Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 17

Tíminn - 12.09.1972, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 12. september 1972 17 Armann og FH keppa um titil- inn í kvenna- knattspyrnu Nú er lokið riðlakeppninni i kvennaknattspyrnu og komust Armann og FH i úrslit. Munu þessi lið leika úrslitaieik um islandsmeistaratitilinn innan skamms. Ármenningar höfðu mikla yfirburöi i sinum riðli og unnu flesta sina leiki með miklum markamun, nú siðast i Grindavik með 8:0. t hinum riðlunum var keppnin miklu jafnari, en þar stóð baráttan milli FH og Fram. Léku þessi lið saman á sunnudaginn og lauk leiknum með jafntefli, 1:1, en jafntefli nægði FH-stúlkunum til sigurs i riðlinum, þar sem Fram hafði gert jafntefli við Þrótt, en FH unnið leiki sina gegn brótti og Breiðablik. Annars urðu úrslit i siðustu leikjunum i riðlunum þessi: Haukar—IBK 1:0 Ármann—Grindav. 8:0 Fram—FH 1:1 Breiðabl,—Þrótt. 2:1 Fram og KR leika til úrslita í 3. flokki Undanfarna daga hefur staðið yfir úrslitakeppni i 3. aldursflokki i Islandsmótinu i knattspyrnu, en fimm lið leika til úrsíita. Er nú aðeins einum leik ólokið, en það er leikur Fram og KR, sem er hreinn úrslitaleikur. Fer sá leikur fram annað hvort siöar I þessari viku eða um næstu helgi. unnu stórsigur í síðasta leik sínum Keflvikingar sigruðu Val á Melavcllinum s.l. laugardag með þrcmur mörkum gegn engu. Var þetta siðasti leikur liðanna i 1. deildar kcppninni, og sást það greinilega á lcik þcirra. — Vals- liöið var ekki upp á marga fiska, og liðið sýndi ekki góða knatt- spyrnu. Kcflavikurliðið var mun liflegra, og átti það góða kafla i leiknum. en það var greinilegt, að mölin háöi liöinu, eins og flestum liöum sem leika nú á malarvelli, eftir að hafa leikið á grasi i allt sumar. Keflvikingar tóku forystuna á 5. min. fyrri hálfleiks, með fallegu marki frá Herði Ragnarssyni. Hann fékk knött inn rétt fyrir utan vitateig og sendi hann þaðan með föstu skoti i markið, algjörlega óverjandi fyrir Sigurð Dagsson, markvörð Vals. Eftir markið skiptust liðin á um að sækja, en þeim tókst ekki að koma knettinum i netið. Kefl- vikingar áttu yfirleitt hættulegri sókn sem stöðvaðist þó oftast á Sigurði Dagssyni markverði, sem var bezti maður Vals i leiknum. Á fimmtu minútu siðari hálf- leiks kom svo annað mark Kefl- vikinga. Friðrik Ragnarsson og Tryggvi Tryggvason, ungur ný- liði i Valsliðinu kepptust um knöttinn inni i markteig Vals, og þá varð Tryggvi fyrir óhappi, hann ætlaði að hreinsa frá, en hitti ekki vel knöttinn, sem small i þverslánni og inn, óverjandi fyrir Sigurð markvörð. Keflvikingar sóttu mikiö eftir markið, og léku framlinumenn þeirra oft lausum hala inni i vitateig Vals, en þeir voru greinilega ekki á skotskón- um — knötturinn vildi ekki i mark Vals fara. Það var ekki fyrr en á 22. min. að knötturinn hafnaði aftur i Valsmarkinu. Friðrik Ragnars- son fékk hann fyrir utan vitateig, vippaði honum með vinstra fæti yfir á hægri, og sendi hann svo með „bananaskoti” yfir Vals- vörnina. Sigurður Dagsson reikn- aði knöttinn yfir, og einnig flestir áhorfendur, en þetta lúmska skot Friðriks datt niður i markið uppi við þverslá. Ekki voru fleiri mörk skoruð i leiknum, sem Kefl- vikingar áttu meira i. Hefðu þeir verið heppnir með skot, gátu þeir alveg eins unnið leikinn með meiri mun. Valsliðið var frekar dauft i leiknum, og leikmenn liðsins voru ekki allir i sinum stöðum i liðinu. Jóhannes Edvaldsson lék sem miðvörður, en hann hefur oftast leikið með liðinu sem sóknar- tengiliður. Þá var Þórir Jónsson hálfgerður miðherji, og flejri breytingará liöinu voru i þessum dúr. Keflavikurliðið átti þokkalegan leik, og unnu leikmenn liðsins mikið i leiknum, þeir reyndu að láta knöttinn ganga á milli leik- manna, og þeim tókst það oft mjög vel, sköpuðu sér marktæki- færi, eftir að hafa dregið vörn Vals i sundur. Ahorfendur að leiknum voru ekki margir, enda er tslandsmót- inu raunverulega lokið, eftir að Framliðinu tókst að sigra það, þó að það eigi tvo leiki eftir. Það hefur ekki gerzt i mörg ár, að ekki sé spenna fram á siðasta leik i mótinu. Einnig koma miklu færri áhorf- endur til aö sjá leiki á Melavell- inum, eftir að hafa horft á leiki leikna á grasvelli. Það er allt annað að horfa á leiki úr stúkunni á Laugardalsvellinum, heldur en að sjá þá úr stúkunni á Melavell- inum, sem er miklu minni en Laugardalsvöllurinn. Leikir, sem leiknir eru á Melavellinum virð- ast alltaf leysast upp i þóf og leið- indi. SOS. Knattspyrnulið stúdenta skoðar sig um í Liverpool - og leikur gegn enskum stúdentaliðum Knattspyrnulið stúdenta hefur verið boðið að koma til Englands og leika þar nokkra leiki gegn enskum stúdenta- liðum, og mun liöið halda til Englands innan skamms. Eins og menn muna.