Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 12. september 1972 Mikil gleði ríkti á yfirborðinu, en skuggi ofbeldisverkanna grúfði þó yfir Tuttugustu Olympíuleik- unum var formlega slitið í MUnchen í gærkvöldi. Minni viðhöfn var við loka- athöfnina en ráðgert hafði verið i upphafi. Skuggi morðanna, sem framin voru i Olympíuþorpinu í síðustu viku, hefurhvílt yfir1 leikunum.síðustu daga, og sennilega verður þessara Olympiuleika minnzt í sög- unni sem leika ógnana og morða — og e.t.v. síðustu Olympiuleikanna, því að ekki er fýsilegt fyrir neinn aðila að annast fram- kvæmd Olympíuleika, ef atburðir eins og þeir, sem gerðust í MUnchen, eiga eftir að endurtaka sig. Er. þá ekki aðeins átt við hin viðbjóðslegu morð, sem þar voru framin, heldur einnig hinar pólitísku deilur, sem stefndu leikunum í hættu. brátt fyrir, að minni viðhöfn væri við lokaathöfnina i gær en ráögert hafði verið, rikti á yfir- borðinu mikil gleði meðal þátt- takendanna á Olympiuleikvang- inum. Að venju var tendrað með stórum stöfum nafn þeirrar borgar, sem á að halda næstu 01- ympiuleika — Montreal i Kanada. tþróttamennirnir á Olympiuleik- unum gengu óformlega inn á leik- vanginn i gær og veifuðu til fjöld- ans, en leikvangurinn var full- skipaður, en hann tekur 80 þúsund manns. Einnig fylgdist mikill fjöldi með athöfninni i sjónvarpi og útvarpi. Að venju hlutu Sovétmenn flesta verðlaunapeninga og flest stig. Samtals hlutu þeir 99 verð- launapeninga þar af 50 gull- peninga. Bandarikjamenn komu næstir með 92 verölaun, þar af 33 gullpeninga. Keppnin tvo siöustu dagana i Miinchen var ekki eins spenn- andi, a.m.k. i sumum greinum, og búizt hafði veriö við. Finnskir hlauparar vöktu mikla athygli, en þeir unnu sigur bæði i 1500 m og 5000 m hlaupi. Lasse Viren, Finnlandi, sem sigraði i 10000 m hlaupinu á dög- unum, sigraði einnig i 5000 m hlaupinu með glæsilegum enda- spretti, sem hinn gamalreyndi Túnismaður, Gammoudi og Bret- inn Steward réöxi ekki við. Viren hljóp á 13:26,4 min., en Gamm- oudi á 13:27,4 og Steward á 13:27,6. 1 1500 m hlaupinu var Kenýu- maðurinn Keinó talinn einna sigurstranglegastur, eftir að Bandarikjamaðurinn Jim Ryun var úr leik, en Keinó varð 01- ympiumeistari i þessari grein á leikunum i Mexikó eins og kunn- ugt er. Keinó tók mikinn enda- sprett, en tókst ekki að hrista finnska hlauparann Vasala af sér. Og þegar 100-200 metrar voru eftir tók Finninn skyndilega sprett og fór fram úr Keinó, sem var of seinn að átta sig. Keinó gerði heiðarlega tilraun til að ná Finnanum, en tókst ekki. Langstökkið og hástökkið voru engar glansgreinar á þessum 01- ympiuleikum. Ungur Banda- rikjamaður, Williams bar sigur úr býtum i langstökki og stökk 8,24 metra, sem er langt frá hinu frábæra meti Beamons i Mexikó, 8,90. Raunar stökk Williams lengra i forkeppninni, en sjálfri; úrslitakeppninni, eöa 8,34 metra. Annar i langstökkinu varð Baungarter, V-Þýzkalándi, 8,18 m og þriðji Bandarikjamaðurinn Robinson, 8,03 m. 1 hástökki sigraöi Juri Tarmak frá Sovétrikjunum, stökk 2,23 metra. Annar varð Junge frá A- Þýzkalandi, stökk 2,21 metra og þriðji varð Bandarikjamaðurinn — þegar Olympíuleikunum í AAunchen var slitið í gærkvöldi. - Finnar unnu tvenn gullverðlaun í hlaupagreinum síðustu keppnisdagana Austur-þýzka frjálsiþróttakonan Renate Stecher vakti mikla athygli áileikunum í Miinchen fyrir sigur sinn I spretthlaupum. Hér sést hún, önnur frá vinstri, kom fyrst I mark i 200 metra hlaupinu. Stones, en hann stökk sömu hæð. Maraþonhlaupið var sögulegt að þvi leyti, aö nú bar Banda- rikjamaöur sigur úr býtum, en slikt hefur ekki gerzt siöan 1908. Nafn hans er Frank Shorter. Ann- ar varö Belgiumaðurinn Lismot og þriðji varð Wolde frá Eþiópiu. 