Tíminn - 28.10.1971, Qupperneq 14

Tíminn - 28.10.1971, Qupperneq 14
14 TÍMINN FIMMTUDAGUR 28. október 1971 Skák Framhald af bls. 3. hann á við mikla erfiðleika að etja. Annmarkarnir á stöðu hans eiga sér rætur í veikingu peðastöð- unnar á drottningarvængnum, og þessa annmarka færir Fischer sér snilldarlega í nyt í framhaldinu. í rauninni má segja, að Petrosjan sé af herfræðilegum sjónarhóli séð þegar glataður!) 14. He2 (Fischer stefnir að endatafli, þar sem veikleikarnir í svörtu stöð- unni mundu koma enn betur í ljós. Af þessum sökum reynir Petrosjan að komast hjá hróka- kaupum). 14. —, a5 15. Hael Bd8 (15 —, Hfe8 mundi fljótlega leiða til tvöfaldra hrókakaupa, sem sv. má ekki vel við, eins og áður er sagt). 16. b3 Hb8 17. Ra4 Re4 18. Bxd8 HbxB 19. Df4! (Hótar nú einfaldlega að reka riddarann á e4 burt með 20. f3, en við það opnast hvítu hrókun- um leið upp á sjöundu reitaröð- ina, auk þess sem hvíti riddarinn tckur sér bólfestu á c5-reitnum. Petrosjan getur ekki spornað við þessu á annan hátt en bjóða upp- skipti á drottningunum, en þau breyta ckki miklu um gang mála í skákinni). 19. —, Dd6 20. DxD c7xD (Á þennan hátt tekst Petrosjan að köma f veg fyrir, að hvíti ridd- arinn taki sér bólfestu á c5, en veikleikinn í peðastöðunni er enn fyrir hendi. Fischer beinir nú skeytum sínum að svarta peðinu á c6). 21. c4 Rf6 22. Hcl Hb8 TS m 1YG0INGAST0FNUN umm Lökað vegna jarðarfarar, föstudaginn 29. október frá kl. 12. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Hjartanlega þakka ég börnum mínum og tengda- börnum, frændfólki og vinum, sem glöddu mig á sjö- tugsafmæli mínu, hinn 20. okt. s.l., með gjöfum og árnaðaróskum. Guð blessi ykkur öll. Guðjóna Guðjónsdóttir, Kleppsvegi 54, Reykjavík. (Eftir 22. — dxc4 23. Hxc4 væri peðið á c6 dauðadæmt). 23. cxd5 cxd5 24. f3 (Áður en Fischer hefst handa á drottningarvængnum vill hann koma í veg fyrir, að svarti ridd- arinn geti tekið sér bólfestu á e4). 24. —, Rh5 (Petrosjan gefur það algjörlega upp á bátinn að halda hinum sundr uðu peðum á drottningarvængn- um til haga, og reynir að mynda sér færi á kóngsvængnum með atbeina riddarans og beggja hrók- anna. Sókn er bezta vörnin!) 25. IIc6 Rf4 26. IId2 IIfe8 27. Hxd6 Helf 28. Kf2 Ilhl 29. Kg3. (Fischer vill hafa allt á hreinu á kóngsvængnum, áður en hann gef- ur sig að næsta peði.) 29. — Rh5t 30. Kh4! g6 31. Hxd5 He8 32. Hxa5 H8el 33. Rc3 (Riddarinn kemur nú á vettvang til að bægja öllum hættum frá herra sínum) 33. — Rf4 34. Kg4 Re6 35. He5 f5t (Petrosjan gerir nú lokatilraun til að ríða mátnet um hvíta kónginn.) 36. Kg3 f4t 37. Kh4 Kh7 38. Re4 g5t 39. Kg4 Rg7 (Hótunin er 40. —, Kg6 ásamt 41. —, h5f mát! Af þessari ástæðu er hvíta riddaranum fórnað — í þágu göfugs málefnis.) 40. Rxg5t hxg5 41. IIxH HxH 42. Kxg5 Re6t 43. Kf5 He2 44. HxII Rxd4t 45- KE5! RxII 46. a4. Petrosjan sá nú fram á vonleysi aðstöðu sinnar og gafst upp. F. Ó. Maðurlnn minn, Haraldur Guðmundsson, fyrrverandi sendiherra, verður jarðsettur föstudaginn 29. október, kl. 14, frá Dómkirkjunni. j Blóm afbeðin en bent á líknarstofnanir. Margrét Brandsdóttir ' og börn Bróðir okkar andaðist þann 27. þ.m. Ari Jónsson frá Stöpum, Júlíus Jónsson, Sigríður Thorlaelus. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Þórhallur Kristjánsson frá Breiðumýri, Kleppsvegi 20 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 29. þ.m. kl. 13,30. Ingibjörg Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Hjartkær eiglnmaður minn og fósturfaðir okkar, Guðmundur Jón Guðmundsson frá Hesteyri, andaðist á Landspítalanum 27. október. Soffía Vagnsdóttir og fósturbörn Þökkum öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarð- arför Jóhönnu Sveinsdóttur frá Dalatanga. Börn, tengdadætur og barnabörn Bec Raforkuvinnsla Framhald aí r>ls 16 ar 13,8% aukningu frá sama tíma bili árið 1970. Er áætlað, að orku- vinnslan í ár fari að öllum lík- indum nokkuð fram úr 1600 gwst, en orkuvinnslan á síðasta ári varð alls 1460 gwst. Þetta kom fram í riti Orkustofn unarinnar, Orkumálum. Þar kem ur einnig fram, að almenn raf- orkunotkun á fyrra helmingi þessa árs, þ.e.a.s. orkuvinnslan að frádreginni svonefndri stórnotk- un, var 343 gwst., sem er 9,3% aukning frá fyrra ári. Af stórnotkun fór 351 gwst til álverksmiðjunnar og 92 gwst sam tals til Áburðarverksmiðjunnar, Sementsverksmiðjunnar og Kefla víkurflugvallar. Fé vantar Framhald af bls. 1. lömb á Skjöldólfsstöðum, og á öllum bæjum á Neðra-Jökuldal vantaði með lang mesta móti. Ingólfur Gunnarsson á Valþjófs stöðum hvað heimtur í Fljótsdal mjög slakar. Yfirleitt vantaði 20 —30 kindur á bæ. Smalamennsku er lokið í Fljótsdal og litlar líkur á að fé komi fram svo nokkru nemi eftir þetta. Rafmagnssala Framhald af bls. 1. Til Álverksmiðjunnar 27 aurar, til Áburðarverksmiðjunnar 23 aur ar, til Kísiliðjunnar 65 aurar, til Keflfavíkurflugvallar 74 aurar og til Bændaskólans á Hvanneyri 38 aurar. Sala rafveitna nam alls 488,6 gígawattstundum að verðmæti 849 milljónir og var meðalverð 174 aurar kwst. Sala virkjana nam hins vegar 275,5 gwst að upphæð 96 millj- ónir, og var meðalverð 35 aurar á kwst: Þótt raforkusalan á árin 1969 næmi 764 gwst, þá var orkufram- leiðslan alls meiri, eða nam 903 gwst. Heimsfriður Framhald al bls. 9 og það ekki síður fyrir þau lönd, sem þessa stefnu aðhyll- ast. Gegn slíkri stefnu bjóða Sovétríkin upp á virkar, póli- tískar aðgerðir til að hrinda friðaráformum okkar í fram- kvæmd. Meðal þess, sem áunn- izt hefur og til framfara horf- ir, má nefna fjórveldasamkomu lagið um Vestur-Berlín, sem mun verða mjög mikilvæg til að draga úr spennu í Evrópu, tillöguna um alþjóðlega af- vopnunarráðstefnu og ráð- stefnu kjarnorkuveldanna fimm, samkomulag SSSR og Kanada um að ráðfæra sig hvort við annað, samkomulag SSSR og USA um ráðstafanir til að draga úr hættunni á kjarnorkustyrjöld, og ýmsar aðr ar ráðstafanir, mismunandi þýðingarmiklar, en sem allar miða að hinu sama — eflingu friðarins. Ferðir sovézkra ráðamanna til annarra landa stuðla einnig að því að koma friðarstefnu okkar í framkvæmd, svo og heimsóknir háttsettra stjórn- málamanna annarra ríkja til Sovétríkjanna, þar sem rætt er um leiðir til að draga úr spennu í alþjóðamálum og efla samstarf ríkja á milli. Þessu markmiði þjónar einnig för okkar til Kanada. Við erum ekki í hópi þeirra, sem líta á heiminn í dag sem vettvang fyrir yfirgang, sam- keppni og hrossakaup nokk- urra öflugustu ríkjanna, Sovét- ríkin hafna slíkri stefnu, enda er hún ósamræmanleg eflingu alþjóðlegs samstarfs og trygg- ingu alþjóðlegs öryggis. Það er eðlilcgt, að stórveldin beri ábyrgð á varðveizlu friðarins. STOFNSKRÁ S.