Tíminn - 26.08.1972, Side 3
Laugardagur 26. ágúst 1972
TÍMÍftN
Friðrik Ólafsson skrifar
um 18. skákina
1 Iv.: Fischer.
Sv.: Spasski
ABCDEFGH
œ
•4 11 WM
o Oi
* iS s
M iil
M H H
m
Biðskákin
Menn voru ekki á eitt sáttir
hvernig meta bæri stöðuna,
þegar skákin fór i bið s.l.
fimmtudagskvöld, enda engan
veginn auðvelt að meta svo
flókna stöðu i snarheitum.
Margir hölluðust að þvi, að
möguleikar Fischers væru
vænlegri, en óvist, að þeir
væru afgerandi. Helztu
annmarkarnir á stööu hvits er
hin innilokaða staða kóngsins
á al og óvirkur hrókur á bl,
sem getur einungis gegnt þvi
Spassky
Friðrik
Fischer
hlutverki að verja kónginn
máti. Þetta dregur mjög úr
vinningshorfum hvits, enda
varð raunin sú, þegar tekið
var til við skákina i gær, að
Fischer gerði enga tilraun til
að tefla til vinnings, og lét sér
nægja að halda i horfinu.
Spasski virtist ekki heldur
telja sig hafa efni á að leggja
til atlögu og lyktirnar urðu
þær, að kapparnir þráléku rétt
einu sinni enn. Þegar tekið er
tillit til stöðunnar i einviginu
er auðskilið, að Fischer skuli
ekki vilja stofna til tvisýnna
átaka. Hvert jafntefli færir
hann óðfluga nær titlinum, en
möguleikar Spasski dvina að
sama skapi.
44. I)h6
DLl
Spasski vill ekki leyfa
drottningarskák á e3, sem
mundi hefta hreyfifrelsi
svarta liðsaflans.
45. Dh7
Dc6
45. — Hdl strandar á 46.
Hxf6+ og 45. — Hd2 þjónar
engum tilgangi vegna t.d. 46.
Dh3, sem felur i sér ýmsar
óþægilegar hótanir. Sama er
um 45. — Hc2 að segja, sem
hvitur svarar með 46. Dg8.
46. Dh6
47. I)h7
42.
43. Hf7
Dc6
Hd6
Df3
Dc6
Jafntefli
F.Ó.
18. einvígisskákinni lauk með jafntefli:
Sigur Fischers svo til innsiglaður
- þótt opinberan stimpil skorti ennþá -
KT—Heykjavik
18. einvigisskákinni lyktaði
meö jafntefli eftir 47. leik. Þegar
tekiö var til viö skákina að nýju i
gær, kom i ljós, að hvorugur aðil-
inn mátti hreyfa sig án veru-
legrar áhættu. Kapparnir sættust
þá á jafntefii og varö endir
skákarinnar — sem framan af
var mjög fjörug — þvi leiðinlegt
þrátefli.
Kftir þetta fimmta jafntefli i
röð hefur Fischer hlotið 10 1/2
vinning og skortir þvi aðeins 2
vinninga úr 6 skákum, sem
hugsanlega á eftir að tefla i
einviginu, til að hreppa heims-
meistaratitilinn. Sigur Fischers
er svo gott sem innsiglaður, þótt
opinberan stimpil vanti enn til
staðfestingar. Með sama áfram-
haldi ætti hann að fást i næstu
viku.
Um biðskákina er fátt eitt að
segja. Við upphaf hennar mátti
heyra á skákmeisturum, sem
höfðu grandskoðað biðstöðuna, aö
jafntefli væri sennilegust úrslit.
Þó voru ýmsir (m.a. sá, sem
þetta ritar), er töldu útlit fyrir
langa og stranga viðureign á hvit-
svörtu borðinu.
