Tíminn - 13.01.1973, Qupperneq 12

Tíminn - 13.01.1973, Qupperneq 12
12 TÍMINN Laugardagur 13. janúar 1973 Hannibal Valdimarsson siötugur Hannibal Valdimarsson, vik- ingurinn að vestan, er sjötugur i dag. A honum er þó sannarlega enginn sjötugs manns svipur, þar sem hann gengur um gólf, beinn i baki og léttur i spori. Sumir menn eru fæddir undir þeirri heilla- stjörnu að verða aldrei gamlir. Hannibal Valdimarsson er löngu þjóðkunnur maður, svo að varla er ofsagt, að við hann kann- ist hvert mannsbarn á tslandi, sem komið er á fermingaraldur. Hann hefur lengi verið i sviðsljós- inu. Ungur að árum var hann orð- inn eins konar vestfirsk þjóð- sagnapersóna, sem sögur bárust af, jafnvel inn til afdala i fjarlæg- um landsfjórðungum. Æ siðan hefur verið um hann talað og um hann skrifað, stundum vel og .stundum illa, eins og aðra þá, sem fyrirferðarmiklir eru á stjórnmálasenunni eða i þjóðlff- inu. Hér skulu eigi rakin hin marg- breytilegu störf Hannibals Valdi- marssonar, hvorki að bæjarmál- um, stjórnmálastörfum, verka- lýðsmálum né annarri þeirri starfsemi, þar sem hann hefur komið við sögu um dagana. Það verður vafalaust gert af öðrum, semþeimeru kunnugri og átt hafa með honum lengri samfylgd. Hér verður heldur engin tilraun gerð til að leggja hlutlægt mat á störf hans og áhrif á islenzku stjórn- málalifi. Þess er hvort sem er varla nokkur kostur, meðan hann enn stendur föstum fótum mitt i hringiðunni. Það er oftast skynsamlegt að biða með úttekt á ævistarfi manns þangað til striðið er úti og leiknum lokið, ekki sizt, ef i hlut eiga menn, sem stormur hefur staðið um. Of oft hefur Hannibal verið umdeildur og oft hefur hann komið fólki á óvart. Þvi er ástæðulaust að leyna. En þó að ég ætli mér ekki þá dul á þessari stundu að kveða upp neinn dóm um ævistarf Hannibals Valdimarssonar, hygg ég þó, að hlutur hans i verkalýðsmálum, verði talinn einna stærstur. Hann á sinn mikla þátt i þvi að tryggja verkalýðshreyfingunni þá sterku stöðu, sem hún hefur i islenzku þjóðlifi i dag. Hann var þar mikill baráttumaður. En hann vissi, hvenær sigur var unninn og skildi þá ábyrgð og skyldur, sem hlut- verki sigurvegarans fylgja. Það væri áreiðanlega hægt að gera skemmtilega filmu af ævi Hannibals Valdimarssonar. Hún er svo litskrúðug og viðburðarik. Á þvi kvikmyndatjaldi myndi bera fyrir sjónir margar skemmtilegar svipmyndir, og e.t.v. yrði hún ekki sizt, myndin af honum á traktornum. Það er svo mikið á bak við þá mynd. Það er svo skemmtilegur hápunktur á stormasamri starfsævi að gerast stórbóndi i Selárdal. Og það segir i raun svo miklu meira en mörg orð um vikingslund og innsta eðli mannsins. Hannibal Valdimarsson, hefur lengi staðið i fremstu viglinu islenzkra stjórnmála, og á þar að baki, svo sem alkunna er, óvenju- legri feril en flestir aðrir. Um hann hefur staðið stormur og styrr. Hann hefur verið djarfur og áræðinn snarhugi. Ef hann hefði verið hershöfðingi, eins og hinn frægi nafni hans, hygg ég, að hann hefði riðið i fylkingarbrjósti fram á orustuvöllinn. En þrátt fyrir oft á tiðum stormasama siglingu og marga hættuför, hefur hann jafnan siglt fleyi sinu heilu i höfn, stundum við mikinn orðsti, eins og t.d. nú siðast. Hann fer varla að brjóta skip sitt við strönd á gamals aldri. „Allar vildu meyjarnar eiga hann” sagði skáldið. Þau orð má |3b^Íi^| atlani ti< Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12 - Simi ssore jÆ "2M, Útsala á kápum hefst á mánudag Verð frá 1.000 krónum. KÁPAN HF Laugavegi 66-68, sími 25980 Hannibal Valdimarsson e.t.v. heimfæra upp á Hannibal i pólitikinni. Hann er óumdeilan- lega hinn mikli „sjarmör’ isl. stjórnmála. Maður verður að viðurkenna, hvort sem manni er ljúft eða leitt, að hvað eftir annað hefur hann verið hinn glæsilegi senuþjófur á islenzku stjórnmálasviði. Og enn fær hann margt hýrlegt augnatillitið úr ýmsum áttum, en hann kann áreiðanlega þá list hinna miklu „sjarmöra” að halda daðursdrós- um i hæfilegri fjarlægð. Atvikin hafa hagað þvi svo, að við Hannibal höfum átt samleið um skeið, setið saman i rikis- stjórn Sú rikisstjórn er og verður umdeild eins og aðrar stjórnir, en hvað sem um hana verður sagt, mun ekki strax fenna i spor henn- ar. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Hannibal fyrir sam- starfið, sem hefur verið gott, þrátt fyrir allar hrakspár og ósk- hyggju þeirra, sem utan við standa. Ég vona að sjálfsögðu að það samstarf megi standa sem lengst, þó að sæludagarnir i Sel- árdal verði að visu ,fyrir vikið eitthvað færri. Auðvitað höfum við að ýmsu leyti ólik sjónarmið og eðlilegt, að hver haldi fram sinum hlut. En Hannibal er heill og hreinn og beinn. Við slika menn er löngum gott eð eiga sam- starf, þó að þeir séu ekki i einu og öllu jábræður manns. Hannibal sjálfum, hans ágætu konu, Sólveígu ólafsdóttur, og fjölskyldu þeirra allri, árna ég svo allra heilla i tilefni af þessu merkisafmæli. Ólafur Jóhannesson. Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag Nivada OMEGA rOAMEr JUpina. PIERPOm E. Baldvlnsson Laugavegi 12 - Simi 22804 A'uyl ,■ .ng-: Stærðir 137 til 290 lítra. Frysti - kæliskápur frá Bauknecht tveir skápar í einum Tekur ekki meira rúm en venjulegir kæliskápar. Alsjálfvirk affrysting i kæli- rúmi. Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármúla 3 Reykjavík simi 38900 Hægri eöa vinstri opnun ^ftir vali. Ódýr i rekstri. 3 stærðir fyrirliggjandi. (Bauknecht veit hvers konan þarfnast

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.