Tíminn - 04.04.1973, Síða 16

Tíminn - 04.04.1973, Síða 16
Mibvikudagur 4. april. 1973 8 fi I I MERKIÐ, SEM GLEÐUR HUtumst i kaupfélxigitm SGOÐI L J fyrir góúan niat $ KJÖTIDNADARSTÖD SAHBANDSINS mmmm •• EYJABORN I SJON- VARPINU NORSKA S l. mánudagsmorgun fóru tvö börn frá Vestmannaeyjum til Oslóar til þess aö koma þar fram i barnatima sónvarps og iltvarps til aðstoðar fjársöfnun i Noregi vegna fyrirhugaðrar sumardvalar barna frá Vest- mannaeyjum í Noregi. Börnin heita Vilhjálmur Garðarsson og Arnfríður Einarsdóttir. Þau eru 12 ára gömul, og eru væntanleg heim aftur n.k. fimmtudag. Noregsferðir barna frá Vestmannaeyjum hefjast um miðjan júnimánuö n.k., og lýkur þeim i byrjun september. Islenzku flugfélögin gefa „Norsk- islandsk samband” helming flug- fara. KEISARASKURÐUR I FJÓSI Á KOTVELLI LIF Doppu á Kotvelli í Hvolhreppi varí veði.. Hún gat ekki borið. Kálfurinn sat dauður í burðarliðnum, og legið hafði rifnað. Dýra- læknirinn á Hellu, Karl Kortsson, staðdeyfði hana og gerði á henni keisara- skurð. Að öðrum kosti hefði henni ekki verið líft. Þetta gerðist í fyrradag. — Ég hef átján kýr i fjósi, sagði eigandi hennar, Hermann bóndi Sveinsson, og Doppa er fimm vetra. Þetta er góð kýr, heima- alin, af mjólkurkyni, sem ég hef verið að reyna að kom a mér upp, en að nokkru af svokallaðri Sómaætt. Mér var sárt um hana og ég vildi láta freista þess að bjarga henni. Dýralæknirinn sagði, að bezt væri að geta gert keisaraskurð á kúnum standandi, en Doppa lagðist á meðan á upp- skurðinum stóð. En ég geri mér vonir um, að hún lifi þetta af, þvi að hún virðist vera hress. Hættan er sú, að hún fái blóðeitrun, og þriðji dagurinn eftir uppskurðinn kvað vera viðsjárverðastur. Karl Kortsson kom til starfa hér á landi skömmu eftir heims - styrjöldina siðari. Að þvi er Timinn hefur fregnað mun hann fyrstur manna hérlendis hafa gert keisaraskurð á kú i kringum 1950. Það var á Kirkjulæk i Fljótshlið, og var sú kýr með svo- kallað steinfóstur, sem merkir, að kálfurinn hefur drepizt og visnað i móðurkviði, svo að eftir voru beinin ein. Við þennan uppskurð mun Jón Pálsson, dýralæknir á Selfossi, einnig hafa verið. Aður en Karl kom aö Hellu var hann aðstoðardýralæknir hjá Jóni, og þá gerði hann magaskurð i Hraungerðishreppi á kú, er gleypt hafði gaddavir. — Þetta er ekkert annað en allir dýralæknar gera, ef til sliks þarf að gripa, sagði Karl Kortsson um keisaraskuröinn á kúnni á Kotvelli er við hringdum til hans. Það er ekkert sögulegt viö það, þótt uppskuröur sé gerður á bú- fénaði fremur en mönnum. Það er bara eitt af þvi, sem fylgir nútim- anum. Það eitt var sérlegt við keisaraskurðinn, sem ég gerði á kúnni á Kotvelli, að legið hafði rifnað, og þess vegna er alls ekki einsýnt, hvernig henni reiðir af. Fjölmenn ráðstefna um landnýtingu MJÖG fjöimenn landnýtingar- ráðstefna veröur haldin i kristals- sal Hótel Loftleiöa i lok þessarar viku föstudag og laugardag. Þar veröa flutt hvorki meira né minna en tuttugu og fimm framsögu- erindi, og talið er, aö ráöstefnuna sæki um hundraö og þrjátiu fuil- trúar féiaga og stofnana viös vegar að af landinu. Þaö er Landvernd, sem boðað