Tíminn - 13.01.1973, Page 23

Tíminn - 13.01.1973, Page 23
Laugardagur 13. janúar 1973 TÍMINN 23 Enska knattspyrnan Árið 1923 var Wembley-leik- vangurinn i útjaðri London vigður með úrslitaleik bikarkeppninnar milli Bolton Wanderers og West Harrt United, en leikinn vann fyrrnefnt lið. Yfir 200 þús. áhorf- endur vildu sjá leikinn og sóttu um inngöngu á leikvanginn, sem tók aðeins 100 þús. áhorfendur. Fjórum árum siðar skeði sá sögulegi atburður i ensku bikar- keppninnar, að þá vann lið, sem var ekki enskt, bikarinn. Cardiff Það verður hart barizt i dag. þegar 3. umferð ensku bikar- keppninnar (F.A-. Cup) verður leikin. i sviðsljósinu verða allir beztu knattspy rnumenn Eng- lands. Hér á siðunni kynnum við i stuttu máli fimm af þeim leik- mönnum, sem verða i eldlinunni mcð félögum sinum. Það er ætlun okkar að balda þessari kynningu áfram á laugardögum, eða sama dag og leikmennirnir leika með liðum sinum i deildarkeppninni eða bikarkeppninni. í dag eru fimm leikmenn mættir tii okkar; þeir eiga það all- ir sameiginlegt að leika með lið- um sinum á útivelli. 3. umferð bikarkeppninnar er oftast spenn- andi, en þá koma öll 1. deildarlið- in inn og dragast þá stundum stórlið saraan. Marknet voru i fyrsta skiptið notuð i úrslitaleik bikarkeppninn- ar 1892 i leik milli W.B.A. og Aston Villa, en sú stórsnjalla hug- mynd að festa net á mörkin var fyrst notuð i leik árið 1891. City frá Wales tókst að sigra Arsenal 1:0 i úrslitaleiknum. W. Townley varð fyrstur til að skora þrennu (hat trick) i úr- slitaleik i bikarkeppni. Það var árið 1890. Stan Mortensen, Black- pool, er sá eini, sem hefur skorað þrennu i bikarúrslitaleik á Wembley. Það skeði árið 1953 i æsispennandi leik Blackpool og Bolton Wanderers, sem lauk með sigri Blackpool 4:3. ■ Nicholson, Huddersfield Jimmy Nicholson, fyrirliði Hudders- field Town, fær erfitt hlutverk i dag, nefni- lega að stýra íiði sinu til sigurs gegn Carlisle á Brunton Park, sem er kallað- ur ,,kirkjugarður 1. deildarliðanna”. Liðin eru svipuð að styrkleika og gerðu jafntefli 0:0 i 2. deild á Brunton Park s.l. helgi. Nicholson, sem leikur framvörð, var keyptur frá Manchester United i desember 1964 fyrir aðeins 7500 pund. Hann lék með irska landsliðinu aðeins 17 ára gamall og hefur leikið um 50 leiki með þvi. Hudd- ersfield féll ofan i 2. deild á siðastliðnu keppnistimabili eftir tveggja ára veru þar. Þegar Huddersfield vann sig upp i 1. deild 1970, bauð Harold Wilson, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, Nicholson og konu hans i kvöldverðarboð i Downing Street 10, — en Wilson er ein- lægur stuðningsmaður Huddersfireld Town. Greenhoff, Stoke City Jimmy Greenhoff og félagar hans i Stoke City fá erfiðan leik i dag. Liðið lend- ir á móti Manchester City (The Blues) á leikvelli liðsins, Maine Road i Manc- hester. Leikurinn verður erfiður fyrir Stoke — liðið má vera heppið, ef þvi tekst að halda jafn- tefli. Tveir af beztu leikmönnum Stoke eru á sjúkralista; þeir Gordon Banks, markvörður, og hinn sókndjarfi Geoff Hurst (áður West Ham). Greenhoff leikur