Tíminn - 13.01.1973, Qupperneq 21

Tíminn - 13.01.1973, Qupperneq 21
Laugardagur 13. janúar 1973 TÍMINN 21 - innanhússmót yngri flokka lauk um síðustu helgi Mótið heppnaðist mjög vel í alla staði KR, Þróttur og Valur sigruðu í knattspyrnu Reykjavikurmótinu i innanhúss knattspyrnu yngri flokka lauk um siðustu helgi, en þá var leikiö i 3. og 2. flokki. Fyrir áramót lauk keppni i 5. og 4. flokki. Vikingur, Þróttur og KR sáu um þetta fyrsta innanhússmót yngri fiokka. öll Reykjavikurfélögin tóku þátt i mótinu,og fram i sviðs- ljósiö komu margir efnilegir piltar, sem eiga örugglega eftir aö láta aö sér kveöa i framtiðinni. Hér fyrir neðan birtum við myndir af þremur sigurflokkum i mótinu; efst er 5. flokkur KR, þá kemur 4. flokkur Þróttar og 3. flokkur Vals, en Valur sigraði einnig i 2. flokki. Iþróttasiða Timans óskar þessum ungu kn a t tsp y r nu m ön n u m til hamingju með sigurinn. (Timamyndir Gunnar. Einar Magnússon, hinn snjalli handknattleiksmaður Víkings, sést hér skora í Icik gegn KR. Hvað gerir Einar á morgun, þegar Vikingur mætir F"H? (Tímamynd Itóbert) Hvað gera Einar og félagar gegn FH? — tekst Víking að stöðva sigurgöngu Hafnarfjarðarliðsins, þegar liðin mætast annað kvöld? Annaö kvöld verða leikn- ir tveir leikir í 1. deild i handknattleik og hafa þeir báöir mikla þýöingu fyrir liöín, sem mætast; sérstak- lega er leikur Vikings og FH i sviösljósinu, því aö hann hefur mikla þýðingu fyrir toppbaráttuna — Víkingsliðiö þarf að vinna leikinn, ef þaö ætlar að blanda sér í baráttuna um islandsmeistaratitilinn. Leikur KR og Fram getur einnig orðið skemmtilegur, þvi aö nú verður KR-liöið að fara að vinna leik, ef liðiö á að halda sér uppi í 1. deild/ liðið er eina liðið,sem ekki hefur hlotið stig i Islandsmótinu. Verður FH-liðið eins heppið og það hefur verið i leikjum sinum hingað til?, eða tekst Einari Magnússyni og félögum að stöðva sigurgöngu FH? Þessum spurn- ingum velta margir fyrir sér. Það má bóka það, að leikmenn Vik- ings leggja allt i sölurnar til að vinna FH, sérstaklega vegna þess, að ef Vikingur tapar leiknum annað kvöld, þá er liðið þar með búiðað tapa strætisvagninum i 1. deildarbaráttunni. Axel Axelsson er nú búinn að ná sér eftir meiðslin er hann hlaut i hausþog er nú i góðri æfingu; þá má reikna með.að Þorsteinn Björnsson, landsliðsmarkvörður, leiki sinn fyrsta leik með Fram gegn KR eftir stutta fjarveru. Framarar verða að vinna Kr, ef þeir ætla að verja Islands- meistaratitilinn i ár. KR-liðinu hefur ekki enn tekizt að sýna sitt rétta andlit, liðið situr nú eitt og yfirgefið á botninum, leikmenn liðsins verða að fara að vakna af dvalanum, ef þeim á að takast að halda liðinu i 1. deild. Leikirnir verða leiknir i Laugardalshöllinni, og hefst leikur KR—Fram kl. 20.15, en strax á eftir leika Vikingur og FH. Valur og Ármann leika á morgun - íslandsmótið í meistaraflokki kvenna í hand- knattleik hefst á morgun. Þrír leikir verða leiknirí 1. deild og tveir í 2. deild tslandsmótið i kvennahand- knattleik 1. og 2. deild hefst á morgun, þá veröa leiknir þrir Icikir i 1. deild og tvcir leikir i 2. deild; leikirnir fara fram i La ugardalshöllinni og iþróttahúsinu i Hafnarfirði. Einn stórleikur verður i 1. deild, þá mætast tvö sterkustu kvennalið okkar, Valur og Armann i Laugardalshöllimli kl. 14.00. Þessi lið voru i tveimur efstu sætunum i Reykjavikurmótinu — leik lið- anna lauk meö naumum sigri Vals, 3:2. Þaö má búast við mjög skemmtilegum leik, þegar liöin mætast á morgun. Eftirtaldir leikir fara fram i meistaraflokki kvenna á morgun: Laugardalshöll kl. 14.00. 1. deild: Valur — Ármann 1. deild: KR — Fram 2. deild: IR — FH Hafnarfjöröur kl. 20.15 2. deild: Njarðvik — Keflavik 1. deild: Breiðablik — Vikingur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.