hefur til ráðstefnunnar i sam- vinnu við Búnaðarfélag íslands, náttúruverndarráð, Samband islenzkra sveitarfélaga, skipu- lagsstjórn rikisins og landnýt- ingar- og landgræðslunefnd,sagði Haukur Hafstað framkvæmda- stjóri við blaðið i gær. Þarna verða leiddir saman fulltrúar frá mjög mörgum aðilum, sem á ein- hvern hátt gera tilkall til landsins og gæða þess og hafa með starfi áhrif á framtiðarviðgang þess. Aðalviðfangsefnið er skipulag landnýtingar og verður reynt að fá yfirlit yfir þau sjónarmið, sem uppi eru, og ræöa möguleika á samræmingu þeirra með það að stefnumiði að tryggja skynsam- lega landnýtingu, koma li veg fyrir landspjöll áf völdum Inanna og græöa þau sár, sem ,'hlotizt hafa af völdum náttúrunnar eða búsetu manna. 1 árslok 1971 skipaði Halldór Sigurðsson landbúnaðarráöherra sjö manna nefnd til þess að vinna að gerð heildaráætlunar um land- græðslu og gróðurvernd og al- hliöa skipulagningu á. nýtingu landsins. Meö skipun ‘þessarar nefndar var af hálfu rlkisvaldsins tekin ákvörðun um að minnast ellefu hundruð ára byggðar i landinu með myndarlegu átaki til landbóta, og er það hugmynd Landverndar og þeirra, sem að ráðstefnunni standa, að leggja sitt að mörkum til þess að undir- búa jarðveginn. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða Páll Lindal, Páll Bergþórs- son, Þorleifur Einarsson, Ingvi Þorsteinsson, Gunnar Guðbjarts- son, Óttar Geirsson, Sveinn Run- olfsson, Hákon Bjarnason, Sigurður Sigurðsson, Gunnar Bjarnason, Jakob Björnsson, Snæbjörn Jónasson, Hjörleifur Guttormsspn, Vilhjálmur Lúðviksson, Árni Reynisson, Brynjólfur Ingólfsson, Stefán Már Stefánsson, Asgeir Bjarna- son, Gestur Ólafsson, Bjarni Einarsson Jónas Jónsson, Magnús G. Björnsson, Ragnar Arnalds og Eysteinn Jónsson. Ashtonfjölskyldan að syngja sitt síðasta ASHTONFJÖLSKYLDAN veröur áreiöanlega mörgum harmdauöi þegar búiö er, sagöi Jón Þórarinsson, dagskrárstjóri sjón- varps I gær, en 1. mái n.k. veröur siðasti þáttur framhaldsþáttarins sýndur hér. Ekki hefur veriö framleitt meira af þessu efni svo að nú er sjálfhætt hvort sem sjón- varpsnotendum likar betur eöa ver. Þættirnir eru alls 52 talsins. Ekki iiggur alveg ljóst fyrir hvaöa framhaldsþáttur tekur viö. Nokkrir þættir koma til greina, en hvorki dagskrárstjórn sjón- varpsins né útvarpsráö hefur tekið endaniega afstöðu, en ákvöröun veröur tekin næstu daga. A næstunni hefjast sýningar á framhaldsþætti sem sænski leik- stjórinn Ingmar Bergman gerði. Er það fyrsta verkefnið, sem hann vinnur fyrir sjónvarp. Er þar um að ræða mynd sém sýnd verður i sex þáttum, og heitir. „Scener ur et Ekteskap” Sýning- ar á þeim þætti hefjast i maí og standa fram i júni. Um sama leyti verða þættirnir sýndir á öllum Norðurlöndum. —OÓ Batnandi afkoma Kísiliðjunnar JI-Mývatnssveit — Töluvert frost hefur veriö i Mývatnssveit síö- ustu dægrin og aöfaranótt mánu- dags fór frostiö I 20 stig. Annars hefur veðrið verið faliegt, jörö alhvit en allir vegir færir. Veiði er fyrir nokkru byrjuð i Mývatni, en það sem af er hefur veiðin verið sáralitil og skiptir engu hvort menn reyna dorgina eða netin. Ekki vita menn um orsökina, fyrir þessari