Tíminn - 16.01.1973, Blaðsíða 17
þriftjudagur l(i. janúar 11(7:!
I'ÍMINN
17
Enska knattspyrnan:
SOS:
flrmstrong jafnaði
með síðustu spyrnunni
gegn Leicester........
- Arsenal heppið að ná jafntefli á sfðustu stundu. Liverpool og Burnley gerðu
jafntefli 0:0. Manchester United fallið úr bikarkeppninni, tapaði gegn Úlfunum.
Lítið um óvænt úrslit í 3. umferð bikarkeppninnar
Það var litið um óvænt
úrslit i 3. umferð i bikar-
keppni enska knatt-
spyrnusambandsins á
laugardaginn. Arsenal
var heppið, þegar liðið
lék gegn Leicester á
Highbury — Amstrong
jafnaði 2:2 með siðustu
spyrnu leiksins við mik-
inn fögnuð áhorfenda,
sem höfðu orðið fyrir
vonbrigðum með liðið.
Kennedy skoraði fyrra
mark Arsenal, en þeir
F a r r i n g t o n o g
Worthington skoruðu
mörk Leicester.
Manchester United tap-
aði eins og fyrri daginn,
liðið heimsótti Úlfana á
Molineux og tapaði 1:0,
markið skoraði hinn
baráttuglaði fyrirliði
Úlfanna, Mike Bailey og
var honum fagnað ákaft,
þvi að það er ekki á
hverjum degi sem
Mike Bailey, fyrirliði Úlfanna
skoraði sigurinarkið gegn Man.
Utd.
Bailey gamli, sem hefur
leikið tvo landsleiki fyrir
England, skorar. Hann
var keyptur frá
Lundúnaliðinu Charlton
Athletic i marz 1966 á 40
þús. pund, lék sinn
fyrsta leik með úlfunum
Hér á myndinni sést Osgood í leik gegn Derby. Hann skoraöi annað
mark liðs sins gegn Brighton.
sama ár gegn
Southampton.
Nú skulum við lita á úrslitin á
getraunaseðlinum:
Arsenal-Leicester 2:2
Burnley-Liverpool 0:0
Carlisle-Huddersf. 2:2
Crystal Pal.-Southampt. 2:0
Everton-Aston Villa 3:2
Manch. C.-Stoke 3:2
Norwich-Leeds 1:1
Orient-Coventry 1:4
Sheff. Wed.-Fulham 2:0
Swindon-Birmingh. 2:0
WBA-Nott.Forest 1:1
Wolves-Manch.Utd. 1:0
Jimmy Greenhoff sýndi
stjörnuleik gegn Manchester City
á Maine Road, hann skoraði tvö
lagleg mörk — það dugði samt
ekki gegn heimamönnum.
Stjörnuframlinan hjá City sá um
það, að liðið sigraði Stoke, það
voru þeir Colin Bell, Marsh og
Mike Summerbee, sem skoruðu
mörkin og tryggðu liði sinu þar
með rétt til að leika i fjórðu um-
ferð bikarkeppninnar.
Leeds gerði jafntefli 1:1 gegn
Norwich á Carrow Road, liðin
þurfa þvi að leika aftur, þá á
heimavelli Leeds, Elland Road.
Cross skoraði mark heima-
manna, en Peter Lorimer skoraði
fyrir gestina.
West Bromwich Albion var
heppið að ná jafntefli á heima-
velli sinum The Hawthorns 1:1
gegn Nottingham Forest. Forest
skoraði bæði mörk leiksins,
sjálfsmark og siðan skoraði
Galley mark gestanna, en liðin
mætast aftur á heimavelli Forest,
City Ground.
Annars fóru leikirnir 32 i bikar-
keppninni, þannig:
Bradíord C.-Blackpool 2:1
I3righton-Chelsea 0:2
Charlton-Bolton 1:1
Chelmsford-Ipswich 1:3
Grimsby-Preston 0:0
Luton-Crewe 2:0
Margate-Tottenham 0:6
Millvall-Newport 3:0
Newcastle-Bournem. 2:0
Notts County-Sunderland 1:1
Peterboro-Derby 0:1
Portsmouth-Bristol C 1:1
Port Vale-West Ham 0:1
Plymouth-Middlesbro 1:1
QPR-Barnel 0:0
Reading-Doncaster Irestað
Scunthorpe-Cardilf 2:0
Stockporl-Hull 0:0
Watlord-Sheff.Utd. 0:1
York-Oxford 0:1
Tottenham átti auðveldan dag,
liðið heimsótti utandeildarliðið
Margate, sem leikur i Suðurdeild-
inni —- leiknum lauk með sigri
Tottenham 6:0, en sigurinn hefði
vel getað orðið stærri. Martin
Chivers, skoraði tvö mörk, hin
mörkin skoruðu þeir, Peters,
Pearce, Knowles og Pratt.
Meistararnir Derby heimsóttu
4. deilarliðið Petersborough á
London Road, þar sem
meistararnir rétt mörðu sigur 1:0
á marki sem Roger Davies skor-
aði.
Coventry átti ekki i erfiðleikum
með 2. deilarliðið Orient, þegar
liðin léku á LundUnum — Coven-
try sigraði örugglega á Brisbane
llér sésl yfirmaöurimi á Old Trafford, Tommy Docherty „The Doc” i
cinutn af sinum frægu stellingum. Hann fylgist með liði sinu og lætur
heyra i sér, ef lionum likar ekki leikur leikmanna sinna. Lið lians féll úr
hikarkeppninni á laugardaginn.
Road 4:1, mörk liðsins, skoruðu
þeir, Alderson (2), Hutchinson og
Carr.
Ipswich lék gegn Chelmsford,
sem er utandeildarlið eins og
Margate — leikmenn 1. deildar-
liðsins áttu léttan dag og sigruðu
örugglega 3:1, mörk liðsins, skor-
uðu Harper, Johnson og
Hamilton.
Mac Donald skoraði að
sjálfsögðu mark, þegar New-
castle fékk 3. deildarliðið Bourne-
mouth i heimsókn, þá skoraði
annar markaskorari einnig á
laugardaginn, það var Rogers hjá
Crystal Palace, en hann skoraði
gegn Southampton, þegar liðið
heimstótti Palace á Selhurst
Park. Peter Osgood, hinn mark-
sækni miðherji Chelsea var einn-
ig á skotskónum, þegar Chelsea
heimsótti 2. deildarliðið Brighlon
á Goldstone Ground. Hann skor-
aði annað mark Chelsea, með
einu af sinu frægu þrumuskotum.
Þó að það hal'i ekki verið mikið
um óvænt Urslit, þá komu nokkur
Urslit á óvart. Mest á óvart kom
jafntefli Q.P.R. á heimavelli sin-
um Loltus Road i LundUnum
gegn utandeildarliðinu Barnet.
Þá tapaði Blackpool gegn 4.
deildarliðinu Bradford City, þeg-
ar liðið heimsótti Valley Parade i
Bradford. Cardiff má muna fifil
sinn fegurri, liðið lék gegn
Scunthope á Old Show Ground og
mátti þola tap 2:0.
Liverpool og Burnley gerðu
jalntefli á Turf Moor 0:0. West
Ham sigraði Port Vile á Stoke-on-
Trent 1:9, markið skoraði
Holland.
McDonald var á skotskónuni gegn Bournemouth, hann skoraði annað
mark Newcastle.