Tíminn - 13.01.1973, Qupperneq 27
Laugardagur 13. janúar 1973
TÍMINN
27
Þeir segja
Framhald
af 15. siöu.
blágrýti i gluggakistur, og þær
þykja bæði fallegar og
endingargóðar. Og svo seljum
við auðvitað mikið stein, sem
notaður er i forstofur, gólf og
útitröppur. Svo eru það nú opin-
beru byggingarnar. Alls staðar
þar sem ætlazt er til að gólf end-
ist lengi, er notaður steinn. Eins
og ég sagði áðan, erum við ný-
búnir að steinleggja Lista-
mannaskálann. Þar eru núna
komnir eitthvað á milli tólf
hundruð og fjórtán hundruð fer-
metrar af' islenzkum grásteini á
gólfin, bæði úti og inni, enda er
ætlazt til þess að þau gólf endist
i tugi eða jafnvel hundruð ára,
án þess þurfi að halda þeim við.
Enn fremur hafa bankarnir not-
að þetta nokkuð á gólf af-
greiðslusala sinna, enda er þar
mikið gengið um, um, eins og
allir vita. Það eiga svo margir
erindi á slika staði.
— En smiðið þið ekki litla,
persónulega hluti?
— Jú. Við smiðum til dæmis
mikið af flaggstöngum og ýms-
um smáhlutum, sem hafðir eru
inni á heimilum. Eiginlega má
svo að orði kveða, að viö smið-
um alla skapaða hluti, frá hinu
stærsta til hins smæsta.
— Hvað gerið þið við steinana,
annað en að saga þá og slipa?
— Eiginlega gerum við ekkert
annað en að saga efnið niður og
slipa það siðan. Við berum ekki
lit i steinana. Eina undantekn-
ingin á þessu er sú, að við ber-
um fernisoliu i grásteininn til
þessaðgera hann dekkri og lika
til þess að utan á hann komi
harðari húð, sem gerir hann
þolnari úti við. Hann endist
miklu betur, eftir slika meðferð.
En allur annar steinn er aðeins
slipaður og sagaður. eins og ég
sagði áðan. Við það fær hann þá
áferð, sem hann hefur, þegar
við skilum honum frá okkur.
Stærstu verkin
veröa ekki alltaf
frægust
— Hvað gætir þú imyndað þér
aö telja mætti merkasta verk-
efni, sem þið hafið unnið að, eft-
ir að þú tengdist þessu fyrir-
tæki?
— Langstærsta verkefnið,
sem við höfum unnið að er
áreiðanlega gólfið i Lista-
mannaskálanum, sem ég var að
minnast á áðan. Það var mjög
mikið verk á ekki lengri tima,
en við höfðum til þess að ljúka
þvi. Nú, en frægasta verk okkar
ersjálfsagt skákborðið alkunna,
sem við gerðum fyrir heims-
meistaraeinvigið i fyrrasumar.
En það var auðvitað ekki neitt
stórverk.
— Og verkefnin hrúgast að
ykkur?
— Jú, það hefur verið yfirdrif-
ið að gera. Siðustu tvö árin höf-
um við bókstaflega verið yfir-
hlaðnir, og það bendir allt til
þess, að okkur hafi nú þegar
borizt næg verkefni fyrir allt
þetta nýbyrjaða ár.
— Og þið teljið að Island, með
allt sitt grjót, muni endast ykk-
ur eitthvað fram i framtiðina?
— Já, við teljum alveg vist, að
okkur muni ekki þrjóta hráefni
á ókomnum árum. —VS.
Tlminner
peningar
i AugtýsicT
: íTimanum
GAMANLEIKURINN
Tannkvöss
tengdamamma
eftir Faikland Gray og Pilips King
Leikstjóri: Jón Sigurbjörnsson.
i félagsheimilinu Seltjarnarnesi i kvöld, laugardag-
inn 13. janúar kl. 21.00. i Gunnarshólma sunnudag 14.
janúar kl. 15.00 og Hvoli sunnudagskv. 14. janúar kl.
