Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 6. marz, 1973.
TÍMINN
* 17
Indverjinn Kevin Keelan, markvörður Norwich, átti ekki möguleika að verja gott skot frá Coates, sem kom inn á sem varamaður fyrir Pratt.
LÉLEGUR ÚRSLITALEIKUR
Norwich lék varnarleik og oft mótti sjó 21 leikmenn á vallarhelmingi liðsins
Coates skoraði eina mark leiksins og var þá eins og leikmenn Norwich
vöknuðu við vondan draum
„ÉG SÁ SMUGU í
HORNINU NÆR” ...
sagði Ralph Coates, en
hann skoraði úrslita-
markið gegn Norwich í
deildarbikarúrslitunum
á Wembley, þegar
Tottenham vann 1:0.
Leikurinn var einhver
allra lélegasti úrslita-
leikur sem hefur farið
fram á Wembley fyrr og
siðar. Leikmenn Nor-
wich léku hreinan
varnarleik og það var
hörmulegt að vera á
áhorfendabekkjunum.
Það var ekki fyrr en
Coates skoraði markið,
að leikmenn Norwich
fóru að sækja. En það
hefðu þeir átt að gera
fyrr.
100 þús. áhorfendur sáu þennan
lélega bikarúrslitaleik, sem ein-
kenndist af varnarleik Norwich.
Allan fyrri hálfleik voru 21 leik-
maður á vallarhelming liösins,
erfitt fyrir leikmennina og enn
erfiöara fyrir áhorfendur. Fram-
lina Tottenham var léleg i leikn-
um og ætti Martin Chivers, ekki
að fá aukagreiðslu fyrir leikinn,
svo lélegur var þessi stóri og
sterki leikmaður. bað er kannski
ekki nema von, þvi að Duncan
Forbes, elti hann eins og skuggi.
Þá var Max Briggs eins og limt
frimerki á Martin Peters og Dave
Stringer, elti Gilzean eins og
fangavörður. Það var aðeins einn
leikmaður hjá Tottenham, sem
lék frábærlega, það var Perry-
men, sem hefur aldrei leikiö bet-
ur.
Úrslit leiksins voru mikill sigur
fyrir Billy Nicholson, sem hefur
fimm sinnum mætt með Totten-
ham á Wembley og alltaf hefur lið
hans sigrað.
,Good old
Arsenal' var
sungið af
áhorfendum
Sheff. Utd. réði ekki við Arsenal-liðið
BERTI MEE framkv. stjóri
Arsenal stóð i ströngu aðfaranótt
laugardags. Hann reyndi stöðugt
að fá leik Arsenal og Sheff. Utd.
frestað vegna veikinda sjö leik-
manna Arsenal, en enska knatt-
spyrnusambandið hafnaöi þess-
ari beiðni. Berti Mee varð því að
drifa þá John Radford, Ray
Kennedy og Eddie Kelly upp úr
rúminu og út á völl. Hinir fjórir
sem ekki gátu leikið vegna
meiðsla, voru þeir Peter Story,
Jeff Blockley, Peter Simpson og
Peter Marinello.
John Radford hafði t.d. legið i
rúminu frá þriðjudegi með inflú-
ensu og leið um leikvanginn eins
og svefngengill. Kennedy var
með kvef á föstudagsæfingunni og
Kelly var með svo mikla háls-
bólgu, að hann gat varla andað.
Þetta var nú ekki allt, — þvi að
þjálfari Arsenal, Frad Steet, var
lika með inflúensu og gat ekki
mætt til stuðnings leikmönnun-
um. Þrátt fyrir þessa miklu
sjúkrasögu, voru Arsenal menn of
góðir fyrir Sheff. Utd. Þökk sé
Charlie George.
1 upphafi leiks virtist allt ætla
að ganga á afturfótunum hjá
Arsenal. Leikmenn Sheff. Utd.
voru fljótari á boltann og spiluðu
mun betur, en Arsenal rétti smátt
og smátt úr kútnum og siðustu 15
min. leiksins var um einstefnu að
ræða af þeirra hálfu.
