Tíminn - 04.04.1973, Síða 3

Tíminn - 04.04.1973, Síða 3
Miðvikudagur 4. april. 1973 TÍMINN 3 Frá aðalfundi Iðnaðarbankans, sem haldinn var sl. laugardag að Hótel Loftleiðum. Formaður bankaráðs Iðnaðarbankans vill athuga Vísitölubindingu á innlánum og útlánum Fundur um nafna- birtingar LÖGFRÆÐINGAFELAG tslands heldur almennan félags- fund að Hótel Sögu (Lækjar- hvammi) i kvöld, miðvikudaginn 4. apríl, kl. 20.30. Þórður Björns- son, yfirsakadómari, mun flytja þar framsöguerindi, sem fjallar um samskipti dómstóla og fjöl- miðla. Stjórn Blaðamannafélags tslands hefur verið boðið á fund- inn. Segja má, að hér sé tekið til um- ræðu eilift deilumál, sem vekur margar spurningar, t.d.: Hvenær og hvernig eiga fjölmiðlar að segja frá þvi, sem gerist fyrir dómstólunum? Hvenær á að birta nafn sakamanns? Hver á að ráða þvi? Fleiri spurningar má einnig nefna. AAaðurinn enn ófundinn Þó. Reykjavik. — Sjómaðurinn, sem týndist i Vestmannaeyjum, á föstudag, var enn ókominn fram i gær. Maðurinn var skipverji á Sæunni VE og heitir Sigurgeir örn Sigurgeirsson, 30 ára gamall. Varð fyrir bíl á gangbraut 64 ARA gömul kona varð fyrir bil á Hringbraut á móts við Elli- heimilið i gær. Auk annarra meiðsla fótbrotnaði konan. HUn var á leið yfir götuna á gangbraut þegar bilnum var ekið hana. Oó. SJ—Patreksfirði. — Afli sex ver- tiðarbáta frá Patreksfirði var i marzlok orðinn 2724 lestir í 302 róðrum, og er það að meðaltali röskar niu lestir f sjóferð. Aflahæsti báturinn, Vestri, er með 594 lestir i sextiu róörum. Hefur hann róið með net síöan um miðjan marzmánuð. Sjöundi vertfðarbáturinn héðan hóf róðra nokkru fyrir mánaða- mót, og er það Helga Guðmunds- dóttir, sem er með net. Afli var ágætur frá mánaða- mótum febrúar og marz og fram til 20. marz, en siðan hefur hann A AÐALFUNDI Iðnaðarbanka ís- lands, sem haldinn var sl. laugar- dag kom fram, að heildarinnlán um sl. áramót námu 1.261.6 millj. kr.og höfðu aukizt á árinu 1972 um 183.1 millj. kr. eða 17%. Heildarútlán bankans námu f árs- lok 1.118.9 millj. kr og höfðu auk- izt á árinu um 140.6 millj. kr. eða um 14.4%. Sveinn B. Valfells, formaður bankaráðs, flutti skýrslu um starfsemina á sl. ári. Ræddi hann um þróun efnahagsmála og sagði að verðbólgan hefði þau áhrif að eftirspurn eftir lánum væri langt- um meiri en framboð á fjár- magni. Væri ástæða til að athuga hvort ekki væri rétt að visitölu- binda bæði útlán og innlán. Bragi Hannesson, bankastjóri, skýrði reikninga bankans, og komu fyrrgreindar niðurstöðu- tölur fram i skýrslu hans. Kvað Bragi rekstursafkomu bankans betri en árið áður. Tekju- afgangur án afskrifta nam um 3.8 verið fremur tregur og mest steinbitur. Sjómenn eru þó von- góðir um, að afli glæðist á ný, þegar loðnan er gengin hjá. Gæft- ir hafa verið stirðar i meira lagi siðast liðinn hálfan mánuð, og raunar allan þann tima, sem af er vertiðinni, en sjór verið sóttur með mesta hraðfylgi. Mikil vinna hefur verið i fiskvinnslustöðvun- um og hefur sárlega vantað verkafólk. Hér hefur nú verið landað 2150 lestum af loðnu, og i fyrrinótt landaði Höfrungur hér 250 lestum til bræðslu. millj. kr. Pétur Sæmundsen, bankastjóri, gerði grein (yrir rekstri og hag Iðnlánasjóðs. Kom fram i ræðu hans, að á árinu 1972 voru veitt samtals 207 ný lán að upphæð 1.405 að upphæð 673.4 millj. kr. Eigið fé sjóðsins jókst á árinu um 94.4 millj. kr. og nám i árslok 459.4 millj. kr. Þá kom fram i ræðu Péturs, að árið 1972 hefði verið fjallað um 250 lánsum- sóknir og hefðu heildarláns- beiðnir þessara umsókna verið um 419 millj. kr. Ibankaráðvoru kjörnir: S^einn B. Valfells, forstjóri, Vigfús Sigurðsson, húsasmiðameistari og Haukur Eggertsson, fram- kvæmdastjóri. 