Tíminn - 28.10.1971, Qupperneq 1

Tíminn - 28.10.1971, Qupperneq 1
245. tbL — Fimmtudagur 28. október 1971 — 55. árg. Engin mæði- veiki hefur fundizt á þessu hausti SJ—Reykjavík, miðvikudag. „Engin mæðiveikitilfelli hafa fundizt í sauðfé enn sem komið er í þessari sláturtíð“, sagði Sæmundur Friðriksson, fram- k væmdast j óri Sauðf j árveiki varna í símaviðtali við Tímann í dag. „Þetta er sjötta árið, sem engrar mæðiveiki verður vart hér, og okkur finnst það alltaf töluvert miklar fréttir, í hvert sinn sem fæst staðfest að svo sé. Slátrun er þó ekki algerlega lok ið, en er senn á enda, svo von- andi breytist þetta ekki. Ekkert hefur fundizt grunsamlegt enn svo vitað sé.“ Mæðiveiki varð síðast vart á bæ einum í Norðurárdal í Borgar- firði. Sauðfjárveikivarnir hafa að vanda haldið uppi eftirliti með sauðfjárveikivarnagirðingum í sumar og viðgerðum á þeim. Lengd þeirra samanlögð er nú um 1000 km, en landið skiptist í rúm 20 varnarsvæði. Rafmagn selt fyrír 945millj áríð 1969 EJ—Reykjavík, miðvikudag. Raforkusala rafveitna og virkj ana á árinu 1969 nam alls 764,1 gígawattstund, og var söluverð alls 945 milljónir króna, eða 124 aurar á kílówattstund. Þetta kem- £W fram í yfirliti í nýútkomnum Orkumálum, sem Orkustofnunin gefur út. Samkvæmt yfirlitinu um raf- orkusölu árið 1969, var raforku- verð mjög misjafnt. Raforkuverð á kílówattstund frá rafveitum var sem hér segir (í aurum á kwst): Til heimilisnotkunar 218 aurar, til húsahitunar 55 aurar, til bú- reksturs 100 aurar, til lýsingu fyrirtækja 327 aurar, til smá- iðja 265 aurar, til stóriðja 131 eyr ir, til sementsverksmiðjunnar 66 aurar, til götulýsingar 305 aurar og til annarrar notkunar 208 aur- ar. Raforkuverð frá virkjunum var sem hér segir: Framhald á bls. 14 Fyrsta málið vegna ummæla í Sjónvarpi: Dœmdur til að greiða 40 þúsuad / birtingar- kostnað / Sjónvarpinu ; 200 f jár !vantará : sumum ■ ■ bæjum " á Jökuldal og Fljótsdal — vegna ummæla um Ferðaskrifstofu ríkisins í maí 1967 OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Geir H. Zoega, forstjóri Ferðaskrifstofu Zoega, var s.l. mánudag dæmdur í bæjarþingi Reykjavíkur til að greiða Ferða skrifstofu ríkisins, Þorleifi Þórðarsyni og Óttari Yngva- syni, 40 þúsund kr. til að stand ast kostnað af birtingu for- senda og niðurstöðu dóms í sjónvarpi. Þá var stefnda gert að greiða fyrrgreindum aðiluni 25 þúsund kr. í málskostnað. Var Geir dæmdur vegna meið- andi ummæla sem liann við- hafði um Ferðaskrifstofuna og stjórnenda liennar í sjónvarpi. Málið var höfðað vegna um- mæla stefnda í sjónvarpsþætt- inum Á öndverðum meiði, sem sjónvarpað var 19. mai 1967. í dómnum eru tiltekin nokkur ummæli sem forstjórinn við- hafði um Ferðaskrifstofuna. Til dæmis að landkynningin hafi verið í molum og illa stjórnað. Ferðaskrifstofa ríkis- ins hafi eytt peningunum í vit- leysu. Fram kom í sjónvarps- þættinum að Ferðaskrifstofan fær árlega vissa upphæð til landkynningarstarfsemi, og sagði Geir, að það hafi hvílt leynd yfir, hvernig þessir pen- ingar væru notaðir, og sagði hann skandala hvernig þetta, þ.e. Ferðaskrifstofan er rekin og hefði hún ekkert leyfi til að brúka peningana svona. Þá sagði hann að Ferðaskrif stofan hafi gert forstjórann út til Þýzkalands og fleiri landa til að safna þessum lýð hingað. Er hér átt við einhverja óæski- lega ferðamenn. Ein af ávirð- ingunum var, að forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins hefði falsað reikninga. Dómkröfur stefnda voru þær, að unimæli Geirs yrðu dæmd ómerk, og að hann yrði dæmdur til að greiða Þeim hæfilega fjárhæð, eigi lægri en 40 þús. kr. til að standast kostn að af birtingu dóms í málinu í sjónvarpi, og til vara í opin- beru blaði eða blöðum. Stefndi krafðist sýknu af dómkröfum. Sátt hefur verið reynd í mál- inu, en viðleitni í þá átt bar ekki árangur. í forsendum dómsins kemur fram, að tiltekinn sjónvarpsþátt ur var tekinn upp á segulband, og að stefnda hafi verið boðið að klippa úr honum eða að end urtaka hann og sleppa fyrr- greindum ummælum, áður en honum var sjónvarpað, en stefndi kvaðst ekkert taka til baka af ummælum sínum. Mál- ið hefur verið til meðferðar í sakadómi. Og lagðir hafa verið fram reikningar