Tíminn - 25.03.1973, Blaðsíða 18

Tíminn - 25.03.1973, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Sunnudagur 25. marz. 1973 Menn og málofni Margt er í ólestri í Tryggingastofnunni Tryggingastofnun rlkisins viö Laugaveg. Tryggingaráðuneytiö fól hag- ræöingarfyrirtækinu Hagvangi h.f. á sl. ári að gera úttekt á rekstri Tryggingastofnunar rikisins og tillögur um úrbætur I rekstri er miöað aö þvi að halda kostnaöi I lágmarki jafnframt þvi, sem þjónusta stofnunarinnar við almenning yröi aukin og bætt. Hagvangur h.f. hefur nú sent frá sér þessa álitsgerð, em er itarlegt og athyglisvert plagg. Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið hefur nú sent fjölmiðlum, alþingismönnum og fl. þessa skýrslu, sem geymir fjöldann allan af upplýsingum um þá stað- reynd, að reksturinn hefur verið i hinum mesta ólestri og brýn þörf skjótra umbóta. t stuttu máli eru tillögur þær til úrbóta, sem Hagvangur h.f. leggur til þessar: Breytt greiðslukerfi sparar 10 milljónir króna a) Lagt er til, aö Trygginga- stofnun rikisins auöveldi þeim, scm rétt eiga til bóta, aögang aö rétti sinum, t.d. meö bóta- greiöslum án umsóknar, þar sem þvi veröur viö komiö, eöa skipu- lagsbundinni leit aö réttarhöfum. b) Lagt er til, aö greiöslufyrir- komulagi Tryggingastofnunar veröi gjörbreytt. Greiösludeild veröi lögö niöur og þau verkefni, scm afgangs yröu vegna breyt- inganna, væru lögö undir gjald- kera stofnunurinnar. 1 staö nú- verandi greiöslufyrirkomulags væru allar greiöslur sendar til bótaþega, annaö hvort meö giró- seöli eöa i gegnum bankakerfiö. Þessi tilhögun yröi i fyrsta lagi mun þægilegri en nú er og ódýrari aö auki. Sá kostnaöar- munur, sem af breytingunni hlytist, gæri oröiö allt aö 10 milljónum kr. á ári, ef vel er á haldiö. Jafnframt er eindregiö mælt meö, aö öll úrvinnslu- og greiöslufyrirmæli veröi unnin meö aöstoö tölvu, I staö handafls, eins og nú er. c) Lagt er til, aö núverandi spjaldskrárkerfi Tryggingastofn- unar veröi sett á tölvu og tengt þjóöskrá og skattskrá. Þessi til- högun ætti t.d. aö draga mjög úr vinnuaflsþörf lifeyrisdeildar og gera spjaldskrá stofnunarinnar aö mun þjália gagni viö áætlana- gerö stofnunarinnar og annarra opinberra aöila (Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Framkvæmda- stofnun o.fl.). d) Lagt er til, aö veröbréfaskrá sjóöa I vörzlu Tryggingastofn- unarinnar veröi sett á tölvu og unnin vélrænt I staö núverandi handfærslna. Slik vélvæöing skapar aukiö öryggi og gerir stofnuninni fært aö mæta fyrir- sjáanlegri aukningu I útlánum án verulegs kostnaöar. Enn fremur er lagt til, aö bókhald sjóöa veröi sett á tölvu. e) Lagt er til, aö verkefnasvið almannatrygginga og sjóöa veröi algcrlega aöskilin innan Trygg- ingarstofnunar rlkisins og ráöinn sérstakur forstööumaöur sjóöanna. Myndi þessi breyting tryggja öruggari yfirsýn viö stjórn stofnunarinnar, traustara eftirlit meö rckstrinum og stuöla aö hagkvæmari verkaskiptingu innan deilda stofnunarinnar. Einnig er bent á hina sérstöku staðsetningu endurskoöunar- deildar I skipulagi stofnunar- innar. f) Lagt er til, að dregiö sé úr nú- verandi stjórnspönn forstjóra þ.e. aö hann hafi minni bein afskipti af undirmönnum sinum en nú er. Gert er ráö fyrir, aö forstööu- maöur sjóöanna og skrifstofu- stjóri taki á sig hluta af starfi for- stjóra. Slfk tilfærsla mun gefa forstjóra aukiö tóm til aö sinna öörum mikilvægari verkefnum. g) Lagt er til, að starfsmanna- málum Try ggingastofnunar veröi sýnd meiri rækt en veriö hefur t.d. aukin þjálfum starfs- fólks, aukiö eftirlit meö fjar- vistum og yfirvinnu. Ber aö álita aö slik breyting stuöli aö bættum