1 varastjórn voru kjörnir: Bragi Ólafsson, verk- fræðingur, Ingólfur Finnbogason, húsasmiðameistari og Kristinn Guðjónsson, forstjóri. Iðnaðar- ráðherra skipaði þá Benedikt Daviðsson, húsasmið og Guð- mund Agústsson, hagfræðing, aðalmenn i bankaráðið og sem varamenn þá Magnús H. Stephensen, málara og dr. örn Erlendsson, hagfræðing. Endur- skoðendur voru kjörnir Haukur Björnsson, framkvæmdastjóri og Otto Schopka, framkvæmda- stjóri. Geir og Jóhann gegn Gunnari 1 Alþýðublaðinu I gær er fróöleg úttekt á ástandinu og átökunum um forystuna I Sjálfstæðisflokknum. Þar seg- ir m.a.: „Athuganir, sem þeir Jó- hann og Geir hafa nýlega gert á sigurlikum hins slðarnefnda, inunu hafa bent til þess, að Geir Hallgrimsson væri senni- lega fallinn fyrir Gunnari, ef til kosninga milli þeirra myndi koma á Landsfundinum. Mun Gunnar hafa unnið upp þann mun, sem á þeim varö i Landsfundarkosningum siðast um varaformannsembættið, en þá vann Geir með litlum at- kvæða mun eins og fólk rekur minni til. Munu Jóhann, Geir og nánustu ráðunautar þeirra þvi hafa sannfærst um, að framboð Geirs til formennsku myndi ekki bera árangur — Gunnar væri þegar búinn að vinna þann slag áður en til Landsfundar væri komið. Voru þá I skyndi ný ráð brugguð til þess að varna Gunnari formennskunnar. Eina ráðið var talið, að Jóhann Ilafstein gæfi kost á sér til endurkjörs — þvi Gunnar ætti örðugra um vik með að fella formann flokks- ins, sem leitaði eftir endur- kjöri, heldur en nýtt for- mannsefni. Afréð Jóhann þvi að „hætta við að hætta” og lét þau boð berast til Gunnars i þeirri von, að hann myndi fall- ast á þessa lausn sem mála- miðlun. Gunnar Thoroddsen mun hins vegar meö öllu hafa hafnað henni fyrir sitt leyti og svarað þvi til að hann myndi fara i kosningu um formanns- embættið, hver sem I hlut ætti — hvort heldur það væri Jóhann eða Geir. Mun hann hafa bætt þvi við, að litill vandi væri auk þess að sjá i gegnum þetta miðlunarboð Jóhanns Hafsteins. Auðséð væri, að þarna ætti að hafa sama háttinn á og þegar Sjálf- stæðisflokkurinn skipti uin borgarstjóra i Reykjavik. Aætlunin væri sú að fá Lands- fundarfulltrúa til þess að endurkjósa Jóhann i þeirri góðu trú, að hann ætlaði að gegna formennskunni út kjör- timabilið en á þvi miðju myndi hann svo draga sig i hlé og vikja úr formennskunni fyrir varaformanninum, sem þar með væri búinn að gera aö starfandi formanni fiokksins. Væri sáttarboðið þvi ekkert annaö en heldur barnaleg áætlun um að „plata” Geir Hallgrimsson inn á Lands- fundarfulltrúa sem formanni. Jónas Haralz skýtur upp kolli I kjölfar þessarar yfir- lýsingar Gunnars Thoroddsen hafa átökin i Sjálfstæðis- flokknum svo harðnað um allan helming og eru þar miklar viðsjár með mönnum. Upp á siðkastið hafa fylking- arnar heldur en ekki riðlast, þannig að ýmsir, sem áður voru liösforingjar i öðrum herbúðunum hafa nú skyndi- iega skotið upp kollinum i hin um. Ekki getur undirritaður fullyrt um, hvorum liðhlaupin hafi orðið meira í hag — en einhvern veginn hafa áhorf- endur þó á tilfinningunni, að Gunnar Thoroddsen hafi a.m.k. ekki tapað á þeim við- skiptum. Er i þvi sambandi einkar athyglisvert hversu lit- i 11 móður virðist vera i mörgum þeim, sem áður studdu fiokksforystuna hvað dyggilegast. Sem dæmi um þetta má nefna, að sumir Framhald á 5. siðu. Breiðfirzkir tví- burar áttræðir ATTRÆÐIR eru i dag tvibura- bræðurnir Guðmundur J. Einars- son, bóndi og rithöfundur aö Brjánslæk og Arni J. Einarsson, fyrrverandi bóndi frá Hergilsey. Þeir eru fæddir að Skjaldvarar- fossi á Barðaströnd, synir hjón- anna Einars Guðmundssonar og Jarþrúðar Guðmundsdóttur, er þar bjuggu. Þeir bræður stunduðu á yngri árum jöfnum höndum bú- skap og sjómennsku. Guðmundur fór