Ferðaskrif- stofu ríkisins fyrir árið 1966 og gerð grein fyrir útgjöldum. Þá segir að stefnendur telji sterk rök mæla með því, að meiðyrðadómur vegna ummæla í sjónvarpi skuli birtir í sama fjölmiðlunartæki og meiðyrðin sjálf. Segja stefnendur stefnu- fjárhæðina ákvarðaða með hlið sjón af kostnaði í auglýsinga- tíma sjónvarpsins þ.e. 9 þús. kr. fyrir hverja mínútu. Stefán Már Stefánsson kvað upp dóminn. Dómurinn, sem birta skal í sjónvarpinu eru 19 vélritaðar síður og er í honum mikið af tölum og skammstöfunum svo að það getur tekið tímann sinn að lesa hann allan upp. — Og á að birta hann allan í sjónvarpinu? spurði Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri sjónvarpsins, þegar Tíminn bar þetta undir hann í dag, en hann var þá ekki búinn að frétta um málalok. — Það verður anzi löng aug lýsing. Auglýsingar mega ekki vera lengri en auglýsingatím- inn er, og það er yfirleitt ekki nema þrjár mínútur í einu. Ég verð að ráðgast við lögfræð ing hvort bæjarþing getur dæmt sjónvarpið til að flytja ábveðið efni. Eins og heyra má á fram- kvæmdastjórunum hefur ekki áður komið til þess, að dómur hafi fallið vegna meiðandi um- mæla, sem viðhöfð hafa verið í sjónvarpi. En þess má geta, að iðulega eru blöð dæmd til að birta meiðyrðadóma þegar þau hafa birt ummæli er deilt var um. JK-Egilsstöðum, þriðjudag. Sauðfjárslátrun stendur yfir um þessar mundir, og nú er það komið á daginn, það sem menn óttuðust, að heimtur eru víða mjög slæmar, og veldur þar mestu um hretið í ágústmánuði. Lang verst er ástandið á Jökuldal og í Fljótsdal. f þrem sláturhúsum Kaupfélags Héraðsbúa, á Fossvöllum, Reyðar firði og á Egilsstöðum, hefur nú verið slátrað 39,500 fjár, og er það um 8500 fjár færra en í fyrra. Mestur er munurinn á Foss völlum um 4000 fjár. Á Borgar- firði var slátrað í fyrra um 6000 fjár og mun talan vera svipuð í ár. Þessi mikli munur á sláturfjár- tölum, stafar að einhverju leyti af meiri ásetningi, en að auki ráða miklu hinar slæmu heimtur. í dag hafði fréttaritari Tímans samband við bændur á Fljótsdal og á Jökuldal, til að grennslast um ^heimtur. Þórður Sigvaldason á Hákonar- stöðum á Jökuldal efri, sagði að þar á bænum vantaði yfir 200 fjár, bæði lömb og fullorðið. Smalamennsku er lokið þar og reiknaði hann með, að ekki myndi heimtast neitt að marki hér eftir. Þórður kvað nágranna sína einn- ig vanta mjög margt fé. Ekki hefur verið leitað sérstaklega þar sem hættur eru, en í smalamennsk um hefur verið gengið fram á dautt fé í lækjum og giljum. Þorsteinn Snædal á Skjöldólfs- stöðum sagði að það vantaði 80 Framhald á bls. 14 Fjórðungi fleiri á sjúkra- hús eftir umferðarslys fram til 1. sept. miðað við sama tíma í fyrra OÓ—Reykjavlk, miðvikudag. Aukning umferðaslysa í Reykja- vík er gífurleg á þessu ári. Fyrstu átta mánuði ársins jókst tala þeirra, sem fluttir voru á sjíikra- deild Borgarspítalans vcgna um- ferðaslysa um 25%. miðað við sama tíma í fyrra. Haukur Krist- jánsson, yfirlæknir, sagði að al- drei áður hafi verið komið mcð jafnmargl fólk til aðgerða á slysa- varðstofunni og á þessu ári. Nem- ur aukningin alls 23% til septem- berloka miðað við fyrra ár og um- ferðadeild rannsóknarlögreglunn- ar telur að bara umferðarslysin hafi aukizt um fjórðung. Tíminn reyndi að fá upplýsing- ar um hve margir lægju nú á sjúkrahúsum borgarinnar vegna umferðaslysa. En sú tala liggur ekki fyrir, en sjúklingarnir dreif- ast á alla spítalana, því að á Borg- arspítalanum er ekki pláss til taka við öllum þeim fjölda sjúkl inga, sem slasast og þurfa að liggja. Þá liggja fjölmargir í heimahúsum, sem ekki geta stund að vinnu eða skólanám, af afleið- ingum umferðarslysa, en eru ..nd ir læknishendi. Vegna þrengsla á spítölunum liggja þar ekki aðrir en þeir, sem nauðsynlega þurfa þess með. Engar tölur liggja fyrir um, hve margar vinnustundir fara í súginn vegna umferðarslysanna, og ekki verður talið í tölum þau örkuml og þjáningar, sem ein- staklingar þurfa að búa við sök- um ógætilegs aksturs þeirra sjálfra eða annarra. Um fjárhagstjón vegna skemmdra ökutækja ber það gleggst vitni ,að tryggingafélögin vilja hækka bílatryggingar um ekik minna en 40%.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.