Tíminn - 28.10.1971, Side 3

Tíminn - 28.10.1971, Side 3
FÍMMTUDAGUR 28. október 1971 TIMINN 3 SUNNA semur við Loftleiðir um 5 þús. sæti til Norðurlandanna Myndin var tekin viS undirskrift þessa stóra samnings. Guðni Þórðarson í SUNNU er vinstra megin og viS hliS hans er Martin Petersen deildarstjóri hjá LoftleiSum. KJ—Reykjavík, miðvikudag Ferðaskrifstofan SUNNA hefur gert samning við Loftleiðir um flutning á 5000 farþegum milli ís- lands og Norðurlandanna, og mun þetta vera stærsti samningur sem íslenzk ferðaskrifstofa hefur gert um farþegaflutninga milli landa, að því er segir í fréttatilkynningu um samninginn, en tilkynningin fer hér á eftir: „Samningur hefir nú verið und- irritaður milli Loftleiða og ferða skrifstofunnar Sunnu um flutning á 5000 farþegum í hópum á flug- leiðinni milli íslands og Norður- landa með hinni nýju DC-8 þotu Loftleiða. Flutningarnir hefjast um næstu áramót, en þá taka gildi lág hóp- ferðagjöld. Með þessum samningi ætlar Sunna að bjóða ódýrar hópferðir, er seldar verða á íslandi. Verður allt innifalið í heildargjöldunum flugferðir, hótelkostnaður og ferða lög á landi. Þessar ferðir verða mjög fjölbreytilegar. Þær verða farnar til Norðurlandanna, vetrar- og sumarorlofsstaða sunnar í Evrópu, þar sem unnt verður að velja milli skíðaferða í Austurríki og ítölsku Ölpunum eða sólar- stranda Kanaríeyja, Mallorka og Costa del SqI. Einnig verða skipu- lagðar ferðir til ísraels og Egypta-1 lands. ' « „ ! Er ráðgert, að með hinni fyrir- huguðu samvinnu Sunnu og Loft- leiða, og samvinnu Sunnu við er- lenda aðila um framhaldsferðir frá Skandinavíu verði unnt að bjóða betri kjör en ella, bæði að því er varðar lág heildargjöld og tíðni ferða, þar sem hin nýja DC-8 þota Loftleiða mun fara fimm ferð ir í viku milli íslands og Norður- landanna, en fyrri hópferðir Sunnu hafa verið farnar með lengra milli- bili. Þegsar nýju ferðir verður ekki einungis unnt að kaupa hjá Sunnu, heldur einnig hjá umboðsmönnum Loftleiða um land allt og aðal söluskrifstofu félagsins að Vestur- götu 2 í Reykjavík.“ BOSCH Ficher áskorandi Það fór eins og vænta mátti, að Fischer reyndist ekki erfitt að yfirbuga Petrosjan í 9. skákinni, og er þar með til lykta leitt þetta einvígi, sem haldið hefur hug skákunnenda um heim allan föngnum um nærfellt mánaðar- skeið. Sigur Fischers í einvíginu, 6% vinningur gegn 2% v. er sann- færandi og verðskuldaður, þó að hann ætti við nokkra erfiðleika að etja í byrjun, en eftir hið örlagaríka tap Petrosjans í 6. skák inni mátti sjá hvert stefndi. Fisc- her hefur með þessu unnið sér rétt til að tefla við Spassky um heimsmeistartitilinn í skák, og er þetta í fyrsta sinn, síðan Bo.tvinn- ik varð heimsmeistari árið 1948, að skákmeistara utan Sovétríkj- anna tekst að ná svo langt í heimsmeistarakeppninni. Hv.: Robert Fischer Sv.: Tigran Petrosjan. Frönsk vörn. 1. e4 e6 (Franska vörnin reyndist Petro- sjan vel í 3. skákinni. Hví ekki að reyna hana aftur?). 2. d4 d5 3. Rc3 Rc6 (Það er eftirtektarvert, að Petro- sjan teflir aldrei sama afbrigðið tvisvar í þessu einvígi, enda eðli- legt, að hann vilji ekki gefa Fisch er kost á að koma endurbótum á framfæri. í 3. skákinni varð fram haldið: 3. —, Rf6 4. Bg5, dxe4 5. Rxe4, Be7 6. Bxf6, gxf6 7. g3 (?) og nú náði Petrosjan góðu tafli með 7. —, f5. Leikurinn, sem Petrosjan beitir hér er afar sjald gæfur, og tilætlunin vafalaust sú að koma Fischer á óvart. En Fisch er bregzt ekki bogalistin að þessu sinni, og tekst að ná frumkvæð- inu á einfaldan hátt). 