Tíminn - 06.03.1973, Síða 15
Þriöjudagur 6. marz, 1973.
TÍMINN
15
Umsjón: fllfreð Þorsteinsson
ÍR-ingar léku sér
að Víkingunum
Ágúst Svavarsson dtti stórleik þegar ÍR vann Víking 26:18
ÁGÚST SVAVARSSON,
hinn hávaxni leikmaður
ÍR átti stórleik, þegar
ÍR-Iiðið burstaði Viking
með átta marka mun á
sunnudagskvöldið. Hann
var búinn að skora
fjögur stórglæsileg
mörk með langskotum,
þegar Vikingar tóku
hann úr umferð i siðari-
hálfleik — þegar staðan
var 21:15 fyrir ÍR hættu
Vikingar að elta Ágúst.
Þeir fóru að leika með
tvo menn til að húkka
knöttinn. Við þetta
losnaði aftur um Ágúst,
sem skoraði tvö góð
mörk i röð. Leikur
iiðanna var frekar jafn
til að byrja með, en
fljótlega i byrjun siðari
hálfleiks náðu íR-ingar
tveggja marka forskoti
og þegar leið á leikinn,
fóru þeir að siga hægt og
rólega fram úr.
ÍR-liöið var nú óþekkjanlegt frá
leiknum gegn Haukum, leikmenn
liösins léku oft skemmtilega og
þeir þurftu ekki annað en að hitta
markið, þá lá knötturinn i netinu.
Þetta fór greinilega i taugarnar á
lélegum markvöröum Vikings-
liðsins og um miðjan siðari hálf-
leik yfirgaf annar markvörður-
inn Laugardalshöllina i fússi og
sagöi um leið og hann fór — ,,Það
er ekki hægt að horfa upp á þessi
dómarafifl”. Dómarar leiksins,
þeir Haukur Hallsson og Kristó-
fer Magnússon, dæmdu eins og
þeir geta bezt dæmt — það er
óskiljanlegt, að þessir menn fái
að hafa flautu uppi i sér.
Framhald á bls. 19
Sigfús Guðmundsson, Vlking, sést hér skora af lfnu i leiknum gegn 1R. Einar Magnússon (4) gaf á
Sigfús. En Einar skoraði sex mörk i leiknum, einnig átti hann fimm iinusendingar, sem gáfu mörk.
(Tfmamynd Róbert).
Heppnissigur Fram
gegn Ármanni
Framarar nóðu tveggja marka forskoti, þegar Ármenningar
voru aðeins fimm innó
F RAMARAR geta svo
sannarlega hrósað happi,
að hafa farið með bæði
stigin í viðureigninni við
Ármann, þegar liðin léku i
Islandsmótinu í handknatt-
leik á sunnudagskvöldið.
Ármannsliðiö sem hefur
farið mikið fram í vetur,
stóð i Islandsmeisturunum
og hélt jöfnu og með eitt
mark yfir 15:14 þegar 10
min. voru til leiksloka. En
þá var þeim Herði Kristins-
syni og Vilberg Sigtryggs-
syni visað af leikvelli i 2
mín. Þá tókst Fram að
jafna 15:15 og bæta við
tveimur mörkum. Þegar
nokkrar sek. voru til leiks-
loka stóð 17:16 fvrir Fram.
Þá átti Björn Jóhannsson
gott skot, sem lenti í stöng
Frammarksins.
Armann komst yfir i byrjun
leiksins 3:1. Þegar fyrri hálf-
leikurinn var hálfnaður tókst
Fram að jafna 5:5 og siöan mátti
sjá tölur eins og 6:6, 7:7, 8:8, 9:9,
og 10:10. Ármann skoraði svo tvö
mörk og komst yfir 12:10 i hálf-
leik.
Armann var svo nær alltaf yfir i
siöari hálfleiknum og þegar 14
min. voru til leiksloka skoraði Jón
Astvaldsson 15:14. En þá var
þeim Herði og Vilberg visað af
leikvelli. Axel Axelsson jafnar
15:15. og Pétur Jóhannsson
kemur Fram yfir 16:15. Siðan
bætir Björgvin Björgvinsson viö
17:15.
Siðustu minútur leiksins voru
spennandi, en heppnin var ekki
með Armanni, þvi að Vilberg lét
Þorstein verja frá sér viti. Þegar
ein min. var til leiksloka skorar
Guömundur Sigurbjörnsson
mark fyrir Armann og þegar fáar
sek. voru til leiksloka söng knött-
urinn i stönginni hjá Fram.
Ármanni tókst ekki að jafna og
lauk þvi leiknum með sigri Fram
17:16. Sannkallaður heppnisigur.
Ingólfur óskarsson kom
skemmtilega á óvart i leiknum,
hann skoraöi fimm lagleg mörk
með sinum gömlu og góðu lang-
skotum, og eitt úr vitakasti. Aðrir
sem skoruðu fyrir Fram voru:
Björgvin 4, Axel og Pétur tvö
hvor, Andrés, Guðmundur
Sveinsson og Sigurbergur eitt
hver.
Fyrir Armann skoruöu:
Vilberg 6(3 viti), Guðmundur og
Björn, þrjú hvor, Ragnar 2, Jón
og Hörður eitt hvor.
Karl Jóhannsson og Björn
Kristjánsson dæmdu leikinn
ágætlega.