litlu silungsveiði, en menn telja þó helzt að silungur I vatninu sé nú með minna móti. Afkoma Kisiliðjunnar batnaði mjög á siðasta ári, og hafði verk- smiðjan fyrir fullum afskriftum um 40 milljónir króna. Aætlað framleiðslumagn verksmiðj- unnar á þessu ári eru 23 þúsund tonn, og gert er ráð fyrir að fyrir- tækið skili á þessu ári. Sala á kisilgúrnum gengur vel, en aftur á móti hafa gengisfellingar dollarans ekki að sama skapi verið hagstæðar fyrir verk- smiðjuna. Svo til allur kisilgúrinn er seldur til Evrópu, en greiðslur eru samkvæmt samningum inntar i dollurum, sem er mjög óhagstætt á þessum timum. Ákveðið er að gera tilraunir með hreinsitæki þau, er Jón Þórðarson hefur fundið upp i kisilverksmiðjunni innan tveggja mánaða. Nú er ákveðiö, að bygging póst- og simahúss hefjist i Reykjahlið á Framhald á 5. siðu. Miklar annir hjá Landhelgisgæzlunni 22 vestur-þýzkir togarar á friðuðu svæði — skorið á togvíra St. Ledger í 2. sinn ÞÓ—Reykjavik. — Svo virðist, sem vestur-þýzkir togaraskip- stjórar hafi ætlað sér^að reyna að koma I veg fyrir viðræðurnar um landhelgismáliö, sem hófust i Reykjavik 1 gær milli vestur-þýzku og islenzku rikis- stjórnanna. Skömmu áöur en fyrsti viðræðufundurinn átti að hefjast kom tilkynning frá Land- helgisgæzlunni um, að allir vestur-þýzkir togarar, sem vitað væri um á veiöum hér við land, væru komnir á veiðar i einum hnapp á einu mikilvægasta hrygingasvæöi við strendur Islands. Islenzku varðskipin byrjuðu strax að stugga við togurunum, en það var ekki fyrr en milli klukkan tvö og þrjú 1 gær, aö tog- arrnir hifðu trollin og komu sér burt af svæðinu. Þá voru varð- skipin margbúin að reyna að koma togurunum út fyrir þetta friðaöa svæði. Haft er eftir v-þýzkum útgerðarmönnum, að þeir séu reiðir út i skipstjórana vegna þessa uppátækis, enda segja kunnugir menn,að þetta at- hvæfi Þjóöverjanna 'sé eitt hið svívirðilegasta, sem framið hafi verið innan islenzkrar landhelgi, og hefur þó margt ljótt verið framið innan Islenzku fiskveiði- lögsögunnar. Skorið á vira St. Ledger Sex brezkir togarar voru á veiðum á Selvogsbanka i gær- morgun, og sinntu þeir i engu við- vörunum varðskipa um aö koma sér út fyrir 50 mllna mörkin. Greip þá varðskip til þess^að Framhald á 5. siöu. Klp-Reykjavik. — Á þrem fyrstu mánuðum þessa árs, hefur lögreglan í Reykja- vík handtekið 226 ökumenn grunaða um ölvun við akstur. Er þetta öllu fleiri en á sama tíma í fyrra, en þá höfðu verið teknir nákvæmlega 200 ökumenn. Að sögn Sturlu Þórðarsonar, fulltrúa lögreglustjóra, er stærsti hluti hópsins, sem tekinn hefur verið á þessum þrem fyrstu mánuðum á aldrinum 17 til 25 ára og flestir undir tvitugt. Sé þetta sama og undanfarin ár nema nú hafi verið teknir fleiri. „Þaö er erfitt aðsegja um, hver ástæðan er til þessarar aukn- ingar” sagði Sturla.” Það getur bæði verið vegna betri löggæzlu og einnig vegna þess, að þeir , sem hafa umráð yfir ökutæki láti sig hafa það að aka undir áhrifum éfengis þrátt fyrir þá áhættu,sem þvi fylgir. Þeim fjölgar lika stöðugt, sem fá ökuleyfi og ökutækjunum fjölgar einnig að sama skapi”.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.