I fyrstu var eins og báðir
keppendur þreifuðu fyrir sér án
nokkurs árangurs. Hvorugur
hætti á afgerandi sóknaraðgerðir
og þvi minnti viðureignin á
staðnaðan skotgrafahernað Fyrri
heimstyrjaldarinnar. Að þessu
sinni aftur á móti saminn friður
eftir stuttan tima.
Ég ræddi stuttlega við Friðrik
Ólafsson um úrslitin. ,,Að minu
áliti hætti Fischer sér ekki út i
hæpnar vinningstilraunir.
Spasski var hins vegar i vörn og
átti ekki um annað að velja en
þiggja jafntefli, þegar það gafst.
Að öðru leyti er fátt um
biöskákina að segja”, sagði
Friðrik að lokum.
19. einvigisskákin verður tefld
á sunnudag og hefst að venju kl. 5
siðdegis. Spasski hefur hvitt og
hlýtur nú að láta til skarar skriða,
ef vonargneisti um sigur i
einviginu býr innra með honum.
Æskulýðsfulltrúi ferðast um landið og heldur samkomur
Mjög stór hafrækja
út af Djúpi
GS—ísafirði
Vélbáturinn Hugrún frá Bol-
ungarvik hefur farið tvær ferðir á
hafrækjuveiðar á mið, sem rann-
sóknarskipið Bjarni Sæmundsson
fann i fyrra. Fékk hann til
þessara veiða rækjunót hjá Neta-
gerð Vestfjarða.
Miðin eru út af Isafjarðardjúpi
og tekur veiðiferðin nálægt
einum sólarhring. Fékkst ein lest
af mjög stórri rækju. 140 i kiló-
grammi. i annarri ferðinni, en
1300 kilógrömm i hinni.
Þessa mynd tók Guðmundur Kinarsson, aðstoðaræskulýösfulltrúi kirkjunnar af samferðarmönnum
sinum i væntanlegu ferðalagi. Þeir eru Guðmundur Björgvinsson, Ingi Bogi Ingason og Skotinn John
Aron.
ÓV—Reykjavik
A næstu 10-15 dögum mun Guð-
mundur Einarsson, aðstöðar-
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar,
s'tanda fyrir unglingavökum viðs-
vegar um landið, og heldur hann
t'yrstu vökuna á Höfn i Hornafirði
annað kvöld. Verður siðan farið
um Austfirði og Norðurland og
siðan á Snæfellsnes og haldnar
samkomur á leiðinni.
1 viðtali við fréttamann Tim-
ans sagði Guðmundur aðdrag-
anda þessa máls vera þann, að
hann hefði farið til Skotlands i
fyrrasumar i boði skozku kirkj-
unnar. — Ég tók þar þátt i svo-
kallaðri „summer mission” sem
er ákafléga vinsælt fyrirbæri hjá
ungu. kristnu fólki i Bretlandi.
Það notar gjarnan sumarleyfi sitt
til að ferðast i hópum og halda
kvöldvökur, ..pikknikka”, barna-
samkomur og fleira i svipuðu
boðunarstarfi. Skozka kirkjan
hefur gert geysilega mikið af
þessu.
Ég var þarna sem nemandi,
sagði Guðmundur ennfremur, og
núna fer ég og ætla að reyna að
koma þessu sama af stað hér á
tslandi. Hingaðereinmitt kominn
enskur piltur, sem var samtima
mér i Skotlandi i fyrra, og hann
verður okkur leiðbeinandi á
ferðalaginu. John Aron heitir
hann. Þess utan eru tveir piltar,
Guðmundur Björgvinsson og Ingi
Bogi Bogason. sem munu syngja
og leika á gitara kristileg lög i
poppútsetningum. Þeir hafa
komið viða fram og fengið ágæta
dóma.
Guðmundur sagði einnig, að
jafnframt yrðu þeir félagar með
kristilegar plötukynningar,
kynntu nýjar, kristilegar rokk-
óperur — en ekki Jesus Christ —
Superstar. sagði Guðmundur.
