Tíminn - 28.10.1971, Side 2

Tíminn - 28.10.1971, Side 2
% TIMINN FIMMTUDAGUR 28. október 1971 Framkvæmdir standa nú yfir vi3 ger3 akbrautar af Kringlumýrarbraut og yfir á gamla Hafnarfjarðarveginn. Ver8ur þessl akbraut eingöngu fyrir þá, sem koma að Sunnan, og ætla að taka vinstri beygju af Kringlumýrar- Borgarstjórn samþykkir: Tillögur gerðar að endur- bótum á kortakerfi Rvk. EBReykjavík, föstudag. Samkvæmt samþykkt borgar- stjórnar í gær, hefur borgarverk- fræðingi og yfirverkfræðingi mæl ingadcildar borgarinnar verið fal- ið að gcra tillögur að endurbót- um á kortakerfi fyrir Reykjavík- urborg. Guðmundur G. Þórarinsson (F) flutti tillögu um þetta efni á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi og eftir að Birgir fsl. Gunnarsson (S), hafði fyrir hönd meirihlut- ans í borgarstjórn, gert smávægi- legar breytingar á tillögunni, sem Guðmundur kvaðst geta fallizt á, greiddi meirihlutinn atkvæði með tillögunni, ásamt öllum atkvæðum minnihlutans. HEIÐMERKURHLIÐUM LOKAÐ FYRIR VETURINN braut. Við þessa aðgerð á að létta af gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, en síðan bannað var að taka vlnstrl beygju af Kringlumýrarbraut sunnan frá og inn í Hamrahlíð, hefur umferð aukirt mjög við Miklubrautina. Þá er i undirbúningi, að banna að aka af Sléttuvegi og þvert yfir Kringlumýrarbraut, nema hvað strætisvögnum verður leyfð umferð þar um. Myndin er af byrjunarframkvæmdum við gerð akbrautarinnar af Kringlumýrarbraut og yfir á Hafnarfjarðarveginn. (Timamynd GÆ.) Hliðunurri í Heiðmörk, þ.e.a.s. við Jaðar, Silungapoll og Vífils- staðahlíð hefur verið lokað, og meðan svo er, er tekið fyrir bif- reiðaumferð um Mörkina. Sænskur sérfræðingur um skipasmíðar á íslandi: ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ YRÐI SKIPASMÍÐA- IÐNAÐINUM MJÖG TIL FRAMDRÁTTAR Vegirnir um Heiðmörk eru að- eins gerðir fyrir sumarumferð, og þola ekki meðferð þann árs- tíma, sem frost og þíðviðri skipt- ast á, og er því nauðsynlegt að hlífa þeim við bifreiðaumferð yf- ir veturinn og þar til frost er að mestu leyti farið úr jörð að vori. Þeir sem vilja ferðast um Heið- mörk meðan hliðin eru lokuð verða því, ef þeir eru akandi, að skilja bilinn eftir fyrir utan hlið og nota girðingarstigann (príl- una) sem næst er hliðinu til þess að komast inn fyrir. Skógræktarfélag Reykjavíkur. ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag. Komin er út skýrsla um íslenzk ar ski.pasmíðastöðvar, eftir Lenn- art Axelsson, sænskan sérfræðing, sem starfaði að rannsóknum á ís- lenzkum skipasmíðastövum fyrr á þessu ári á vegum Iðnþróunár- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Skýrsla þessi er mjög viðamik- il, og nær hún til allra þátta skipa smíðanna og til alls, sem að skipa- smíðum lýtur. í yfirliti um helztu niðurstöð- ur segir Lennart Axelsson meðal annars, að núverandi ástand í skipasmíðum landsmanna sé lítið breytt frá 1964, en í júní 1964 hafði þáverandi iðnaðarráðherra frumkvæði að athugun á þörfinni fyrir íslenzkar skipasmíðastöðvar. Athuguninni var síðan haldið áfram á vegum Seðlabanka fs- lands og lokið í nóvember 1964. Á grundvelli niðurstaðna þess- arar rannsóknar var gerð tíma- áætlun um endurbyggingu starf- andi skipasmíðastöðva, ásamt Málverkasalan 10 ára Málverkasala Kristjáns Guð- mundssonar á Týsgötu 3, á um þessar mundir tíu ára afmæli. í tilefni af því hefur hann viðað að sér verkum