Tíminn - 01.10.1971, Qupperneq 5
§
T .T f J r 1 T T T
VðSTUÐAGUR L október 1971
TIMINN
MEÐ MORGUN
KAFFINU
ISPEGU
Öldruð hjón bjuggu í sveit
einni á Suðurlandi. Þau hétu
Gaðrún og Þorkell.
Hjónin sváfu sitt í hvoru rúmi
og var sambúðin stirð.
Kvöld eitt kemur Þorkell inn
feá húsverkum, og liggur kona
hans þá í rúminu og hefur ekki
sinnt neinum kvöldverkum.
Þorkell lætur það afskipta-
laust og gengur til sængur.
Morguninn eftir er Guðrún
enn í rúminu, en Þorkell bóndi
yrðir ekki á hana og fer tii
sinna verka.
Sonnr þeirra hjóna liafði vei-
ið að heiman, en kom heim Þenn
an dag nm hádegisbilið.
Hann sér strax, að eitthvað er
að móður hans, og verður þess
var, að hún hefur fengið siag
og er máílaus.
Hann ávitar nú föður sinn fyr-
ir hirðuleysi um móður sína, en
Þorkell mælti þá=
„Ég hélt, að hún væri með
fýlu, og ætlaði ekki að fara að
sleíkja úr henni.**
Stcinn Steinarr lá banaleguna.
Þá kom til han prestur einn
og spurði, hvort hann gæti gert
nokkuð fyrir hann.
„Ekki strax“, svaraði Steinn
og brosti.
— Við skulum sjá. Fjögur ný
dekk og blöndungur. Það verða
akkúrat hundrað krónur.
Kona nokkur kom i heitnsókn
til nágrannakonu sinnar, sem
var mesta subba.
Hún tók gestinum hið bezta.
bar inn bolla, kökur og kaffi og
ætlaði að fara að hella í boll-
ana, en aðkomukonunni mun
hafa þótt sinn bolli nokkuð ó-
hreinn, því hún lyfti honum upp
og sagði:
„Má ég ckki lesa í bollinn
fyrst?“
Kerling ein, sem var mjög
mædd af andstreymi lífsins,
þóttist aldrei fá bænheyrslu,
Þótt hún bæði til guðs sem bezt
hún kunni. — Eitt sinn sagði
hún:
„Það er ekki til neins að vera
að biðja þennan guð um neitt.
Það væri þá heldur að biðja
hitt tötrið."
Sæmundur kaupmaður var oft
mjög viðutan.
Einu sinni lá hann veikur, og
kallaði þá kona hans til hans,
að læknirinn væri að koma.
„Hamingjan hjálpi mér!“
sagði Sæmundur þá. „Ég er í
rúminu. Ég get ekki tekið á
móti honum. Segðu honum, að
ég sé veikur.“
Kristján hét maður og, þjó í
Borgarhöfn. Hann hafði mikla
ánægju af fréttaburði.
Vilhelm Knudsen var þá verzl
unarmaður á Papós, og var
tengdamóðir hans hjá honum.
Það einkennilega slys henti
hana, að kjálkarnir á henni
hlupu úr liði.
Kristján fréttir þetta, hleyp-
ur með miklum asa á næsta bæ
og segir, áður en hann heilsar:
„Heyrið þið piltar! Hafið þið
heyrt af henni Skonsu? Það i
hljóp í baklás á henni kjaftur- !
DENNÍ — Það er smákraftaverk, sem
_ a , . , . _ , mig langaj' til að biðja þig að
DÆMALAUBI sera mis
iiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiimiiiiiiiiiiiitiiiiiMiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMMiiimiiiiiiniiiiMi
Litla apabarnið, sem hér er
svo ánægt á vigtinni, er um
þessar mundir a'ðal aðdráttarafl
ið í dýragarðinum í London.
Mýridin ’cr tckih. þe^áf'áp'abarn-
ið hélt sinn fyrsta blaðam.fund
nýlega. Þetta er nefnil. ekkert
venjulegt apabarn, heldur Babo-
api, og sú tegund hefur aldrei
áður fætt afkvæmi í dýragarði.
En Babo-mamman lét líka Þar
við sitja, því hún harðneitaði að
eiga nokkuð í baminu sínu og
við sjálft lá, að blessaður ung-
— ★ — ★—
Frank Sinatra er sagður velta
fyrir sér, hvort hann eigi að
kvænast á nýjan leik. Stúlkan,
sem hann er að hugsa um, heitir
Pamela Hayward og var áður
gift Randolfph Churchill.
