Tíminn - 06.03.1973, Side 1
HQTEL WnLEHJIR]
FUNDARSALIR
Hótel Loftleiðir" miðast við þarfir
alþiððaráðsfefna og þinga, þar sem
þýða þarf ræður manna jafnharðan
á ýmis tungumál.
LITID A SALARKYNNI HOTELS
LOFTLEIÐA — EINHVER ÞEIRRA
MUN FULLNÆGJA ÞORFUAA
YÐAR.
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra:
ÞJOÐIN KVEÐUR UPP DOM
í LOK KJÖRTÍMABILSINS
Tillaga Sjálfstæðismanna um þingrof og nýjar kosningar er eintóm sýndarmennska
Leifar fjárhússins sem snjóflóöiö féll á i Kristjánskiauf á Sauöárkróki á sunnudag, en þar fórust 18
kindur, og má sjá skrokkana I forgrunni. Snjóflóö hafa aldrei falliö á Sauöárkróki áöur, svo aö vitaö sé.
Ljósmynd Stefán Pedersen
Fé og hross grófust
í snjó á Sauðárkróki
— 3 strákar sátu á fyllunni, en sluppu ómeiddir
GÓ, Sauðárkróki. — A sunnu-
daginn féli snjóflóö á Sauöár-
króki, þar sem heitir Kristjáns-
klauf. Þar eru allmörg penings-
hús, bæöi yfir hross og fé, og lenti
snjóflóöiö á fjárhúsi f eigu Sveins
Nikódemussonar og braut þaö.
Þar inni voru 36 kindur, 28 full-
orönar, 6 gemlingar og 2 lömb,
sem fæddust 13. okt. i haust. 17 ær
drápust strax og annaö litla
lambiö, en hinn helmingurinn
slapp litt eöa ekki skaöaður.
Þetta geröist rétt fyrir hádegi og
var Sveinn þá fyrir skömmu
farinn frá húsunum, en óvist er
hver afdrif hans heföu oröiö, heföi
hann enn veriö þar aö
gegningum er snjóflóöiö féll. Er
skaöi hans tilfinnanlegur aö
missa 17 ær á bezta aldri.
Við fjárhúsin var hlaöa meö um
60hestum af heyi og brotnaöi hún
lika, er snjóflóöiö skall yfir, m.a.
brotnaöi þakiö og er nú heyiö á
kafi i snjóflóöinu.
Rétt hjá fjárhúsunum var hest-
húskofi, sem flóöiö lenti einnig á
og braut. Þar inni voru 2 tryppi á
fyrsta og öörum vetri. Grófust
Jjau bæöi i snjóflóöinu en náöust
ur þvi skömmu slöar, bæöi
ómeidd. Flóöið lenti einnig á
þriöja húsinu, — þar sem inni
voru hross-og skekkti þaö veru-
lega.
Menn muna ekki til aö snjóflóö
hafi áöur falliö á Sauöárkróki.
Þar var á laugardaginn ofsa-
veöur af vestri og suövestri meö
mikilli snjókomu. Hefur þá bariö
saman þá fönn I Kristjánsklauf,
sem daginn eftir sprakk svo
fram, en flóöiö átti sér ekki
langan aödraganda, eöa þaö
byrjaöi um 30 metrum fyrir ofan
fjárhúsin.
Þá má ekki gleyma því aö þrir
strákar voru aö leika sér I
snjónum, þar sem fyllan sprakk
fram. Sátu þeir á henni alla
leiöina niöur, en hún sprakk ekki
sundur fyrr en þangaö kom.
Hefur þaö vafalitiö oröiö þeim til
lifs, því aö heföi fyllan sprungiö
á framskriöinu, heföu þeir vafa-
laust grafizt I henni. Drengirnir
eru á aldrinum 9-13 ára og hafa
þarna fengiö sérstæöa sleöaferö.
Haraldur og Nixon
ræddu um eldgosið
KJ, Reykjavik — A föstudaginn
afhenti Haraldur Kröyer ný-
skipaöur sendiherra tslands I
Bandarikjunum Nixon Banda-
rikjaforseta trúnaöarbréf sitt.
Við þaö tækifæri ræddu sendi-
herrann og forsetinn sameiginleg
mál íslands og Bandarikjanna,
og einnig var rætt um Heima-
eyjargosiö. í þvi sambandi sagöi
Nixon forseti m.a.: „Viö höfum
áhyggjufullir fylgzt meö náttúru-
hamförunum, sem fólkiö I Vest-
mannaeyjum hefur oröiö fyrir
baröinu á, og viö vonum, aö eld-
gosinu á Heimaey ljúki sem fyrst,
og eyjabúar geti snúiö til heim-
kynna sinna. Jafnframt munum
viö halda áfram aö gera þaö sem
viö getum til aöstoöar undir
þessum kringumstæöum”.
