Tíminn - 25.03.1973, Blaðsíða 34
34
TÍMINN
Sunnudagur 25. marz. 1973
BliWIJffffri t
ifl
.1.
Svanirnir sex
Framhald
um hana kápu sinni, setti
hana fyrir framan sig á
hestinn og reið með hana
heim til hallar sinnar. Þar
lét hann færa hana í
dýrindis klæði og þar Ijóm-
aði hún eins og dagurinn,
svo fögur var hún, en eng-
inn fékk hana til að mæla
orð frá munni. Hann lét
hana vera hið næsta sér við
borðið og honum líkaði svo
vel, hve hún var siðlát og
háttprúð, að hann sagði:
,,Ég vil eiga hana og
enga aðra í veröldinni", og
nokkrum dögum siðar hélt
hann brúðkaup sitt með
henni.
Konungur þessi átti
slæma móður, hún var
óánægð með ráðahag
þennan og talaði ætíð illa
um ungu drottninguna.
,,Hver veit hver hún
er?", sagði hún, ,,ekki get-
ur hún talað og er algjör-
lega óverðug þess að vera
drottning ."
Þegar ár var liðið og
drottning átti fyrsta barn
sitt, þá tók drottningin
gamla það frá henni og neri
blóði um munninn á henni
meðan hún svaf. Síðan
gekk hún inn til konungs og
sagði að hún væri mann-
æta.
Konungur vildi samt ekki
leggja trúnað á þetta og
þoldi ekki að drottningu
sinni væri skapraunað. Hún
sat stöðugt og saumaði
skyrtur sínar og skipti sér
En áður en við er litið, er kvikindið búið að rétta út
klærnar á ný
En skot Hvells i mark.
ekki af neinu öðru. En er
hún ól Ijómandi fallegan
svein öðru sinni, þá fór
tengdamóðir hennar eins
að og áður, en konungur
trúði ekki áburði hennar.
,,Hún er allt of guðhrædd
til að hafa gert annað
eins", sagði hann, /,og ef
hún hefði ekki verið mál-
laus og ef hún gæti talað
fyrirsig, þá myndi sakleysi
hennar koma í Ijós".
En er kerlingin rændi
hana barninu i þriðja sinn
og bar á hana sömu sakir
og hún gat ekkert sagt, þá
neyddist konungur til að fá
hana í hendur dómstól-
unum og hún var dæmd til
að brennast lifandi.
Þegar dagur sá kom, er
dómnum skyldi fullnægja,
voru einmitt þau sex ár
liðin, sem hún hvorki mátti
tala eða hlæja og nú hafði
hún frelsað bræður sína sex
úr álögunum. Skyrturnar
sex voru nú búnar, nema
hvað vinstri' ermina
vantaði á þá seinustu.
Þegar hún var færð á bál-
köstinn hélt hún á skyrtun-
um á handlegg sér, og er
hún stóð þar og byrjað var
að kveikja bálið leit hún
allt í kringum sig, þá komu
6 svanir fljúgandi. Nú sá
hún að frelsun hennar var í
nánd, og hjarta hennar sló
hátt af gleði. Svanirnir
komu í hendingskasti og
settust í kringum hana og
hún kastaði skyrtunum yfir
þá, en er þær komu við þá
féllu af þeim svanagervin
og bræðurnir stóðu þar fyrir
framan hana heilir og
frjálsir, en yngsta bróður-
inn vantaði vinstri hand-
legginn, þar var svana-
vængur í staðinn.
Þeir föðmuðu hana og
drottningin fórtil konungs-
ins er stóð þar orðlaus og
undrun og hún hóf máls og
sagði: Elskulegi eigin-
maður! Nú má ég tala og
get skýrt frá því að ég er
alveg saklausog höfð fyrir
rangri sök. Síðan sagði hún
frá falsi kerlingar og
hvernig hún hafði tekið
burt börnin þrjú og falið
þau. Þau voru þá sótt kon-
ungi til mikillar gleði, en
hin slæma tengdamóðir var
sett á bálið og brennd til
ösku í.hegningarskyni.
En konungurog drottning
og bræðurnir 6 lifðu lengi
eftir það, glöð og ánægð og
lýkur svo þessari sögu.
bekkir
til sölu. — Hagstætt verö.
Sendi i kröfu, ef óskað er. I
J Upplýsingar aö öldugötu 33 j
^ simi 1-94-07. ^