Tíminn - 13.01.1973, Side 28
Kissinger
er lygari
- segir McGovern
NTB—Boston
Oldungadeildarþingmaðurinn
George McGovern, sem tapaði i
forsetakosnihgunum gegn Nixon,
hefur ásakað Kissinger, öryggis-
málaráðgjafa Nixons, fyrir að
hafa visvitandi logið að banda-
riskum almenningi, þegar hann
rétt fyrir kosningar sagði, að
friður i Vietnam væri á næsta
leiti.
— Ég held, að Kissinger hafi
vitað, að Nixon og Thieu forseti S-
Vietnam myndu ekki samþykkja
friðarsáttmálann, sem gerður
hafði verið i Paris, sagði
McGovern i viðtali við blaöið
Boston Globe.
Þá heldur hann þvi fram, að
hvorki Edward Kennedy,
Edmund Muskie eða Hubert
Humphrey, sem allir komu til
greina sem forsetaefni, hefðu haft
nokkra möguleika til að sigra
Nixon i kosningunum.
Margt manna heimsótti Kristján Benediktsson borgarráðsmann i gær, á fimmtugsafmæli hans. Vinir,
samherjar og samstarfsmenn Kristjáns færðu honum að gjöf fagurt málverk eftir Svavar Guðnason og
mikla silfurskál á hakka. Myndin var tekin, er óiafur Jóhannesson forsætisráöherra afhenti Kristjáni
gjafirnar, en við hlið Kristjáns er kona hans, Svanlaug Ermenreksdóttir. Yzt t.h. er Birgir isieifur
Gunnarsson borgarstjóri, sem færði afmælisbarninu silfurbakka frá borgarstjórn og Reykjavikurborg.
(Timamynd G.E.)
Atómsprengja á N-Víetnam
til umræðu í USA
NTB—Washington
William Clements, sem Nixon
hefur útnefnt varautanrikisráð-
herra Bandarikjanna, sagöi i
gær, að hann vildi ekki útiloka
þann mögulcika, aö kjarnorku-
sprengju yrði varpað á N-Viet-
nam. Kvaðst hann mundu styöja
tilliigu um slikt, ef hún kæmi frá
Nixon.
Clements sagði þetta á fundi i
hermálanefnd öldungadeildar-
innar, nefndin á síðar að taka
afstöðu til útneíningar hans sem
varaúanrikisráðherra.
Harold Hughes, demókrati frá
Iowa spurði Clemente, hvort hann
mundi styðja tillögu um notkun
kjarnorkuvopna i Vietnam-
styjöldinni, ef friður yrði ekki
saminn í náinni framtið.
Clements svaraði þvi til, að það
væri eftir aðstæðum.
Hughes gerði sig ekki ánægðan
með þetta svar og spurði. hvort
hann myndi styðja Nixon, ef hann
gæfi skipun um að nota kjarn-
orkuvopn. — Já, það mundi ég
gera, svaraði Clements, en það
þýðir ekki að ég persónulega, sé
hlynntur notkun slikra vopna.
1 tilefni þessarar fréttar kom i
gærkvöldi yfirlýsing frá stjórn
Nixons, þar sem lögð er áherzla
á, að forsetinn hafi bannað notkun
kjarnorkuvopna i Vietnam, þrátt
fyrir að tilvonandi meðlimur
stjórnarinnar hafi sagt, að slikt
væri ekki útilokað.
Ziegler blaðafulltrúi Nixons
visaði i gær til margendurtekinna
orða forsetans um að kjarnorku-
vopna væru ekki einn þeirra
möguleika, sem til greina kæmi
að nota i Vietnam.
Hundruð bíla
í árekstri
NTB—Kaupmannahöfn
Tveir menn létu lifið og tiu
slösuðust alvarleg i miklu um-
ferðarslysi við Kaupmannahöfn i
gærmorgun. Mörg hundruð bilar
lentu i einum árekstri, sem varð
þegar tankbill rann til og stóð
þversum á veginum. A annað
hundrað bilar voru óökufærir
eftir. Nokkrir bilar brunnu.
Þegar slysið varð, var þoka og
hálka á vegum. Vegurinn var
lokaður umferð i báðar áttir
langa stund eftir slysið, meðan
verið var að ryðja hann.
Tvöfyrir bíl
Klp—Reykjavik.
í gærdag, um kl. fjögur, var
ekið á barn rétt við gangbrautina
á móts við As á Laugavegi. Þar
hafði sendiferðabifreið stöðvað til
að hleypa barninu yfir götuna, en
þá bar að aðra bifreið, sem ók
fram með sendiferðabifreiðinni
og á barnið.
A sama tima var ekið á dreng á
reiðhjóli á mótum Kalkofnsvegar
og Tryggvagötu. Mei’ddist hann á
fæti,en barnið, sem varð fyrir
bilnum við As, mun hafa meiðzt
meira, m.a. eitthvað á höfði, og
var það til rannsóknar á Borgar-
sjúkrahúsinu i gærkveldi, þegar
siðast fréttist.
