Tíminn - 24.10.1972, Qupperneq 17
17
Þriðjudagur 24 október 1972
TÍMINN
Jackie Charlton, stendur alltaf fyrir sinu, hann jafnaði fyrir Leeds
gegn Coventry.
■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■'«■■■■■■-_..... ■■■•■■■■■aaBBBaB
Enska knattspyrnan:
Lánið leikur við Liverpool |
iCallaghan skoraði sigurmarkið gegn Stoke, þegar mín. var til leiksloka |:
Best vísað
af leikvelli
í landsleik
Þrjú landslið frá Bret-
landseyjum léku lands-
leiki s.l. viku og voru
leikirnir liður i undan-
keppni Heimsmeistara-
keppninnar, liðin sem
léku voru landslið Skot-
lands, írlands og
Norður-írlands.
Skozka liðið átti ekki i erfið-
leikum með Dani i Kaupmanna-
höfn og sigraði létt 4:1 — það voru
þeirMacari (Celtic), sem skoraði
fyrsta mark leiksins og Bone
(Norwich) bætti öðru við á 20.
min. Stuttu siðar skoraði Finn
Laundrup eina mark Dana i
leiknum. Undir lok siðari hálf-
leiks, bættu Skotar tveimur
mörkum við, fyrst Harper
(Aberdeen) og svo Morgan (Man.
Utd.)
N-lrar mættu Búlgariu i Sofia
og varð það allsögulegur leikur.
Búlgaria sigraði 3:0, og voru tvö
af mörkunum skoruð úr vita-
spyrnum — Cristo Boev tók vita-
spyrnurnar á 18. og 82 min. Þegar
siðari vitaspyrnan var dæmd,
mótmælti George Best dómnum,
með þeim afleiðingum, að honum
var visað af leikvelli. Þriðja
mark Búlgariu skoraði Kolvev,
á 59. min.
Þriðji landsleikurinn fór fram i
Dublin og þar léku Irar gegn
Sovétrikjunum. Sovézka liðið var
betra framan af og þvi tókst að
senda knöttinn tvisvar i netið, það
voru þeir Pederov og Kololov,
sem það gerðu. Þegar 10 min.
voru til leiksloka, tókst Irum, að
koma knettinum i netið og var þar
að verki Conroy (Stoke). Eftir
markið reyndu Irar að jafna og
sóttu stift, en rússneski björnin
stóðst öll áhlaup og fór með sigur
af hóimi.
í Þaö leikur allt i lyndi
| hjá Liverpool þessa
; dagana, Liverpool-liðið
I sigrar i hverjum leikn-
I um á fætur öðrum á
! heppni. Á laugardaginn
| sigraði liðiö Coventry á
; h e i m a v e 11 i s i n u m
Anfield Road, eftir að
liafa haft undir 0:1 i
hálfleik. Sigurmark
Liverpool skoraði hinn
leikni útherji liösins, Ian
Callaghan, þegar ein
minúta var til leiksloka
— Gordon Banks, lands-
liðsmarkmaður úr
Stoke, gerði mistök,
hann tók of mörg skref
og fékk dæmda á sig
aukaspyrnu og upp úr
henni skoraði Callaghan
— dýr danssporin það.
Annars var Stoke betra
liðið framan af og liðið
skoraði fyrsta mark
leiksins. Það var Jimmy
Greenhoff, sem það
gerði. í siðari hálfleik
jafnaði Emlyn
Hughes.með einu af
sinum frægu spyrnum,
langt utan af velli.
Aður en við höldum áfram
skulum við lita á úrslitin á get-
raunaseðlinum:
Birmingham-Southampton 1:1
Crystal Palace-Arsenal 2:3
Ipswich-Derby County 3:1
Leeds Utd.-Coventry 1:1
Leicester-Norwich 1:2
Liverpool-Stoke City 2:1
Manch. City-West Ham 4:3
Newcastle-Manch. Utd. 2:1
Sheff.Utd.-Everton 0-1
Tottenham-Chelsea 0:1
West Bromwich-Wolves 1:0
Brighton-Sheffield Wed. 3:3
Arsenal liðið var heppið að
sigra Crystal Palace, með odda-
marki af fimm. Cockney-búinn
Charlie George, skoraði fyrsta
markið fyrir Arsenal úr
vítaspyrnu, en stuttu siðar jafnar
Craven. Radford kemur svo
Arsenal aftur yfir, með marki, en
hann var talinn rangstæður. Aftur
jafnar Craven, en sigurmark
Arsenal skorar svo Pat Rice.