4. Rf3 Rf6 5. exd5(!) (Það var í skák milli Stein og Benkö í millisvæðamótinu í Stokk- hólmi 1962, sem ég sá 3. —, Rc6- leiknum fyrst beitt, en þar varð framhaldið 5. e5, Re4 6. Bd3, Rxc3 7. bxc3, Be7 og sv. tókst að ná góðri stöðu vegna ónákvæmni af hálfu hvíts.) 5. —, exd5 6. Bb5 Bg4 (Petrosjan stendur ógn af hót- uninni 7. Re5 og flýtir sér að gera riddarann óskaðlegan. At- hugun á stöðunni leiðir í ljós, að þessi leikur er ekki ýkja hættu- legur og hefði því vel mátt reyna 6. —, Bb4 o.s.frv.) 7. h3 Bxf3 8. Dxf3 Be7 9. Bg5 a6 (Ég get ekki séð neina knýjandi þörf á því að eyða tíma í þennan leik. Hví ekki strax 9. —, 0—0?) 10. Bxc6t bxc6 11. 0—0 0—0 12- Hfel h6 13. Bh4 Dd7 (í fljótu bragði er ekki að sjá að svartur hafi yfir nokkru að kvarta, en nánari athugun leiðir í ljós, að Framhald á bls. 14 Mbl. og sendiráðs' starfsmenn f Staksteinum Mbl. í gær er Tíminn ásakaður um að hafa hagrætt staðreyndum í skýrslu utanríkisráðuneytisins um fjölda starfsmanna við erlendu sendiráðin í Reykjavík. Tíminn sagði í fyrirsögn að starfs- mennirnir væru flestir hjá bandaríska sendiráðinu en Rússar með flest hús. Þetta var í samræmi við skýrslu utan ríkisráðuneytisins, en hún var skýrsla um starfsmannafjölda við sendiráðin og taldir Þar erlendir menn scm innlendir sem starfa við sendiráðin. Þeg- ar rætt er um starfsmanna- fjölda f einhverri stofnun, er fjölskyldumeðlimum hvers starfsmanns ekki bætt við. Hins vegar kom það skýrt fram f upphafi fréttar Tímans, að Sovétríkin eru í fyrsta sæti þegar fjölskyldur sovézkra starfsmanna eru meö taldar, en við sendiráð Sovétríkjanna starfa engir íslcndingar, en liins vegar 19 íslenzkir starfs- menn við bandaríska sendiráð- ið. Skv. skýrslunni er það stað- reynd, sem ekki er hægt að ganga fram hjá í fréttaflutn- ingi. Mbl. hikar hins vegar ekki við að kalla lítil börn scndifulltrúa erlendra ríkja hér á landi „sendiráðsmenn“ og má spyrja, hvort að það sé ekki um beina fölsun að ræða, því í skýrslu utanríkisráðuneyt- isins segir að sovézkir starfs- menn sendiráðs Sovétríkjanna séu 30 talsins, en konur þeirra og börn, sem hjá þeim dvelja hér á landi séu samtals 35. í aðalfyrirsögn Mbl. er hins veg- ar sagt: „Sovézkir sendiráðs- menn í Reykjavík eru 67 tals- ins“. Þessi fyrirsögn hefði gengið ef það fylgdi með að fjölskyldur þeirra væru með- taldar. Hér er bezt að láta stað J reyndir tala og halda sér við skýrslu utanríkisráðuneytisins. ii | Hvað segir Matthías? En hver er nú tilgangur Mbl. með þessu hnjóði í Tímann fyrir að hafa farið rétt með starfsmannafjölda erlendra sendiráða hér á landi, og hvers vegna túlkar Mbl. skýrslu ut- anríkisráðuncytisins á þann | veg sem það gerir? Það er ® öllum augljós ástæðan. Þessi fréttaflutningur á að hræða menn. Rússar stundi hér svo miklar njósnir, og í þeim efn- um beri síður en svo að van- meta hæfileika rússneskra barna, sem hér dveljast! Auð- vitað eru liér mcnn frá KGB, njósnastofnun Sovétríkjanna. Hitt er annað mál, hver hætta okkur stafar af þeim. f sérstök- um þætti, sem útvarpað var s.l. sunnudag, og fjallaði um njósnir og þá hættu, sem fs- lendingum gæti stafað af njósn um erlendra ríkja hér á landi, voru m.a. ritstjórar dagblað- anna i Rcykjavík spurðir álits á þessum málum. Þá kom ýmis legt fram, sem stakk mjög í stúf við þennan málflutning Mbl., en Mbl. hefur dyggilega þagað um. Framrald á bls. 14

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.