—'Tilgangurinn er, sagði Guð-
mundur, að koma á þessu sama
starfi hérlendis, helzt aö íerðast
um landið með vissu millibili og
heimsækja unglinga á hinum
ýmsu stöðum. halda með þeim
unglingavökur og komast i nánari
snertingu við þau. Það gæti
áreiðanlega ekki einungis gert
okkur gott, að kynnar vel ung-
lingum viðsvegar um landið,
heldur þeim einnig.
3
Þeir munu þekkjast,
þótt þeir máli yfir
nöfn og númer
Kftir fregnum frá Bretlandi
að dæma virðast brezkir
togarar ætla aö brjóta al-
þjóðlegar siglingareglur og
alþjóöasamninga með þvi að
mála yfir nafn og númer.
Auðvelt á þó að vera að
þekkja lögbrjótana, þvi að
islenzka landhelgisgæzlan á
myndir af brezku togurunum
og það verða teknar myndir af
þeim, þegar þeir koma á
tslandsmiö og af þeim
gögnum er auöveldlega hægt
að sanna, hver togarinn er.
Kn furðulegt er það, ef brez
ka ríkisstjórnin leggur blessun
sina yfir þessi lögbrot brezkra
skipa.
Myndum órofa
samstöðu í
landhelgisbaráttunni
í forystugrein Nýs lands er
fjallað um landhelgismálið.
Þar segir:
„Úrskurður Haagdóm-
stólsins i landhelgismálinu
liggur nú fyrir, og er hann mcð
þcim hætti, að rikisstjórnin
hefur ekki séð sér annað fært
en að mótmæla honum ein-
dregið. i yfirlýsingu frá henni
er bent á, að islendingar
viðurkenni ekki lögsögu dóm-
stólsins um fiskveiði-
lögsöguna, enda hafi land-
helgissamningnum við Breta
og Vestur-Þjóðverja frá 1961
veriö sagt upp á lögmætan
hátt. Samt felli dómurinn
úrskurð án þess að hafa tekiö
afstöðu til þess, hvort hann
hafi lögsögu i málinu.
Úrskuröurinn sé þvi á engan
hátt bindandi fyrir islendinga
og rikisstjórnin sé staðráðin i
þvi að láta koma til fram-
kvæmda útfærslu fiskveiöilög-
sögunnar út i 50 milur 1. sept.
n.k.. eins og Alþingi
islendinga hafi einróma sam-
þykkt.
Um þennan dóm Haagdóm-
stólsins inætti að sjálfsögðu
fjöiyrða, en nú riður á, að allir
íslendingar standi saman
scm einn maður og fylki sér
um rikisstjórnina i þessu lifs-
spursmáli islenzku þjóðar-
innar. Hér mega ekki undir
neinum k ri ng u m stæðu m
komast að þröng flokkspóli-
tisk sjónarmið. Morgunblaöiö
getur þó ekki stillt sig um að
vera með alls konar dylgjur i
garð rikisstjórnarinnar um,
að illa hafi verið haldið á
málinu i sambandi við
málflutninginn fyrir dóm-
stólnum i Haag. tslendingar
hefðu átt að senda þangaö
málsvara sinn. Þetta er van-
hugsaö, þar sem islendingar
viðurkenna ekki lögsögu
dómstólsins. Sannleikurinn er
sá, að landhelgissamningur-
inn frá 1961, sem viðrcisnar-
stjórnin stóð að, cr með mestu
óhappaverkum,sem gerð hafa
verið i utanrikismálum
tslendinga á siðari timum. Við
þennan arf er núverandi ríkis-
stjórn aö reyna að losa sig.
Morgunblaðiö ætti aö sjá sóma
sinn i þvi að hafa hægt um sig i
þessu máli og vera ekki að
reyna að auka á vandann með
fávisu tali. Það eina, sem nú
skiptir máli, er full og
afdráttarlaus samstaða þjóð-
arinnar i landhelgismálinu.
Annað þjónar ekki hags-
munum islendinga”.
—TK