Tíminn - 01.12.1971, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.12.1971, Blaðsíða 9
^&ÐVIKUDAGUR 1. desember 1971 a>— ■■■ ■ ■ ..... TÍMINN IM Otgefandi- FRAMSÓKNARFLOKKURlNN framkvæmdastjórl: Kristján Benedlktsson Ritstjórar: Þórartnn Þórartnsson (áb). Jón Helgason. tndrlOI Q. Þorstelnsson og Tómas Karlsson Auglýsingastjórl: StelngrimnT Glslason Rit. ttjórnarskriístofur 1 Edduhúslnu. slmar 18300 — 18306 Skrif. ttolur Bankastræti 7 — AfgreiOsluslml 12323 Auglýslngaslml: 19523 AOrar skrifstofur slml 18300 Askriftargjald kr 195.00 i mánuOl lnnanlands. I tausasölu kr. 12,00 elnt. — Prentsm. Edda hf. Öll þjóðin heitir á deiluaðila að sýna samkomulagsvilja Vonir manna hafa nú glæðzt um það, að samningar geti tekizt um helztu atriði kjarasamninganna eða að mála- miðlunartillaga sáttanefndar nái samþykki, þannig að verkföllum í jólamánuðinum verði afstýrt. Eijis og kunnugt er hafa 75—80 verkalýðsfélög nú boð- að verkfall, flest þeirra frá og með fimmtudeginum 2. desember og í fyrradag samþykkti fjölmennur fundur í Vinnuveitendasambandi íslands heimild til boðunai verkbanns. Um helgina náðu deiluaðilar samkomulagi um að fresta viðræðum um sérkröfur aðildarfélaga ASÍ og ræða aðeins hinar sameiginíegu kröfur verkalýðsfélag- anna um 20% kaupgjaldshækkun. Á sáttafundi í fyrradag klauf Vinnumálasamband sam- vinnufélaganna sig út úr röðum vinnuveitenda og bauð fram meiri hækkun en vinnuveitendur almennt hafa fram til þessa viljað fallast á. í fyrrinótt lagði samninganefnd Alþýðusambands ís- lands fram nýtt tilboð, tilslökun frá fyrir kröfum, í von um sættir í deilunni. Gerði samninganefndin það boð, að 5% grunnkaupshækkun kæmi þegar í stað til fram- kvæmda, en að seinna kæmu 6% og 7% hækkun í tveim- ur áföngum eða samtals 18% á samningstímabilinu. Þegar þetta er skrifað er búizt við því að sáttanefnd leggi fram sáttatillögu áður en verkfall skellur á, hafi samkomulag ekki tekizt með deiluaðilum. Slík sátta- tillaga yrði síðan borin undir atkvæði í félögum laun- þega og atvinnurekenda. Væri þá ekki ósennilegt að fall- izt yrði á að fresta verkföllum meðan atkvæðagreiðsla færi fram um slika sáttatilíögu, þannig að vinnustöðv- un yrði ekki hafin, áður en séð væri hvort sáttatillagan leysi deiluna með samþykkt beggja aðila, launþega og at- vinnurekenda. Ef hins vegar til verkfalls kemur benda mestar líkur til að um allsherjarverkfall verði að ræða og þarf naum- ast um það að efast að um víðtæka vinnustöðvun verður að ræða, þar sem Vinnuveitendasambandið mun vafalítið grípa til verkbannsheimildar, ef verkalýðsfélögin hyggj- ast beita svonefndum skæruverkföllum. Breitt og mikið bil er þó enn á milli deiluaðila, þegar þessi orð eru rituð, en hins vegar er það ljóst, að með ákvörðun sinni um ^að fresta frekari umræðum um sér- kröfurnar í kröfugerð verkalýðsfélaganna, hafi aðilar sýnt eindreginn vilja sinn til að einbeita sér að því að ná samkomulagi um meginatriðin á þeim nauma tíma, sem til ráðstöfunar er, áður en boðuð verkföll skella á. Hvort það tekst er engin leið um að spá, en vonandi t.ekst að afstýra vandræðum. Ahnenningur er mjög uggandi vegna yfirvofandi verk- iAHs. enda er þetta viðkvæmasti mánuður ársins, hvað vjfinudeilur snertir. Mundi verkfall hafa geysileg áhrif á allt heimilis- og jólahald fólksins í landinu, ef svo hörmulega tækist til að verkfall skylli á. Óskir allra góðviljaðra manna beinast nú að því að allir aðilar sýni ýtrasta samkomulagsvilja, taki mið af fyrirheitum ríkis- stjórnarinnar 1 kjara- og atvinnumálum og tryggi vinnu- frið á aðventu friðarhátíðarinnar. — TK EfcLENT YFIRLIT Nýr forseti í Líbersti hreinsar til eftir fyrirrennara sinn Allt var komið í sukk í langri stjórnartíð Tubmans 1 í JÚLÍMÁNUÐI síSastl. kom til valda nýr forseti £ elzta blökkumannalýðveldinu í Afr- íku, Líberíu. Þá lézt á sóttar- sæng William V.S. Tubman, sem hafði verið forseti í meira en 27 ára samfleytt, fyrst kjör- inn 1943 og endurkjörinn jafn- an síðan. Varaforsetinn, Willi- am R. Tolbert, tók þá við for- setaembættinu og mun gegna því næstu sex árin, en forset- inn og varaforsetinn höfðu ver- ið kjörnir í janúarmánuði síð- astl. til sex ára. Kjör nýs vara- forseta mun fara fram innan skamms. LÍBERÍA er langelzta blökku mannalýðveldið í Afríku, eins og sést á því, að minnzt var 150 ára stofnunar þess hinn 7. jan. síðastl. Tildrögin