Tíminn - 13.01.1973, Síða 8

Tíminn - 13.01.1973, Síða 8
8 TÍMINN I.augardagur 13. janúar 1973 Klsa ogFinnbogi bjóöa gestum kaffi og meölæti steinn fæddist 12. april. Kennslu lauk 17. april og Elsa missti ekki nema viku úr skólanum. Hún er nú fyrir skömmu farin að vinna hjá Verðlagsstjóra i Reykjavik. Hún hefur hug á framhaldsnámi. — ,,Ég er að hugsa um meina- tækni. En ég veit ekki hvenær það verður, ekki næsta haust að minnsta kosti, en kannski ein hverntima þegar fjárhagurinn batnar.” Aðalsteinn litli er i fóstri hjá nágrannakonu þegar foreldrarnir eru við vinnu, en Einnbogi hefur stundum góðan tima til að sinna syninum þvi hann vinnur vaktavinnu og á fri i fjóra daga i senn á milli. Nágrannarog skólasystkini úr Hafnarfirði Við spyrjum brúðhjón mánaðarins hvernig fundurn þeirra hafi borið saman og kemur þá á daginn, að þau hafa lengi þekkzt enda bæði Hafnfirðingar, jafnaldrar, tvitug og voru skóla- systkini i Flensborg. Siðan fór hann að læra sitt fag og hún i menntaskóla, — ,,ég veit ekki eiginlega hvernig þetta æxlaðist svona,” segir brúðguminn. En nú eru komin 3 1/2 ár siðan þau byrjuðu i tilhugalifi og búskap hófu þau fyrir ári i iitilli kjallara- ibúð i húsi afa hans og ömmu i llafnarfirði. t»au segja að fólk, sem alið sé upp i Hafnarfirði, vilji hvergi annars staðar vera og eins sé um þau. Hinsvegar séu breytingar miklar i bænum. Fyrir fimm árum þekktust allir Hafn- firðingar, en nú er það gerbreytt. Útlit er fyrir að ungu hjónin geti búið vel um sig i nýju ibúðinni. Þaðan er fallegt útsýni til suðurs og úr stofuglugganum blasir við væntanlegur skrúðgarður og erþegarfarið að vinna við gerð göngustiga um hann, skammt frá verður einnig knattspyrnuvöllur. bað kemur sér vel fyrir Finn- boga, sem er ákafur félagsmaður i Haukum. — ,,Ég hef gaman af öllum iþróttum,” segir hann. „Handbolta og knattspyrnu. Ég leik tennis og borðtennis, tefli og á Spáni i haust lékum við minigolf við tvenn hjón, sem þar voru saman, og höfðum gaman af. Aðaláhugamálið hjá konunni er hinsvegar saumaklúbburinn, ég skil bara ekki hvað þær geta alltaf verið að tala”. — ,,Og hann setur allt á annan endann þegar hann birtist,” bætir Elsa við. Treystir eiginkonunni ekki fyrir jólamatnum — Fær frúin nokkurn tima að annast matseldina á heimilinu?” Elsa með soninn Aðalstein Við notum tækifærið að skjóta þessari spurningu að Finnboga. — ,,Jú, mikil ósköp. Það er nóg að starfa við þetta þótt maður sé ekki stöðugt yfir pottunum heima lika. Það er helzt jólasteikin og þessháttar sem ég sé um. Ég þori ekki að hætta á að hún eyðileggi góðan mat.” ,, — Og hvað var i jólamatinn núna?” ,, — bað var gæs, sem rétt tókst að matreiða i rafmagns- skömmtuninni.” Við kveðjum þau Elsu og Finn- boga, sem segja að erfiðasta hjallanum sé nú náð, hvað sjálf ibúðakaupin snertir. ,,Við höfum fengið húsgöng hjá hinum og þessum, sem hafa verið að fá sér ný. En það er margt sem hugurinn girnist, gluggatjöld, teppi, sjónvarp , þvottavél..” ,, — Við erum ánægð með það sem komið er,” segja þau, — „það þýðir ekki að láta sig dreyma um að eignast alla skapaða hluti til heimiíisins á einni nóttu. Og hver veit nema við fáum svona vinning alltaf öðru hvoru, þá kemur þetta fljótt.” SJ. Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar óskar eftir fósturheimili i sveit eða bæ fyrir dréng á fermingar- aldri. Upplýsingar gefnar i sima 53444 á bæjarskrifstofunum alla virka daga, nema laugardaga, kl. 10-4. Laust starf Á skattstofu Reykjanesumdæmis, Hafnarfirði, er laust starf við endurskoð- un skattframtala. Upplýsingar veitir skattstjóri i sima 5-17- 88.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.