Tíminn - 12.11.1971, Qupperneq 14

Tíminn - 12.11.1971, Qupperneq 14
14 TIMINN FÖSTUDAGUR 12. nóvember 1971 Slómannsævi - Framhald af bls. 8. að ég get lagt byssuhlaupið ofan á hálsinn á henni, en um leið og cg ætla að taka hana, brýzt hún undan byssunni. Ég gat þó gómað skottið á henni cn er þá svo lopp- inn, að ég missi takið og tófan þýtur í burtu, sá ég ekki meir af henni. Eitthvað held ég hún hafi lítilsháttar verið særð á trýninu, en alla fætur hafði hún heila. Hins vegar hefur skotið gert hana ringlaða og hún þurft tíma til að átta sig. Sá tími hefði átt að duga mér til þess að ráða niðurlögum hennar, en það fór nú svona. — Fyrsti vélbáturinn, sem ég eignaðist, hét Reynir. Það var á- gæt fleyta, en í suðvestan stormi slitnaði hann upp af legunni á Hólmavík og rak á land. Næst eignaðist ég Betu, fjögra tonna bát sem ég keypti af Magnúsi Hannibalssyni á Gjögri. Betu reri ég úr Hamarsbæli, og voru hásetar mínir aðkomumenn, sem Steingrímur Árnason útgerð- armaður hafði útvegað mér. Þetta voru harðduglegir strákar, en glað sinna og ölkærir. Einu sinni fórum við á sjóinn seinni part nætur eins og venju- legt var. Vcður var gott, logn og ýfulaust, en auk náttmyrkursins sótþoka, svo að tæplega sá út fyrir borðið. Þegar ég var kominn þang- að sem ég hugðist leggja línuna, kallaði ég til strákanna að gera sig klára. Kasta svo út baujunni og bogra aftan við stýrishúsið við að hnýta saman hálsana. Ég stend utarlega við borðið og um leið og ég rétti mig upp rek ég hausinn í fangið á einum hásetanna, Jóni kalda, og set hann útbyrðis. Ég stóð það tæpt, að hefði hann grip- ið til mín, sem voru að því er virtist eðlileg og sjálfsögð við- brögð, hefði ég hrokkið út með honum. Jón var syndur og sveigði ég strax að honum og náði honum inn. Ég spurði hann hvers vegna hann hefði ekki gripið í mig. „Éð ætlaði að gera það, en það var sem dreginn væri allur mátt- ur úr höndunum á mér, svo að ég gat ekki hreyft þær“, svaraði Jón. Sjálfsagt verður það kölluð hjátrú, en ég trúi að hér hafi ein- hver ósýnileg hönd stjómað. Hefði Jón gripið í mig, hefðum við án efa báðir fallið útbyrðis og áreið- anlega verið horfnir út í þokuna og náttmyrkrið áður en þeir sem um borð voru hefðu verið tilbún- ir að koma okkur til bjargar, því að báturinn var á því nær fullri ferð áfram, Þegar Jón hrökk út. Eftir Betu fékk ég Skarphéðin. Hann var níu lestir og reyndist mér happaskip. Hann átti áður vinur minn Hrólfur Sigurjónsson. Meðan ég átti Skarphéðinn fór ég einu sinni á vetrardegi um jólaleytið frá Hólmavík til Borð- eyrar að sækja mamn, sem átti að fara norður til Djúpuvíkur og sjá um losun úr lýsistönkunum, en þangað var væntamlegt skip til að taka lýsið. Morguninn sem við fórum var hægviðri, og fengum við gott veð- ur inneftir, tókum manninn á Borðeyri og héldum svo áleiðis norður aftur. Þegar við komum út á miðjan Hrútafjörð skellur skyndilega á þreifandi norðaustan stórhríð með ofsaveðri og sjógangi. Ég treysti mér ekki til að snúa við en hélt áfram út þangað til ég taldi mig vera kominn fyrir Víkurhöfða. Þá sveigði ég inn á Bitruna. Ekkert sást fyrir hríðinni, og nú var auk þess komið náttmyrkur. Allt í einu rofaði ögn til og ég sá bregða fyrir ljósi. Hugði ég það vera á Óspakseyri og beygði Því nær landi, en þá sé ég brjóta á skeri einn til tvo faðma framan við kinn- unginn á bátnum. Ég gat þó sveigt frá og hélt svo lengra inn, og komst að Óspakseyri og lenti upp í sandinn. Þar var ýfulaust og af- landsvindur. Ljósið sem ég fyrr hafði séð var á Eyrarlandi, koti sem þá var nýkomið í byggð skammt fyrir utam Óspakseyri, en ég átti þar engra mannaferða von. Þarna vorum við hriðartepptir í viku og nutum gestrisni hjón- anna. Þorkels Guðmundssonar og Ástu Stefánsdóttur. Tveir