fjölmargra þekktra listamanna á málverkamarkað. Eru þetta olíumálverk, vatnslita- myndir, tússmyndir og teikningar. Á markaði þessum eru til dæm is verk eftir Jóhannes Kjarval, Tryggva Magnússon, Ríkarð Jóns- son, Jón Þorleifsson, Nínu Tryggva dóttur, Nínu Sæmundsson, Svein Þórarinsson, Höskuld Björnsson, Eyjólf J. Eyfells, Guðmund Ein- arsson frá Miðdal, Jón Engilberts og marga aðra, auk mikils fjölda yngri manna. Eru sumar þessara mynda frá æskudögum höfund- anna og verða því að teljast meðal verka, sem nú eru orðin mjög torfengin. Þessar myndir eru yfirleitt til sölu á fastákveðnu verði, en um nokkrar gildir þó, að í þær á að gera tilboð. stofnsetningu nokkurra nýrra. Lagt var til, að þrjár skipasmíða- stöðvar, búnar góðum tækjakosti, skyldu starfræktar á suðvestur- ströndinni, og fjórar til sex minni skipasmíðastöðvar verða annars staðar á landinu. Framkvæmdir hófust 1964—1965, og áttu þar bæði ríki, bæjar- og sveitarfélög og einstaklingar hlut að máli. Þær hafa fætt af sér nú- verandi ástand, þannig að iðngrein in einkennist af því, að ekki hef- ur verið skilgreint, að hve mik- illi framleiðslugetu eigi að stefna, og skipulag er allt óljóst, auk þess sem að það er að mörgu leyti ófullgert. Þróunarferill hefur ver ið í samræmi við upphaflega áætlun, þ.e. í fyrsta lagi „að þjónustustarfsemi skyldi vera fyr ir hendi þar sem bátarnir eru“ og í öðru lagi, „að skipasmíða- stöðvarnar skyldu vera þar, sem vinnuafl væri fyrir hendi“, sem hlýtur að teljast þjóðfélagsleg ákvörðun. Þá segir Svíinn, að því miður séu skipasmíðastöðvarnar ekki einungis dreifðar um landið, held- ur eru margar minni skipasmíða- stöðvarnar ófullkomnar. Þetta hef- ur í för með sér, að þær geta hvorki framkvæmt fullkomnar við- gerðir né annast nýsmíði. Þær eru þannig háðar öðrum innlend- um stöðvum um starfsemi sína, ela það sem algengara er, erlendum fyirtækjum, sem framkvæma hluta smíðarinnar. Þetta á sér ekki ætíð stað fyrir tilstilli skipasmíðastöðv arinnar, heldur fyrir reikning og samkvæmt pöntun útgerðarmanna. Með þessu móti er framleiðslan dreifð, og að henni unnið víðs- fjarri þeim stað, þar sem skipa- smíðastöðin sjálf er. Lennnart bendir á það, að þau vandamál, sem íslenzkar skipa- smíðar eigi við a' glíma, eigi rót sína að rekja til hinnar skyndi- legu breytingu, sem varð á „einni nóttu“ frá tréskipasmíði og yfir í stálskipasmíði. Aðalvandamálin, sem íslenzki skipasmíðaiðnaðurinn á við að etja er það, að um framleiðslu- áætlanir er ekki að ræða, þar sem frumsxilyrði hennar eru ekki fyrir hendi. Færir skipaarkitekt- ar og skipaverkfræðingar eru ekki starfandi. Hráefnisöflun venju lega ófullnægjandi, þá er efnis- eftirlit og meðferð efnis laust í reipunum. Þá er erfitt að gera sér grein fyrir stöðu iðngreinarinnar með tilliti til fjárfestingar, bæði að því varðar skiptingu hennar og þörfina fyrir hana, þá er og ör- yggi á vinnustað mjög lítill gaum- ur gefinn. Þrátt fyrir öll þau neikvæðu at- riði, sem hér hafa verið nefnd, og allt annað, sem hér er látið liggja milli hluta, þá á sér stað talsverð framleiðsla í skipasmíða- stöðvunum. Er þetta vegna hinn- ar miklu fjárfestingar, sem lagt hefur verið í og hinnar miklu verkkunnáttu, sem raun beri vitni. í kaflanum um helztu athuga- semdir og tillögur segir skýrslu- höfundur, að framleiðslugeta skipa smíðastöðvanna miðist að mestu leyti að því, að þær geti tekið fiskibáta í