Tíminn - 12.11.1971, Side 10

Tíminn - 12.11.1971, Side 10
TIMINN FÖSTUDAGUR 12. nóvember 1971 ÁRMÚLA 7. REYKJAVÍK. SÍMI 30501 Afturmunstur SÓLU M; Frammunstur Snjómunstur VIÐ SAGNABRUNN Fylgið fordæmi meistarans. Þeir, sem gerast áskrifendur að tímaritinu SKÁK fyrir næstu áramót, fá yfirstandandi árgang ókeypis. (Áskriftargjaldið er kr. 1000,00 fyrir 10 tölublöð). Notið þetta einstæða tækifæri. Tímaritið „SKÁK", pósthólf 1179, Rvík. Sími 15899 (1 hádegi og á kvöldin). [FnatnnniiJB i &mim íttjiy Fóstrur ræða neyðar- ástand í dagheimiiis- málum Á aðalfundi Fóstrufélags ís- lands nýlega var til umræðu það neyðarástand, sem ríkjandi er, vegna skorts á dagheimilisplássum í borginni. „Fundurinn telur óumflýjan- legt, að þeir aðilar sem fara með stjórn þessara mála, vindi bráðan bug að því að finna úrlausnir íyrir þann mikla fjölda, sem bíður eftir dagheimilisplássum. Um síðustu mánaðamót munu um 220 börn einstæðra foreldra og námsmanna hafa verið á bið- lista hjá Barnavinafélaginu Sumar gjöf og eru þó einungis talin þau börn, sem bíða vistunar á dig- heimilum, fyrir utan þan.n mikla fjölda, sem ekki fær inni á leik- skólum í borginni. Til þess að hraða framgangi þessara máia, bendir fundurinn á þá leið, að teknar verði á le'gu íbúðir eða hús á hagkvæmum stöðum í borginni, þar sem rekin verða smádagheimili. Jafnframt því sem hraðað sé byggingum dag- heimila og leikskóla og miðað að því að þær byggingar verði hag- kvæmar án íburðar . Fóstrur telja að þetta sé síður en svo óframkvæmanlegt, heldur sé hér um úrræða- og fram- kvæmdaleysi að ræða af hálfu þess opinbera, og lausn á þessum gífurlega vanda samborgaranna þoli ekki frekari bið.“ Úr myndabók náttúrunnar — Komin er út hjá Ríkisútgáfu námsbóka ný bók eftir Ingimar Óskarsson, grasafræðing, og nefn ist hún Úr myndabók náttúrunnar. Efni bókarinnar er úrval út- varpsþátta um náltúrufræðileg efni, sem Ingimar hefur flutt á undanförnum árum. Bók þessi er vel fallin til að auka skilning á ríki dýranna. Bókin er ekki kennslubók í eiginlegum skiin- ingi, heldur lesbók til uppfylling ar námsefninu og líkleg til að efla áhuga nemenda á því að afla sér aukinnar þekkingar um fleiri dýr en nefnd eru í bókinni. Bjarni Jónson listmálari gerði myndirnar í bókina, sem er 134 bls. að stærð. Setningu og prentun anast Prcntsmiðja Jóns Helgason- ar. Námsstyrkur til Bandaríkjanna Eins og undanfarin ár annast Íslenzk-ameríska félagið og Insit- ute of International Education, oo o New York, umsóknir um náms- styrki fyrir íslenzka stúdenta tii bandarískra háskóla skólaárið 1972—1973. Umsóknareyðublöð og upplýs- ingar fást á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17, II. hæð, mánu- daga og fimmtudaga kl. 6,30—7,30 eftir hádegi. Umsóknir skulu hafa borizt skrifstofunni fyrir 13. nóvember næstkomandi. Nokkrir styrkir verða veittir úr Thor Thors sjóðnum íslenzkum námsmönnum við háskólanám í Bandaríkjunum. Umsóknarfrestur til 15. desem- ber 1971. Fræðslunámskeið BSRB EJ-Reykjavík, miðvikudag. Dagana 28.—31. október síðastl. gekkst fræðslunefnd BSRB fyrir fræðsluráðstefnu að Munaðarnesi, og voru þátttakendur 40. Karl Guðjónsson, formaður fraéðslunefndar, stjórnaði ráð- stefnunni en framsöguerindi fluttu Kristján Thorlacius, sem fjallaði um samningsrétt opin- berra starfsmanna, og Haraldur Steinþórsson, sem fjallaði um reynslu af stai-fsmati. Þátttakendur skiptust í starfs- hópa, sem fjölluðu nánar um mál- ið og gerðu ályktanir, sem verða sendar stjórn BSRB. Þá urðu al- mennar umræður um þessi tvö mál á ráðstefnunni sjálfri. OG SVO FÓR ÉG AÐ SKJÓTA FB—Reykjavík, laugardag. Mál og menning hefur sent frá sér tvær nýjar bækur. Önnur bók- in er Við sagnabrunninn — sög- ur og ævintýri, sem Alan Boucher endursagði; hin er Og svo fór ég að skjóta, eftir Mark Lane. Við sagnabrunninn flytur sögur og ævintýri frá ýmsum löndum. Alan Boucher endursagði, en Helgi Hálfdanarson þýddi. Myndir í bókinni eru eftir Barböru Árna- son. Sögurnar í bókinni eru frá Grænlandi, Englandi, Frakklandi írlandi, Skotlandi, Ítalíu, Grikk- landi, Rússlandi, Arabíu, Indlandi, Japan og Vestur-Afríku. í eftir- RAFGEYMAR VETURINN POLAR H.F. NOTIÐ ADEIN BEZTA mála segir, að efnið í sögunum sé ævagamalt, en hafi oft verið end ursagt. Þá segir Alan Bouchei ennfremur, að í þau rúm 12 ár sem hann vann hjá BBC og haf; farið þar með stjórn ýmissa þátta í skólaútvarpi þess, hafi hanr safnað slíkum sögum úr ölluir áttum og látið flytja þær, aðal lega í leikritsformi. „Síðan ég kom til fslands tók ég að rits sögurnar upp að nýju fyrir fs lendinga, en reyndi þó að farí sem næst stíl og anda frummynd anna, sem eru ærið mismunandi Þar að auki hafa sumar sagnanne varðveitzt á prenti í mismunand: gerðum, og þá hef ég notfær rétt sögumannsins að velja, hafna stytta og steypa saman eftir eig in smekk, en þó alltént í þein tilgangi að varðveita heildarsvir sögunnar eins og hægt var hverjr sinni.“ Bókin er 252 bls. Og svo fór ég að skjóta er eir af Pappírskiljum Máls og Menn ingar. Á bókarkápu segir.- Ból- þessi er miskunnarlaus og harh eftirtektarverð lýsing á villi mennskunni, er svokölluð siðuc þjóðfélög geta af sér. Hún er mesta máta tímabær um þessa; mundir, þegar voldugasta herveld hcimsins er að bíða ósigur stríði í fyrsta skipti í sögu sinni í bókinni lýsa bandarískir her menn reynslu sinni í Vietnam Þó að þeir hafi flestir gerzt lið hlaupar, þá er ekki þar með sag að augu þeirra allra hafi „lokiz upp“ f.vrir samhengi þess, son gerzt hefur í Vietnam, en styrku bókarinnar felst í því, að þessa stríðshetjur lýsa alveg hispurs laust því, sem var hversdagslee líf þeirra í stríðinu. Mark Lam er bandariskur lögmaður, sen varð á sínum tíma heimsfrægu fyrir gagnrýni sína á málarekst' inum út af Kennedymorðinu. Bók in er 140 bls.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.