Arsenal-leikmaðurinn John
Roberts, sem var seldur til
Birmingham fyrir stuttu, skoraði
mark i sinum fyrsta leik, þegar
Birmingham gerði jafntefli gegn
Southampton 1:1. Mark
Dýrlinganna skoraði Ron Davies.
Leikmenn Ipswich áttu ekki i
erfiðleikum með ensku
meistarana — stórsigur þeirra
gegn Derby, sannaði það, að
meistararnir eru i öldudal. Mörk
Ipswich skoruðu: Hamilton,
Belfitt og Jones, em mark meist-
aranna skoraði Hinton.
Aðrir meistarar, máttu einnig
þola tap á laugardaginn — það
voru gömlu meistararnir frá
Manchester, sem töpuðu fyrir
Newcastle. Tudor og Hibbitt,
skoruðu fyrir heimamennina, en
Charlton, sem kom inn á sem
varamaður skoraði mark Man.
Utd.
Hinn Charlton-bróðirinn —
Jackie, sem leikur með Leeds,
skoraði einnig á laugardaginn,
þegar hann jafnaði fyrir lið sitt
gegn Coventry. Mark Coventry,
skoraði Willie Carr, i fyrri hálf-
leik. Bobby Could, sem lílfarnir
seldu til WBA I vor, skoraði sigur-
markið gegn sinum gömlu
félögum. Alan Whittle skoraði
mark Everton gegn Sheff. Utd.
Phil Beal var óheppinn, þegar
Spurs mætti Chelsea, hann
skoraði sjálfsmark og þar með
fór Chelsea með bæði stigin heim
á Brúna.
Lúndúnarliðið West Ham sýndi
áhorfendunum á heimavelli Man.
City, hvernig á að leika knatt-
spyrnu eins og hún var leikinn i
gamla daga. Þeir léku opinn
sóknarleik, sem gerði leik liðanna
mjög skemmtilegan og
áhorfendur fengu að sjá mörk.
Marsh (2), Summerbee og Doyle,
skoruðu fyrir Man. City, en Best,
Brooking og Robson skoruðu fyrir
West Ham. Nýliðarnir frá Nor-
wich eru óstöðvandi, um þessar
mundir, á laugardaginn skruppu
þeir til Leicester og nældu sér i
tvö stig. Mörk Norwich, skoruðu
Paddon og Cross, en fyrir heima-
mennina, skoraði Weller.
Marka-
kóngurinn
Jimmy
Greaves
5< Mesti markakóngur á Eng-
í landi s.l. áratug, Jimmy
5< Greaves, er ekki af baki
^ dottinn, þótt hann sé hættur að
leika knattspyrnu. Hann
pússaði upp skóna I siðustu
viku og lék hciðursleik, sem
gamla félagið hans Totten-
:■ ham hélt fyrir hann á
í White Hart Lane — þar lék
:■ Fcjenoord og sigraði 2:1.
*C Að sjálfsögðu, skoraði Grea-
ves mark, við mikinn göfnuð
áhorfenda.
Fyrir þá lesendur, sem ekki
þekkja litla Lundúnabúann
Jimmy Greaves, ætlum við að
segja hér frá honum i stuttu
máli.
Greaves byrjaði ungur að
leika með Chelsea, það stóð
ekki á mörkum frá honum,
hann skoraði 124 mörk fyrir
■J Chelsea og varö fljótt heims-
I" frægur. Þegar itölsku knatt-
■J spyrnufélögin gerðu innrás á
5» enska knattspyrnumarkaðinn,
■í fyrir um tólf árum,var Jimmy
.■ Greaves meðal hinna fyrstu
■i ensku leikmanna, sem ekki
^ stóðst freistinguna. AC Milan,
Kaup og sölur:
QPR er á góðri leið með að koma
sér upp mjög skemmtilegu liði
- Dave Thomas, hefur verið keyptur til QPR á 160 þús. sterlingspund frá Burnley
Lundúnaliðið Queen’s Park
Rangcrs, er nú á góðri leið aö
koma sér upp einu skemmtileg-
asta liöi, sem leikur i ensku
deildunum. QPR kom mjög á
óvart 1967, þegar liðið gerði ,,hið
ótrúlega” — liðið sem lék þá i 3.
deild, sigraði 1. deildarliðið West
Bromwich Albion, I úrslitaleik i
bikarkeppni deildarliöa (League
Cup,), sem fór fram á Wembley
3:2. Síðan sigraði liðið 3. deildar-
keppnina, og árið eftir 2. deildina.
