Tíminn - 01.12.1971, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.12.1971, Blaðsíða 2
7 T ■ ’ 1 l f ^ 7 ~3 i • '■ i i s ■» * y ? '* •> * *» fj H ^ i J -1 7 ’ r? ’ *. ;’ !'» i 'r TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 1. desember 1971 Fréttir af Alékhínmótmu Óskadraumur hvers skákmanns var og er að lenda ekki í tíma- hraki. Fram til þessa hefur þó enginn sloppið við það. Fyrir skömmu röbbuðum við við J. Averbach, sem þá var nýkominn frá Buenos Aires, og spurðum hann frétta af tímatöku. „Fischer teflir eins og maskína og leikur á þriggja mínútna fresti. Er þetta þá virkilega hægt? Ef svo er, þá öfunda ég hann svo sannarlega, en við ættum nú samt að bíða eftir einvígi hans við Spasskí." í þriðju umferð á Alékhínmótinu hafði heimsmeistarinn svart á móti öðrum amerískum stórmeistara, og mér finnst hann vera ánægður með skákina, enda þótt hólm- göngumenn skildu jafnir eftir all- langa viðureign. Hvor þeirra not- aði 1 klst. og 55 mín. til umhugs unar. R. Byrne — B. Spasskí Spánskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0—0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0—0 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rh4 ed 12. cd Rb6 13. Rbd2 c5 14. Bc2 cd 15. R4f3 He8 16. Rxd4 Bf8 17. b3 Rb7 18. Bb2 Rbd7 19. Df3 Hac8 20. Hadl d5 21. Bbl de 22. Rx e4 Rxe4 23. Bxe4 Hxe4 24. Hxe4 Re5, 25. De2 Bxe4, og hér sömdu stórmeistararnir jafntefli. R. Byrne sem hvítur valdi eitt af uppáhaldsafbrigðum R. Fischers en Spasskí tókst ekki aðeins að reisa rönd við, heldur að ná frum kvæðinu. Eftir 24. leik hvíts kom upp afar skemmtileg staða,' og heimsmeistarinn hugsaði sig um í 25. mínútur. Skákáhugamenn geta spreytt sig á að átta sig á hugsanagangi heimsmeistarans. Skákin hélt þannig áfram: 24. — Re4 25. De2 Bxe4. Jafntefli? spurði Byrne. Já, svar aði Spasskí og sýndi ó borð- inu hvers vegna hann hefði verið svona lengi að ókveða, hvort hann ætti að leika 24. —, Re5 eða 24. •—, Rc5. Heimsmeistarinn hafði sem sagt athugað eins og tölva alla hugsanlega möguleika í stöð unni eftir 24. , Rc5, en hafnað þeim öllum, þótt í fyrstu virtist, sem þessi leikur veitti svörtum betra tafl. En í einni framhalds- stöðu sá hann kóngi sínum hættu búna, og þess vegna varð að ein- falda málin. Sameiginleg rannsókn að leiknum loknum sýndi, að heimsmeistaranum hafði ekki skeikað. í stöðunni, sem hann sýndi: 24. —, Rc5 25. Rf5 Db6 26. Hd6!! er sókn hvíts mjög hættu leg, t.d. 26, — Bxd6? 27. Rh6f! o. s. frv. Spasskx var ekki sá eini í þriðju umferð, sem hugsaði sig lengi um T. d. eyddi V. Kortsjnoj 1 klst. og 42 mín. í fyrstu 16 leikina, og mótherji hans Smyslov 1 klst. og 14 mín. Skák þeirra endaði með jafnteífli, enda þótt hún væri með hinum viðburðarríkustu. Óskadraumurinn á langt í land. Fxúðrik Ólafsson V. Hort. Griinfeldvörn. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Bf4 Bg7 5. e3 0—0 6. Hcl c6 7. Rf3 Be6 8. c5 Rh5 9. Be5 f6 10. Bx b8 Hxb8 11. h3 f5 12. Be2 Rf6 13. Rg5 Dd7 14. Í4 b6 15. b4 h6 16. Rf3 Re4 17. 