Tíminn - 04.04.1973, Side 5
Miðvikudagur 4. april. 1973
TÍMINN
5
0 Togarar
ufsa, ýsu og auk þess hrygnir vor-
gotssildin á þessu svæði. Einmitt
nií stendur hrygningartiminn
hvað hæst og er fyrir neðan allt
velsæmi að fara að veiða fisk þar
i stórum stil. Fiskifræðingar hafa
lagt til að friða jafnvel enn stærra
svæði á þessum slóðum.
Ingvar sagði, að nú væri lik-
legast að togararnir fengju mest
af þorski á svæðinu, en einnig lika
ufsa og ýsu.
Þýzku skipstjórarnir hafa
áreiðanlega vitað vel,að viðræður
i fiskveiðideilunni voru aö hefjast
i gærmorgun og er engu likara en
þeir væru að mótmæla samn-
ingum yfirleitt og hafa þeir siður
eri svo styrkt málstað og
samningaaðstöðu vestur-þýzku
sendinefndarinnar með þvi að
fara að skarka á alfriðuðu svæði
um það bil sem viðræður voru að
hefjast. Verður að lita svo á, að
hér hafi verið um visvitandi
skemmdarverk að ræða bæði á
fiskimiðum og samningaaum-
leitunum.
—Oó
0 Skákþing
takendur 6. Efstur var Orn
Þórðarson með 4 vinninga, i 2.-3.
sæti urðu þeir Jón Andrésson og
Olfar Ólafsson með 3 vinninga
hvor.
Hraðskákmót Akureyrar fór
fram siðastliðinn sunnudag. Þátt-
takendur voru 18.
Efstir og jafnir urðu Hrafn
Arnarson og Jón Björgvinsson
með 15 vinninga, i 3. sæti varð
Július Bogason með 13 vinninga.
Þeir Hrafn og Jón tefldu siðan til
úrslita um efsta sæti og lauk þerri
keppni með sigri Jóns Björgvins-
sonar. Hraðskák-keppni i
unglingaflokki lauk með sigri
Baldvins Þorlákssonar.
Víðivangur
þeirra eru farnir að hugleiða
alvariega þá hugmynd, að
reyna að fá málsaðila tii þess
að fallast á Jónas Haralz,
bankastjóra sem „sáttafor-
mann” — og vitna i þvi
sambandi mjög sterklega til
mikils álits Bjarna heitins
Benediktssonar á Jónasi Har-
alz og fullyrða, að engan mann
myndi Bjarni frekar hafa
kosið sem arftaka sinn. Er
þetta skýringin á þvi, hve
mikla áherzlu ýmis félög
Sjálfstæðisfólks á höfuðborg-
arsvæðinu leggja nú á að fá
Jónas Haralz til þess að mæta
á fundum hjá sér eins og mátt
hefur sjá i auglýsingum um
flokksstarf Sjálfstæðisflokks-
ins i Morgunblaðinu undan-
farna daga. Almennt eru þó
talin heldur litil likindi á þvi,
að þessi málamiðlun takist en
að hugmyndin skuli vera svo
ofarlega á baugi hjá ýmsum
framámönnum i Jóhanns-
Geirs liðinu er túlkað sem
uggur þeirra um, aö leikurinn
fyrir þá sé fyrirfram tapaöur.
Þessi átök um fórmannssæt-
ið i Sjálfstæðisflokknum hafa
svo leitt til þess, að losnað
hefur um flokksböndin viða og
dregið hefur úr flokksaga.
Ýmis stærri og smærri hliðar-
átök eru i gangi i flokknum,
meira eða minna tengd for-
mannsátökunum. Einkum eru
það metnaðargjarnir ungir
menn úr viðskiptaiifinu —
harðir i horn að taka, — sem
seilast nú til áhrifa innan
flokksins, undirdeilda hans og
dótturfyrirtækja. Þannig
muuu talsverð átök nú eiga
sér stað um yfirráðin yfir
ýmsum stofnunum flokksins
og þá ekki sizt málgögnum
hans. Ekki munu Gunnars-
menn þó hafa neina vinnings-
möguleika gagnvart Morgun-
blaöinu, en talið er, að oln-
bogaskotin, sem ráðamönnum
blaðsins og þá einkum og sér i
lagi ritstjórum þess eru gefin i
ákveðnum vikublöðum borg-
arinnar séu undan rót Gunn-
arsliðsins runnar. Um önnur
blöð. sem Sjálfstæöisflokknum
fylgja að málum, eru átökin
hins vegar til muna harðari og
eru þar viðsjár miklar undir
rólegu yfirborði.” —TK
© Miklar annir
klippa á báða togvira St. Ledger
frá Hull. Gerðist þetta rétt fyrir
klukkan 10. Þetta er I annaö
skipti, á rtfmri viku, sem varð-
skip klippir á báða togvira St.
Ledger. Var skorið á vira togar-
ans á svipuöum slóðum i fyrri
viku, eftir að togarinn hafði reynt
að slita vörpu Guðbjarts IS meö
akkerum skipsins.
Nú bendir allt til þess, aö St.
Ledger verði aö halda heimleiðis,
þar sem öruggt má telja, að tog-
arinn hafi aðeins haft tvö troll
meðferðis i veiðiferðina, og þessi
veiðiferð verður vartáhöfn togar-
ans til fjár.