sóknar- tengilið og er mjög mark- sækinn leikmaður, snöggur og sterkur leikmaður, sem skorar mikið af mörkum. Hann var keyptur frá Birm- ingham fyrir 100 þús. pund 1969. Lék hann áður með Leeds, en var seldur þaðan til Birmingham fyrir 70 þús. pund. Greenhoff hefur leik- ið með enska landsliðinu undir 23ja ára aldri. Alan Mullery, Fulham Lundúnarliðið Ful- ham Iendir i ströngu i dag, þegar það heimsækir Sheffield Wednesday á Hills- borough. Liðin eru jöfn i 2. deild með 28 stig. Fulham með Alan Mullery byrjaði illa á keppnistima- bilinu. Lengi vel var liðið i neðstu sætun- um, en tók á sig á og er til alls líklegt i dag. Alan Mullery er tvimæla- laust frægasti leikmaður liðsins. Hann byrjaði sinn knattspyrnuferil hjá félaginu, en var seldur til Tottenham i marz 1964 á 72,500 þús. pund. Var hann fyrirliði Totten- ham og er frábær miðvallar- spilari. Hann lék með enska landsliðinu i heimsmeistara- keppninni i Mexikó og hefur leikið um 50 landsleiki, nokkru sinni sem fyrirliði. Það kom nokkuð á óvart i byrjun keppnistimabilsins, sem stendur yfir, þegar hann sagðist ekki vilja leika með Tottenham framar, heldur leika með sinu gamla félagi. Astæðan fyrir þvi var sú, að honum fannst Nicholson, framkvæmdastjóri Totten- ham, hafa komið illa fram við sig, þegar hann átti við meiðsli að stríða s.l. sumar. Bobby Hope, Birmingham Birmingham City, með Bobby Hope innanborðs heim- sækir Swindon i dag og leikur þar á velli 2. deildar félagsins. County Ground. Það á ekki að vera eríiöur leikur fyrir leikmenn Birming- ham, en allt getur gerzt í knattspyrnu. Það er ekki langt sið- anSwindon vann Arsenal á Wembley J:1 i úrslitaleik deildarbikarins (F.L. Cup). Bobby Hope — miðvallar- leikmaður, var keyptur frá West Bromwich Albion s.l. sumar fyrir 60 þús. pund. Hann er yngsti leikmaður, sem hefur leikið með W.B.A. og var aðeins 16 ára þegar hann lék sinn fyrsta leik gegn Arsenal 1960. 1970 bauð Arsenal 110 þús. pund i Hope, en þá afþakkaði Albion boðið. Bobby Hope hefur leikið með skozka landslið- inu, lék sinn fyrsta leik með þvi gegn Hollandi i Amsterdam 1968. Mike Channon, Southampton Ilann verður i sviðsljósinu i dag, þegar Southampton — eða „dýrlingarn- ir” (The Saints), eins og liðið er nefnt i Englandi, leikur gegn Crystal Palace á Selhurst Park i Lundúnum. Það verður erfiður dagur hjá dýrlingunum, þvi að Palace-liðið er orðið mjög sterkt lið, sérstaklega á heima- velli. Mike Channon, innherji, er mjög marksækinn leikmaður og skorar mikið af mörkum fyrir lið sitt; lék sinn fyrsta leik með Southampton i april 1966 gegn Bristol City. Channon var ein af orsökum þess, að Southampton seldi Martin Chivers til Totten- ham fyrir 120 þús. pund. vegna þess að Bates, fram- kvæmdastjóri félagsins, taldi sig sjá i honum annan Chivers. Hann hefur nú á keppnistimabilinu skorað flest mörk fyrir Southamp- ton. Hvort honum tekst að skora i dag gegn Crystal Pal- ace, er ekki hægt að segja. Það má reikna með.að dýr- lingarnir leiki varnarleik með snöggum skyndiupp- hlaupum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.