En liðið var ekki lengi i 1 deild,
það gekk allt á afturlöppunum hjá
liðinu, meiðsli leikmanna og
annað varð liðinu strax að falli.
Nú virðist liðið vera farið að rétta
úr kútnum og er orðið mjög
skemmtilegt — ekki er það til að
veikja liðið, að hinn frábæri
framvörður frá Burnley, Dave
Thomas, hefur veriö keyptur til
OPR á 160 þús. sterlingspund.
Thomas, er talinn einn efnilegasti
leikmaður Englands og hann
hefur leikiö með landliðinu enska
undir 23ja ára.
Thomas kom fyrst fram á
sjónarsviðið 1968, þegar
Burnleyliðið sigraði bikarkeppni
unglinga, siðan hefur hann verið i
sjónarsviðinu og einn vinsælasti
leikmaður áhangenda Burnley,
sem sóttu leiki liðsins á heima-
velli þess Turf Moor. Forráða-
menn og leikmenn Burnley, eru
mjög leiðir yfir þvi að hafa misst
Thomas, en félagið er mjög
fátækt og hafði mikil not fyrir
peningana, sem það fékk fyrir
Thomas.
Fleiri frægir leikmenn, hafa skipt
um félög að undanförnu — hinn
frægi welski landsliðsmaður John
Roberts, Arsenal, var seldur til
Birmingham um daginn og fór
hann á 140 þús. pund. Crystal
Palach, bauð sömu upphæð fyrir
Roberts, en hann valdi þann kost,
að yfirgefa London.
Stoke, sem hefur oft verið nefnt
„elliheimilið” fyrir það að félagið
kaupir mikið af gömlum og leik-
reyndum leikmönnum, er nú á
hnöttunum eftir gamla brýninu
frá Derby, Terry Hennessey,
Stoke cr búið aö bjóða 100 þús.
pund i Hennessey.
fyrrum fyrirliða Nott. For. Stoke
hefur boðið 100 þús. pund fyrir
Hennessey, en forráðamenn
Derby, hafa ekki enn svarað til-
boðinu.
Þá hefur Coventry keypt Tom
Hutchinson, frá Blackpool, fyrir
100 þús. sterlingspund, og lét
einnig framherjann, Billy
Raffery,fylgja með, en hann er
metinn á 45 þús. pund. Má segja
að söluverð Hutchinson, frá Black
pool, hafi verið 145 þús. sterlings-
pund.
frægasta knattspyrnufélag
ttalíu, tókst f harðri sam-
keppni að tryggja sér Greaves
og var það i júni 1961. Milan
borgaði Chelsea 83 þúsund
pund — Greaves átti að fá 40
þúsund pund i sinn vasa fyrir
3 ár, og fékk 10 þúsund pund
fyrir að undirrita samninginn
við Milan, sem þótti mikill
peningur fyrir að skrifa nafn
sitt. Greaves fór fljótlega að
sakna knattspyrnuvallanna á
Englandi og einnig féll honum
ekki vistin á Italiu og sóttist
eftir að fara heim. I nóvem-
ber 1961, keypti Tottenham
hann frá Milan fyrir 99.999
pund og þótti það mjög ein-
kennileg tala, en forráðamenn
Tottenham, vildu ekki leggja
það á herðar Greaves, að
verða fyrsti leikmaðurinn i
Englandi sem væri keyptur á
100 þús. pund, sem var þá
óþekkt upphæð fyrir enskan
leikmann og varð þvi italska
liðið af einu pundi. Greaves
lék siðan með Tottenham, með
mjög góðum árangri, þar til
15. marz 1970, að hann var
látinn fara til West Ham,
þegar Tottenham keypti
Martin Peters. Hann lék svo
með West Ham eitt keppnis-
timabil og lagði skóna á hill-
una eftir keppnistimabilið 1970
— 1971.
Jimmy Greaves, marka-
kóngurinn mikli, skoraði um
400 mörk með Chelsea,
Tottenham og West Ham, þá
skoraði hann 44 mörk i 57
landsleikjum. Hann lék sinn
fyrsta landsleik 1959, þá að-
eins 19 ára — sinn siðasta
landsleik lék hann 1967 gegn
Austurriki.
■VLVWWWWWWWWWi