Eftir að varðskipið hafði skorið
á togvira St. Ledger reyndi togar-
inn Maretta FD-245 að sigla á
varðskipið, en tókst ekki.
82 skip á veiðum
Landhelgisgæzlan lét telja
erlend veiðiskip á íslandsmiðum
á mánudag. Kom i ljós að þau
voru 82 talsins (83 ef St. Chad er
taliö með). Flest skipanna voru
brezk eða 59 og voru brezku tog-
ararnir flestir á veiðum austur af
Hvalbak, eða 24. Þjóðverjarnir
voru flestir á veiðum á Selvogs-
banka, en þýzkir togarar voru þá
20 við landið. Þá voru 2 belgiskir
togarar á veiðum samkvæmt
heimild og 1 færeyskur togari
sömuleiðis.
0 Kísiliðjan
þessu ári, og hefur þegar verið út-
hlutað lóð undir húsið.
Bændur hafa verið að rýja fé
sitt siðustu daga, en vetrar-
rúning hefur verið almenn hér
siðan 1965, og gefizt vel.
Þá má geta þess, að minka-
slóðir hafa verið algengar siðustu
vikur. Ber sérstaklega mikið á
þeim við Laxá og við vatnið. Ættu
minkaskyttur þvi að hafa nóg að
starfa við að drepa þennan
vágest.
Stórskadd-
aðist
í vélsög
MAÐUR missti þumalfingur og
litlafángur- vinstri handar i velsög
á verkstæði Trétæki h.f. Súðavogi
28, er hann var að vinna þar i gær.
Auk þess skaddaði hann baug-
fingur allmikið.
Maðurinn, sem er þritugur,
heitir Magnús Gunnþórsson,
Krókahrauni 12, Hafnarfirði.
Hann er starfsmaður í Straums-
vik, en fékk aðgang að vélum i
Trétækni og var að smiða þar
fyrir sjálfan sig. —Oó
Ljósavél
Til sölu er 6 kw. ljósavél i góðu standi.
Upplýsingar i sima 93-8154 eða 8156.
Bændur
Jafnlyndur og duglegur drengur á 14. ári
óskar eftir að komast i vinnu á góðu
sveitaheimili i sumar.
Einnig óskar telpa á 12. ári eftir vinnu i sveit við barna-
gæzlu eða önnur störf.
Trúmennsku og dugnaði heitið.
Hringið i sima 51754.
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Arður til hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar hinn 31.
marz s.l. greiðir bankinn 7% arð til hlut-
hafa fyrir árið 1972. Arðurinn er greiddur i
aðalbankanum og útibúum hans gegn
framvisun arðmiða merktum 1972.
Athygli skal vakin á þvi, að réttur til arðs fellur niður, ef
arðs er ekki vitjað innan þriggja ára frá gjalddaga,
samkv. 5. gr. samþykkta bankans.
Reykjavik, 3. april 1973
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Fró Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík
í ráði er að halda námskeið i Stýrimanna-
skólanum til endurhæfingar fyrir skip-
stjórnarmenn dagana 14.-26. mai, ef næg
þátttaka fæst.
Viðfangsefni námskeiðisins verða m.a.:
1. Siglinga- og fiskleitartæki, Gyro-kompás og sjálf-
stýring.
2. Stöðugleiki skipa.
3. Nýjustu og einfÖldustu aðferðir við útreikninga á himin-
staðalinum.
Ýmislegt fleira verður tekið fyrir á námskeiðinu.
Þátttakendur skulu hafa lokið a.m.k. 1. stigs prófi eða
minna fiskimannaprófi.
Upplýsingar eru gefnar i Stýrimannaskólanum, simi
13194.
Breflegar umsóknir þurfa að hafa borizt fyrir 1. mai.
Skólastjórinn.
íþróttaþjólfarar
Okkur vantar þjálfara i frjálsum iþróttum
og knattspyrnu til starfa úti á landi næsta
sumar. Vinsamlegast hafið samband við
skrifstofu okkar að Klapparstig 16. simi:
12546.
Ungmennafélag íslands.
Útboð
Tilboð óskast i smiði 6 ibúða húss að
Búðum, Fáskrúðsfirði.
Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu Búðahrepps og
afhendast þar gegn 3000.00 kr. skilatryggingu.
Skilafrestur er til 30. april 1973
Tilboðin verða opnuð þann dag kl. 17.
Stjórn verkamannabústaða.
Höfum á boðstólum mikið úrval gardínustanga bæði
úr tré og járni. Einnig nýja gerð af viðarfylltum
gardínubrautum. Kappar í ýmsum breiddum, spón-
lagðir eða með plastáferð í flestum viðarlíkingum.
Sendum gegn póstkröfu.
Gardinubrautir h/f Brautarholti 18, s. 20745
||| ÚTBOÐ (J|
Tilboð óskast i að byggja fyrir Reykjavfkurborg
viðbyggingu við Sundlaug Vcsturbæjar hér I borg.
Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri gegn 5.000.-
króna skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 2. maí
n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i byggingu ca 395 fermetra
geymsluhúss á 2 hæðum við málningar-
verksmiðju Slippfélagsins i Reykjavik h.f.
að Dugguvogi 4, Rvik.
titboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Armúlal
gegn 10.000,00 kr. skilatryggingu. Tilboöin verða
opnuð á sama stað mánudaginn 16. aprll 1973, kl. 11.00.
Slippfélagið i Reykjavik.