Tíminn - 13.01.1973, Síða 17

Tíminn - 13.01.1973, Síða 17
Laugardagur 13. janúar 1973 TÍMINN 17 Engin kona ætti að forðast Rauðsokkahreyfinguna á þeim grundvelli einum að hún sé „bara húsmóðir” A mánudagskvöldið, verður fyrsti fundurinn af tiu, sem Rauð- sokkahreyfingin mun efna til á næstunni, en þar verður fluttur einn útvarpsþáttur hverju sinni úr flokknum, Ég er forvitin rauð, sem útvarpað var sl. vetur og vöktu bá athvgli og umtal meðal fólks. Ýmsir áttu þess ekki kost að hlýða á þessa þætti þar eð þeir voru fluttir á þeim tima dags þeg- ar flestir eru bundir við vinnu. Þetta svar fengum við hjá Björgu Einarsdóttur hjá miðstöð Rauðsokka í gær þegar við spgrð- um hana hvað liði starfsemi hreyfingarinnar. Að baki þessum þáttum lá mikil vinna, þar eð gerð var tilraun til að kanna stöðu konunnar i þjóð- félagi okkar eins og hún blasti við frá ýmsum sjónarhornum, t.d. konan á heimilinu, konan á vinnu- markaðnum, konan i bókmennt- um og konan sem auglýsinga- vara. Með flutningi þáttanna er ætlunin að skapa kveikju að um- ræðum um þetta efni og fá fram ný viðhorf og gagnrýni á þær skoðanir, sem speglast i þessum þáttum. Fyrsti fundurinn verður kl. 20.30 að Grettisgötu 3 3. hæð. Að sjálfsögðu er áhugafólk velkomið eins og á alla aðra fundi Rauð- sokka. „Hvað er annað að frétta af Rauðsokkahreyfingunni, Björg?” „Þegar litið er til baka til starf- seminnar i haust vöktu viðbrögð Rauðsokka við fegurðarsam- keppni á Akranesi e.t.v. mesta al- menna athygli. Rauðsokkar hafa lagzt á móti þvi mati á manneskj- unni, sem er fólgið i fegurðar- samkeppni, og vildu undirstrika það með þvi að krýna þar kálf sem sigurvegara i keppninni. Hreyfingunni berast stöðugt boð frá ólikustu félagasamtökum um að koma á fundi og kynna hreyfinguna. Sú venja hefur skapazt að aldrei fari færri en tveir Rauðsokkar i slikar heim- sóknir og bá annar vanur en hinn nýr. Þannig fá ólikir hópar i þjóð- félaginu, tækifæri til að skiptast á skoðunum og þjálfun i að koma fram og ræða áhugamál sin. „Hvernig móttökur fáið þið?” „Oft mjög skemmtilegar, en stundum mætum við töluverðum andbyr og verða þá gjarnan fjögugar umræður. Við höfum til að mynda heimsótt kvenfélög af- markaðra kirkjusókna, stéttarfé- lög af ýmsu tagi, ýmisskonar hgasmunafélög og skóla. Af þeim fundum, sem ég hef farið á, fann- st mér rikastur skilningur og já- kvæðast afstaða til stöðu konunn- ar i þjóðfélaginu vera á fundi hjá Trésmiðafélagi Reykjavikur. Heyr fyrir þeim! Rauðsokkar fagna ávallt boð- um um að koma i heimsókn og reyna ævinlega að verða við, ef nægur fyrirvari er hafður á. Nú — fyrsta átakið á vetrinum var að gefa út blaðið „Forvitin rauð”, en i þvi er m.a. fjallað um islenzkar nafnavenjur, fóstur- eyðingar, dagvistunarmál barna, sem er eitt af brennandi áhuga- málum flestra Rauðsokka. Blaðið kostar 30 kr. og er alltaf falt þar sem Rauðsokkar eru á ferð.” „Eru aðeins konur i Rauð- sokkahreyfingunni? ” „Eins og nafnið, Rauðsokkar, bendir til — er reiknað með báð- um kynjum og nokkrir karlar hafa starfað með. t framhaldi af þessu vil ég leiðrétta útbreiddan misskilning meðal kvenna. Marg- ar konur sem eingöngu starfa sem húsmæður á eigin heimili hafa haldið að þær ættu ekki sam- leið með Rauösokkum. En engin kona ætti að forðast Rauðsokka- hreyfinguna á þeim grundvelli að hún sé „bara húsmóðir”, þvi aö markmiðið er ekki, eins og marg- ir virðast álita, að ýta öllum kon- um út af heimilunum heldur stuðla að frjálsu starfsvali allra, og þá eru störf á heimilum engan- vegin undanskilin.” „Geturðu sagt mér i fáum orð- um inntakið i stefnu Rauð- sokka?” „Ég býst við að kjarnann i stefnu Rauðsokka mætti setja fram i fáum orðum á þessa leið: Efling mannréttinda, sem eru i þvi fólgin að sérhver fái notið hæfileika sinna og jafnrar að- stöðu til menntunar án tillits til litarháttar, kynferðis eða venju- bundinna þjóðfélagsviðhorfa. All- ir, sem i hjarta sinu og hugsun að- hyllast þetta sjónarmið, eru þannig, eðli málsins samkvæmt, Rauðsokkar, þó virkir séu aðeins þeir, sem leggjast á málið með einhverjum raunhæfum tiltekt- um.” „Nokkuð sérstakt að lokum?” „Við fögnum ákvæði um jafn- rétti kynja, sem kemur fram i hinu nýja grunnskólafrumvarpi, og frumvarpi um jafnlaunaráð, en i þvi er ákvæði, sem mun gera atvinnurekendum óheimilt að úti- loka annaðhvort kynið við ráðn- ingu i störf. Það er von okkar Rauðsokka að þessi mikilvægu atriði nái fram að ganga þannig að jafnréttisbaráttan grundvall- ist á lagabókstaf. SJ Fasteignaskattar í Hafnarfirði Skrá yfir fasteignaskatta i Hafnarfirði liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstof- unum, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Kærur útaf skattálagningunni skulu sendar undirrituðum eigi síðar en 26. febrúar nk. Hafnarfirði, 13. janúar, 1973 Bæjarstjóri. Auglýsið í Tímanum IGMS IGNIS raftækin eru sigild, upp- fylla ströngustu kröfur, hafa glæsilegar línur og nýtízkulegt útlit. Þér getiö áva llt fundið þá stærð og gerð sem hentar heimili yð- ar. dunkar vélar Eldavélar Kæliskápar I; A- / f Frystikistur RAFTORG V/AUSTURVÖLL SÉMI 26660 RAFIÐJAN vksturcOtu n suwi 19294 Kjörg Einarsdóttir Tvö hollráð tilallra bíleioenda 1. Að skipta um olíusíu jafnoft og mælt er með miðað við aðstæður. 2. Að nota góða tegund af síu. AC sían hreinsar úr olíunni agnir og skaðleg efni, sem auka slit vélarinnar. AC sían þolir mikinn hita og þrýsting. Hún grípur agnir helmingi smærri en hársbreidd manns. Því meiri, sem þörfin er fyrir síu, því oftar þarf að skipta um. Hlustið á holl ráð — notið AC síur. Ávallt til í allar geröir bifreiöa og dráttarvéla ■PK tMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUF a * ■ ■ ■ i ÉLAGA 1 ■ £3 § fl ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.