Vertíðarbátum
fjölgar um 8
Tveir bilaðir bát-
ar til ísafjarðar
— Nokkrar skemmdir í ofsaroki
JS—Óiafsvik
Illa hefur gefið á sjó frá Ólafs-
vik undanfarið vegna sifellds
hvassviðris. Verið er að undirbúa
vertiðina, og verða nú 26 bátar
gerðir út, en voru 18 i fyrra. Tiu
byrja á linu og 16 á netum. Vel
gengur að fá mannskap ábátana,
en erfiðlega að fá menn til starfa i
landi. Aðstaða er ákaflega léleg
fyrir aðkomufólk i ólafsvik,
jafnvel verri núna en i fyrra, en
verið er að byggja þar verbúðir,
sem væntanlega verða tilbúnar
fyrir vertiðina 1974.
GS—Isafirði
Varðskipið Þór kom til
tsafjarðar á miðvikudagskvöld
með linuveiðarann Höfrung 3. frá
Akranesi. Hafði aðalvél Höfrungs
3. brotnað niður.er skipið var að
veiðum úti af Vestfjörðum. Höfr-
ungur 3. er tæplega 300 tonna stál-
skip.smiöað i Harstad i Noregi
1967.
Nokkrum klukkustundum siðar
kom færeyskt skip með færeyska
linuveiðarann Kolumbus til isa-
fjarðar. Hafði skrúfuöxull
Kolumbusar brotnað, og verða
báðir bátarnir teknir til viðgerðar
á lsafirði.
Undanfarna daga hefur verið
asahláka á tsafirði, og efur snjó
tekið að mestu upp, og i gær var
byrjað á þvi að moka veginn til
Súgandafjarðar og önundar-
fjarðar.
1 gær var veður af suðaustan á
tsafirði, og skall þá á svokallað
„Básarok". Hlutust nokkrar
skemmdir i veðrinu. t,d, brotnaði
hurð af nýja barnaskólanum, 10
járnplötur fuku af nýja hrað-
frystihúsinu i Hnifsdal, en það er
enn i byggingu. Og í Hnifsdal
urðu ýmsar skemmdir á
gluggum. Stóð þetta veður i þrjá
tima.
Þrátt fyrir risjótt veður, hafa
bátar róið,. og afli hefur verið
ágætur, þetta sex til niu lestir á
linu.
þá kom Guðbjörg inn i fyrra-
dag með 45 lestir eftir viku úti-
vist.
Nei — þetta eru ekki ehlflaugar eða sprengjur, sem verið er að festa undir væng landhelgisgæzluflug-
véiarinnar SÝR, heldur aukaeldsneytisgeyniar, sem eiga að auka flugþol skrúfuþotunnar um eina
klukkustund. Að undanförnu hefur verið unnið að ýmsum endurbótum á SÝR, og næst þegar hún fer á
ioft, munskærrauður neðri hluti búksins og eldsneytisgeymar blasa við þeim, sem upp lita, og munu þá
iandhelgisbrjótar ekki þurfa að fara í grafgötur með hvaða flugvél það er, sem yfir þcim svifur.
Alþjóðagæzlumerkið biáa og gula, blasir lika við fremst á vélinni. Endurbótum á véiinni mun senn
ljúka.'tg verður hún þá betur búin til að gegna sinu hlutverki en áður. ( Timamynd Gunnar)
þingmanninum hafi þótt mál til
komið, að einhver segði eitthvað.
Scott sagði, að ummæli Palmes
væru móðgun við sænska Banda-
rikjamenn. Þá sagði hann, að á
sinum tima og þegar Palme færi
að nota skynsemina, yrði nýr
sænskur ambassador boðinn vel-
kominn. Er Scott hafði lokið máli
sinu, hafði enginn i öldungadeild-
inni neitt um þetta að segja.
Ekki hafa sænska sendiráðinu
borizt margar kvartanir frá
Svium, búsettum vestanhafs. Það
er vitað, að mikill meirihluti
Norðurlandabúa, sem búsettir
eru i Bandarlkjunum, eru ihalds-
samir rephblikanar.
DEILDINNI
NTB—Washington
Leiðtogi repúblikana i öldunga-
deild Bandaríkjaþings, Hugh
Scott, lýsti þvi yfir i gær, að hann
væri orðinn leiður á and-banda-
rískum ummælum Palmes for-
sætisráðherra Sviþjóðar og
kvaðst vera ánægður með, að
enginn sænskur ambassador væri
i Bandarikjunum eins og er.
Þetta er i fyrsta sinn, siðan það
varöalmenningi kunnugt um jólin,
að einhver vandræði væru milli
landanna, að bandariskur stjórn-
málamaður hefur sagt sitt álit á
málinu. Talsmenn stjórnarinnar
hafa ekkert sagt, siðan staðfest
var, að stjórnin hefði beðiö Svia
að biða með að senda
ambassador til Washington.
Scott tók til máls i upphafi þing-
fundar i deildinni i gær.og hefur
blaðafulltrúi hans sagt, að ekki sé
önnur ástæða til þess, en sú að
PALME A DAGSKRA í ÖLDUNGA-