ungur I siglingar og dvaldi um tíma i Færeyjum. Þegar hann kom heim aftur var hann orðinn veikur af berklum og dvaldi um skeið á Vifilsstöðum til lækninga. Hann var snemma hneigður til rit- mennskuog skáldskapar og hefur ritað margt bæði i bundnu og óbundnu máli. A Vifilsstöðum mun hafa orðið til efni i fyrstu bók hans, ljóðabókina Stýfðir vængir, er gefin var út um það leyti undir skáldanafninu Holt. Hann hefur gefið út þrjár aðrar bækur auk Fegurðarsamkeppni, tízku- sýning og ferðabingó FERÐASKRIFSTOFAN Utsýn hefur I vetur efnt til nokkurra skemmtikvölda að Hótel Sögu, jafnan við húsfylli. A sunnudags- kvöldið kemur, 8. april, verður siðasta Utsýnarkvöld vetrarins haldið i Súlnasal, og verður það nokkuð stærra i sniðum en áður, enda margt til skemmtunar. Húsið verður opið matar- gestum frá kl. 7 um kvöldið, og verða á boðstólum kjúklingar og aligris, en sangria verður borin með að spænskum sið. Leikin verður létt suðræn tónlist, og meðan á borðhaldi stendur, kl. 8.00 hefst tizkusýning, og eru það sýningarstúlkur úr Modelsam- tökunum, sem sýna nýju vor- og sumartizkuna. Að þvi loknu verður myndasýning, ný spönsk kvikmynd frá Costa del Sol. Að vanda verður ferðabingó, og vinningar tvær utanlandsferðir með Útsýn i sumar. 1 danshléi mun hinn kunni skemmtanamaður Ómar Ragn- arsson, skemmta gestunum, en i lokin kemur að þvi atriði, sem ekki mun sizt vekja athygli, þegar kjörin verður fegurðar- drottning kvöldsins, ljósmynda- fyrirsæta Útsýnar 1973. Ungfrú Útsýn verður valin úr hópi samkomugesta á Utsýnarkvöld- inu af dómnefnd, sem skipuð er Pálinu Jónmundsdóttur, tizku- sýningarfrömuði, Ingibjörgu Dalberg, snyrtisérfræðingi, list- málaranum Baltazar og Jónasi R. Jónassyni, sjónvarpsmanni, en samkomugestir greiða at- kvæði um þær stúlkur, sem koma fram. Ungfrú Útsýn verður siðan krýnd i lok skemmtunarinnar og hlýtur i verðlaun hálfsmánaðar- ferð með Útsýn til Costa del Sol i sumar, þar sem hún fær litla nýtizkuibúð til umráða, máltiðir á ýmsum matsölustöðum, ókeypis aðgang að þekktustu skemmti- stöðum Costa del Sol, friar kynnisferðir og vasapeninga að auki. Meðan á dvölinni stendur, verður hún mynduð á ýmsum frægum skemmtistöðum og ferðamannastöðum Spánar. fjölda greina i blöð og timarit. Guðmundur kvæntist ungur Ragnheiði Jónsdóttur frá Hergilsey.Þau hjón bjuggu i Her- gilsey þar til Ragnheiður andaðist árið 1935. Þau eignuðust sex börn og eru fimm þeirra á lifi. Guðmundur fluttist siðan að Brjánslæk á Barðaströnd og hefur búið þar sfðan með sam- býliskonu sinni Theodóru Guðmundsdóttur frá Grundar- firði og hafa þau eignazt sex börn, sem öll eru nú uppkomin. Arni bróðir Guðmundar kvæntist ungur Guðbjörgu Jóns- dóttur frá Eyjum i Strandasýslu. Þau hófu búskap að Holti á Barðaströnd, en bjuggu siðan i Sauðeyjum og Hergilsey á Breiðafirði en fluttu til Flateyjar 1930 og hefur Arni búið þar siðan. Konu sina missti Arni á sl. ári. Þau hjón eignuðust fjögur börn. Arni er mikill hagleiksmaöur og hefur mest stundað smiðar, eink- anlega bátasmiði og vélavið- gerðir eftir að hann settist að i Flatey. Hann dvelur i dag hjá bróður sinum að Brjánslæk. Framlag V-ís- lendingum FORSÆTISRAÐHERRA hefur borizt bréf frá Canada Iceland Foundation ásamt ávisun, jafn- virði rúmlega 2,4 milljóna króna, sem félagiö hefur safnað saman vegna náttúruhamfaranna i Vest- mannaeyjum. Hefur fé þetta ver- ið afhent viðlagasjóði tii ráðstöf- unar. Aður hafði borizt fjórðungur milljónar frá Þjóðræknifélagi tslendinga i Vesturheimi, sem hóf söfnunina, en fól siðan hinum samtökunum framhajd hennar. Söfnun i Kanada verður haldið áfram. „Sjór hefur verið sóttur af harðfylgí"

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.