21.30.
U.M.F. Hrunamanna.
Amerika; Allt i lagi lagsi og Nú er
það svart, en sú revia hefur verið
valin sem samheiti á þessum
svipmyndum, sem nefnast i einu
lagi ,,Nú er það svart maður”. En
kjörorð sýningarinnar er auðvit-
að ,,Við byggjum leikhús!” og er
nú orðið aðkallandi að safna sem
mestu fé i byggingarsjóði, þegar
buið er að úthluta leikhúsinu lóð
og vitað er,að ekki getur liðið
mjög langur timi þar til fram-
kvæmdir hefjist við byggingu.
Siingur og lcikþættir
16 leikarar koma fram i sýning-
unni og syngja gamanvisur og
leika gamanþætti. Aróra Hall
dórsdóttir, reviusérfræðingur
Leikfélags Reykjavikur. valdi
þættina, en leikstjóri er Borgar
Garðarsson. Leikmyndir gerði
Jón Þórisson og Magnús
Pétursson hefur æft söngva og
leikur undir á sýningunni.
Ráðstefna
herstöðvar-
andstæðinga
um
skipulagsmál
Á almennri ráðstefnu um her-
stöðvamálið, sem haldin var i
Félagsheimili stúdenta við
Hringbraut, 2. og 3. des. sl.,var
samþykkt ályktun þess efnis, að
halda skyldi aðra ráðstefnu um
skipulagsmál og framtiðarverk-
efni Samtaka herstöðvaandstæð-
inga og innihald baráttunnar, og
var 25-manna miðnefnd falið að
annast undirbúning hennar.
Akveðið hefur verið, að skipu-
lagsráðstefnan verði haldin i
Félagsheimili stúdenta
13. og 14. jan. Auk mið-
neíndar herstöðvaandstæðinga
eru aöilar að ráðstefnunni Stú-
dentaráð Háskóla Islands, Stú-
dentafélagið Verðandi og SINE.
Fyrirkomulagi verður háttað á
þessa leið.
Kl. 14 á laugardag verður ráð-
stefnan sett. Flutt verða stutt inn-
gangserindi, og siðan verður ráð-
stefnugestum skipt niður i starfs-
hópa, sem hver um sig ræði verk-
efni ráðstefnunnar. A sunnudag-
inn kl. 14 verður svo aftur safnazt
saman i Félagsheimilinu og
ræddar niðurstöður starfshóp-
anna. Málshefjendur verða Björn
Teitsson, cand mag., Cecil
Haraldsson, kennari og formaður
SUJ,og Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur. 1 ráðstefnu-
stjórn eru, Arni Björnsson, þjóð-
háttafræðingur, Þorbjörn
Broddason, lektor og Úlfur
Hjörvar. Ráðstefnunni lýkur kl.
18 þann dag.
Þess er vænzt.að allir þeir, sem
láta sig baráttuna gegn herstöðv-
unum nokkru skipla, fjölmenni.
VEITINGAHÚSID
Lækjarteig 2
Hljómsveit
Guðmundar Sigurössonar
Gosar — og
Hljómsveit
Jakobs Jónssonar
Opið til kl. 2
Bráðabirgðabyltingar-
stjórnin í Suður-Víetnam
„Nú er það svart maður”
Hjá Leikfélagi Reykjavikur er i
uppsiglingu reviusýning, sem
byggist á glefsum úr gömlum
revium frá timabilinu 1941-1958.
Frumsýning er á mánudags-
kvöldið i Austurbæjarbiói, en þar
munu siðan verða miðnætur-
sýningar á laugardagskvöldum.
Það er Húsbyggingarsjóður Leik-
félagsins,sem stendur fyrir þess-
um sýningum, en félagsmenn
hafa undanfarin ár safnað i hann
af mikilli elju, m.a. með slikum
sýningum. Er þetta fjórða sýn-
ingin, sem þannig er stofnað til,
en áður hefur Húsbyggingarsjóð-
urinn sýnt Það var um aldamótin
og Þegar amma var ung, sem
hvort tveggja voru reviuþættir,
og i fyrra Spanskfluguna, sem öll-
um er enn i fersku minni.
