Tíminn - 15.04.1973, Síða 13
Sunnudagur 15. april 1973,
TÍMINN
13
DESMOND BAGLEY
Desmond Bagley og kona hans
Joan. Þeir, sem lesiö hafa bækur
Bagley’s, hafa eflaust margir
hverjir imyndaö sér hann sem
stóran, sterklegan og ævintýra-
legan mann. Sannkallaö ,,súper-
karlmenni”. En þeir hafa vaðiö I
villu og svima, þvi maöurinn er
fremur væskilslegur i útliti og
langt frá þvi að vera nokkuö
ævintýralegur. r\
Desmond Bagley, brezki rit-
höfundurinn, hefur orðiö Is-
lendingum næsta vel kunnur á
siðustu árum, eða öllu heldur
reyfarabækurhans. Má þar nefna
bækurnar „Gildran”, Eiturlyfja-
smyglararnir", „Felliby lur”,
„Skriöan”og siðast en ekki sizt
„Út i óvissuna” eða „Running
blind”,eins og hún heitir á frum-
málinu. En eins og menn muna
gerist þessi siðastnefnda bók á
okkar ástkæra föðurlandi.
„Út i óvissuna'var að visu all
mjög reyfarakennd. Bagley lét
harðsviraða njósnara frá þrem
þjóðum (eða fleirum) þvælast um
landið þvert og endilangt, skjóta
hver á annan og beita yfirleitt
hinum ferlegustu óþokka-
brögðum. „Hvilikt og annað eins.
Að slikt skuli geta skeð á landinu
okkar. Ég er viss um, að eitthvað
liggur bak við þetta. Ætli njósnar-
arnir séu ekki að vaða uppi á
meðal okkar”. Eitthvað á þessa
leið hugsuðu kven-kerlingar og
karl-kerlingar út um allt land,
eftir að hafa lesið bókina. Nóg um
það.
Það er furðu algengt, að
Islendingar beini þeirri
spurningu til útlendinga, sem
hingað koma, hvernig þeim litist
nú á islenzka kvenfólkið. Þeirri
grillu hefur nefnilega verið komiö
inn hjá fólki, að þetta islenzka af-
brigði sé eitt það alfegursta, ef
ekki það fegursta, sem þekkist á
vorri plánetu. Og það vantar ekki,
að Bagley lét eina yndislega
blómarós koma fram á sjónar-
sviðið i ,,út i óvissuna”.
Kvenhetjurnar i bókum hans eru
annars næsta aðlaðandi yfirleitt.
Athygli vakti, hve skýra og
landfræðilega rétta mynd Bagley
dró upp af Islandi i bókinni, enda
þótt hann hefði aðeins varið fá-
einum vikum hér til að kynnast
landinu. Kappinn hlýtur að hafa
lagt hart að sér þennan tima og
vafalaust þanið Broncojeppa sinn
vitt og breitt um landið. 1 þvi
sambandi má geta þess, að undir-
rituðum er kunnugt um, að i
einum þessara „njósnaleið-
angra” var hann á góðri leið með
að lenda niður til helvitis
(samkvæmt alþjóðlegri túlkun),
eða öllu heldur jeppinn, er hann,
missti hann ofan i einn hverinn i
Námaskarði i Mývatnssveit. Var
jeppinn hífður upp af kranabil, og
kappinn þeysti áfram. En þetta er
útúrdúr.
Heyrzt hefur, að Desmond
Bagley hyggist gera kvikmynd
um bók sina „út i óvissuna”eða
öllu heldur gera samning við
kvikmyndafélag um það. Yrði sú
mynd þá tekin hér á landi. An
þess aö við vitum nokkuö nánar
um það, þá hefur þvi verið fleygt,
að hann muni koma hingað i
sumar ásamt sérfræðingum til að
kanna aðstæður og hefja undir-
búning myndarinnar.
Upphaflega fékk hann tilboð frá
kvikmyndafélagi i Hollywood um
að gera myndina. Var hann beð-
inn að koma til „draumaborgat-
innar” til að skrifa kvikmyndar-
handritið og ræða viö höfuðpaur-
ana. Og þangað fór hann. En
„draumaborgin” reyndist honum
hið argasta helviti. Eftir að hafa
staðið þar i þrefi, þrasi og pexi i
nokkurn tima, tók hann saman
pjönkur sinar og hélt aftur heim
til „gamla, góða Englands”. Og
nú hefur heyrzt, að hann hafi gert
samning við brezka kvikmynda-
félagið Rank.
Nei, hánn ber Hollywood ekki
vel söguna, og kemur það glögg-
lega fram i viðtali, sem norskt
blað átti viö hann fyrir nokkru, en
hann var þá á ferðalagi i Noregi
ásamt konu sinni Joan. Aö lokum
veröur hér birt smáglefsa úr
þessu viðtali, — i lauslegri snör-
un.
— Þetta var hræðileg reynsla,
sem ég vildi ekki fyrir nokkra
muni upplifa aftur. Allt, sem þér
hafið lesið um Hollywood er satt.
Mér þótti það mikill heiður, er
mér var tilkynnt, að kvikmynda
ætti bókina og ég ætti aö koma
Framhald á bls 39
Allir krakkar vilja verða stórir og
sterkir. Hver vill annars láta lemja ' *
sig eins og fisk? Já, við skulum borða það ■
hollasta, sem til er. Það má halda langa ræðu um oll
vítamínin, próteinin, kalkið, allar þessar orkulindir,
sem osturinn geymir. En það er nóg' að vita, að ' :;?;'I
ostur gerir mann sterkan.
S/lflJÖBsl
PPx:::x$
M^x:x:x:x:x:::x8
■^x-xxxx