Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 19. april 1973. TÍMINN 5 Brúðhjón mánaðarins, Þorbjörg Oddgeirsdóttir og Hans M. Hafsteinsson. þvottinn hingað til, meðan engin var þvottavélin. í ljós kom, að þvottavél foreldra hennar hafði verið lausnin. Einu sinni i viku tóku þau sig upp og ferðuðust með strætisvagninum upp i Breiðholt, vel klyfjuð af óhreinu taui. Þar var síðan beðið daglangt, meðan þvegið var, en strætisvagninn tekinn aftur heim að kveldi. Húsmóðirinn á heimilinu, Þor- björg Oddgeirsdóttir, er 24 ára gömul og ættuð noröan úr Þing- eyjarsýslum. Foreldrar hennar stunduðu þar búskap á Vatnsenda á Melrakkasléttu, sem er nýbýli út frá Oddsstöðum. Fjölskyldan fluttist til Reykjavikur um 1960 og hefur búið þar siðan. Er Þorbjörg þvi löngu hagvön hér fyrir sunn- an. Siðastliðin fimm ár hefur Þor- björg starfað á skrifstofu hjá Búnaðarfleagi íslands, en hafði áður dvalizt um eins og hálfs árs keiðiEdinborg, þar sem hún m.a. var við nám i verzlunarskóla. Húsbóndinn, Hans M. Haf- steinsson, er 21' árs og að hluta norskrar ættar, þvi að faðir hans, Hafsteinn Isaksen er hálfnorskur. Annars hefur hann búið lengst af i Njarðvikum með foreldrum sin- um. Til Reykjvikur fiuttist hann ekki fyrr en þau Þorbjörg hófu að búa saman. Hans er á siðasta ári i Iðnskólanum, en þar er hann að læra rafvirkjun. Þau hjónin eiga ibúðina sjálf, sem þau búa i, en það er vistleg tveggja herbergja ibúð i gömlu steinhúsi. Þegar við spurðum hvernig þeim hefði verið kleift að eignast þessa ibúð og hvernig gengið hefði að finna hana, sagði Hans: Frá þvi fyrsta vorum við sammála um að leigja ekki, þvi i fyrsta lagi er vandfundin sú ibúð, sem leigð er á sanngjörnum kjör- um og i öðru lagi finnst mér það að leigja vera það sama og að henda peningunum, ef einhverjir möguleikar eru á að festa sér ibúð. Þorbjörg hefur unnið það lengi hjá Búnaðarfélaginu, að hún átti rétt á lifeyrissjóðsláni og það, auk annarra mögulegra lána og þess, sem okkur hafði tekizt aö spara saman áður en við giftum okkur, nægði fyrir útborgununni og siöan er bara að biða og vona, að unnt verði að standa undir afborgununum. Við vorum búin að leita vel og lengi að ibúð, áður en við duttum niður á þessa, en ýmist var, að þær voru allt of dýrar eða þá svo lélegar, að við höfðum ekki áhuga. Það er reyndar Þorbjörg, sem á allan heiðurinn af þvi að ,,AUt klappað og klárt”, á myndinni má sjá þrjá höfuðaöila þvottavéiarkaupanna, sölumanninn, brúðhjónin og þvottavélina. hafa fundið þessa ibúð. Ég var við vinnu austur á Búrfelli, þegar hún hringdi og sagðist hafa fundið ibúð við okkar hæfi. Að visu sagði hún, að ibúðin væri i húsi, sem væri með götum á, en með þvi átti hún við tvö göt, sem brotin hafa verið á framhlið hússins i þeim tilgangi að loftræsting yrði betri i kjallara þess. Þegar við höfðum sannfært okkur um, að ibúðin var ágæt og götin á engan hátt til þess fallin að rýra ágæti hennar, biðum við ekki lengur, heldur gengum frá kaupunum með hraði. — Nú þegar við höfðum fengið iverustað var ekki eftir neinu að biða og við skelltum okkur i það heilaga, segir Þorbjörg. Við gift- um okkur i Langholtskirkju, hjá séra Siguröi Hauki Guðjónssyni þann 10. febrúar. Þennan sama dag fluttum við svo inn i ibúðina. — Fóruð þið ekki i brúðkaups- ferö? Ja, það má segja, að okkar brúökaupsferð hafi verið farin ofan úr Breiðholti, þar sem við höfðum haldið til hjá foreldrum minum, og hingað i þessa ibúð. Lengri brúpkaupsferð höfðum við ekki efni á,~segir Þorbjörg og brosir. — Hvernig kunnið þið svo við ykkur hér? — Við kunnum mjög vel við okkur. Vissulega vantar okkur ýmislegt, en segja má, að fyrst við erum búin að eignast þvotta- vél, se állt það allra nauðsynleg- asta komið. — En nú hafið þið hvorki sjón- varp né plötuspilara, tæki sem Húsbóndinn lætur fara vel um sig, með honum á myndinni r bróðir hans Siguröur. mörgu ungu fólki finnst algjör- lega ómissandi á heimili. — Ég er nú feginn þvi, að við höfum ekki sjónvarp, segir Hans. Það er min reynsla af heimilum, sem hafa sjónvarp, að þar tekur sjónvarpið að stjórna öllu heimilislifinu. Strax þegar sjón- varpið byrjar, er setzt fyrir fram- an það, og enginn segir orð frá munni fyrr en dagskráin er á enda. Okkur er sem betur fer enn svo hlýtt hvoru til annars, að við þurfum engan þriðja aðila til að hafa ofan af fyrir okkur, þennan fritima sem við eigum saman. Með plötuspilarann gegnir nokkuð öðru máli. Við erum i þeirri einstöku aðstöðu, að þurfa ekkert á sliku verkfæri að halda. Eins og þið sjáið, er Karlakórinn Fóstbræður með félagsheimili sitt hérna handan götunnar og þar eru haldnar kóræfingar auk þess sem húsið er leigt út til skemmtanahalds fyrir ýmsa hópa. Krafturinn i tónlistinni er yfirleitt svo mikill, að hún berst til okkar, þannig að við búum við fjölbreytta músik flest kvöld vik- 0-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.