menn voru með mér á bátnum. Annar þeirra, Albert Ingi- mumdarson, gekk heim til Hólma- víkur í sjóslopp og klofstígvélum. Virtist honum vaxa hvorugt í aug um, klæðnaðurinn eða vegalengd- in. Kona mín er Jakobína Guð- mundsdóttir, uppalin á Hafmar- hólmi. Það er víst óhætt að segja að við byrjuðum með tvær hendur tómar, enda stundum hart á daln- um fyrstu árin. Þetta basl miðaði þó alltaf í áttina til batnandi hags. Ég lét byggja 16 tonna bát á ísafirði 1946. Hann nefndi ég Guð- mund frá Bæ. Það var ágætt skip. Á honum fór ég á vetrarvertíð suð- ur á Akranes og lánaðist vel, enda þótt hann væri minni en aðrir bátar, sem þaðan sóttu á sömu mið. Sæljónið keypti ég 1953. Það var 62 tonn. Þeim bát hélt ég út frá Grindavík einar átta vertíðar. En þar tel ég beztan útgerðarstað, sem ég hef haft kynni af. Ég hef helzt aldrei viljað fást við annað en sjómennsku. Mér féll vel að vera á sjó, finnst það frjálst og gott líf. Ég hafði lengi sömu háseta. Albert Ingimundarson og Guð- mundur Jasonarsom munu hafa ver ið með mér einar fimmtán vertíð- ar. Líka var lengi með mér maður er ég reri frá Hólmavík, Guðmund- ur Björgvin Bjarnason frá Gauts- hamri. Á hvaða bát ég hafi grætt mest? Ég veit ekki hvort hægt er að tala um gróða, þótt mamni lánist að aura saman með þrotlausu starfi í fjóra fimm áratugi það miklu, að maður þurfi ekki að velta á von- arvöl síðustu æviárin. Líklega hefur Guðmundur frá Bæ gefið mest miðað við allar aðstæður. Að vísu voru þau ár sem ég átti Sæljónið fremur góð og margar lcrónur sem ultu. En þá fór peningagildi sífellt lækk- andi miðað við tilkostnaðinn. Jú, ég hef flutt heimili mitt milli staða. En Þeir flutningar hafa verið miðaðir við útgerðaraðstöðu hverju sinni. Og líklega á ég helzt heima norður á Hólmavík, þótt hjól ið hafi snúizt svo, að Reykjavík er nú minn samastaður. Þ. M. imm ÞAKKARAVORP Hjartanlega þakka ég öllum vinum, skyldmennum og öðrum, sem glöddu mig með heimsóknum, heillaskeyt- um og gjöfum á áttræðisafmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Brynjólfur Jóhannesson. Hjartanlegar þakkir sendum við börnum, tengdaböm- um, barnabörnum, vinum og vandamönnum, sem á einn og annan hátt glöddu okkur á 65 ára brúðkaupsafmæli okkar 16. október s.l. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Magnúsdóttir, Gísli Gestsson, Suður-Nýjabæ. Móðir okkar María Bjarnadóttir, Akurbraut 22, Akranesi, scm andaðist 7. nóvember, verður jarðsungin frá Akraneskirkju, laugardaginn 13. nóvember ki. 13,30. Bðrn og tengdabörn. Stefán Sigurðsson, f. v. verkstjóri frá Hfri-Rauðalæk, Hoitum, andaðist á heimili sínu Kársnesbraut 27, Kópavogi, 10. nóvember. Ólafía Bjarnadóttir, börn og tengdabörn. Systir mín Steinunn Skúladóttir frá Ytra-Vatni, Skagafirði, andaðist 10. nóvember. Björn Skúlason. svo vel. Repið viðsMptln Síminner C96> 31400 Verksmiðjuafgreiðsía KEA annast heildsöluafgreiðslu á vörum frá framleiðsludeild- um félagsins. Með einu sím- tali getið þér pantað allt það, sem þér óskið, áf fjöl- breytilegri framleiðslu þeirra, landsþekktar úrvalsvörur, — allt á einum stað: Málningarvörur og hreinlæt- isvörur frá Sjöfn, kjöt- og niðursuðuvörur frá Kjötiðn- aðarstöð KEA og hangikjöt frá Reykhúsi KEA. Gula- bandið og Flóru-smjörlíki, Braga-kaffi og Santos-kaffi, Flóru-sultur og safar, ferauð- vörur frá Brauðgerð KEA, ostar og smjör frá Mjólkur- samlagi KÉA, allt eru þetta þjóðkunnar og mjög eftír- sóttar vörur, öruggar sölu- vörur, marg-auglýstar í út> varpi, sjónvarpi og blöðum. Innkaupastjórar. Eitt símtal, Fljót og örugg afgreiðsla. Kynnið yður kjörin og reyn- ið viðskiptin. Síminner (96) 21400. BRAUÐ GERÐ É w REYK HÚS M SMJÖRLÍKIS GERÐ rffth.,'—-■ WÖTMlNAlWkSIÓO VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.