Tíminn - 01.10.1971, Side 9
FÖSTUDAGUR 1. október 1971
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
ÖRSLIT í
„UEFA CUP“
Úrslit leikja í fyrstu umfer'ð í
fyrstu „UEFA keppninni-‘ í knatt-
spyrnu:
Leeds Engl.—Lires SK, Belgíu 0:4
(Lires áfram 4:2).
Elfsborg Svíþjóð—Hertha Berlín
V.-Þýzkl. 1:4 (Hertha áfram 7:2).
ÍFK Helsinki Finnl.—Rosenborg
Noregi 0:1 (Rosenborg áfr. 4:0).
Shelbourne írl.—Vasas Ungverjal.
1:1 (Vasas áfr. 2:1).
Eintracht Brunsw. V.-Þýzk.—Glent-
oran N.-frl. 6:1 (Eintr. áfr. 7:1).
Tottenham Engl.—Keflav., ísland
9:0 (Tottenham áfr. 15:1).
Aberdeeín Skotl.—Oelta Vigo,
Spáni 1:0 (Aberdeen áfr. 3:0).
Aris Luxemborg—ADO, Holl. 1:1
(ADO áfr. 6:1).
Academica Portúgal—W olves,
Engl. 1:4 (Wolves áfr. 7:1).
1. FC Köln V.Þýzk.—St. Etienne,
Frakkl. 2:1 (Köln áfr. 3:2),
Lugano Sviss—Legia Warsaw,
Póll. 0:0 (Legia áfr. 3:1).
Nantes Frakkl.—Porto, Portúgal
l:l(Nantes áfr. 3:1).
St Johnstone Skotl.—Hamborger
SC V.-Þýzkal. 2:0 (St Johnst.
áfr. 4:2).
Atletico Bilbao, Spáni—Southamt-
on, Engl. 2:0 (Atletico áfr. 3:2).
Anderlecht Belgíu—Bologna, Ítalíu
2:0 (Bologna áfr. 3:1).
Vitoria Setubal, Portúg.—Nimes,
Frakkl. 1:2 (Nimes áfr. á hag-
stæðari markatölu).
Basel Sviss—Real Madrid, Spáni
1:1 (Real áfr. 4:2).
Juventus Ítalíu—Marsa, Möltu 5:0
(Juventus áfr. 11:0).
Austria Salsb. Austurr.—UT Arad,
Rúmeníu 3:l <Arad áfr. 5:4).
Ferencvaros Ungv.—Fenerbahce,
Tyrkl. 3:1 (Ferencvaros áfr.
4:2).
Dighenis AM Kypur—AC Milan,
ftaiíu 0:3 (Milan áfr. 7:0).
VSS Kosice Tékkósl.—Sparta,
Moskva, Sovét 2:1 (Sparta áfr.
3:2).
Djurgaarden Svíþjóð—OFK Bel-
grade, Júgósi. 2:2 (OFK áfr.
6:3).
FC Bruges Belgíu—Sarajevo, Jú-
gósl. 3:1 (Sarajevo áfr. 4:3).
Rapid Rúmeníu—Napoli, Ítalíu
2:0 (Rapid áfr. 2:1).
Okkur vantar enn 7 úrslit í
þessari keppni, en samtals voru
liðin sem tóku þátt í þessari
fyrstu umferð 64 talsins.
KR-FRAM í
Mjög líklegt er að lcikur
Fram og KR í 1. umferð loka-
keppninnar í Bikarkeppni KSÍ
fari fram í flöðljósunum á
Melavellinum n.k. miðvikudags
kvöld.
Bæði Iíðin eiga nokkra af
sínum leikmönnum í úrslita-
keppninní í 2. flokki, senj fram
fer um.næstu helgi, en bar
keppa;^R, Fram og ÍBj\, og
var því ekl.j, möguleiki að láta
leikinn |ara fram þá. Þar sem
fljóðljósin öru komin í gagnið,
var ál^veðio að leika leikinn
í miðri vi'ku, o/ liefur verið
talað um áð þami fari fram á
miðvikíidagskvöldið. —Klp. i
Þegar aðrir eru í mat milli kl. 12 og 1, eru handknattleiksmenn Fram á æfingu. Þessi mynd var tekin í Laugardalshöltinni í gaer þegar
fyrsta hádegisæfingin fór fram. (Túnamynd Róbert)
FRAM ÆFER í HÁDEGINU
Það hefur löngum verið vand
ræði hjá íslenzkum íþrótta-
mönnum, sem allir eru 100%
áhugamenn, að koma fyrir og
haga æfingum sínum þannig,
að þær rekist ekki á við vinn-
una og heimilislífið. Það síðar-
nefnda hefur frekar orðið fyrir
því.
Menn liafa hlaupið beint úr
vinnu, oftast dauðþreyttir eft-
ir lángan vinnudag, á æfing-
ar. Sumir hafa þó getað náð
heiín til að gleypa í sig nökkra
bita, áður en aftur er rokið
út til að fara að æfa, og síðan
er komið heim þegar flestir
eru komnir í fasta svefn. Þetta
hefur gengið hjá sumum með-
an þeir eru ungir, en þegar
fram líða stundir, og fjölskyldu
lífið kallar að, fara menn að
slá slöku við, enda er svo kom
ið hér á landi, að flestir hætti
að iðka íþróttir rétt liðlega
tvítugir.
