Tíminn - 16.01.1973, Page 6
6
TÍMINN
Þriðjudagur 16. janúar 1973
Þarna var Haraldur afvopnaður. Þeir Hafsteinn og Ólafur komu þar
með i veg fyrir frekara biöðbað.
Eitt skotið lenti i vegg i stigaganginum, og hér sjást verksummerkin.
SKOTÁRÁSIN
í BREIÐHOLTI
Fyrsta merkið um skot-
árásina mátti sjá strax á
bílastæðinu fyrir framan
Yrsufell 11. Þar voru blóð-
taumar úr hinu slasaða
fólki, og geil hafði komið f
malbikið, þegar skot hljóp
úr haglabyssunni, eftir að
hún var komin í hendur
lögreglunnar. Fyrir fram-
an útidyrnar voru börnin í
nágrenninu með skelf-
ingarsvip, og ræddu sín á
milli um þessa mestu skot-
árás, sem gerð hefur verið í
Reykjavík á siðari árum.
Lögreglubílar voru fyrir utan
dyrnar, en þegar inn var komið,
blasti við blóðið á gulu teppinu i
stigahúsinu og allt upp á fjórðu
hæð, þar sem flestum skotunum
var hleypt af.
— Ég heyrði einhvern dynk
frammiá ganginum-, sagði kona,
er býr á sömu hæð og Elin Ólafs-
dóttir, — og hélt i' fyrstu að
strákurinn minn einn hefði dottið
i stiganum. Það var nú ekki svo,
þvi að þegar ég opna hurðina,
blasir Haraldur við mér i gangin-
um miðandi haglabyssunni á hurð
Elinar. Ég var fljót að loka, sem
vonlegt var, og við, sem voru hér i
ibúðinni, þorðum ekki að vera ná-
lægt forstofuhurðinni hjá okkur af
ótta við það, aö hann skyti i gegn-
um hana lika. Ég fór svo strax i
simann og hringdi á lögregluna,
en þá mun kona, sem býr neðar i
húsinu, hafa verið búin að þvi, þvi
hún sá Harald koma með byssuna
inn i stigahúsið. Rétt eftir að ég
var búin að loka hurðinni á ibúð-
inni okkar, kom Þórhallur, sonur
Elinar, á svalirnar hjá okkur, en
hann hafði þá flúið út úr ibúðinni
hjá sér út á svalirnar, og klifraði
þar framhjá tveim veggjum, sem
aðskilja svalirnar á hæðinni.
Þetta er á fjórðu hæð, og lagði
hann sig þvi i mikla lifshæftu.
Við biðum svo inni i ibúðinni, og
það get ég sagt þér, að var löng
bið. Við heyrðum skothvellina
einn af öðrum og hróp Elinar, og
héldum helzt, að hún væri látin,
þegar allt þagnaði. —
Þrjú skot
í ibúðinni.
Eftir verksummerkjum i ibúð
Elinar að dæma, þá virðist svo
sem Haraldur hafi hleypt af þrem
skotum inni i ibúðinni. Eitt hefur
lent i dyrakarmi baðherbergisins
og inn i baðherbergið sjálft, en
það er á móti forstofudyrunum.
Hinum tveim skotunum hefur
verið skotið i gegn um eldhús-
hurðina, og byssan liklega höfð
nærri dyrunum, þvi höglin hafa
Myndin var tekin fyrir tæpum þrem árum, þegar lögreglan handtók
Harald, eftir að hann hafði brotizt út úr Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustig.
litið sem ekkert verið farin að
dreifa sér, er þau lentu i hurðinni.
Fyrsta skotinu hefur hann skot-
ið i gegnum forstofuhurðina, rétt
ofan við húninn, og i kring um það
gat og götin á eldhúshurðinni var
dökkgrátt púðrið, en höglin svo
einsog drit i dyrastafnum og bað-
herberginu.
Eftir að hafa hleypt þessum
fjórum skotum af hefur Haraldur
þurft að hlaða tvihleypuna öðru
sinni, og þá hefur Elin liklega not-
að tækifærið og skotist fram hjá
skotárásarmanninum fram á
gang. Þegar hún er svo komin
niður á neðri stigapallinn á milli
hæðanna, er hann búin að hlaða
haglabyssuna á ný, og lendir skot
úr henni i vegg i stigaganginum
og liklega lika i Elinu, sem flúði
inn i ibúð á þriðju hæð. Haraldur
veítti henni eftirför, en sá ekki inn
i hvaða ibúð hún fór. Réðst hann
þá inn i miðibúðina og hefur lik-
lega sett öxlina i hurðina, eins og
þegar hann fór inn i ibúð Elinar,
en við það brotnuðu dyrastafirnir.
t þessari ibúð á þriðju hæð voru
þá fyrir kona með 2 börn Elin
hafði farið inn i ibúð Hafsteins, en
hann og Ólafur Ogmundsson
vinnufélagi hans, fóru inn i mið-
ibúðina, og réðust vopnlausir til
atlögu við Harald. Tókst þeim að
afvopna hann, en Hafsteinn fékk
skot i fótinn með þeim afleiðing-
um að taka varð hann af fyrir of-
an hné. Byssunni hentu þeir fram
á gang og lenti hún niður um
stigaopið og niður á neðstu hæð.
Við fallið skemmdist byssan, og
er liklegt að skemmdirnar hafi
orsakað, að skot hljóp úr byssunni
i höndum lögreglumanns utan
dyra.
Þeir Hafsteinn og Ólafur gátu
svo haldið Haraldi þar til lögregl-
an kom, en þrátt fyrir mikinn
flýti, leið nokkur stund áður en
lögreglumennirnir komu á
árásarstaðinn.
Lék viö syni
sina um morguninn
Timinn reyndi i gær að afla sér
sem gleggstra upplýsinga um at-
ferli Haraldar Ólafsson, áður en
hann fór upp i Yrsufell og framdi
skotárásina. Eftir þeim upp-
lýsingum að dæma virtist flest
vera með felldu á sunnudags-
morguninn.
Haraldur var að skemmta sér á
Hótel Sögu á laugardagskvöldið,
og mun eitthvað hafa verið við
skál. A sunnudagsmorguninn
komu tveir synir hans heim til
hans i heimsókn, en þeir eru 12
ára og 6 ára. Atti hann þann yngri
með fyrrverandi eiginkonu sinni.
Lék hann sér við þá um morgun-
inn, spilaði m.a. barnaplötur fyrir
þá o.fl. Afi drengjanna mun siðar
hafa farið með þá i sundlaugar,
og Haraldur gaf þeim peninga til
að fara i bió siðar um daginn. Um
klukkan eitt er ekki vitað annað
en allt sé i lagi, en þá mun Har-
aldur hafa verið búinn að tala við
fyrrverandi eiginkonu sina i
Framhald á bls. 19
Skotgatið i forstofuhurðinni að Lögreglubila dreif aö Yrsufelli 11 eftir skotárásina, og hér á myndinni er« Þrir lögreglubilar komnir á vettvang, en sjúkrabillinn er farinn frá
ibúð Elinar. húsinu með hina særðu. (TimamyndirG.E.)