voru þau, að hvítir svertingjavinir í Bandaríkjunum fengu þá hug mynd, að svertingjar, sem höfðu verið fluttir til Banda- ríkjanna frá Afríku og fengið frelsi, ættu að hverfa til Afríku aftur og stofna þar sjálf stætt ríki. Þeir tryggðu sér yfirráð yfir því landsvæði, þar sem Líbería er nú, árið’ 1820 og næstaHir^hófust þangað” flutningar á svertingjum, sem höfðu hlotið frelsi í Bandaríkj- unum. Þeir hófust fljótlega handa um stofnun ríkisins, en formlega var það fyrst viður- kennt af stórveldunum 1847. Líbería hefur verið sjálfstætt ríki síðan og engin tilraun gerð af nýlenduveldunum til að skerða hlut þess. Evrópuríkin, sem kepptust við á síðari hluta 19. aldar að eignast nýlendur í Afríku, sneiddu framhjá Líberíu. Það mun m.a. hafa stafað af því, að Líbería naut beinnar og óbeinnar verndar Bandaríkjanna. BLÖKKUMENNIRNIR, sem komu frá Bandaríkjunum, urðu brátt eins konar yfirstétt í Líberíu og hafa afkomendur þeirra haldið þeirri stöðu fram á þennan dag. Þeir sniðu stjórnarformið eftir bandarísk- um fyrirmyndum. Forsetinn hefur því alltaf verið valda- mikill. Fyrstu áratugina voru völdin í höndum flokks, sem var eins konar eftirmynd flokks republikana í Bandaríkj unum. Um 1870 missti hann völdin og komust þau þá í hendur flokks, sem þykir minna á flokk demókrata i Suðurríkj- um Bandaríkjanna. Hann hef- ur farið með stjórn óslitið síð; an, eða um 100 ára skeið. f raun hefur Líbería búið við eins flokks kerfi síðustu ára- tugina, ’þótt þar hafi ríkt lýð- ræði að nafni til. Hinir sönnu Wiggar — The True Whigs — en svo nefna fylgismenn stjórn arflokksins sig, hafa komið því þannig fyrir, að þeir hafa haft öll tögl og hagldir og kosn ingar verið lítið annað en sjón arspil. ÞÓTT Líbería nyti sjálfstæð is, urðu framfarir þar sízt Tolbert forseti skoðar vörur á markaSI meiri en £ nýlendunum í kring. Hinir heimfluttu blökkumenn og afkomendur þeirra hafa reynzt mjög íhaldssamir og látið sér nægja að lifa þægi- legu yfirstéttarlífi, líkt og hús bændur þeirra í Suðurríkjun- um í Bandaríkjunum. Þeir lögðu enga áherzlu á alþýðu- fræðslu eða bætt kjör annarra landsmanna, heldur hirtu mest um að treysta yfirráð sín. Þeir gerðu einnig lítið að því að blanda blóði við aðra, heldur tengdust innbyrðis og geta því flestir þeirra, sem nú gegna æðstu embættum í Líberíu, rak- ið saman ættir sínar með ein- hverjum hætti. T. d. er dóttir hins nýja forseta gift syni Wns nýlátna forseta. Segja má að nokkur breyt- ing hafi orðið á stjórnarhátt- um, þegar Tubman kom til valda 1944. Hann beitti sér fyr- ir ýmsum verklegum framför- um og alþýðumenntun. Hins vegar er talið, að hinni löngu stjómarsetu hans hafi fylgt vaxandi spilling og fjárdráttur hinna helztu valdamanna auk- izt enn, enda helztu valdamenn landsins tengdir honum eða ættingjar hans. Tubman SITTHVAÐ þykir benda til þesS) að hinn nýi forseti, William R. Tolbert, ætli að reynast fyrirrennara sínum betri alð þessu leytl. Tolbert, sem er 58 ára gamall, tilheyr- ir ekki hinum grónu ættum upphaflegra innflytjenda frá Bandaríkjunum. Faðir hans var fæddur í Bandaríkjunum, flutt- ist ungur til Líberíu og gerðist þar gúmmíræktarbóndi. Tolbert sonur hans tók við bú- inu og hefur aukið það svo mjög, að hann er talinn auðug- ur maður. Jafnframt varð hann han'dgenginn Tubman forseta, sem gerði hann að varaforseta sínum. Meðan Tubman lifði, bar heldur lítið á Tolbert. Hins vegar hefur hann gerzt athafna samur eftir að hann tók við forsetastörfunum. Hann hefur látið ýmsa ráðherra og embætt- ismenn, sem taldir eru hafa hugsað mest um eiginn hag, hætta störfum og skipað unga menn í stað þeirra. Þá hefur hann lagt niður ýmis einokun- arfyrirtæki, sem gæðingar Tub- mans höfðu átt. M. a. hefur hann afnumið einokun á hrís- grjónainnflutningi, en það var í eigu sonar Tubmans, sem jafnframt var tengdasonur Tol- berts. Þetta hefur orðið til að auka álit Tolberts og nýtur hann, að sögn erlendra blaða- manna, sem heimsótt hafa Liberiu, vaxandi vinsælda. Þá hefur hann hafizt handa um ýmsar félagslegar og verklegar framfarir. Frá náttúrunnar hcndl er Liberia auðugt land. Ibttarnir eru tæplega 1,5 millj. en land- ið er um 43 þús. fermílur að stærð. Framtíðarmöguleikar þar eru miklir, ef íbúarnir reynast færir um að hagnýta Þá. Þ. Þ. -oii&tsyaSSU

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.