vinnuafköstum, þegarlitiöer yfir lengra tlmabil og lækki rekstrar- kostnaö stofnunarinnar. h) Lagt er eindrcgið til, aö Tryggingastofnun rfkisins veröi gert aö hafa öll sin viöskipti og viöskipti sjóöa I hennar vörzlu á einum staö — hjá Seölabanka tslands. Slikt fyrirkomulag ætti að tryggja mun meiri vaxtatekjur en nú er. Auknar vaxtatekjur munu vafalaust nema milljónum króna árlega. i) Lagt er til aö lokum, aö aörar en þó veigaminni breytingar eigi sér staö. Bætt sfmaþjónusta, skýrari merking deilda og staö- setning þeirra eru hér nefnd sem dæmi. Ennfremur er talin brýn þörf á aö hanna umsóknareyöu- blöö um bætur aö nýju og dreifa þeim I fleiri staöi. Lagt er til, aö eftirvinna viö endurskoöun á vegum Rikisendurskoöunar veröi lögö niöur og ennfremur, aö inn- færsla vaxta og afborgana á skuldabréfi I vörzlu stofnunar- innar hverfi meö öllu. Þessir tveir siöastnefndu liöir kostuöu Trygg- ingastofnunina aö likindum um hálfa milljón króna á árinu 1971 í skýrslu Hagvangs h.f. úir og grúir af upplýsingum um óhæft skipulag og litt þjálfað starfsfólk, sem sumt er bert aö hneykslan- legri óstundvisi, sem þó kemur ekki fram i launaumslaginu, sem skerðing á launum, heldur þvert á móti sem sérstök launauppbót i sumum tilvikum, eins og t.d. deildarstjórinn, sem mætti svo illa til vinnu að nam 3.4 vinnu- vikum á sama timabili og hann fékk hálfa milljón króna i laun fyrir yfirvinnu. Það, sem þó telja verður alvarlegast við þetta allt, er að þetta kraðak, þessi svik- semi og gallaða skipulag i fjár- reiðum, bókhaldi og endur- skoðun, sem greint er frá, fær daglegan stimpil frá tveimur deildarstjórum i Rikisendur- skoðuninni, sem aldrei gera neinar meiriháttar athugasemdir að þvi að vitað er, en hafa það sem sérstakan bitling að leggja blessun sina yfir þetta. Skal nokkuð vikið aö þeim þætti máls- ins siðar, en hann gefur vissulega tiiefni til að ætla, að það sé mikið hagsmunamál Islenzkra skatt- borgara, að viöar sé drepið niður hendi meö svipuðum hætti og hér hefur verið gert I Tryggingastofn- un rikisins. Nokkur sýnishorn Hér fara á eftir nokkrar glefsur úr skýrslu Hagvangs um ein- stakar deildir Tryggingastofn- unarinnar, sem gefa lesendum nokkra hugmynd um ástandið: sem deildarstjórar Rikisendur- skoðunarinnar töldu harla gott: t kaflanum um verkefni skrif- stofustjóra segir m.a.: „Vert er að lokum að minnast á sérstætt verkefni sem skrifstofu- stjóra er falið, og það er mánaðarleg reikningsskil um- boðsmanna. betta verkefni, sem er eins konar viöskiptamanna- bókhald vegna umboðsmanna, er hreint bókhaldsverkefni og óskiljanlegt, að það sé ekki sam- einaö bókhaldi. Mætti ætla, að sú staðreynd, að bókhald hefur tekið á móti greiðslubeiðnum umboðs- manna og sendir fyrirmæli um greiðslur til þeirra gjaldkera, ætti að hafa gert flutning verkefnis þessa mun brýnni”. Lífeyrisdeild I athugasemdum um starfsemi lifeyrisdeildar segir: „Drepiö var á hér aö framan, hve óþjál og timafrek færsla spjald- skrár lifeyrisdeildar væri. Virðist þessum þætti starfseminnar mjög ábótavant. Spjaldskráin i sinu núverandi formi kallar á miklar sveiflur i vinnuaflsþörf og hlýzt geysileg yfirvinna af þeim sökum. Spjaldskrár eru nú þannig unnar, að óhófiega tima- frekt er að fá heildstæðar upp- lýsingar á grundvelli þeirra. Starfsmannahald deildarinnar virðist laust i reipum, sem m.a. má rekja til ofangreinds spjald- skrárverkefnis. Verkaskipting deildar virðist nokkuð á reiki og yfirvinna er langt úr hófi fram. Má t.d. geta þess, að yfirvinna fyrstu 10 mánuði ársins 1972 nám kr. 1.634.063: - eða um '30% af vinnslukostnaði deildarinnar. Er þá sleppt tveim mestu yfirvinnu- mánuðum i