB—Reykjavík, fimmtudag.
— Ég held að hér á Fagur-
hólsmýri verði um 3 þúsund
f jár slátrað í haust og mun það
vera nokkuð svipuð tala og í
fyrra, sagði fréttaritari Tím-
ans á Fagurhólsmýri, Sigurð-
ur Arason, í viðtali við blaðið
í dag.
— Flugvél frá Flugfélagi ís-
lands kemur nú hingað’tvísvár
á dag og flytur slátur suður,
en 350 fjár er slátrað hér á
dag.
— Fer þá ekki lítið í súg-
inn af slátri?
— Jú, en eitthvað samt af
blóði, og vömbum.
Sigurður skýrði ennfremur
frá því, að í sumar hafi gott
vegasamband verið milli ör-
æfanna og Hornafjarðar. Hann
sagði einnig að í langan tíma
hafi varla komið sá dagur í
Öræfunum að ekki rigndi eitt-
hvað. Hins vegar hefði sumar-
ið verið gott, bændur ættu nóg
hey og kartöfluuppskeran væri
góð.
Kirkjubæjarklaustur:
Minni slátrun
nú en í fyrra
EB—Reykjavík, fimmtudag.
í viðtali er Tíminn átti í
dag við fréttaritara sinn á
Kirkjubæjarklaustri, Einar
Valdimarsson, kom fram, að
rétt innan við 20 þúsund fjár
verður slátrað á Kirkjubæj-
arklaustri í liaust.
Einar sagði, að þetta væri
heldur lægri tala en oft áður
og líklega væri orsökin sú,
að nú ættu bændum þar aust-
urfrá meira hey en oft áður.
í sláturhúsinu á Kirkjubæj-
arklaustri er um 700 fjár slátr-
að á dág, og hafa afköstin þar
ekki aukizt frá í fyrra. Hins
vegar er nú heldur betri að-
staða í sláturhúsinu þar en í
fyrra, þar eð lítillega var byggt
í sumar við sláturhúsið.
Rignt hefur mikið upp á síð-
kastið á Kirkjubæjarklaustri og
þess vegna hefur bændum geng
ið nokkuð erfiðlega að ná sam-
an fé sínu.
Vegna hins góða heyskapar-
sumars, er mikið hey úti hjá
bændum þar austurfrá sökum
þess að hlöðurými hefur skort.
Er heyið að sjálfsögðu í bólstr-
um.
Selfoss:
Grunnur að
nýju verk-
stæði KÁ
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Nú er búið að grafa fyrir
og fylla grunninn í hinu nýja
bifreiðaverkstæði, sem Kaup-
félag Árnesinga byggir á Sel-
fossi og mun grunnurinn verða
steyptur bráðlega. Sem kunn-
ugt er, er hér um að ræða bif-
reiðaverkstæði, sem verður á
4ja þúsund fermetrar.
Þessar upplýsingar fékk Tím-
inn í dag hjá fréttaritara sín-
um, Stefáni Guðmundssyni í
Túni við Selfoss.
Aðspurður sagði Stefán, að
nú vissi hann ekki um nokkum
miann þar í nágrenninu er
heyjaði á engjum þetta sum-
ar, en tvö síðustu árin hafa
menn þar um slóðir heyjað á
engjum vegna lélegrar sprettu,
en áður mun slíkur heyskapur
hafa legið niðri um langt
skeið.
BERKLAVARNADAGUR
SÍBS Á SUNNUDAGINN
Hinn árlegi bcrklavarnadagur
SÍBS er sem fyrr haldinn fyrsta
sunnudag októbermánaaðr.
Hafa tekjur dagsins alltaf létt
undir við þau störf og verkefni,
scm sambandið er að vinna að. og
má segja að það sé vel að þcim
tekjum komið, sem safnazt hafa
á þessum ,,dögum“. En nefna dag-
inn þessu nafni í landi, sem hef-
ur siglazt á berklaveikinni, eða
svo gott sem, kann að vera ósmekk
legt. Nær væri að kalla þennan
fjársöfnunardag einhverju nafni,
sem gæfi til kynna að hagnaður-
inn renni til endurhæfinga sjúkra
manna almennt, enda hefur svo
verið í raun.
S.Í.B.S. hefur þó aldrei gert hlé
á varðnaðarorðum sínum og not-
Tómas A. Tómasson, hinn nýi ambassador íslands hjá Efnahagsbandalagi
Evrópu 21. september. Myndin var tekin er Tómas (t.h.) afhendir Reymond
Barre, varaforseta framlcvæmdanefndnr EBE, trúnaðarbréf sitt. Ásamt
þeim á myndinni er Joseph Kasel, siðameistari EBE.
að þennan dag sérstaklega til að
vekja athygli almennings á þeirri
óhugnanlegu vissu, að hættan á
nýjum berklafaraldri vex því
meir sem fjöldi neikvæðra ung-
menna nálgast að vera hundrað
af hundraði. Og nú bregður þjóð-
inni ónotalega við frétt, sem
henni hefur borizt þess efnis, að
ungur maður úr Austurlöndum
nær hafi kornið til landsins og
hafið störf að matvælaiðnaði
landsmanna, meðal tuga eða
hundraða af ungu fólki og svo
reynist, að maður þessi er berkla
smitbcri er vcldur smitun og
sýkingu.
Það er líklega rétt hjá gamla
SÍBS, að halda þeim forna hætti
sínum að vara við háskanum, sem
af berklum stafar, þó ásókn hans
hafi verið væg á undanförnum
árum. Mannkynið hefur ekki kvatt
berkilinn hinztu kveðju. Því er
nú verr og miður. Vágestur þessi
liggur í leyni, búinn til leiftur-
sóknar að okkar hraustu æsku
hvenær sem er.
Trúlega mun berkillinn ógna
mannkyninu alla tíð meðan það
amstrar við búskap sinn hér á
þessari reikistjörnu.
Það er vissara að sofna ekki
á verðinum, og hæðast ekki að
berklavarnardögum, þó er sjálf-
sagt að vera b.iartsýnn og vonandi
getur SÍBS framvegis varið fjár-
munum sínum til almenns endur-
hæfingnstarfs moðal hinna sjúku
| og þurfi ekki að fjárvæða nýja
herferð gegn fornum fjanda,
berklaveikinni. Bara að svo væri.
Ekki liggja þeir á liði sínu þeir
SÍBS-menn þama upp í Mosfells-
sveitinni. Aldrei hið minnsta hlé
á nytsömum framkvæmdum á
Reykjalundi síðan fyrsta skóflu-
stungan var tekin sumarið 1944.
Þó ekki ávallt við hagstæð fjár-
ráð.
Þjóðin hefur og kunnað að
Framhald á bls. 10
Aðalfundur
*
Asanna
Bridgefélagið Ásarnir Kópavogi,
hélt aðalfund 23. sept. sl. For-
maður Þorsteinn Jónsson flutti
skýrslu stjórnar og kom þar fram
að starfscmi er vaxandi og lofar
bað góðu um framtíðina.
Aðalstjórn baðst öll undan end-
urkosningu. Ný stjórn er þannig
skipuð:
Formaður: Sveinr. A. Sæmunds-
son. Ritari: Guðmundur Jónas-
son. Gjaldkeri: Jón Hermannsson.
Varaformaður: Lúðvík Ólafsson.
Meðstjórnendur: Ari Þórðarson,
Páll Hjaltason.
Starfsemin í vetur verður með
líku sniði og sl. ár og hefst með
3 kvölda keppni í tvímenning,
mánudaginn 4. okt., n.k. Spilað
verður í Félagsheimili Kópa-
vogs.