Reviur frá styrjaldarárunum
Flestar reviurnar, sem efnið er
tekið úr, eru frá styrjaldarárun-
um, en þær báru litrik nöfn eins
og Hver maður sinn skammt.frá
skömmtunarárunum; Halló
Tet-sókn þjóðfrelsishers Suður-
Vietnam, vorið 1968, er öllum i
fersku minni. Eftir hina miklu
sigra efndi þjóðfrelsisfylkingin til
kosninga hvarvetna á frelsuðu
svæðunum og i neðanjarðar-
hreyfingum hernámssvæðanna
(á valdi USA-Saigon). Þeir full-
trúar, sem þá voru kjörnir,
mynduðu þjóðþing Suður-Viet-
nams. Það kom saman dagana 6,-
9. júni 1969 og lýsti yfir stofnun
lýðveldisins Suður-Vietna m.
(Thieu-stjórnin, sem hefur aðset-
ur i Saigon, var stofnsett af Ngo
Dinh Diem i október 1955 og nefn-
ist stjórn lýðveldisins Vietnam.
Hún hefur u.þ.b. þriðjung land-
svæðis suðurhluta Vietnam á
valdi sinu.)
Þjóðþing Suður-Vietnams kaus
siðan bráðabirgðabyltingar-
stjórnina i lýðveldinu Suður-Viet-
nam, en hún er bráðabirgðastjórn
vegna þess að innrás Bandarikja-
manna leyfir ekki almennar
kosningar i suðurhlutanum.
Bráðabirgðabyltingarstjórnin
ræður 2/3 hlutum Suður-Viet-
nams.
1 sókninni, er hófst vorið 1972,
náðu herir bráðabirgðabyltingar-
stjórnarinnar stórum svæðum úr
höndum Saigon-hersins og frels-
uðu 2 1/2 milljónir manna. Þessi
árangur hefur verið viðurkennd-
ur i vestrænum fjölmiðlum (sjá
t.d. International Herald Tribune
9. desember 1972: „Saigonstjórn-
in hefur misst yfirráðin á stórum
svæðum i sókn fjandmanna, en
hún hefur nú staðið i niu mán-
uði.”)
Frá 18. öld er viðurkennt i
þjóðarétti, að þá stjórn skuli
viðurkenna, sem ráði landinu.
Hér er enginn munur á reglu og
framkvæmd, eftir þessu er farið.
Augljóst er, að Bráðabirgðabylt-
ingarstjórnin ræður landinu og
mun ráða, en ekki leppstjórn
Bandarikjamanna i Saigon. Enda
hafa nú 36 riki tekið upp stjórn-
málasamband við bráðabirgða-
byltingarstjórnina.
Dagana 8.-12. ágúst 1972 var
haldin ráðstefna hlutlausra rikja i
Guyana. Þessi 64 riki — meira en
helmingur rikja heims — viður-
kenndu fulltrúa bráðabirgðabylt-
ingarstjórnarinnar sem einu
réttu fulltrúa Suður-Vietnams.
Þessi sömu riki tryggðu tiliögu
íslands um auðlindir hafsins,
sigur á þingi Sameinuðu þjóðanna
nú i desember 1972.
Vietnamnefndin á islandi.
(9. jan. 1973)
'GODA VE/ZLU GJORA SKAL
Daglega þurfa einhverjir að efna til afmælishófa,
fermingarveizlna, brúðkaupa, samkvæma átthagafélaga
eða annarra mannfagnaða. Þá vaknar spurningin:
HVAR Á VEIZLAN AÐ VERA?
Ef ekki er unnt að halda hana í heimahúsum, þá er
svarið við spurningunni auðvelt:
Hótel Loftleiðir.
Þar eru salarkynni fyrir hvers konar samkvæmi.
ALLAR UPPLÝSINGAR ERU GEFNAR í SÍMA 22322.
\LOFTLEIDIRi