lffeyrisdeild, nó- vember og desember. Vert er að geta þess að lokum, að utanaðkomandi vex mjög I augum öll sú endurskoðun, sem fer fram innan deildarinnar. Komið hefur hins vegar fram i endurskoðunardeild, sem endur- skoðar aö visu hluta þess, sem lif- eyrisdeild vinnur, aömikið sé um villur frá þeim, sem þar vinna. Mun eftirvinna eiga sinn þátt i lélegum vinnubrögðum i lifeyris- deild” Sjúkra- tryggingadeild Um starfsemi sjúkratrygginga- deildar segir m.a.: „Bókhald sjúkratrygginga- deiidar endurspeglar mjög hið flókna kerfi, sem lýst var hér að ofan. Allt er handfært, sundur- liðun er geysileg og sífellt er veriö að umfæra upprunalegar upp- iýsingar. Núverandi ástand virðistþvikalla mjög á vélfærslu, þannig, að tölvu veröi beitt. Bæta má þvi við, að verulegur hluti þeirra upplýsinga, sem verið er að handfæra i sjúkratrygginga- deild, hafa þegar verið gataðar inn á spjöld hjá Rikisspitölum og mætti eölilega notast við þá vinnu. Nú eru tölvuútskrifaðir reikningar yfirfarnir I sjúkra- tryggingadeild á sama hátt og aðrir reikningar. bað vekur athygli við skoðun spjaldskrárkerfis sjúkratrygg- ingadeildar, aö spjöld falla þar ekki út viö andlát manna. Gefur auga leið, hvaða afleiðingar það hefur á vinnuálagið i deildinni. Reikningar þeir, sem greiddir eru læknum, lyfjabúðum og spitölum eru endurskoðaöir af sjúkratryggingadeild. Endur- skoðun þessi nær einungis yfir samlagningaratriði en ekki, hvort reikningsfærð þjónusta hafi verið veitt”. Bankareikningar Um fjárreiður, bankaviðskipti og skipulag þeirra segir m.a.: „Óhagræði er mikið af þvi, hve reikningar Tryggingastofnunar eru dreifðir, en Tryggingastofnun mun hafa talsverðar upphæðir á reikning hjá öllum bönkum Reykjavikur og nokkrum spari- sjóðum — einnig úti á landi (34 reikningar. Reikningar umboða ótaldir). Þessi dreifing er til mikils óhagræðis fyrir stofn- unina. ógerningur hefur reynzt að nota vélar við ritun ávisana vegna mismunandi stærðar ávisanahefta. Vinna við uppgjör og bankaviðskipti magfaldast og verulegt vaxtatap mun hafa orðið vegna þessa einstæða fyrirkomu lags. Vaxtakjör þau, sem Trygg- ingastofnun nýtur hjá Seðalbanka eru dagvextir um 8%. Aðrir reikningar munu vera hlaupa- reikningar (sem hafa 3% vexti af lægstu innistæðu, reiknaðir á 10 daga fresti) 0g aðrir reikn- ingar, sem gefa óhagstæðari vexti. Vaxtatap það, sem um er að ræða mun nema mörgum miiljónum á ári. Þáttur 2ja deildarstjóra Ríkisendur- skoðunar Hér hafa verið gefin nokkur sýnishorn úr skýrslunni. í þætt- inum „Á viðavangi” hér í blaðinu á föstudag var greint frá hinni miklu yfirvinnu viö stofnunina samfara fáheyrðri óstundvisi sumra starfsmanna og skal hér visað til þess. Yfir þetta allt voru færðar skýrslur, en þær voru ekki notaðar við launaútreikninga. Þær voru þó vissulega til, og að þeim höfðu deildarstjórar Rikis- endurskoðunar aðgang i hinni „daglegu endurskoöun” sinni i „yfirvinnu” — og höfðu ekkert við að athuga. í þessu sambandi er ástæöa til þess að benda á, að þau mál, sem Tryggingastofnun rikisins fjallar um, vega mjög þungt i rikisút- gjöldunum eða um 25-30%, auk mjög umfangsmikilla verðbréfa- viðskipta. En þrátt fyrir það virðast þessir deildarstjórar Rikisendurskoðunar ekki hafa tekið starf sitt mjög hátiðlega, þótt þeim hafi verið greitt riflega fyrir það aukreitis. bað var ekki mikil von til þess að drægi mjög úr ólestrinum i Tryggingastofnun rikisins meðan yfirmenn þar fengu daglega stimpil athuga- semdalaust á allt kraðakið i stofnuninni. Þessari úttekt i Tryggingastofnunni þarf að fylgja eftir bæði þar og annars staðar. —TK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.