Tíminn - 25.03.1973, Síða 23
Sunnudagur 25. marz. 1973
TÍMINN
23
Christina
Svía-
prinsessa
bíður með að gifta sig,
vegna bróður síns
Christina Sviaprinsessa kemur viða fram fyrir hönd iands sfns, og hér er hún f sænskri sýningadeild á
sýningu I New York.
Hún er gáfuð,
aðlaðandi og skjót til
svara. Hún er glaðlynd,
og henni likar vel við
menn, sem eru glað-
lyndir, og það er ekki
sizt ástæðan fyrir þvi,
hversvegna Christina
Sviaprinsessa hefur
valið Tord Magnússon.
En hversvegna giftir
hún sig ekki? Hún er
komin á giftingaraldur,
og hefur hlotið menntun
og reynslu. Nei,
konungsrikið þarfnast
sinnar æðstu konu. Það
er siður hjá hirðinni, að
bróðirinn gifti sig fyrst,
áður en hún stofnar
heimili. Hún er sú, sem
bezt getur aðstoðað
hann, á meðan hún er
ógift — og aðstoðar
þarfnast hann. svo
sannarlega.
Eitt sinn var svohljóðandi
spurning lögð fyrir Carl Giistaf
Sviaprins. Hve lengi mun sænska
hirðin halda velli. Svar hans var:
Eins lengi og hiröin sér um að
auglýsa sig. — Og það gerir hún.
Sænska hirðin er ekki aðeins
góð auglýsing fyrir sjálfa
sig.heldur fyrir Sviþjóð i heild.
Þetta á ekki hvaö sizt viö um hina
nýju æðstu konu Sviþjóðar,
Christinu prinsessu, þvi að það
hefur sýnt sig, að hún er góöur
sendiherra lands sins. Það er al-
mannarómur að heimsókn
hennar til Bandarikjanna hafi
verið upphafið i kynningarstarf-
semi hennar, og vel peninganna
virði.
En hver er hún þessi prins
essa, sem á dögunum gaf 20
þúsund krónur til Vestmanna-
eyjasöfnunarinnar I Sviþjóð?,
Christina prinsessa er yngst af
Haga prinsessunum, sem eitt sinn
voru frægar, og hún er í raun og
veru eina konan í hirðinni. Tvær
systur hennar eru ekki
giftar konungbornum eigin-
mönnum, en sú þriðja, sem gift er
prinsinum af Hohenzollern, býr i
Miinchen i Þýzkalandi, og telst
þvi til hiröarinnar. Christina
prinsessa, sem er 29 ára gömul,
hefur alla hæfileika til að bera, til
að koma fram fyrir hirðarinnar
hönd. Hún er sérstakur persónu-
leiki, gáfuð, skjót til svara, og býr
yfir miklum töfrum. Hún er
frjálsleg og alþýöleg en þegar
hún ber gimsteina og hermelfns
'kápur, fær hún hallarþjónana til
að tárast af aödáun og hjörtu
ungu mannanna fara að slá
hraðar. Hún á það sameiginlegt
með gamla konunginum að vera
vinsæl meðal fólksins.
Þegar Christina prinsessa fer i
göngutúra um Djurgárden í
Stokkhólmi, i sportlegu „buxna-
dressi,” með litrikan klút á höfði
og stór kringlótt sólgleraugu,
segir hún, aö það komi oft fyrir,
að ókunnugt fólk veifi til hennar.
Þá brosir hún og veifar á móti.
Það er engin vafi á þvl, að eigin-
leikar prinsessunnar til aö sam-
eina alþýðleik fólksins og virðu -
leik konungsfjölskyldunnar,
hefur skapað henni þær miklu
vinsældir, sem hún nýtur.
Eitt sinn gengu miklar trú-
lofunarsögur um prinsessuna, en
söguburðurinn hætti, þegar fólk
varð þess visara, að hún haföi
fundið þann eina rétta. Sá útvaldi
er ekki af konungsættum heldur
ungur , viðfelldinn og duglegur
verzlunarmaður, Tord Magnús-
son. Ætt hans hefur um marga
mannsaldra tilheyrt sænska
„iðnaðaraðlinum” svokallaða
Allir, sem þekkja Tord, bera
honum vel sögu og bæta gjarnan
við: Hann hefur mjög gott skop-
skyn, og það er mikilvægt þegar
Christina prinsessa á i hlut.
— Ég fell fyrir mönnum með gott
skopskyn hefur Christina sagt.
Um ást milli tveggja segir hún:
— Ytri umgjörö ástarsambands
karls og konu ætti ekki að skipta
neinu máli. Mikilvægast er að þau
elski hvort annað, og þau sýni
hvort öðru umhyggju og tillits-
semi, og að þau beri viröingu
hvort fyrir öðru.
Christina prinsessa hefur alltaf
veriö sjálfstæðust af Haga prin-
sessunum, og sú eina þeirra, sem
fékk þvi framgengt, að hún þyrfti
ekki aö „búa heima”, þvi hún
fékk sina eigin „piparsveina”
Ibúö i konungshöllinni i Stokk-
hólmi. Hún er þaö sjálfstæð, að
hún skipuleggur lif sitt og starf
eftir eigin höfði. En hversvegna
giftir hún sig þá ekki?
Svarið hlýtur að vera — svo
framarlega, sem hún hefur hitt
þann eina rétta — systurleg um-
hyggja fyrir bróður sinum Carli
Gústaf kro'nprins, en þau hafa
ætiö verið samrýmd. Bróöir
hennar hefur aldrei haft meiri
þörf fyrir hana en einmitt um
þessar mundir, þegar hann axlar
konungsskyldurnar I stööugt
rikari mæli. Ef hún giftir sig
manni af borgaralegum ættum,
getur hún ekki aðstoöað bróður
sinn i eins rikum mæli og nú, ef
hún þá getur nokkuð oröið honum
aö liöi við hinar konunglegu
skyldur áöur en hann giftir sig.
Konungsrikiö krefst „æöstu
konu”, og þeirri stöðu getur hún
ekki gegnt eftir borgaralega
giftingu.
Hin unga og lifsglaða prinsessa
hefur beygt sig fyrir kröfum
skyldunnar. Hún beygir sig sjálf-
viljug og segir: — Sé ég
prinsessa, þá er ég það. Siðan
bætir hún hljóðlega við: — En i
ástinni erum við öll á sama báti.
(Þýtt KJ)
If [
ibi^fp • .Æ
Carl-Gústav krónprins, þarf eins og aörir prinsar aö kynnast mörgu áður en hann sezt i hásætið. Hér er
hann I heimsókn hjá sænska flughernum.albúinn til flugs i orrustuþotu.
Bœndur
(ÍlS)
Kast-
dreifarinn
fyrir
vorið
GERID PÖNTUN TÍAAANLEGA
Fyrsta sending væntanleg bróðlega
Globusa
LÁGMÚLI 5. SlMI 81555
ff Bílaperur — Fjölbreytt úrval
„Asymmetriskar’
framljósaperur
Pulsuperur
„Halogen”
framljósaperur.
Perur
i mælaborðl
'o.fl.
I „Duolux” ■ T’ycgR.Í3
framljósaperur ■ póla perur
Heildsala — Smásala
r
ARAAULA 7 - SIMI 84450