þá var hér fyrir stuttu, statt háskóialið frá Liverpool og lék hér nokkraleiki, en það er einmitt þetta lið, sem hefur boðið stúdentaliðinu isienzka til Liverpool. tslenzku stúdentunum hefur verið boðið að leika nokkra leiki i Liverpool og nágrenni. Einnig hefur þeim verið boðið að fylgjast með æfingum hjá 1. deildarliði Liverpool og kynnast starfsemi félagsins, sem er eitt frægasta og sterk- asta félag Englands og hefur á að skipa frábærum leik mönnum. Þá er stúdentunum boðið að fylgjast með Liver- pool-liðinu i 1. deildar leik, er liðið leikur gegn Sheff. Utd. á heimavelli sinum, Anfield Road, laugardaginn 23. sept- ember. Biður nú stúdentaliðið spennt eftir að komast til Liverpool og leika þar og kynnast starfsemi Liverpool liðsins fræga. SOS ------------------------ Hér á myndinni, sjást bikarmeistarar Legia— leikmennirnir eru taldir frá vinstri: J. Pieszko, R. Gadocha, Cmikiewicz, Trzaskowski, Deyna, Niedziolka, Stachurski, Cypka, Nowak, Mowlik og fyrirliöi liösins Bernard Blaut. Nýbakaðir Olympíumeistarar leika í Laugardalnum í kvöld nAainc 1 r7R Uonn hofnr t \r í kVlikc NIK 117.101 .K A árfl - gegn Víkingum í Evrópubikarkeppninni Fimm nýbakaðir Olympiu- meistarar i knattspyrnu teika á I.augardalsvellinum i kvöld með pólska bikarmeistaraliðinu Legia frá Varsjá gegn Viking i Evrópu- keppninni, en leikurinn hcfst stundvislcga kl. 18.15. Enda þótt nokkuð langur vegur sé milli 01- ympiumeistaranna og fallliðs Vikings, verður án cfa gaman að leiknum i kvöld, eins og jafnan, þegar góðir og þekktir knatt- spyrnusnillingar sækja okkur heim. t liði Legia, Varsjá, sem leikur við Viking i EvrópukeppnL bikar- hafa, eru margir af kunnustu leikmönnum Póllands. Nokkrir þeirra léku á Olympiuleikunum i Miinchen á dögunum, þar sem pólska liðið varð 01-meistari. Leikmenn Legia voru beztu menn liðsins þar og skoruðu meginhluta marka liðsins. t liði Legia, sem leikur hér á Laugardalsvelli, eru hvorki fleiri né færri en átta pólskir landsliðs- menn, sem leikið hafa i pólska landsliðinu siðustu mánuðina — það má þvi segja, að Vikingur mæti þarna nokkurn veginn pólska landsliðinu. Sextán leikmenn koma með Legia hingað til tslands, og eru þeir þessir: Piotr MOWLIK, markvörður 21 árs að aldri, sem talinn er efni- legasti markvörður Póllands, þó hann sé heldur lágur i loftinu, eða aðeins 1,76. Hann hefur tvi vegis leikið i pólska landsliðinu. Wieslaw SURLIT, markvörður liðsins, 23 ára og hár vexti og þungur, næstum niutiu kóló. Wladyslaw STACHURSKI, einn af þekktustu leikmönnum liðsins, sem leikið hefur á annan tug landsleikja. Hann er 27 ára gam- all og fljótur, hávaxinn bak- vörður. Var i ólympiuliðinu i Miinchen. Zygfryd BLAUT, bakvörður, sem leikið hefur einu sinni i landsliðinu, 29 ára gamall, lág- vaxinn. Antoni TRZASKOWSKI, 31 árs gamall bakvörður, sem leikið hefur hundruð leikja fyrir Legia og oft i Evrópukeppninni. Feliks NIEDZIOLKA, 25 ára gamall bakvörður. Andrzcj ZYGMUNT, bakvörð- ur, 27 ára gamall. Bcrnard BLAUT, framvörður, 32 ára. Fyrirliði liðsins og þekkt- asti leikmaður Legia gegnum árin. Var i ólympiuliðinu i Miinchen og hefur leikið á fimmta tug landsleikja, eða fleiri en nokkur annar leikmaður hjá Legia. Kazimicrz DEYNA, framvörð- ur, sem á það til að skora mörk, eins og vel gefa til kynna tvö' mörk hans i fyrsta leik Póllands i Miinchen á dögunum, þegar Pól- land vann Kólombiu 5-1. Hefur Framhald á bls. 19 Islandsmeistararnir 1971 Hér er hinn leikni og marsækni tengiliður liðsins, Leslaw Cmikiewicz.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.