Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. april 1973.
TÍMINN
Roger er ánægöur þegar pabbi hans kemur til aö lesa fyrir hann úr einhverri iþróttabók.
Hann svaf
i ÞRJÁ mánuði lá hinn
fjórtán ára gamli Roger
Jensen frá Strömmení Nor-
egi meðvitundarlaus á
Sentralsjúkrahúsinu í Lör-
enskog. Hann hafði orðið
fyrir bíl 21. nóvember 1972
og hlotið mikla áverka á
höfði og brjósti.
Móðir hans heimsótti hann á
hverjum einasta degi. Hún gerði
allt sem hún gat hugsað sér til að
reyna að ná sambandi við hann.
Hún talaði við hann, las fyrir
hann, söng fyrir hann og lék
hljómplötur, sem hann hafði
haft mikið dálæti á. En allt kom
fyrirekki. Roger lá fölur sem nár
á koddanum, og þó að bæði augu
hans væru opin tóku þau ekki eftir
neinu. Hann heyrði ekkert, sama
hversu hátt var sungið eða spilað.
Þegar móðir hans gekk frá
sjúkrahúsinu þann 22. febrúar s.l.
varenn allt við það sama. Eins og
venjulega hafði hún spurt
hjúkrunarkonuna að þvi, hvort
drengurinn hennar hefði gefið
nokkuð hljóð frá sér, eða hvort
nokkuð benti til þess, að hann
væri að vakna aftur til lifsins.
En eins og venjulega var svarið
nei.
Man ekkert frá deginum
fyrir slysið
Hún var niðurdregin þegar hún
gekk tilsjúkrahússinsdaginn eftir.
Roger var þá búin- að vera þar i
yfir þrjá mánuði, og það hafði
ekki orðið nein breyting á honum
allan þennan tima. En þegar hún
opnaði dyrnar á sjúkraherberg-
inu var drengurinn vaknaður.
Hann lá og brosti yfir allt andlitið
þegar hann sá hana og reyndi að
lyfta hægri hendinni til að veifa til
hennar.
Það fyrsta, sem hann sagði var
að hann vildi fara heim. Ég
reyndi að segja honum hvað hefði
komið fyrir, en hann trúði þvi
í þrjá mánuði
ekki að hann væri búinn að sofa
þarna stanzlaust i meir en þrjá
mánuði. Þegar það var búið gaf
ég mér tima til að hlaupa fram og
segja læknunum, að hann væri
vaknaður. Þeir vildu fyrst ekki
trúa mér, en komu samt með, og
fóru þegar að rannsaka hann. A
meðan gat ég farið og hringt i
manninn minn og aðra ættingja
til að segja þeim gleðifréttina.
Læknarnir, sem rannsökuðu
drenginn sögðu að hann yrði fljótt
fullfriskur. Hann þekkir allt og
hefur sýnilega ekki gleymt neinu
af þvi, sem hann hefur lært.
Það eina sem hann man ekki úr
sinni 14 ára fortið, er dagurinn,
sem han n varð fyrir slysinu,
dagurinn þar á undan og rúmir
niutiu dagar þar á eftir.
En þó að læknarnir segi, að
Roger komi til með að ná sér and-
lega, verður nokkuð bið á þvi, að
hann nái sér likamlega. Hann er
svo til lamaður vinstra megin.
Hann getur að visu hreyft bæði
hendina og fótinn, en það er litið
enn sem komið er. Hann stundar
æfingar af fullum krafti og er
mjög kappsfullur i þeim. Þá á
hann einnig vont með að tala.
Raddböndin sködduðust i slvsinu
og þau stirðnuðu upp þegar hann
notaði þau ekki i yfir þrjá
mánuði.
Hann getur þó likillega talað,
en að mestu ræöir hann við
foreldra sina og leikfélaga, sem
koma i heimsókn til hans með þvi
að skrifa á töflu, sem hann hefur
við rúmið.
Var yfir 6 tíma á skurðar-
borðinu
Roger var á reiðhjóli þegar
hann varð fyrir bilnum. Hann
gleymdi að gefa merki um að
hann ætlaði að beygja, og hjólaði
þvert yfir götuna þar sem stór
vöruflutningabill kom á mikilli
ferð. Hann kastaðist yfir þakið á
bilnum og lenti með brjóstið á
stórum steini, sem var við veg-
kantinn.
Hann var þegar fluttur á
sjúkrahús, þar sem hann var á
skurðarborðinu i sex klukku-
stundir. Læknarnir sögðu, að það
hafi orðið honum til lifs, að hann
var sterkbyggður og i mikilli lik-
amsþjálfun. Hann hafði lika æft
knattspyrnu og körfuknattleik frá
þvi að hann var smá barn og
einnig verið mikið á skiðum. Var
hann talinn einn af efnilegustu
skiðamönnum i Strömmen og
næsta nágrenni.
Roger segist gera sér grein
fyrir þvi, að hann eigi ekki
framar eftir að verða nein
iþróttastjarna i þessum upp-
áhaldsgreinum sinum. En hann
er staðráðinn i þvi að finna sér þá
einhverja aðra iþróttagrein, sem
komi til með að henta sér betur.
Annars sé hann ánægðastur yfir
að hafa vaknað aftur eftir þennan
langa svefn, sem hafi tekið meir
en þrjá mánuði af lifi sinu.-klp-
MÁLVERKASÝNING Á
AKRANESI UM PÁSKANA
Jónas Guðmundsson stýrimaður sýnir
í Iðnskólanum ó Akranesi
Jónas Guðmundsson, rit-
höfundur og listmálari heldur
málverkasýningu á Akranesi yfir
páskana. Sýningin verður opnuð
miðvikudaginn 18. april og verður
hún opin daglega frá klukkan
16,30-22,00, og henni lýkur á
annan i páskum.
Sýningin verður lokuð á föstu-
daginn langa.
Þetta er þriðja einkasýning
Jónasar Guðmundssonar, en
hann hefur einnig sýnt verk sin á
samsýningum. Að þessu sinni
sýnir hann um 45 myndir, flest
oliumálverk, og er myndefnið
yfirleitt sótt i sjómennsku og sigl-
ingar, en að auki eru landslags-
myndir, mannamyndir og dýra á
sýningunni að þessu sinni.
Jónas Guðmundsson hefur langan
rithöfundarferil að baki og er
einkum kunnur af fjölmörgum
bókum sinum. Hann hefur hin
siðari árin látið æ meir að sér
kveða i myndlistinni, og eru mál-
verkin á sýningunni flest ný,
máluð á þessu og siðasta ári, en
einnig eru sýnd eldri verk, þar á -
meðal vatnslitamynd frá árinu
1946, svo eitthvað sé nefnt.
Myndlistarsýningum Jónasar
Guðmundssonar hefur ávallt
verið mjög vel tekið og prýða
málverk hans nú viða hús manna,
en auk þess eru allmargar
myndir hans i opinberri eigu. Er
mikill fengur að sýningu Jónasar
fyrir Akurnesinga og nágrennið,
en sýningin er haldin i Iðnskóla-
húsinu. Myndirnar eru flestar til
sölu.
Auk málverkanna hyggst lista-
maðurinn sýna fáeinar bóka-
skreytingar, er hann hefur gert i
bækur sinar og timaritsgreinar.