Þ. gerir líka ráð fyrir þessu. Hún krefst einhugs allra fastafulltrúa Ör- yggisráðsins varðandi ákvarð- anir um öll óvænt málefni, og þetta á auðvitað fyrst og fremst við um varðveizlu frið- ar og öryggis í heiminum. En þetta á ekkert sameiginlegt með því, ef einhver gerir kröfu til algjörrar sérstöðu í alþjóða málum. Öll mál verður að leysa með tilliti til lögmætra réttinda allra viðkomandi ríkja, hvort þau eru lítil, stór eða þar á milli. Við erum þeirr ar skoðunar, að í alþjóðasam- skiptum séu allar þjóðir al- gjörlega jafn réttháar og að ?11 ar leggi þær fram sinn sér- stæða, óviðjafnanlega skerf til þróunar siðmenningar manr,- kynsins, til menningar og vís- inda í heiminum og félagslegra framfara. Við metum mikils hina já- kvæðu afstöðu Kanada í mörg- um brýnustu málum samtím- ans og ágætt framlag þessa lands við ýmsar mikilvægar samningagerðir á alþjóðavett- vangi. Við metum mikils sam- vinnu SSSR og Kanada við iausn á mörgum alþjóðlegum vandamáium og vonum, að þetta samstarf eigi eftir að blómgast enn frekar og v>vða til að hreinsa andrúmsloftið i iíiliíí W0ÐLEIKHUSIÐ HÖFUÐSMAÐURINN FRÁ KÖPENICK sýning föstudag kl. 20. ALLT I GARÐINUM 6. sýning laugardag H. 20. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS sýning sunnudag kl. 15. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 tii 20. Sími 1-1200. Hjálp 2. sýning í kvöld Uppselt — Bönnuð börnum innan 16 ára, Plógurinn föstudag. Fáar sýningar eftir. Mávurinn laugardag Fáar. sýningar eftir. Hjálp 3. sýning sunnudag. Bönnuð börnum innan 16 ára. Hitabylgja þriðjudag Næst síðasta sinn. Aðgöngumiðasalan 1 Iðnó' er opin frá kl. 14, simi 13191. alþjóðamálum og stuðla að auknu samstarfi á jafnréttis- grundvelli milli allra landa heims. Við erum sammála herra Ti-udeau um mikilvægi þess að efla gagnkvæmt traust milli landa okkar og teljum traust vera mikinn ávinning. Það er ósk okkar, að samskipti okkar og aukinn skilningur á afstöðu hvors annars muni verða til að styrkja gagnkvæman trúnað enn frekar. Herra forsætisráðherra, okk- ur er það sérstök ánægja að vera gestir yðar í dag, á af- mælisdegi yðar. Eins og við höfum allir fundið, eykur það yl þessa fundar okkar í dag. Kosygin flutti síðan árnaðar- óskir til Trudeaus frá Breshneff og öðrum háttsettum mönnum í SSSR. Ræðum þeirra Tru- deaus og Kosygins var tefcið með lófaklappi. — (APN). Á víðavangi Framhaid af bls. 3. Fyrir Mbl. svaraði Matthías Johannesen, ritstjóri. Hann svaraði skriflega og var svar lians letið upp í þættinum. Svar lians var á þá leið, að hann teldi njósnastarfsemi Sovétríkj anna hér á landi ekki nægjan- lega, þótt þeir hefðu fjölmennt sendiráð. Þeir væru sennilega iélegir njósnarar og þyrftu að standa sig betur! Matthías rök- studdi þetta á þann veg, að það kæmi fram æ ofan í æ, er mcnn ræddu við sovézka diplómata, að þeir væru sann- færðir um að liér á landi væru til reiðu kjarnorkuvopn. Það er auðvitað hin mesta firra. Þess- ari tortryggni Rússa þarf um- fram allt að eyða. Matthías virtist telja leiðina til þess, að Rússar bættu njósnastarfsemi sína hér á landi og væri þess fýsandi að þeir gerðu þaðl Matthías tók það fram í þessu svari, að hann svaraði fyrir sig persónulega, en hins vegar kæmu pólitískar skoðanir Mbl. fram í ritstjórnargreinum þess. Matthías ritar ekki um pólitík að ráði í Mbl. Ilins vegar liöfðu menn haldið, að hann réði mestu um fréttaflutning blaðs- ins. Það er greinilega misskiln- ingur. — TK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.