Tíminn - 05.12.1971, Page 6
TIMINN
SUNNUDAGUR 5. desember 1971
Kortasaga íslands og
Heimurinn þinn
Úr Kortasögu fslands.
Jólabækurnar
Bersýnilegt er, að bókaútgáfa
verður imikil á þessu ári. Nú
eins og endranær, koma flestar
bækurnar út fáum vikum fyrir
jól, enda er það orðinn fastur
og góður siður, að menn velji
bækur til jólagjafa. Góð bók,
sem er til fróðleiks eða skemmti
lestrar, er mörgum bezta jóla-
gjöfin.
Það er ekki óeðlilegt, að £s-
lenzk bókaútgáfa sé nokkuð
einhæf, þar sem markaður fyrir
allar sérfræðibækur hlýtur að
vera mjög þröngur. Mest ber
líka á þýddum skáldsögum og
alþýðlegum endurminningarit-
uim í flóði jólabókanna. Þetta
tvennt virðist sérstaklega vin-
sælt lestrarefni. Aðeins fá ný
íslenzk skáldverk virðast halda
þar hlut sínum, eins og t. d.
norðansaga Indriða G. Þorsteins
sonar, spítalasaga Guðmundar
Daníelssonar og Ijóðabók Hann-
esar Péturssonar.
f hinu mikla flóði jólabókanna
virðast tvær bækur hafa algera
sérstöðu. önnur þeirra er eitt
merkasta fræðirit, sem hefur
komið hér út um langt skeið,
en það er Kortasaga íslands eft-
ir Harald Sigurðsson. Höfundur
og útgefandi hafa þar unnið
sameiginlega mikið afrek. Hin
bókin er Heimurinn þinn, sem
er alfræðirit um stjómmál, þar
sem sagt er frá ríkjum, alþjóða-
samtökum, stjómmálamönnum
og ýmsum hugtökum stjómmála
legs eðlis.
Dýrasta bókin
Kortasaga fslands eftir Harald
Sigurðsson bókavörð er yfirlit
um kort, sem hafa verið gerð
af fslandi frá öndverðu og til
loka sextándu aldar. Má segja
að þessari sögu ljúki með ís-
landskorti Guðbrandar Þorláks-
sonar biskups, sem Abraham
Ortelius gaf út 1590 og tók langt
fram eldri kortum og var síðan-
gmndvöllur að fslandskortum
næstu aldir. Það verk, sem Har-
aldur hefur hér unnið, er ber-
sýnilega óhemju mikið, því að
ekki voru til nein teljandi drög
að eldri kortasögu áður og hef-
ur hann því orðið að kanna all-
ar hugsanlegar heimildir um
þessi mál. Verk hans er aug-
ljóslega unnið af vísindalegri
vandvirkni, en þó er saga hans
ljós og skýr, enda er Haraldur
góður og verkvanur rithöfundur.
Áreiðanlega verður þetta verk
hans sízt of metið, en að mestu
er það unnið í tómstundum, eins
og svo mörg merkustu fræðirit
íslenzk.
Útgefandinn er Menningar-
sjóður og hefur hann lagt greini
legt kapp á, að ritið yrði sem
bezt úr garði gert. Það er í mjög
stóru broti, 30x41 cm, 280 bls.
Það hefur áð geyma 179 mynd-
ir af landakortum og kortahlut-
um og eru 16 þeirra litmyndir.
Allur frágangur er hinn vand-
aðasti. Að sjálfsögðu er bókin
dýr eða um 4.500 kr. með sölu
skatti, og því dýrasta bók, sem
hefur verið gefin út á íslandi.
Hún er fyrst og fremst ætluð
söfnum og fræðimönnum og
má telja vfst, að hún verði mik
ið keypt af erlendum söfnum,
enda hefur hún að geyma efnis
útdrátt á ensku. Upplagið er
ekki stórt. Kortasagan ó því
vafalaust eftif að hækka í verði
og reynast góð f járfesting.
Thule
Samkvæmt sögu Haraldar, kem-
ur ísland tiltölulega snemma við
sögu kortagerðar eða um 1000.
að menn ætla, á hinu svonefnda
Engilsaxneska korti, sem varð-
veitt er í British Museum. Síðan
flýtur landið með nokkrum mið-
aldakortum, stundum í norðaust
ur frá Bretlandseyjum, sem virð
ist helzt benda til enskra hug-
mynda, en annars af handahófi
einhvers staðar úti fyrir norð-
vestanverðri kringlu heimsins
eða landasamfellu þeirri, er
menn að fornum hætti hugðu
umflotna útsjánum. Margir
fræðimenn síðmiðalda og lengi
síðan hugðu að ísland væri
Thule, sagnaland, sem grískir
sæfarar eiga að hafa heimsótt
í eða við Norður-Atlantshaf á
fjórðu öld f. Kr., en af því gengu
allmiklar og ruglingslegar frá-
sagnir. Kortagerðannenn festu
landið á kort sfn f samræmi við
þessar hugmyndir, og er þá
stundum bágt að skera úr, hvort
þeir höfðu í huga hið forna
sagnaland eða hið raunverulega
ísland.
Fixland
Á 14. öld verður mikil fram-
för í gerð sjókorta meðal Mið-
jarðarhafsþjóða, einkum ítala og
Katalóníumanna, þótt löndunum
norðan Bretlandseyja væri lítið
sinnt í fyrstu. Þegar kemur
fram á 15. öld skýtur þar upp
landi, sem nefnist Fixland (rit-
að á marga vegu), og ber það
glögglega svip íslands. Ör-
nefm eru raunar af annarri rót
og benda flest fremur til stað-
hátta og einkenna í landslagi
en eiginlegra ömefna. Um heim
ildir kortagerðarmanna er
margt í vafa, en flest bendir
til, að þær séu runnar af ensk-
um rótum. íslandsgerð þessi
átti sér langa sögu og hverfur
ekki endanlega af sjókortum
fyrr en um 1600.