Fram stöðvaði
sigurgöngu
Víkings
Leikurinn var daufur og tilþrifalítill
Fram stöövaði sigurgöngu Vik-
ings I islandsmótinu I handknatt-
leik kvenna á sunnudaginn, þegar
liöin mættust I l.augardalshöll-
inni. Leikurinn var frekar daufur
og tilþrifaHtill. Hann var jafn
framan af, það var ckki fyrr en
um miöjan sfðari hálfleik, aö
Fram náöitveggja marka forustu
7:5. — Leiknum lauk meö sigri
Fram 8:6.
Fyrsta mark leiksins var lengi
á leiðinni, það var ekki fyrr en á
13. min., að Helga Magnúsdóttir
kom knettinum i netið hjá Viking,
og á 17. min skorar svo Arnþrúð-
ur Karlsdóttir, 2:0, fyrir Fram.
Fyrsta mark Vikings kom svo á
21. min. — Agnes Bragadóttir
skoraði Ur vitakasti og minútu
siðar jafnaði hún 2:2, einnig Ur
vitakasti. Staöan i hálfleik var
3:3.
I siðari hálfleik mátti sjá á
markatöflunni 4:4 og 5:5. Kristin
Orradóttir skorar þá 6:5 og
Arnþrúður bætir við 7:5 fyrir
Fram. Leiknum lauk meö sigri
Fram 8:6.
Mörkin i leiknum skoruðu:
FRAM: Arnþrúður 4, Kristin,
Helga, Halldóra og Guðrún eitt
hver.
VÍKINGUR: Agnes 4, Guðrún
Helgadóttir og Ragnheiður eitt
hvor. —SOS.
Valur vann KR
léttilega 16:10
KR-stúlkurnar byrjuðu vel, en svo
söguna meir
Valsstúlkurnar áttu ekki I
vandræðum meö KR, þegar liöin
mættust á sunnudaginn i 1. deild-
arkeppninni í handknattleik.
KR-stúikurnar byrjuöu vel, eins
og þær gera alltaf, en þaö er ekki
nóg aö byrja vel og missa svo allt
niður, eins og þær hafa gert i leij-
um sínum i islands mótinu.
KR-liöiö á viö vandamál aö striöa
— i liöinu eru margar góöar stúlk-
ur, en þaö fæst litiö úr þeim, þvi
að þær gera mest af þvi aö
flækjast hver fyrir annarri.
Svala Sigtryggsdóttir, bezta
stúlkan hjá Val, skoraði fyrsta
mark leiksins. KR-stúlkurnar
ekki
svöruðu með þremur mörkum og
breyttu stöðunni i 3:1. Þá jafnaði
Svala með tveimur góðum mörk-
um og Björg Jónsdóttir kom Val
yfir 4:3. Staðan i hálfleik var 7:5
fyrir Val.
Valur skoraöi svo fyrstu þrjú
mörkin i siöari hálfleik og náðu
10:5. Eftir það var enginn vafi á
þvi, hvaða liðið mundi vinna.
Le'.kjum lauk með sigri Vals
16:10. Mörkin i leiknum skoruðu:
Valur: Svala 7, Björg J. 3,
Björg G. 2, Sigurjóna 2, Hildur og
Jóna Dóra, eitt hvor.
KR: Hjördis 6, Emilia 2, Soffia
og Helga, eitt hvor . — SOS.
Ármann komst
af botninum
Nú könnuðust menn við Ármannsliðið
Ármann komst af botninum
með þvi aö sigra Breiöablik I
fremur lélegum leik I 1. dcild
kvenna I llafnarfiröi á sunnu-
dagskvöld. Þessi Ieikur var mjög
þýðingarmikill fyrir bæöi liö, þvi
að áður en lcikurinn byrjaöi voru
bæði liðin á hotninum meö tvö
stig.
Armann byrjaði vel og tók for-
ustuna strax meö góðu marki,
sem Ágústa skoraði, en Breiða-
blik jafnaði rétt á eftir. Þegar á
leikinn leið, tók Armann leikinn i
sinar hendur og þegar fyrri hálf-
leik lauk höföu Armannsstúlkurn-
ar yfir, 10:3.
1 siðari hálfleik barðisi Breiða-
blik og tókst að láta stööuna I 12:6
en þótt þær hafi barizt og tekið
eina Ur umferð, dugöi það þeim
ekki til að jafna, og Armann vann
með yfirburðum 15:8.
Fyrir Ármann skoruðu: Guð-
rún 4, Erla 4, Katrin 3, Sigriöur 2
og Agústa 1.
Fyrir Breiðablik skoruðu: Alda
6, Knstin 2. —GKK.
SLO NIÐUR
DÓMARANN
Sá leiðinlegi atburður átti sér
staðþegar Verzlunarskóli Islands
og Menntaskólinn i Reykjavik
voru aö keppa i skólamóti i knatt-
spyrnu að einum af leikmönnum
Vi og markverði MR lenti saman,
og varö þá leikmaður VI vond-'
ur og sló markvörö MR i
magann. Eftir slikt tilfelli
hefði hvaða dómari sem er
rekið þennan leikmann út af og
gerði dómari þessa leiks það, en
þá sló leikmaðurinn dómarann i
andlitið og hálf rotaði hann.
Leikmaðurinn sem sló dómar-
ann er leikmaður i 1. deild og er
spurningin sú, hvort þessi leik-
maður verði ekki dæmdur
I keppnisbann i sumar.