slipp, haldið þeim við eða smiðað þá, en ástæða sé til að ætla, að mikil eftirspurn verði í náinni framtíð eftir stórum skut togurum. Skýrsluhöfundur segir, að eng- in framleiðsluáætlunargerð hafi átt sér stað í íslenzkum skipa- smíðaiðnaði. Skapi þetta mikla örðugleika og á þessu þurfi að vinna bráðan bug. Þá segir i sam- bandi við framleiðsluaukninguna, sem lagt er til að tekin sé upp, ætti að gera fjárhagsáætlun. Er þá átt við nauðsynlegt heildarfjár magn og skiptingu þess á einstaka liði. Þetta er mjög viðkvæmt mál, þar sem ríkisstjórnin, bæjar- og sveitarstjórnir, peningastofnanir og einkaaðilar móta markmiðin sameiginlega og deila með sér ábyrgð og hættu. Eins og stendur er ríkjandi rekstrarfjárskortur, sem stendur hinni stöðugu upp- byggingu stöðvanna og fram- leiðslu þeirra fyrir þrifum. Almennt séð mætti líta á vænt- anlega þörf fyrir viðgerðir og smiði fiskiskipa fyrir hinn stóra skipastól íslendinga sem lang- tímaverkefni. Erfitt sé að koma auga á vandamál í þessu sam- bandi, ef útgerðin fær að halda áfram án skakkafalla. Rannsókn skýrsluhöfundar bend ir eindregið í þá átt, að þörf sé fyrir þjqnustumiðstöð fyrir skipa- smíðastöðvar, sem staðsett yrði í Reykjavík. Hlutverk hennar yrði að leysa þ'au vanHamál, sem skil- greind eru í skýrslunni, og yrði hún skipasmíðum á íslandi mjög til framdráttar. Með Lennart Axelsson hafa unn ið að skýrslunni þeir Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Iðn- þróunarstofnunar fslands, Óttó Schopka, framkvæmdastjóri Lands sambands iðnaðarmanna og Guð- jón Tómasson, framkvæmdastjóri Meistarafélags járniðnaðarmanna. Hjálpræöis- herinn á Isafirði 75 ára SB—Reykjavík, mánudag. Hjálpræðisherinn á ísafirði átti 75 ára afmæli á fimmtudag- inn, 21. október. Af því tilefni var samkoma í ísafjarðarkirkju á fimmtudagskkvöldið og var hún mjög fjölmenn. Hjálpræðisher- inn hcfur unnið mikið og gott starf á fsafirði á þessum árum. Árið 1925 byggði Hjálpræðisher inn á ísafirði stærsta hús í eigu hersins utan Reykjavíkur. Það hef ur verið eina gistihús bæjarins, þar til fyrir nokkrum árum, Einn- ig var í húsi þessu frá upphafi, Elliheimili ísafjarðar. Forst.iór- ar Hjálpræðishersins á ísafirði eru norskir. Á samkomunni í kirkjunni á fimmtudagskvöldið, flutti frú Unnur Gísladóttir sögu hersins á staðnum og sr. Sigurður Krist- jánsson, prófastur, flutti ávarp Þá söng Sunnukórinn undir stjórn Rd&íidrs H. ? • "nars. DOKTORSPROF í STUTTGART Nýlcga lauk Sigurður Dagbjarts- son doktorprófi í vélaverkfræði frá háskólanum í Stuttgart í Vestur- Þýzkalandi. Fjallar ritgerð hans um einn þátt nýtingar kjarnorku til framleiðslu rafmagns til geim- ferða, og nefnist hún „Zuverlassig- keit von Konverternetzwerken ter- mionischer Energieverzorgungs- anlagen“. Sigurður Dagbjartsson er fædd- ur í Mývatnssveit þann 6. októ- ber 1938. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1960, og stundaði síðan nám í eðlisfræði við háskólann í Stutt- gart árin 1960 til ’65. Að loknu diplom-prófi frá háskólanum, stund aði hann rannsóknarstörf við sama háskóla. Snerust þau einkum um friðsamlega notkun kjarnorkunn- ar með tilliti til beinnar breyt- ingar hennar í raforku. Hann hefur flutt erindi á al- þjóðlegum ráðstefnum og birt nokkrar greinar um þessi mál. Sigurður er giftur Ute Bessler frá Stuttgart og eiga þau tvö börn. Sigurður Dagbjartsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.