Um skeið mótaði kort af
Norðurlöndum, sem danskur
maður, Claudius Clavus, gerði,
mjög hugmyndir lærðra land-
fræðinga um ísland, en áhrifa
hans gætti hins vegar lítið á
sjókortum, en þau fóru gjam-
an nokkuð aðra leið en hin
lærðu kort
Kort Portúgala
Upp úr aldamótunum 1500
tekur að mótast ný gerð íslands
á portúgölskum sjókortum
(Cantino-kortið, 1502). Útlín-
ur landsins em í fyrstu nokk
uð reikular, en í hinum svoJ
nefnda Miller-atlasi, 1519, virð
ist gerðin fullmótuð, svo að hún
tók engum framfömm síðar, en
bætti þó við sig allmörgum ör-
nefnum af vafasömum uppmna.
Ef litið er á kortið í heild, era
strandlínur landsins furðu nærri
lagi, enda var ekki gert jafn
gott kort af íslandi fyrr en
Guðbrandur biskup Þorláksson
kemur til sögunnar 70 áram
síðar, íslandsgerð þessi virðist
að öðrum þræði runnin frá Fix-
landagerðinni með íaukum og
lagfæringum, sem sennilega
stafa frá enskum heimildum.
Hvað ísland snertir er gerð
þessi kunnust af frönskum sjó-
kortum nokkra yngri, oft nefnd
um Dieppekortum, en þegar líð-
ur á öldina fer henni hrakandi,
eins og sést bezt á kortum Vas
Dourados og fleiri samtíma-
manna hans.
Ýmsir urðu svo til þess að
gera kort af fslandi á 16. öld-
inni, en stór breyting verður þó
ekki fyrr en íslandskort Guð-
brandar biskups kom til sög-
unnar í lok aldarinnar, en þar
lýkur Haraldur sögu sinnL
Heimurinn þinn
Bókin Heimurinn þinn, hefur að'
geyima á annað þúsund uppslátt-
arþætti, auk mörg þúsimd fróð-,
leiksatriða, um riki heims, landr
svæði og mikilvæga staði, stjórn
málamenn, stj órnmálaflokka.
stjórnmálahugtök, alþjóðastofn,
anir og alþjóðasamtök, alþjóða-
samninga og alþjóðlegar yfír-
lýsingar og ýmis fróðleiksatriði
önnur varðandi heimsmálin.
Hún er í meginatriðum byggð
ó hinu kunna enska riti, A
Dictionary of Politics, sem
Penguin-útgáfan gefur út All-
miklu hefur þó verið aukið við
með tilliti til íslenzkra stað-
hátta og fróðleiksþarfa og er
því Heimurinn þinn meira og
fullkomnara rit en enska frum-
ritið. Ritstjóm hinnar islenzku
útgáfu annaðist ungur lögfræð-
ingur, Jón Ögmundur Þormóðs-
son, en honum til aðstoðar
vom tveir ungir menn, Gunnar
Jónsson lögfræðingur og Sig-
urður Ragnarsson sagnfræðingur.
Verður ekki annað sagt en að
þeim hafi tekizt verkið veL Hér
er þó um vandasamt verk að
ræða, td. þýðingar á ýmsum
hugtökum, en þar hafa þýð-
endumir orðið að vinna braut-
ryðjendastarf að verulegu leytL
Fyrir þá, sem fást við erlend
málefni, er Heimurinn þinn
ekki sízt gagnlegt rit af þess-
um ástæðum, auk þess, sem þar
er að finna á einum stað mik
inn og margvíslegan fróðleik.
Viðbót við fréttirnar
Blöð og útvarp miðla fólki nú
ekki aðeins daglega fréttum af
því, sem er að gerast í heim-
inum, heldur mörgum sinmim
á dag. Yfirleitt ber þar mest
á allskonar stjómmálafréttum.
Oft eru þessar fréttir heldur
lausar í reipunum og þeim
fylgja ekki nægilegar skýring-
ar, nema þá eftir dúk og disk.
f fréttunum ber líka mikið á
nöfnum á nýjum ríkjum og
ríkjasamtökum, tilvitnunum í
alþjóðasamninga o. s.frv. Til
að fá fljótt skýringar á ýmsu
slíku, er heppilegt að hafa við
hendina bók eins og Heimur-
inn þinn, því að þar er að
finna svör við mörgu slfku í
stuttu og greinargóðu máli. Sfð
an hljóðvarp og sjónvarp komu
til sögunnar er mikil nauðsyn
á að hafa slíka bók sem eins-
konar viðbót við fréttirnar til
þess að geta haft þeirra full
not.
Því hefur A Dictionary of
Politics orðið vinsæl bók í hin-
um enskumælandi heimi og af
sömu ástæðu er líklegt að
Heimurinn þinn eigi eftir að
verða vinsæl bók á fslandi.
Það er bókaútgáfan örn og
Örlygur h.f., sem gefur út Heim-
inn þinn. Sama útgáfa gaf út
Landið þitt fyrir nokkmm ár-
um, en það rit hefur náð mikl-
um vinsældum.
ÞJ>.
f FISCHER
LES
1 SKÁX
Fylgið fordæmi meistarans.
Þeir, sem gerast áskrifendur að tímaritinu SKÁK
fyrir næstu áramót, fá yfirstandandi árgang
ókeypis (Áskriftargjaldið er kr. 1000,00 fyrir 10
tölublöð).
Notið þetta einstæða tækifæri.
Tfmaritið „SKÁK", pósthólf 1179, Rvík.
Sími 15899 (í hádegi og á kvöldin).