Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 15

Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 12, geptember 1972 TÍMINN Urslit kunn í öllum deildum Alf — Reykjavik. Um helgina fcngust endanleg úrslit i öllum þremur deildum islandsmótsins i knattspyrnu. Raunar var vitað um sigur Fram i I. deild, en nú fcngust úrslit i fallbaráttunni i deildinni, úrslit i 2. deild og 3. deild. Tiu ár eru siðan Fram varð íslandsmeistari i knattspyrnu. Þá var sigur liðsins miklu naumari en nú, en einsog kunnugt er á Fram eftir að leika tvo leiki i mótinu nú, en úrslit þeirra geta engu breytt um úrslit mótsins, og segir það sina sögu um yfirburði Fram að þessu sinni. Má til gam- ans geta þess, að einn af leik- mönnunum frá 1962, Baldur Scheving, er enn fastur meistara- flokksmaður með Fram. Fram tekur þátt i Evrópubik- arkeppni meistaraliða á næsta ári, en þátttökurétt i UEFA- keppninni öðlast Vestmannaey- ingar, sem tryggðu sér silfur- verölaun i deildinni með þvi að sigra Akranes með 4:1 á laugar- daginn. Ekki tókst Vikingum að halda sæti sinu i deildinni og leika þeir þvi i 2. deild á næsta ári. Barátta Vikinga fyrir lifi sinu i 1. deild hefur verið bæði löng og ströng, en endanlega var gert út um hana á sunnudaginn, þegar Vikingur tapaði fyrir KR. Akureyringar hafa unnið sæti sitt i 1. deild aftur, en þeir sigruðu nokkuð örugglega i 2. deild. Hins vegar gekk Vestfirðingum ekki eins vel — og verða ísfirðingar að sætta sig við að leika i 3. deild næsta ár. Upp úr 3. deildinni kemur svo lið Þróttar frá Neskaúpstað, sem sigraði i úrslitakeppni deildarinn- ar, sem háð var um helgina. Fram íslandsmeistari — Akureyri sigurvegari í 2. deild - Þróttur, NK. sigurvegari í 3. deild - Víkingar falla í 2. deild og ísfirðingar í 3. deild. Leiðin að markinu fundin — en það er ekki nóg. Vfkingum tókst aldrei aö skora í leiknum gegn KR (Timamynd Gunnar.) Víkingar gleymdu skotskónum heima og féllu niður í 2. deild Það átti fyrir Vikingum að liggja, að falla niður i 2. deild. Það er langt siðan falldómurinn var lesinn yfir þeim, en siðan skapaðist ný vonarglæta, og þeir fengu tækifæri aö að halda sæti sinu með þvi að sigra KR. En það tækifæri fór einnig forgörðum á sunnudaginn, þegar þeir töpuðu 0:1 i miklum baráttuleik, þar sem Vikingar voru sizt verri aðilinn — úti á vellinum — en eins og fyrri daginn gleymdust skotskórnir heima. Eina mark leiksins skoraði Gunnar Gunnarsson fyrir KR, þegar nokkrar minútur voru liðn- ar af leiknum. Diörik marvörður Vikings missti knöttinn fyrir fæt- ur Gunnars, sem ekki var seinn að notfæra sér það. Knattspyrnulega séð var ieikur KR og Vikings ekki upp á marga fiska. Hann var’fyrst og fremst baráttuleikur — og þegar KR haföi skorað mark i byrjun leiks- ins snerist hann fyrst og fremst um það, hvort KR-ingum tækist að halda þessu forskoti eöa ekki. Mikið hefur verið rætt um lánleysi Vikinga i þessari keppni. Rétt er það, að lánið hefur ekki leikið við liðiö, en ástæða er til að vekja athygli forráðamanna liðsins á þvi, að þetta er ekki ein- Um helgina tryggöu Akur- eyringar sér aftur sæti i 1. deild eftir eins árs dvöl i 2. deild, en það gerðu þeir með þvi að sigra Ár- mann með einu marki gegn engu. Þormóður Jónsson skoraði eina mark leiksins. Hættulegustu and stæðingar Akureyringa, FH-ing- ar, töpuðu um helgina stigi norður á Húsavik, en þar geröu þeir jafntefli við Völsunga, 1:1, svo að sigur Akureyringa i 2. deild er enn öruggari. Það var eftirsjá að Akur- eyringum, þegar þeir duttu niöur hlit skýring. Framherjar Vikings virðast hreinlega ekki kunna að skora mörk — og það er það, sem laga þarf. Svo einfalt er það. Samleikur Vikings-liðsins