1 kvennagreinum bar hæst keppnin i 1500 m hlaupi, þar sem Sovétkonan Bragina bætti heims- metið enn einu sinni og hlaut gull- verðlaun. Hljóp hún á 4:01,4 min. 1 öðru sæti varð Hoffmeister frá A-Þýzkalandi á 4:02,8 og i þriðja sæti Gacca frá Italiu á 4:02,9 min. í kringlukasti sigraði Melnik frá Sovétrikjunum nokkuð örugg- lega meö þvi að kasta 66,62 metra, en næstar komu Menis, Rúmeniu, 65.06 og Stoevas, Búlgariu, 64,34. 1 boðhlaupum karla sigraði bandariska sveitin i 4x100 m á 38,19 sek, en sovézka sveitin varö i öðru sæti og hljóp á 38,50. 1 þriðja sæti varð V-Þýzkaland á 38,79. í 4x400 m hlaupi treystu Bandarikjamenn sér ekki til að tefla sveit fram, þar sem helztu 400 m hlauparar þeirra höföu verið útilokaðir frá keppni. 1 þessari grein hlutu Kenýumenn gullverðlaun, hlupu á 2:59,8 min, en Bretar og Frakkar hlutu silfur og brons. t boðhlaupum kvenna sigraði v- þýzka sveitin i 4x100 m hlaupi á 42,81, en a-þýzka sveitin, sem spáð hafði verið sigri, varð að láta sér nægja silfurverðlaun. Hins vegar sigruðu a-þýzku stúlk- urnar i 4x400 m hlaupinu. ÓGLÆSILEG FRAMMISTAÐA í SÍÐUSTU LEIKJUNUM — ísland í 12. sæti eftir ósigur gegn Japönum Frammistaöa islenzka lands- liösins i handknattleik var siöur en svo glæsileg i siöustu leikjun um á OL i MUnchen, þegar þaö keppti um 9.»12. sætiö. Fyrst tap fyrir Pólverjum — og síöan eins marks ósigur gegn Japönum, 18- 19 og tsland varðaö lát sér nægja 12. sæti. Að visu uröu ýmsar aör- ar þjóöir fyrir skakkaföllum i handknattleikskeppninni, t.d. Danir, sem máttu bita i það súra epli aö hafna i 13. sæti, en það bætir litið úr skák fyrir islenzkan handknattleik. Leikurinn við Japani var geysi- spennandi undir lokin, þegar Is- lenzka liðinu tókst hvað eftir ann- að að jafna stöðuna, en Japanir sögðu siðasta orðið i leiknum og unnu með eins marks mun. Jón Hjaltalin og Geir Hallsteinsson léku aðalhlutverkin i islenzka liö- inu og skoruðu samanlagt 12 mörk, Geir 7 og Jón 5. Atti Jón sérlega erfitt með aö athafna sig, þar sem Japanir settu mann til höfuðs honum. Hanknattleikskeppninni á OL lauk með sigri Júgóslava, sem sigruðu Tékka i úrslitaleik meö 21 -16. Annars varð röðin þessi: 1. Júgóslavia 2. Tékkóslóvakia 3. Rúmenia 4. A-Þýzkaland 5. Sovétrikin 6. V-Þýzkaland 7. Sviþjóð 8. Ungverjaland 9. Noregur 10. Pólland 11. Japan 12. tsland 13. Danmörk 14. Bandarikin 15. Spánn 16. Túnis. Pólverjar OL-meistarar í knattspyrnu 1 úrslitakeppni Olympiuleik- anna i knattspyrnu sigruðu Pól- verjar Ungverja með 2:1. Ung- verjar skoruðu fyrsta mark leiks- ins og höfðu eitt mark yfir i hálf- leik, en i siöari hálfleik skoruðu Pólverjar, sem voru mun betri aðilinn i þessum leik, tvö mörk og urðu þar með Olympiumeistarar. Þess má geta, að Ungverjar sigr- uðu i knattspyrnukeppni Olympiuleikanna i Tokió og Mexikó. Rússar sigruðu Bandaríkjamenn Körfuknattleikskeppni Olympiuleikanna i MUnchen er sú sögulegasta til þessa. Miklar deilur stóðu um það aö afloknum úrslitaleik Banda i rikjamanna og Sovétmanna, hvor aðilinn hefði sigrað. Þeg- ar leiknum var lokið stóöu leikar 50:49 Bandarikjamönn- um i vil. Höfðu þeir þá skorað tvö siðustu stigin úr vitaköst- um rétt fyrir leikslok. Dómar- ar leiksins tóku þá ákvörðun að bæta 3 sekúndum við leik- timann og tókst Sovétmönnum að skora körfu, 51:50, með langskoti. Mótmæltu Banda- rikjamenn aukatimanum, en eftir langa mæðu var ákveðið að taka kæru þeirra ekki til greina — og hlutu Sovétmenn þvi gullverðlaunin og rufu meira en þriggja áratuga ein- okun Bandarikjamanna I þessari grein á Olympiuleik- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.