Alan Woodward gerði fyrsta
mark leiksins fyrir Sheff. Utd —
eftir varnarmistök McLintock og
Kelly. George jafnaði siðan 1:1
rétt fyrir hálfleik með þrumu-
skoti, en hann var eini Arsen-
al-leikmaðurinn, sem virtist vera
á lífi i fyrri hálfleik. Sheff. Utd.
tók siðan forustuna aftur á 64.
min. með marki frá Bone. En þá
kom að lokakafla Arsenal. Á 78.
min. reyndi svefngengillinn Rad-
ford að brjótast i gegnum vörnina
hjá Sheff. Utd. en það varð honum
um megn og hann datt og i fallinu
rak hann tána i boltann, sem rann
til George, sem sendi hann um-
svifalaust i netið 2:2. Þegar 5
min. voru til leiksloka, kom
sigurmarkið. Charlie George tók
frispark rétt utan við vitateig.
Hann lyfti knettinum út á vinstri
kantinn til Armstrong, sem gaf
góða fyrirgjöf fyrir markið.
Kennedy tók þar á móti tuðrunni
og skallaði fyrir fæturnar á Alan
Ball, sem ekki var lengi að þakka
fyrirsig og sendi knöttinn I netiö,
við geysifagnaðarlæti áhorfenda,
sem siðan sungu sig hása af
„Good Old Arsenal”.
• •'
Hér á myndinni sést Coates fagna marki sfnu. Hann var keyptur frá
Burnley á sinum tima fyrir 190 þús. pund.
Lélegur
leikur
Chelsea og Birming
ham áttu ekki skilið
að fá stig
ÞAÐ eiga að vera lög til um
marklausa jafnteflisleiki, eins og
þann er Chelsea og Birmingham
sýndu á laugardaginn. Hvorugt
liðiö átti að fá stig — en þau bæöi
að missa eitt í staöinn. Auk þess
ættu leikmennirnir að vera settir I
viku leikbann, svo lélegur var
leikurinn.
Birmingham kom ákveðið i að
halda jafntefli og það tókst án
erfiðleika. Einstaklingar Chelsea
voru svo einstaklega lélegir og
einnig saman sem lið, HöRMU-
LEGIR (svona getur þaö verið
Agúst).
Dave Sexton framkv. stjóri
Chelsea hefur nú sex þjálfunar-
daga og svo einn leik til að koma
liðinu saman I fyrra form, áður en
leikurinn í bikarnum gegn Arsen-
al verður. Til allrar hamingju
fyrir hann er erfitt fyrir Chelsea
að eiga annan eins leik, að
minnsta kosti ekki á þessari öld.
Chelsea átti aðeins eitt skot að
marki Birmingham, sem getur
kallazt þvi nafni i öllum leiknum.
Birmingham hefur nú greinilega,
hafið baráttu um lif sitt i 1. deild
— svo að varnarspil þeirra er nú
afsakanlegt. Með svolítilli út-
sjónarsemi hefðu leikmenn liðs-
ins, getað náð báðum stigunum.
Allan timann spiluðu leikmenn
1-9-1 kerfiö, með Bob Latchford,
sem fremsta mann. Það var sorg-
legt að sjá liðið, sem flengdi
Liverpool fyrir stuttu, leika þann-
ig knattspyrnu.
Stepney
brautásér
tvo fingur
MANCHESTER UNITED á I
miklum erfiðleikum núna þessa
dagana, við að reyna að halda sér
I deildinni. A laugardaginn varð
liðið fyrir óhappi sem getur orðið
örlagarikt. Alex Stepney, mark-
vörður liðsins braut á sér tvo
fingur i leiknum gegn West
Bromwich Albion.
Asa Hart-
ford til
United?
TOMMY DOCHERTY, fram-
kvæmdastjóri Manchester Unit-
ed, hefur nú á 2 mánuðum snarað
út yfir 500 þús. pundum 1 manna-
kaup og hann er ekki aldeilis
hættur. Hann hefur nú augastað á
2-3 leikmönnum til viöbótar og
vitað er að þeir kosta ekki undir
400 þús. pund.
Efstur á blaði er Asa Hartford
sem er ákveðinn miðvallarspilari
hjá WBA. Asa þessi er mjög um-
talaöur, því að Leeds var búið að
kaupa hann, en riti kaupunum, af
þvi að það kom f ljós að Asa var
með hjartagalla. Ekki sakar aö
geta þess aö hann er Skoti.
Tommy Docherty hefur nýlega
tekið sér ferð á hendur, gagngert
til að skoða aðra stjörnu, Tommy
Craig frá Sheff. Wed. og búast má
við tiðindum fljótlega, því að
kaup eru að renna úr gildi þetta
keppnistfmabil.