Tíminn - 04.04.1973, Blaðsíða 4
TÍMINN
Miðvikudagur 4. april. 1973
Við getum sjólf lækk
að í okkur hitann
Það má breyta likamshitanum i
ýmsum hlutum likamans að
vild, segja visindamenn, sem
hafa kannað þetta við háskólann
i Ziirich. Dr. Philip Zimbardo
og dr. Jan Wascink komust að
þeirri niðurstöðu, að sjálfboða-
liðar sem voru þeim til aðstoðar
við rannsókn á hitastigi
likamans, gátu breytt hitanum i
höndum sinum ef þeir voru dá-
leiddir. Læknarnir segja, að
verði hægt með frekari
rannsóknum, að komast að þvi,
hvernig þessar hitabreytingar
gerast, gæti það orðið til þess að
hægt verði að ná valdi á margs
konar hjartasjúkdómum,
magasári, asthma og óeðlilega
mikilli svitaútgufun úr likam-
anum. Geti fólk náð stjórn á
þessu með þvi aö beita sig
sjálfsaga.
Laumufarþegi
um borð
Skemmtiferðaskipið átti eftir
þriggja stunda siglingu til
Larnaca á Kýpur, þegar einn
hásetinn fann allt i einu laumu-
farþega um borð. Þetta var
Andrulla Metriadi, 67 ára
gömul. Hún sagði: Sonur minn
og brúður hans eru með skipinu,
og þau eru i brúðkaupsferð.
Sonur minn hefur aldrei farið
neitt án min, og ég taldi, að ég
yrði að fara lika, ef hann þyrfti
min með á leiðinni. Konunni var
komið fyrir i káettu langt frá
káettu ungu hjónanna á brúð-
kaupsferðinni.
Risaeikur
f skógunum i Kharkov-héraði
eru margar stórar gamlar
eikur. Við nokkrar þeirra eru
tengdar sögusagnir. Nálægt
þorpi einu, sem nefnist
Kolontajev, stendur eik, sem
teygir greinar sinar i allar áttir.
Hún er kölluð „eik Péturs
mikla”. Sögur segja, að þar hafi
veriö slegið upp tjaldbúð svo að
Pétur mikli gæti hvflt sig þar,
þegar hann var á leið til Poltava
með lið sitt. Sérfræðingar telja,
að eikin sé ekki innan við 350
ára. Hún er 32.5 metrar á hæð og
tveir metrar i þvermál. 1
Zolotsjevsk-héraði hefur verið
uppgötvuð 200 ára gömul eik
með fimm stofnum út frá einni
rót. Stofnar þessir eru eins og
fimmburar og eru þeir 75 senti-
metrar i þvermál hver. Þetta
tré er nefnt fimm bræöur. En
elzta eikin, og sú, sem ber
fegurst og frænast lim, er eik,
sem stendur i Pomerki-trjá-
garðinum í Kharkov. Hún er
yfir 400 ára og er 35 metrar á
hæð. Eftirlit hefur verið skipað
með sérhverju þessara trjáa.
Þau njóta lögverndar, sem ein-
stök fyrirbrigði hinnar lifandi
náttúru.
Með snók í erminni
Tim Knowles hafði það starf
með höndum að vaka og gæta
skrifstofubyggingar einnar i
Sidney i Astraliu. Hann var
orðin dauðuppgefinn á þvi, að
lögreglan leitaði alltaf á honum
á næturnar, þegar hann hafði
lokiðstörfum og var á heimleið.
Datt honum snjallt ráð i hug, til
þess að losna við afskipti lög-
reglunnar. Hann keypti sér
litinn skaðlausansnák sem hann
vandi á að liggja i ermi sinni.
Lögreglan leitaði ekki einu
sinni á honum eftir að hann
fékk sér snákinn.
,,Perry Mason" ^
er að verða blindur
Raymond Burr, öðru nafni
Perry Mason eða Ironside (Sá
þáttur var sýndur hér i sjón-
varpinu) er að verða blindur.
Læknar reyna nú af öllum mætti
að koma i veg fyrir að hann
missi sjónina algjörlega. Hann
hefur hvað eftir annað oröið að
hætta við að leika i sjónvarps-
þættinum Ironside. Allt bendir
til þess, að hann verði fljótlega
að hætta fyrir fullt og allt að
koma fram i sjónvarpsþáttum.
Raymond Burr hefur oft orðið
alvarlega veikur undanfarin ár,
en hingað til hefur honum tekizt
aö vinna bug á öllum þessum
sjúkdómum.
Sá gamli heitir
Charlie Chaplin
Arin setja sin spor á mennina,
jafnvel Charlie Chaplin, sem
verður 84 ára gamall i april.
Honum þykir samt ennþá gam-
an að ferðast. Hér er hann á leið
til London, með konu sinni
Oonu, sem er 48ára gömul. Þau
komu viö i Paris á leiðinni, og
dvöldust þar i nokkra daga. A
meöan þau voru þar létu þau
ekki hjá liða að kaupa minning-
ar de Gaulles hershöfðingja.
Pappavifta
Það getur verið, að pappir geti
komið i stað málms i baráttunni
við hávaðann. I stofnun vinnu
verndar i Grúsiu hefur verið
gerð vifta úr pappa. Sér-
fræðingar telja, að notkun
pappaviftna i leikhúsum,
klúbbum, sjónvarps- og upp-
tökustöðum dragi mjög úr há-
vaða. Sýnishorn af pappa-
viftunni hefur þegar verið sent
til Moskvu og verður hún sett
upp i sjónvarpsstöðinni í Ost-
ankino.