er ekki lakari en gengur og gerist meðal 1. deildar liðanna. KR-ingar sluppu með „skrekk- i 2. deild i fyrra, en nú hafa þeir endurheimt sæti sitt i 1. deildinni og hafið norðlenzka knattspyrnu aftur til vegs og virðingar. Og vist er um það, að Akureyringar eru inn” annað áriö i röð — og nú án hjálpar Ellerts Schram! Enginn vafi er á þvi, að þetta sumar hefur verið liðinu ákaflega lær- dómsrikt, en spurningin er, hvort hinir ungu liðsmenn KR geti dregið réttan lærdóm af reynsl- unni, sem þeir hlutu i sumar. staðráönir i þvi að láta álika slys og i fyrra ekki endurtaka sig. Jóhannes Atlason, þjálfari Ak- ureyringa og jafnframt leik- maður með liði þeirra, á vafalitiö ...og Þróttur NK, í Það er ekki ofsögum sagt, að angrun hefur verið erfitt að rjúfa. knattspyrnumenn á Austurlandi Nú hefur Þrótti frá Neskaupstað hafi verið einangraðir. Þá ein- tekizt að vinna sæti i 2. deild á Akureyringar aftur í 1. Aftur dregst fslenzkt i körfuknattleik. ■ ■ X | ■ ■ ■ ■ ■ KR leikur gegn lið gegn Real Madrid meisturunum i gær voru lið dregin saraan i Evrópukeppninni í körfu- knattleik — og ÍR-ingar, nú- verandi islandsmeistarar, sem þátt taka i keppni meistaraliða — duttu heldur betur i lukkupottinn, þvi að þeir drógust á móti Real Madrid frá Spáni, sem er ekki siður þekkt fyrir körfuknatt- leik en knattspyrnu, en félagið hefur oftsinnis orðiö Evrópu- meistari i greininni. Eru IR-ingar að vonum ánægðir með þennan drátt, þvi að álita verður, að Real Madrid dragi áhorfendur að. Eins og kunnugt er, drógust Keflvikingar gegn Real Madrid i Evrópukeppninni i knattspyrnu og munu liðin, leika fyrri leik sinn i Madrid á miðvikudaginn. Körfuknattleiksmenn Real Madrid eru atvinnumenn og hafa löngum veriö i fremstu röð i Evrópu. Nýlega barst liði þeirra góöur liðsstyrkur, þar sem einn snjallasti körfu- knattleiksmaður Evrópu gekk i raðir þeirra, en hann kom frá vestur-þýzka liðinu Giessen. KR-ingar, núverandi bikar- meistarar i körfuknattleik, taka þátt i Evrópukeppni bikarhafa og drógust þeir ein- mitt gegn Giessen, en þetta er i fyrsta sinn, sem islenzkt körfuknattleikslið tekur þátt i Evrópukeppni bikarhafa. deild Staðan í deildunum Staðan i hinum þremur deildum tslandsmótsins i knattspyrnu er nú þessi: 1. deild Fram. 12 7 5 0 31-16 I!) ÍBV 11 7 1 3 37-22 IHl Keflavik II 5 5 1 26-24 !5| Akranes 14 7 1 6 24-22 151 Breiðablik 13 5 3 5 16-23 13 Valur 13 3 5 5 19-21 I2i KR 14 4 2 S 17-26 I0| Vikillgur 14 2 2 1(1 K-23 61 2. deild Akureyri 14 12 2 0 49-13 26 FH 13 9 4 0 32-11 22 Völsungur 13 5 4 4 25-27 14 llaukar 14 5 0 9 20-26 10 Þróttur 11 3 3 5 18-19 9 Selfoss 10 3 0 7 17-21 6 Armann 11 3 1 7 13-24 6 isafj. 10 0 1 9 5-39 1 3. deild Lokastaðan i úrsiitakeppn- inni: Þróttur NK 3 2 1 0 7-4 5 KS 3 2 0 1 9-5 4 Viöir 3 1 0 2 6-8 2 Vikingur 3 0 1 2 5-10 1 sinn þátt i velgengni Akureyrar- liðsins. Heldur er óliklegt, að hann verði með Akureyringum á næsta ári, enda þótt ekki sé loku fyrir það skotið. 2. deild nýjan leik og þar með rofið einangrunina i bili — og þaö er von margra knattspyrnuunn- enda, aö Austfjarðar-liðiö láti ekki þar við sitja, heldur treysti stöðu sina i 2. deild og keppi i alvöru um 1. deildar sæti. Úrslitakeppnin i 3. deild hefur staðiö yfir siðustu daga. Til úr- slita léku Þróttur, Neskaupstað, Viðir, Garði, Knattspyrnufélag Siglufjarðar og Vikingur, Ólafs- vik. Úrslit einstakra leikja hafa oröið þessi: Þróttur—KS 2:1 Viðir—Vikingur 3:2 KS—Vikingur 5:1 Þróttur—Viðir 3:2 Vikingur—Þróttur 2:2 KS-Viðir 3:2 Athyglisvert er, að eina stigið, sem Þróttur tapar, tapast gegn Viking frá Ólafsvík, sem tapaði fyrir hinum liðunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.