0—0 bc 18. bc Hb2 19. a3 Hfb8 20. Bd3 Db7 21. Da4 Dc7 22. Re5 Bxe5 23. fe Bf7 24. Re2 H8b3 25. Rf4 g5. í þessari erfiðu aðstöðu átti hvítur aðeins eftir 4 mín umhugsunartxma, en svartur 11. Friðrik lék í skyndi 26. Re2, studdi á hnapp skeiðklukk unnar, leit síðan á borðið og rétti því næst Hort höndina til merkis um uppgjöf, enda liggur svarið: 26. —, Hxd3 í augum uppi. Umferð jafnteflanna. Þó að forseti alþjóða skáksam bandsins og fyrrverandi heims- meistari, dr. Euwe hefði veri® aðeins tvo daga í Moskvu og verið mjög upptekinn vegna við- ræðna við Skáksamband SSSR og B. Spasskí um stað og tíma fyrir einvígi þeirra Spasskís og Fisch ers, þá hafði hann tvisvar gefið sér tíma til að heimsækja mótið, sem helgað er minningu hins gamla, stöðuga keppinautar hans A. Alékhíns, sem hvarf ósigraður úr þessum heimi. Návist öldungsins hafði áhrif á alla hina stórmeistarana. Þeir reyndu að sýna sínar beztu hliðar, leggja ótrauðir til árásar, verjast af þunga og halda sálarrónni í tímahraki. Eigi að síður var mik ið um jafntefli í fjórðu umferð. B. Spasskí náði ógnvekjandi sókn á J. Balasjov, en hinn ungi stórmeistari varðist hetjulega og hélt jafntefli. Þá var hin stutta skák þeirra Petrosjans og Uhl- manns æði stormasöm Eftir hár beitta byrjun jafnaðist staðan í miðtafli. Svipaða sögu er að segja af ungu mönnunum A. Karpov og F. Gheorghiu frá Rúmeníu. Frið rik beitti Alékhínvörn gegn Túkmakov. Tilraun hvíts til að brjótast í gegn á miðborðinu mætti úthugsaðri gagnsókn, tafl ið einfaldaðist og jafnteflið blasti við. Tékkneski stórmeistarinn Hort lætur skammt stórra högga milli. í fyrstu virtist, sem ungverski stór meistarinn Lengyel hefði náð ríf- legri umbun fyrir peðið, sem hann fórnaði, en Hort sýndi fram á að eitt peð framyfir er ekki lítils virði í hans höndum. V. Hort á góðar yinningslíkur í bið- skákinni. Tal sigraði Byrne mjög fallega. Einnig fór í bið skák þeirra ,Kortsnojs og Savons, en Stein og Smyslov gerðu jafntefli, er borðið var nær hroðið að mönn um. B. Spasskí — Balasjov. Indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 d6 4. Rc3 g6 5. e4 Bg7 6. Rf6 0—0 7. Be2 e6 8. 0—0 cd 9. cd Bg4 10. Bg5 a6 11. Rd2 Bxe2 12. Dxe2 He8 13. a4 Rbd7 14. f4 Dc7 15. Hael h6 16. Bxe6 Bxe6 17. e5 de 18. f5 e4 19. fg fg 20. Rdxe4 Kg7 21. Khl He5 22. Dd2 Hae8 23 g5 Hf5 24. Hxf5 gf 25. Rxf6 Hxelf 26. Dxel Rxf6 27. De6 f4 28. Re4 Rxe4 29. Dxe4 fg 30. Dg4f Kf6 31. De6f Kg7 32. d6 Df7 33. Dg4f Kf8 34. Dc8f Kg7 35. Dg4f Kf8 36. Dc8f. Jafntefli. T. Petrosjan — W. Uhlmann. Grunfeld-vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cd Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bc Bg7 7. Bc4 0—0 8. Re2 Rc6 9. 0—0 b6 10. Bg5 Ra5 11. Bd3 Dd7 12. Dd2 c5 13. Habl Bb7 14. d5 c4 15. Bc2 e6 16. de Dxe6 17. Hfel Hfe8 18. Rd4 Dd6 19. De3 Dc5 20. Dg3 Rc6. Jafntefli. A. Karpov — F. Gheorghiu Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cd 4. Rxd4 Rf6 5. Rc6 a6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be6 8. 0—0 Rbd7 9. f4 Dp7 10. f5 Bc4 11. a4 Be7 12. a5 0—0 13. Bg5 Hfc8 14. Bxc4 Dxc4 15. Hf2 h6 16. Bxf6 Rxf6 17. Ha4 Dc7 18. Hd2 b5 jafntefli. V.'Túkmakov — Friðrik Ólafsson Alékhínvörn 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Bg4 5. Be2 e6 6. 