Tíminn - 13.01.1973, Page 5

Tíminn - 13.01.1973, Page 5
Laugardagur 13. janúar 1973 TÍMINN 5 Eigið timatal Þar til Greenwich timinn var opinberlega upptekinn árið 1880 höfðu margar borgir sina eigin timamælingu, byggða á stöðu sólar. Dómkirkjan i Oxford neitaði á sinum tima að taka upp hið samræmda timatal og enn þann dag i dag er klukkan þar 5 minútum á eftir klukkunni ann- ars staðar i Bretlandi. ☆ Mistök Sikileysk blöð fengu fyrir nokkru frétt svo hljóðandi: Di- ana Dors er meðal farþega með næstu vél frá Róm. Ljós- myndarar fóru i flokkum á flug- völlinn en eina konan með vél- inni var feitlagin og á sjötugs aldri. Farþegalistinn leiddi i ljós I hverju mistökin voru fólg- in. Gamla konan sem þarna var komin, i friinu sinu, var þýzk húsmóðir, Di Anadors. ☆ Froskar skelfa konur Visindamenn i Kaliforniu hafa fengið yfirvöldum i þvi landi vandamál i hendur — risa- froska. Eftir þátttöku i til- raunum var froskum þessum, sem eru allt að 12 þumlungar að lengd og hafa hvassar klær, fenginn bústaður i vötnum i Kaliforniuriki og þaðan breiðast þeir óðum út mannfólki til mikillar skelfingar. Þeir eru girugir i fisk og fugl. Og oft ber það við að óttaslegnar hús- mæður kalla á lögregluvernd þegar þessir óvættir birtast nálægt heimildum þeirra. ☆ Hverjum klukkan glymur Pablo Vargas lenti i hræðilegu rifrildi við konu sina og hugsaði með sér að hann yrði að komast burt frá þessu öllu. Það gerði hann. 1 þau sextán ár, sem liðin eru siðan rifrildið átti sér stað, hefur hann búið i klukkuturni dómkirkjunnar. Hann hefur ekki stigð fæti sinum á götur Mazatlan i Mexikó siðan 1956. Pablo, sem er 62 ára er hringjari dómkrikjunnar Hann sefur i skýli milli klukknanna, og hann eldar á kirkjuloftinu. -Starfslið kirkjunnar færir honum allar hans nauðsynjar. SjSIfur segir Pablo: Mig langar ekki að fara héðan Hvað er fyrir mig að gera þarna niðri. Hér eru engin vandamál Ég hef nóg að borða. Og á sumrin þegar það er heitt i Mazatlan, er þægilega svalt hér uppi. Enginn truflar mig og ég trufla engan. Það sem ég á eftir ólifað, ætla ég að dvelja hér. Einn dómkirkjuprestanna, séra Jose Trinidad segir svo frá: Pablo kom hingað i kirkjuna einn dag og spurði hvort hann gæti fengið að sópa hana fyrir einhver laun. Hringjarinn okkar var þá nýdáinn og okkur vantaði annan. Við buðum Pablo starfið og hann fór upp i turninn og hefur verið þar siðan. Pablo fær um 5 pund á viku i laun. Hann biður sr. Trinidad að koma peningunum til barna hans og barnabarna. „Hvað ætti ég svo sem að gera með peninga,” segir hann. Fögnuður i Bonn Þeir Willy Brandt og Walter Scheel unnu frægan kosninga- sigur i desembermánuði sl. Þegar á kjördag, áður en úrslit- in urðu kunn, slökuðu þeir á eft- ir kosningabaráttuna, þann dag horfðu þeir á börn sin leika i skólaleikriti eftir ævintýrinu um Þyrnirós. Matthias Brandt lék prinsinn, sem vekur Þyrnirós af djúpum svefni, en hana lék Claudia Scheel. Leikendur voru eingöngu börn og sömuleiðis flestir áhorfenda fyrir utan þá Brandt og Scheel góður fyrir- boði um kosningaúrslitin. Hin myndin er tekin eftir at- kvæðatalningu lauk og þeir Brandt kanslari og Scheel utan- rikisráðherra takast i hendur og fagna sigri. Það er þeim að þakka að sosialdemókratar, SPD, og frjálsir demókratar, FDP, hafa nú á fjórða ári sinu við stjórnvölinn 48 þingsæta meirihluta i þinginu i Bonn. SPD varð nú i fyrsta sinn sterk- asti þingflokkurinn með 230 sæti. FDP jók einnig fylgi sitt og hlaut 42 þingsæti. Forystumenn stjórnarflokkanna tveggja höfðu reiknað með góðum árangri i kosningunum, en þó ekki slikum sem raun varð á. Ekki aðeins þeir, heldur einn- ig rikisstjórnir um heim allan telja þennan sigur frjálslyndra afla vera áskorun um að halda beri áfram að vinna að þvi ,að slaka á pólitiskri spennu i Evrópu. Og verkin sýna merkin, þrem dögum eftir kosningaúr- slitin i Þýzkalandi hófst undir- búningsráðstefna um öryggis- mál og samvinnu Evrópuþjóða. gL %W A 1 JggMKI Wk * s1m ..JSSft TIL ALLRA ATTA OSLO STOKKHOLMUR KAUPMANNAHÖFN LUXEMBOURG MANUDAGA MANUDAGA ÞRIOJUOAGA FIMMTUDAGA ALU DAGA FÖSTUDAGA FOSTUDAGA SUNNUDAGA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.