Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Föstudagur 2. júni 1972.
KR-ingar tóku forystuna í 1. deild
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Faröu til fjandans...er eins og Atli Héðinsson segi . begar hann sendir knöttinn með þrumuskoti i mark
Breiðabliks. Og markvörðurinn, Ólafur Hákonarson, veit ekki fyrr en knötturinn syngur I netinu.
(Tímamyndir Róbert.)
Atli, hinn sókndjarfi miðherji lið
sins.
KR-liðið, með Atla Björn
Pétursson, Baldvin og Sigmund,
sem beztu menn, kom vel frá
Minningarsjóður
Rúnars
Vilhjálmssonar
Stofnaður hefur verið
minningarsjóður um Rúnar
Vilhjálmssson knattspyrnu-
mann, sem lézt af slysförum
i landsliðsför 1970.
Minningarspjöld eru til
sölu i Lúllabúð, Bólstrun
Harðar Péturssonar,
verzluninni Straumnes og
sportvöruverzlun Ingólfs
Óskarssonar.
Hörður er
byrjaður að æfa
með Akranes-
liðinu
Hörður Helgason,
varamarkmaður Fram þrjú s.l.
sumur, er byrjaöur að æfa með
Akranesliöinu. Kins og hefur
komiö fram hér á síðunni, hefur
llörður gengið yfir i Akranesliðið,
og mun hann íeika meö liðinu i
sumar. Hörður er fluttur upp á
Akranes, þar sem hann mun hef ja
störf sem kennari.
Til gamans má geta þess, að
það var Hörður, sem varði hina
frægu vitaspyrnu frá Ellert B.
Schram, á siðustu minútunni i
leik KR og Fram i bikarkeppninni
1970— það varð til þess, að Fram
vann leikinn og stuttu siðar urðu
þeir Bikarmeistarar.
Ekki er að efa, að Hörður mun
styðja Akranesliðið i 1. deildar-
baráttunni i sumar, þar sem
Akranesliðið hefur illilega
vantað góðan markvörð undan-
farin ár. SOS.
leiknum. Liðið i heild lofar góðu,
en greinilegt er, að það má laga
ýmislegt i leik liðsins. T.d. má
liðið leika meira upp kantana, i
staðinn fyrir að reyna alltaf að
brjótast upp miðjuna, með
stunguboltum á Atla.
Breiðabliksliðið olli von-
brigðum i leiknum,- er það
kannski vegna þess, að búizt var
við miklu af þeim? ,-sérstaklega
eftir sigurinn i Eyjum. Ég bjóst
við þeim sterkari, sagði einn leik-
manna KR eftir leikinn og getur
undirritaður tekið undir þau orð.
Beztu menn Breiðabliks, voru
Ólafur Hákonarson, Helgi
Helgason og Haraldur
Erlendsson.
Dómari leiksins var Einar
Hjartarsson og dæmdi hann vel. -
SOS.
IffJBHW
I
D
iil
Hollenska liðið Ajax sigraði i
Evrópukeppni meistaraliða,
þegar liðið sigraði italska liðið
Inter Milan s.l. miðvikudags-
kvöld 2:0 I úrslitaleik, sem fór
fram i Rotterdam.
Ajax var betra liðið i leiknum
og sigurinn kærkominn. Knatt-
spyrnusnillingurinn Gruyff, sem
var kosinn knattspyrnumaður
ársins 1971 i Evrópu skoraði bæði
mörk liðsins i siðari hálfleik.
Ajax var einnig meistari i
þessari keppni i fyrra, en þá sig-
raði liðið griska liðið Panathina-
ikos,sem ungverski knattspyrnu-
konungurinn Puskas þjálfaði,i úr-
slitaleik á Wembley 2:0.
Skozka landsliðið i knatt-
spyrnu, undir stjórn Docharty,
heldur til Brasiliu á næstunni, þar
sem liðið mun taka þátt i Litlu
heimsmeistarakeppninni, sem
haldin er i tilefni 100 ára sjálf-
stæðis landsins.
Islandsmótið utanhúss i hand-
knattleik karla hefst eftir 17. júni
og mun standa til 2. júli. Ekki er
enn ákveðið, hvar það fer fram,
en tvö félög hafa sótzt eftir að fá
að halda það — þau eru Grótta á
Seltjarnarnesi og Haukar i
Hafnarfirði.
Helgi borvaldsson, knatt-
spyrnumaður úr Þrótti, lék sinn
100 meistaraflokksleik með
knattspyrnuliði félagsins i gær-
kvöldi, þegar Þróttur lék gegn FH
i Hafnarfirði. Leikurinn var fyrsti
leikur 2. deildar i knattspyrnu i
ár. (nánar um leikinn á morgun).
Óvist er, að Magnús Guðmunds-
son, markvörður 1. deildar liðs
KR i knattspyrnu geti leikið með
liðinu.þegar það mætir Akranes-
liðinu á sunnudaginn. Hann
meiddist illa á fæti i leik Breiða-
bliks — KR.
I dag hefst Pierre Robert-
keppnin i golfi og verður hún
haldin á velli Nesklúbbsins á Sel-
tjarnarnesi. Mótið er eitt fjöl-
mennasta mót sumarsins.
Íslandsmetí kúluvarpi!