0—0 T-7 7. c4 Rb6 8; Rc3 0—0 9. Be3 Rc6 10. ed cd 11. d5 ed 12. Rxd5 Rxd5 13. Dxd5 Bf6 14. Hadl Bxd2 15. Hbl Be6 16. Db5 Bf6 17. Dxb7 Hc8 18. Da6 Jafntefli. D. Bronstein. (APN) Fulltrúi bráðabirgðabyltingarstjórnarinnar Skýrir ástand mála í Suður-Vietnam EJ—Reykjavík, mánudag. Þessa viku stendur yfir svo- nefnd Víetnam-vika hér á landi, og af því tilefni er hér í heim- sókn Phan Hoi, sem er fulltrúi bráðabirgðabyltingarstjórnarinnar í Suður-Víetnam, og aðstoðarmað- ur hans, Judit Schive frá Noregi. Phan Hoi mun m.a. eiga viðræð- ur við utanríkisráðherra og leið- toga þingflokkanna, og óska eftir stuðningi íslenzkra stjórnvalda við tillögur þær í sjö liðum um frið f Víetnam, sem frú Nguyen Thi Binh, utanríkisráðherra byltingar- stjórnarinnar, lagði fram á samn- ingafundunum í París 1. júlí síð- astliðinn. Phan Hoi, sem kemur frá upp- lýsinagskrifstofu byltingarstjórn- arinnar í Osló, átti fund með fréttamönnum í dag og skýrði þar ástand mála í Suður-Víetanam, gang stríðsins og tillögur bylt- ingastjórnarinnar um með hvaða hætti koma skal á friði í landinu. Á fundinum kom fram, að Phan Hoi, sem hingað er kominn í boði SÍNE, Verðandi, Fylkingarinnar, Víetnamhreyfingarinnar og MFÍK, mun m.a. heimsækja æðri skóla í borginni og eiga viðræður við utanríkisráðherra og fundi með fulltrúum hvers stjórnmála- flokks fyrir sig. Á laugardaginn mun hann síðan halda ræðu á fundi, sem haldinn verður í Há- skólabíói, en með þeim fundi lýkur Víetnam-vikunni. Nemendur í ML styðja 1. des. baráttumál stúdenta í HÍ EJ—Reykjavík, þriðjudag. í gær var eftirfarandi tillaga samþykkt á fundi í skólafélagi menntaskólans að Laugarvatni með 72 atkvæðum gegn 10, en 7 sátu hjá: „Félagsfundur haldinn 29. nóv- ember í skólafélagi menntaskól- ans að Laugarvatni, Mími, lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform 1. des-nefndar Stúdenta- ráðs um, að 1. desember skuli helgaður baráttunni fyrir brott- vikningu hersins." Hafnfirðingar óánægðir með póstþjónusfu EB—Reykjavík, föstudag. Hafnfirðingar virðast vera heldur óánægðir með póstþjón ustuna þar í bæ, og munu telja hana lakari hin síðari ár en áður var. í viðtali er Tíminn átti í dag við stöðvarstjóra pósts og síma í Hafnarfirði, sagði hann „Kópavogsgjáin” tekin í notkun fyrir áramótin. ÞÓ—Reykjavík, laugardag. Þessa dagana er verið að fullgera Hafnarfjarðarveginn, þar sem hann kemur í gegnum Kópávogshálsinn. Verið er að setja upp lýsingu, koma fyrir umferðarmerkjum og ganga frá þeim umferðarbreytingum, sem verða í Kópavogi með til- komu nýja vegarins. Björgvin Sæmundsson, bæj arstjóri í Kópavogi, sagði blað inu, að hugmyndin hefði verið sú, að taka gjána í notkun nú um mánaðamótin. Af því yrði ekki, en vegurinn yrði örugg lega kominn í gagnið fyrir ára mót, og við það myndi létta mjög á allri umferð í gegnum Kópavog. Það sem helzt hefur tafið fyrir því að vegurinn yrði tekinn í notkun nú um mánaða mótin, er umferðabreyting sú, sem verður við þetta og merk ing umferðarbrauta. að látið væri í pósthólf bæjar búa tvisvar á dag, og póstur úr