EJ, Reykjavik.
„Þessi þingsályktunar-
tillaga Sjálfstæðis-
manna um þingrof og
nýjar kosningar er ein-
ber sýndarmennska,
sem flanað er að i fljót-
ræði, og það á þeim
tima, er mestu varðar,
að þjóðin standi sem
bezt saman um sin stóru
mál, bæði út á við og inn
á við. Fátt væri fráleit-
ara en að fara að stofna
til harðvitugrar
; kosningabaráttu ein
mitt nú, enda till. sjálf
sagt flutt i trausti þess,
að hún verði ekki tekin
of alvarlega,,’ — sagði
ólafur Jóhannesson,
forsætisráðherra, i út-
varpsumræðunum um
vantrauststillögur Sjálf-
stæðisflokksins i gær-
kvöldi.
Forsætisráöherra sagöi aö þaö
dytti „auövitaö engum i hug i
alvöru, aö stjórnarflokkarnir
hverfi frá hálfunnu verki — eöa
raunar vel þaö — aö hálfnuöu
kjörtimabili. Núverandi stjórn-
arflokkar fengu ótviræöan meiri
hluta i siöustu Alþingiskosning-
um. Þeir geröu meö sér itarlegan
málefnasamning, er byggöur var
Framhald á bls. 19
Hafréttar-
ráðstefnan
undirbúin
1 GÆR, 5. marz, hófst I New York
fundur undirbúningsnefndar haf-
réttarráöstefnu Sameinuöu þjóö-
anna. Mun nefndin sitja aö
störfum til 6. aprll n.k.
Sendinefnd Islands á fundi
nefndarinnar skipa: Hans G.
Andersen sendiherra, formaöur,
Haraldur Kröyer sendiherra,
fastafulltrúi Islands hjá
Sameinuöu þjóöunum. Jón
Arnalds ráöuneytisstjóri, Már
Elísson fiskimálastjóri, dr.
Gunnar G. Schram, varafasta-
fulltrúi Islands hjá Sameinuöu
þjóöunum og fulltrúar þingfiokk-
anna, Benedikt Gröndal alþm.,
Gils Guömundsson alþm.,
Haraldur Henrýsson dómara-,
fulltrúi, Þór Vilhjálmsson
prófessor og Þórarinn Þórarins-
son. alþm.,
Búið að brýna klippurnar:
Skoríð aftan
úr 4 brezk-
um togurum
ÞÓ.Reykjavík. — islenzku varö-
skipin hófu aðgeröir gegn
erlendum togurum aö nýju I gær
eftir nær sex vikna hlé, en sem
kunnugt er hafa varðskipin veriö
mjög bundin viö Vestmannaeyjar
aö undanförnu vegna náttúru-
hamfaranna þar. Varöskipiö
Ægir klippti sundur vir fyrsta
togarans i gærmorgun, og f gær
klippti Ægir vlra tveggja togara
til viöbótar og óöinn klippti
sundur forvfr eins togara. Allir
voru þessir togarar aö veiöum 30-
40 sjómllur noröur og norö-
austur af Rauöanúpi á Melrakka-
sléttu.
Varöskipin komu aö 29
brezkum togurum aö veiöum úti
af Melrakkasléttu I gærmorgun,
og togurunum til aðstoöar voru
dráttarbáturinn Statesman og
aöstoöarskipiö Miranda. Varö-
skipin bentu togurunum á, aö
þeir væru viö ólöglegar veiðar og
skipuöu þeim aö halda út fyrir 50
sjómilna mörkin. Þegar þessar
viövaranir báru ekki árangur,
voru klippurnar settar út og rétt
fyrir klukkan tiu skar Ægir á
forvir togarans Ross Resolution
GY 427, þar sem togarinn var aö
veiöum 37 sjómílur noröur af
Rauöanúpi á Sléttu.
Siöan gerist þaö um klukkan
15.42, aö Ægir sker á afturvir
togarans Port Valve GY 484, en sá
togari var á veiöum 32 sjómilur
frá Rauöanúpi.
Hafstein Hafsteinsson, blaöa-
fulltrúi Landhelgisgæzlunnar,
sagöi i gærkvöldi, aö likur væru
taldar á, aö varöskip heföi
skoriöá forvirRoss Khartum GY
120 á svipuðum tima.
A svipuöum tima skar varö-
skipiö Óöinn á forvir brezka
togarans William Wilberforce GY
140, en hann var viö veiðar 40
milur noröaustur af Rauöanúp.
Þaö viröist ekki bera á ööru en
klippur varöskipanna hafi verið
vel brýndar þann tima, sem þær
voru úr notkun vegna ástandsins I
Vestmannaeyjum, en nú er búiö
aö klippa sundur vira 23 togara.
Þar af eru tuttugu brezkir, en hin-
ir v-þýzkir.