Lengi hafa menn verið að
velta því fyrir sér, hvaða ráð
sé til að koma í veg fyrir þetta,
og hefur verið bent á ýmislegt
til úrlausnar. — En nú hafa
handknattleiksmenn Fram rið-
ið á vaðið með nýtt fyrirkomu-
lag, sem trúlega á eftir að
vekjá,; mikla ''athygli'1 * rtieðal
íþróttamanna og forráðamanna
þeirra liða, sem standa sveittir
við að fá menn til að mæta á
æfingar.
— Þeir hafa einfaldlcga byrj
að að æfa í hádeginu, nota
matartíma sinn til þeirra hluta,
og þetta hefur fengið góðar
undirtektir hjá flestum leik-
mönnunum. Það var í þess-
ari ,viku sem Fram byrjaði á
þessu undir stjórn Karls Bene-
diktssonar, en liann hefur áður
ur komið fram með þá hug-
mynd að menn æfðu í hádeg-
inu. Var fyrsta æfingin í Laug-
ardalshöllinni milli kl. 12 og
1 á fimmtudag, og var vel
mætt.
Menn komu óþreyttir á æfing
una, en slíku er ekki alltaf
að,i fara; þegar kvöldæfingar
eru. Þeir höfðu með sér
snarl, og fengu sér að borða
að lokinni æfingu og baði, og
var að heyra á þeim mönnum
sem við höfðum tal af í gær,
að þeim hefði líkað þetta fyr-
irkomulag stórvcl.
Að vísu er sá vankantur á
þessu, að þeir sem vinna fyr-
ir utan bæ, eða þurfa að
sækja langt á æfingu, eiga erf
itt með að komast, en hug-
myndin er að æfa 4 sinnum
í viku í hádeginu og 1 sinni í
viku að kvöldi. Eins og mál-
um er nú háttað hjá Fram, er
beðið eftir því að fá fjóra tíma
í viku í sama húsi, en það hef-
ur enn ekki tckizt. Þegar það
fæst í gegn, verða öll tæki sem
til þarf flutt þangað, og þar
verðqr í?ft, Verður gaman að
fylgjast með þessari tilraun
Framara, og er vonandi að hún
gefi góða raun, því þama er
loks komið eitthvað nýtt fram
á sjónarsviðið varðandi æfing-
ar fyrir hina söimu áhuga-
menn í íþróttum. — Klp.
„Hefur jÍdú hugsað
\>ér til hreyfings?"
Ef ekki, — þá athugaðu hvort Júdó er ekki upplögð
íþróttagrein fyrir þig :—
Þ'að réynir á 'alla vöðva að æfa' júdó 'segja þeír sem æfa hjá Júdódeild
Ármanns, þar sem þessi mynd var tekin í fyrrakvöld. (Tímamynd Róberf)
Klp—Reykjavík.
Fyrir þá sem hugsa sér til
hreyfings með haustinu í sam-
bandi við trimm og heilsurækt,
skal á það bent, að fáar íþrótta-
greinar veita eins mikla alhliða
áreynslu á líkamann og sú vin-
sæla íþróttagrein, sem gengur
undir nafninu JÚDÓ um allan
heim.
„Það eru margir sem hafa þá
hugmynd um júdóíþróttina að
hún sé bara fyrir þá, sem vilja
vera í tuski og slagsmálum í
tíma og ótíma“, sögðu forráða-
menn Júdódeildar Ármanns, er
við ræddum við þá um æfingar
og annað hjá deildinni fyrir
skömmu. „En þetta er rangt, sá
sem iðkar júdó af kostgæfni fær
sterkan og lipran líkama, hann
ræktar með sér keppnisskap og
hugareinbeitingu og um leið virð
ingu fyrir andstæðingi sínum. Er
það samdóma álit þeirra, sem kom
ið hafa nálægt þessari íþrótt að
heppilegri íþróttagrein sé varla
til fyrir þá sem vilja halda sér f
líkamsþjálfun og hafa góða heilsu.
Mikill áhugi er meðal fólks
á þessari íþrótt. sögðu Ár-
menningarnir. Þeir sögðu að æf-
ingar á vegum deildarinnar færi
fram að Ármúla *32, þar sem væru
m.a. tveir æfingasalir gufubað og
nokkur aðstaða til félagsstarfsemi.
Þeir sögðu að kennsla færi fram
í byrjendaflokkum karla, kvenna
og drengja, auk framhaldsflokka
karla og kvenna. Aðalkennari
deildarinnar væri japanski júdó-
meistarinn Jamamoto, sem er
með hæstu gráðu júdókennara á
Norðurlöndum (5. dan).
Um æfingagjöldin sögðu þeir
að þeim væri stillt í hóf. Kost-
aði 2500 kr. á ári fyrir yngri en
15 ára, en 5500 kr. fyrir þá eldri,
og væri allt innifalið í þessu
verði. Þá væri afsláttur fyrir
skólafólk og einnig ef fleiri en
einn úr sömu fjölskyldu stunduðu
æfingar, annars væri hægt að fá
allar nánari upplýsingar lijá fé-
lagsmönnum eða í síma 83295.