-★-★-
Flestir muna líklega eftir
lean-Claude-KiIly, franska skíða-
manninum, sem fékk þrjá gull-
peninga á síðustu ólympíuleik-
um. Síðan er Killy orðinn vell-
auðugur á því að nýta auglýs-
ingagildi sitt til hins ýtrasta.
Hann hefur notað nafn sitt til-
að auglýsa skíði, tannkrem og
flest alla hluti þar á milli. En
þrátt fyrir allar vinsældirnar
hefur Killy aldrei kvænzt. Það
hefur líka sína skýringu. Hann
má nefnilega ekki kvænast og
hefur undirritað samning þess
efnis við General Motors. Lík-
lega halda þeir ágætu menn, að
kvæntir menn selji hlutina
ekki eins vel. En nú eru uppi
ýmsar blikur um það. að Killy
rjúfi samninginn fljótlega, því
hann er sagður ástfanginn. Þeg-
ar hann var að leika i sinni
fyrstu kvikmynd, sem auðvitað
fjallar um skíðakappa, hitti
hann elskuna sína, því hún lék
á móti honum. Hún er frönsk
lika og heitir Danielle Gaubert.
inn dæi. En þá var fengin hjúkr-
unarkona til að annast þann
litía. Nú er Ripple, eins og
hann er kallaður, á grænni
grein, og étur öll reiðinnar ó-
sköp. Hann gat ekki stilt sig á
blaðamannafundinum, að fá sér
sopa við og við, en það þykir
lika tilheyi-a slíkum samkomum.
Það verður að segja nm
Birgittu Bardot, að hún hefur
góðan smekk fyrir karlmenn, og
velur sér ekía hvem sem er til
fylgilags við sig. Sá síðasti,
skíðakennarinn Kristian Kalt,
er fytrirmyndar eintak, að
minnsta kosti, hvað útlitið snert-
ir. Síðan hann fór að iðka
Birgittu, hefur hann ekki haft
tíma til að kenna fólki á skiðum,
þvi hún vill hafa sinn mann alla
24 tíma sólarhringsins.
ÁstarÞörf Birgittu fær útrás
í öðru.ýen eingöngu karlmönn-
um. Hún nýtur þess einnig, að
hlynna að fólki, sem á bágt Til
dæmis borgaði hún í mörg ár
húsaleiguna fyrir konuna, sem
passaði hana þegar hún var
bam. I sumar dó svo gamla
konan eftír langa sjúkrahúsíegu,
sem Birgitta kostaði einnig.
— ★ — ★ —
Frönsk kona hefur sett heims
met í óafplánuðum fangelsis-
dómum. Hún á óafplánuð 298 ár
samkvæmt þeim dómnm, sem
upp hafa verið kveðnir yfír
henni. Glæpakvendi þetta heiör
GabrieHe Lagrange og er hún
52 ára gömul. Hún hefur ávalt
verið dæmd in absentia — eða
að henni fjarverandi, nú sfðast
í Saint-Omer í Frakklandi. Þar
hafði hún framið áttugasta og
annan glæp sinn, sem upp hafði
komizt og bætti með honum
þremur árum við dómasaínið.
í þetta sinn var glæpurinn í því
fólginn, að Gabrielle hafði bank
að upp á hjá Madömu Germainc
Godart, áttatíu ára gamalli frú,
og skýrt henni frá því, að hún
væri félagsráðgjafi og gengi í
hús og aðstoðaði og jafnvel
læknaði fólk, eftir beztu getu.
-★-★-
Þessi myndarmaður meö box-
hanzkana er hann Jason. J?að
getur víst enginn séð á honum,
að þegar hann fæddist fyrir
fjórum mánuðum, var hann svo
lítill og veikbyggður, að honum
var ekki hugað líf. Hann fædd-
ist tveimur vikum fyrir tímann,
en var furðu fljótur að ná sér á
strik. Mamma hans var líka
ákveðin í aö gefast ekki upp og
brátt fór Jason að verða svo
gráðugur, að honum nægði ekki
móðurmjólkin ein, lieldur vildi
mat. Hann fékk mat og árang-
urinn varð sá, að þegar þessi
mynd er tekin, á fjögurra mán-
aða afmæli Jasons, vóg hann 14
kíló, sem nálgast það að vera
Bretlandsmet. Jason er að æfa
sig, svo hann geti bankað í þá,
scm kalla hann „feitabollu" á
barnaheimilinu.