Lára Sveinsdóttir, A setti nýtt
Islandsmet i hástökki stökk 1,58
m. Hún felldi 1,60 af slysni, en var
vel yfir hæðinni. Bjarni Stefáns-
son, KR hljóp 400 m á 49,2 sek.,
sem var gott i kuldanum og gjól-
unni á Melavellinum i gærkv.
Erlendur Valdimarsson, tR var
ekki i essinu sinu i kringlukast-
inu, hann kastaði 55,06 m, en átti
ógild kast um 57,50 m. Nánar
verður skýrt frá úrslitum i blað-
inu á morgun.
OE-Reykjavik.
Baráttan i kúluvarpi á EOP-
mótinu i gærkvöldi var óvænþ
hörð og skemmtileg. I fyrstu um-
ferð varpaði Hreinn Halldórsson,
HSS 17,27. Það var ekki fyrr en i 5.
umferð, að Guðmundur Her-
mannsson, KR tryggði sér sigur
með 17,56 metra kasti. t 2. umferð
varpaði Hreinn 17,39, sem er 84
sm. lengra en hans bezti árangur
frá IR-mótinu fyrir viku. Þess má
geta, að OL-lágmarkið er 18,20 m.
Við náðum sambandi við örn
Steinsen, þjálfara KR, eftir lcik
liðs hans viö Breiðablik og
spurðum liann, hvort hann væri
ekki ánægður með liðið: -Það cr
ekki annaö hægt að segja, en að
cg sé mjög ánægður með liðið.
Vörnin, scm ég tel veikasta hlekk
liðsins, stóð sig mjög vcl f lcikn-
um og það viröist, sem hún
styrkist, með hverjum leik.
—Það var gert m jög lftið úr KR-
liöinu fyrir mótiö og þvi spáð falli.
Þá var sagt um þaö, að það væru
ungir óreyndir strákar, scm
skipuðu liöið, þeir sömu og i
fyrra, og væru það ekki miklir
knattspyrnumenn.
-Nei ég kviði ekki framtfðinni
það er miklu meiri*bolti i strákun-
um, en þeir hafa sýnt i tveimur
fyrstu leikjunum. Það er óska-
draumur hvers liðs, að fá gott
start i hyrjun - það hefur KR-liðið
fengið og er mjög niikill styrkur
fyrir það, þvi að leikmcnn liðsins
eru ungir og þurfa að fá meira
sjálfstraust, sem þeir hafa nú
fengið og eru þeir ekki búnir að
segja sitt siðasta orð i sumar.
Ekki er að efa, að margir
áhorfendur,sem hafa séð hið unga
og liflega KR-lið, taki undir þessi
orð Arnar. T.d. sagði einn harður
Valsari, að hann væri farinn að
halda með KR-liðinu, þvi að ungu
ljónin i KR, væru svo léttleikandi
og skemmtileg á að horfa.
En snúum okkur þá að leik
Breiðabliks og KR, sem fór fram
á Melavellinum s.l. miðvikudags-
kvöld.
Það var greinilegt, að leikmenn
liðanna voru taugaóstyrkir i
byrjun leiksins. Liðin skiptust á
aö sækja en þeim tókst ekki oft
að skapa sér virkilega hættu við
markið og varð þvi mest um
miðjuþóf. Bezta færið i fyrri hálf-
leik, áttu Breiðabliksmenn, á 44.
min. fékk ólafur Friðriksson,
gullið tækifæri til aö færa liði sinu
forystu i leiknum. Hann fékk
knöttinn, einn og óvaldaður inn i
markteig KR, sannkallað
draumafæri - honum brást boga-
listin og skaut fram hjá.
KR-ingar mættu tviefldir til
leiks i siðari hálfleik og voru
greinilega ákveðnir að gera út um
leikinn strax. Gunnar Guðmunds-
son, komst einn inn fyrir vörn
Breiðabliks á 13 min. - á siðustu
stundu bjargaði markvörður
Breiðabliks, ólafur Hákonarson,
með úthlaupi á réttu augnabliki.
ólafur var ekki eins vel á verði,
þrem min. siðar þegar hörkuskot
frá Atla Héðinssyni, söng i neta-
möskunum fyrir aftan hann -
stórglæsilegt skot frá Atla. Eftir
markið, var eins og Breiða-
bliksliðiö, sem skóp sér nafn
fyrir að sigra Vestmannaeyjar
um s.l. helgi, félli saman.
KR-ingar tóku smátt og smátt,
öll völd i leiknum og Breiöabliks-
menn, sem voru i hlutverki
temjarans, misstu öll tök á ungu
I jónunum i KR. KR-liðiö
innsiglaði sigurinn, með tveim
mörkum undirlok leiksins. Annað
mark liðsins, skoraði Hörður
Markan með skalla og það þriðja,
Ég býð þér upp I dans.......Haraldur Erlendsson og Guðjón
Guömundsson taka sporiö i lcik Breiðabliks og KR.
„ÞAÐ ER OSKADRAUMUR HVERS LIÐS AÐ
FÁ G0TT ,START’ í l.DEILDAR BARÁTTUNNI”
••
- sagði Orn Steinsen, þjáifari KR, eftir að skólastrákarnir hans sigruðu Breiðablik, 3:0