Hafnarfirði væri sendur tvisvar á dag til Reykjavíkur, á morgnana og seinni hluta dags ins. Hafnfirðingur, er hringdi til Tímans í dag og kvartaði und- an lélegri póstþjónustu í Hafn arfirði, fullyrti hins vegar, að póstur væri sendur til Reykja víkur einu sinni á dag og sömuleiðis væri póstur ekki settur í pósthólf Hafnfirðinga nema einu sinn á dag. Sem dæmi um lélega póst- þjónustu, sagði maðurinn, að bréf til hans, sem póstlagt hefði verið í Reykjavík á mánu dag, hefði ekki borizt honum fyrr en á fimmtudag. Phan Hoi Kirkjudagur Árbæjar- safnaðar á sunnudag Á sunnudaginn kemur verður haldinn fyrsti kirkjudagur Ár- bæjarsafnaðar í hátíðasal Árbæj arskóla. Áætlað er að hefjast handa um byggingu kirkju og safnaðarheimilis í Árbæjarhverfi á vori komanda og helga fram vegis einn dag árlega þeirri fram kvæmd og öðru safnaðarstarfi og kalla kirkjudag. Kirkjudagurinn á sunnudaginn er því hugsaður sem fjáröflunar dagur kirkjubyggingarnefndar og standa auk þcss að honum kven- félag safnaðarins og bræðrafélag. Drög að teiþningum fyrir vænt anlega kirkjii og safnaðarheimili hafa verið lögð fram og verða kynnt á kvöldvöku kl. 9 um kvöld ið. Þá er og áformað að hafa lík an af byggingunni til sýnis þenn an umrædda dag, og veita við- töku gjöfum sem berast í bygg ingarsjóð. Dagskrá kirkjudagsins verður í aðalatriðum á þá leið, að kl. 11 f. h. verður barnasam- koma í Árbæjarskóla og guðsþjón usta fyrir alla fjölskylduna kl. 2 síðdegis. Síðan sér kvenfélag safn aðarins kirkjudagsgestum fyrir kaffiveitingum fram eftir degi. Kl. 9 síðdegis hefst síðan kvöldvaka i skólanum. Þar flytur dr. Jakob Jónsson ræðu og barnakór Ár- bæjarskóla syngur undir stjóm Jóns Stefánssonar, auk annarra dagskrárliða. Árbæingar, sækjum sem flesta liði kirkjudagsins og gerum hann að glæsilegum upphafsdegi mikils starfs á vegum safnaðarins. FjöL mennum á sunnudaginn í Árbæjar skóla og eigum þar helga hátíðar stund saman. Guðmundur Þorsteinsson. Þíng Farmanna sambandsins 25. þing .Farmanna- og fiski- mannasambands íslands verður haldið að Hótel Esju, dagana 1.— 5. desember n.k. Guðmundur Pét- ursson vélstjóri, forseti sambands ins setur þingið k!. 10 f.h. mið- vikudaginn 1. desember. Þing FFSÍ eru háð annað hvert ár. Vitað er um mörg mál sem tek- in verða fyrir á binginu, svo sem sjávarútvegsmál, kaup- og kjara- mál, vita- og haínamál svo eitt- hvað sé nefnt. Fyrir þingið verð- ur lagt frv. áð nýjum þingsköp- um sambandsins. Ýms erindi verða flutt á þing- inu. Ilaraldur Ágústsson skip- og fiskimanna- befst í dag stjóri talar um opinn fiskimarkað, Páll Guðmundsson skipstjóri talar um öryggismál og Halldór Her- mannsson formaður Bylgjunnar á ísafirði talar um Sjávarútveg á Vestfjörðum fyrr og nú. Einnig mun Ingvar Hallgrímsson fiski- fræðingur flytja erindi á þinginu asamt skólastjórunum Sigurði Har aldssyni, Fiskvinnuskóla íslands, Andrési Guðjónssyni, Vélskóla fs- lands og Jónasi Sigurðssyni Stýri- mannaskóla íslands. Fulltrúar á þinginu verða 50— 60. Fréttatilkynning frá Farmanna- og fiskimanna- sambandi íslands.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.