Tíminn - 13.01.1973, Síða 15

Tíminn - 13.01.1973, Síða 15
Laugardagur 13. janúar 1973 TÍMINN 15 ast i höndum. Núna fer aftur á móti öll slipun fram i vélum, annað þekkist ekki lengur. Reykjavík-Mosfells- sveit-Hornaf jörður — En hvert sækið þið allt það grjót, sem þið hljótið að þurfa að nota til starfsemi ykkar? — Það grjót, sem við höfum notað fram að þessu, hefur að langmestu leyti verið tekið hér á Reykjavikursvæðinu. Það var til dæmis lengi mikil náma hérna við Suðurlandsbrautina, þar sem nú eru komin stórhýsi. Núna að undanförnu höfum við verið að gera tilraun með námu i Miðdalslandi i Mosfellssveit, rétt við gamla Þingvallaveginn. Á hana er ekki komin full reynsla ennþá, og satt að segja erum við ekki fyllilega ánægðir með árangurinn, en þó höldum við, að það blessist, og að sú náma eigi framtiþ fyrir sér. — En hafið þið ekki farið eitt- hvað lengra en hérna upp i Mos- fellssveitina? — Jú, jú, ekki er þvi að neita. Við höfum lika verið með námu i Geitafélli, sem er i landi Hof- fells i Hornafirði. Það, sem við sækjum þangað er gabbró, sem er harður steinn. — En hvers konar grjót er það, sem við höfum fyrir augum hér á Reykjavikursvæðinu? — Ja, það grjót, sem við höf- um unnið úr héðan er einkum basalt, éða grásteinn öðru nafni, og það er mikið linari tegund en hornfizka grjótið. — Er Hornafjörður eini staðurinn, þar sem gabbró hef- ur fundizt? — Við höfum ekki unnið það annars staðar, en við gerum okkur vonir um að ná þvi lika á iSnæfellsnesi. Er það ekki erfiðleikum bundið að flytja stórgrýti lands- .horna á milli? — Nei, nei. Við viljum fá stóra fig góða kletta, og þykjumst þvi betur settir, sem þeir eru stærri. -tíelzt eiga þeir að vera einhvers staðar á milli fimm og tiu tonn. • — Eru þá einhver farartæki, sem flutt geta tiu tonna stein, til dæmis austan af Horna- ^irði og hingað til Reykjavikur? ‘ — Já. Þeir eru þá fyrst fluttir á vörubilum til Hafnar og svo með skipi þaðan og hingað. Þannig er þetta núna. En eftir að nýi hringvegurinn verður kominn i gagnið, verður væntanlega hægt að nota bila til flutningsins alla leið. — Eru nú upp taldir þeir stað- ir, þar sem þið aflið grjóts? — Nei, ekki er það nú. Austur i Hreppum fáum við stuðlaberg, sem næst þar með tiltölulega lit- illi fyrirhöfn. Jarðskjálftarnir i kringum aldamótin hristu þar stóran hól svo rækilega, að grjótið úr honum liggur á tvist og bast i kringum hann. Þetta stuðlaberg er úr blágrýti, sem ■ er mjög hart i sér og ákafléga fallegt, þegar búið er að slipa það. ■rT Grjót er harla misgott smíðaefni — Hér hefur nú komið fram mismunandi harka grjóts eftir stöðum. Heldur þú að einhver verulegur munur sé á landshlut- um að þessu leyti? — Að sönnu höfum við ekki kannað allt landið i þessu skyni, en þó er hægt að láta sig gruna ýmislegt. Hér á Reykjavikur- svæðinu er mikið af grásteini, eins og ég drap á áðan. Hann er tiltölulega linur steinn til vinnslu. I Hreppum og Holtum, og reyndar á mjög stóru svæði á landinu er blágrýti, en yfirleitt er það mjög sprungið og þar af leiðandi heldur slæmt til vinnslu. En á Hornafirði og þar i kring vitum við að er til gabbró, hart og gott og sömuleiðis granófir. Granit er þar lika til, en i svo smáum mæli, að við höfum ekki rannsakað það enn- þá. — Er gabbró harðara en blá- grýti? — Já, mikið harðara. — Leynast ekki sprungur inn i þessum klettum, þótt þeir sýnist stæðilegir? — Þegar maður sagar grjótið niður, sér maður, hvernig það litur út i sárið. Vist geta þá komið i ljós sprungur, og stund- um kemur það fyrir, sérstak- lega með grástein, að hann sé götóttur. Hann getur jafnvel lit- ið út eins og augnaður ostur, þegar búið er að saga hann sundur, þótt algengt sé það nú reyndar ekki. — Er ekki illgerlegt að vinna úr honum, ef hann er svo á sig kominn? Jú, svona mikið götóttur steinn má heita óhæfur til vinnslu. Sprunginn stein er aft- ur á móti reynt að nota til þess að smiða úr honum ýmis litil stykki, þannig að komizt verði framhjá öllum rifum og sprung- um. Við látum alls ekki frá okk- ur hlut, þar sem nokkur einasta sprunga er til, svo framarlega sem það hefur i mannlegu valdi staðið að verða hennar var. Hitt er annað mál, að þegar við fáum stein frá útlöndum, til dæmis marmara, þá er hann oft nokk- uð mikið sprunginn, og það litur út fyrir, að Evrópuþjóðir, sem nota marmara mjög mikið — og reyndar lika granit — fáist ekk- ert um það, þótt i honum sé meira og minna af sprungum. — Já, þið fáið dálitið af efni erlendis frá? — Já, við höfum alltaf verið með marmara, svona i og með. Þannig erum við núna nýbúnir að setja upp klæðningu á heilan vegg Landsbankahússins i Póst- hússtræti. Hún er öll úr marm- ara frá Italiu. Við notum marm- ara i legsteina, og svo notum við lika granit alltaf nokkuð. Það kaupum við einkum frá Noregi og Sviþjóð. Fleira en legsteinar — Þú talar um legsteinasmið. En fleiri munu nú leita til ykkar, en þeir sem þurfa að láta steina á grafir dauðra? Litið inn i port Steiniðjunnar. Þeir eru ekki nein léttavara, molarnir þeir arna. — Hætt er nú við. t rauninni má segja, að til okkar komi fólk úr öllum stéttum og stigum þjóðfélagsins. Þeir sem eru að byggja sér hús, koma næstum allir til okkar. Þeir kaupa til dæmis sólbekki og gluggakistur, bæði úr grjóti og asbesti, en það er efni, sem við erum lika með og hefur notið vinsælda. Annars notum við mikið grástein og Framhald á bls. 27 Sigurður Helgason, forstjóri. Stór steinn sprautaður.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.