Tíminn - 06.03.1973, Side 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 6. marz, 1973.
Lögregla fær
liðsauka
Nú er lögreglan í London
aldeilis búin aö fá fint tæki. Þaö
er bill, sem búinn er sérstökum
lyftitækjum, sem nota má til
þess aö taka upp bila eöa önnur
farartæki, sem hefta umferö á
götum borgarinnar. A þremur
minútum getur lyftari þessi
tekiö upp hvaöa bil sem er, og
flutt hann I burtu. Lyftarinn
kostar 10 þús. pund, og væntir
lögreglan þess aö meö tilkomu
hans veröi hægt aö flytja i burtu
bila meö skjótum hætti, sem
stööva umferö á götum borgar-
innar, og veröi þetta til þess aö
auövelda alla umferö um
borgina.
Jesúítaprestum
fækkar
Franskir Jesúitar hafa kannaö
þaö, hversu margir prestar
ganga úr reglu þeirra. Hefur
komiö i ljós, aö þaö er aö meöal-
tali einn prestur á viku. Frá 1961
til 1970 hafa 1049 Jesúitaprestar
fariö fram á aö vera leystir
undan eiöi viö kirkjuna, og á
sama tima hafa einnig margir
þeir, sem I prestaskólana
ganga, hætt viö aö gerast
prestar, löngu áöur en aö prest
vigslunni kemur. Ariö 1966 voru
36 þúsund I reglunni, en nú eru
þeir aöeins 30.895. Ariö 1972
hættu alls 908 menn viö aö
gerast prestar. Þrátt fyrir þetta
er Jesúf tareglan fjölmennasta
kaþólska reglan, en hún var
stofnuö áriö 1540, og fór ekki aö
draga úr áhuga manna á henni
fyrr en um og eftir 1960.
Húseignir dýra
í Paris
Verölag á Ibúöum I París
hækkaöi um 10 til 12 prósent á
siöasta ári. Þessi hækkun er
þess valdandi, aö framfærslu-
kostnaöaur hefur hækkaö aö
meöaltali um 7% ef dæma má af
útreikningum rlkisstjórnar-
innar. Hækkun á ibúöarveröi fór
nokkuö eftir þvl hvar þær voru I
Parisarborg, þvi þar eins og
annars staöar eru hverfi
misjafnlega eftirsótt. Hækkunin
I Rueil-Malmaison og Saint-
Germain-en-Laye nam 15%.
Söluverð gamalla Ibúöa I góöu
ásigkomulagi er nú taliö vera
sem svarar 600 dollurum fyrir
hvern fermetra, eöa 60 þúsund
krónur. Leiga fyrir ibúöir I
París er venjulega um þrlr og
hálfur dollari eða um 350 kr. á
fermetra. Venjulegar Ibúöir —
fjögurra til fimm herbergja —
eru um 100 fermetrar, svo
leigan er þá 35000 kr.
Verndun fugla
í Frakklandi
á döfinni
Franska stjórnin hefur sett lög,
sem miöa aö þvl aö vernda fugla
þar I landi fyrir veiöimönnum.
Hefur veriö ákveöiö aö veiöi-
menn veröi aö taka sérstakt
próf áöur en þeir fá byssuleyfi á
sama hátt og þeir taka próf,
sem fá ökusklrteini. Þá hefur
veriö bannaö aö veiöimenn
gangi um meö labb-rabb-
stöðvar og geti þannig talað sig
saman um, hvernig bezt sé að
ná bráöinni. Einnig er bannaö
aö nota vélbáta viö veiöar á
vatnafuglum. Ráögert er aö
setja sérstakar reglur um friöun
fuglanna á vissum árstímum,
og aö lokum hefur veriö bönnuö
notkun neta við fuglaveiöar.
Ólánið eltir Romy
Romy Schneider hefur gengið
allt í haginn fram til þessa. Hún
er dóttir þekktrar leikkonu,
Magda Schneider, og snemma
fór hún aö leika sjálf. Hún hélt
áfram aö leika, eftir aö hún
stækkaði, og hefur nú unnið sér
heimsfrægö. Nýlega var hún
lögð á sjúkrahús, og læknar full-
yröa, aö hún sé hættulega veik.
Hún er meö einhvern lifrarsjúk-
dóm, og auk þess er hún með
blæðandi magasár. Auk alls
þessa hefur hjónaband hennar
og hins 48 ára gamla eigin-
manns hennar farið út um
þúfur, en maðurinn heitir Harry
Meyen. Ekki er kunnugt, hversu
lengi hjónabandið hefur veriö I
ólagi en þaö mun hafa gengið
heldur illa I alllangan tlma, þótt
þaö hafi ekki endanlega farið út
um þúfur fyrr en nú.
Vv~v
DENNI
DÆAAALAUSI
Ég ætla sko ekki oftar með þig i
dýragarðinn.